Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 64
Þjóðgarður í Borgarfirði.
Eftir Halldór Sigurósson.
I 4. hefti „DVALAR“ 1938 er grein
eftir Steindór Steindórsson, er nefn-
ist Náttúrufriðun. Grein þessi er það
athyglisverðasta, er ég hefi séð ritað
um þetta mál, en um náttúrufriðun
og önnur skyld mál er nú ritað meira
en fyrr hefir verið gert og af meiri
skilningi.
Nú er það svo, að „DVÖL“ er svo
útbreitt og athyglisvert tímarit, og
greinarhöfundurinn að svo góðu
þekktur, að ætla má, að grein þessi sé lesin af öllum þorra
þeirra, er tímarit lesa sér til gamans á þessu landi. En
þeim, sem ekki hafa lesið greinina, vildi ég ráða til að gera
það nú fyrir sumarið, — og þeir, sem hafa lesið hana einu
sinni, ættu að gera það aftur.
Viðskiptum okkar við náttúru lands vors er mjög ábóta-
vant. Mér verður minnisstætt eitt veðurblítt sumarkvöld,
er ég kom að Arnarvatni. Ég valdi mér náttstað og tjald-
aði við Skammá, bak við Tjaldhól, þar sem áin streymir
lygn meðfram grösugum bökkum, áður en hún fellur í
breiðum fossi fram hjá hólnum ofan að vatninu.
til að nágrannar synji hver öðrum bónar, ef hægt er að
láta hana í té.
Sauðfjárpest hefir geisað hér í dalnum frá því á síðara
hluta ársins 1936 og til þessa dags, hin svonefnda mæði-
veiki. Á síðastliðnu nýjári var fallið úr henni rúmlega
1400 fjár. Hver áhrif fjárpest þessi kann að hafa á af-
komu manna, verður ekki séð nú. En það er víst, að fjár-
hagslegir örðugleikar sigla í kjölfar hennar.
Sverrir Gíslason.
HaUdór Sigurðsson.