Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 30
28
sem skiptast á mosagróin holt og mýrarsund. Um hana
liggur þjóðvegurinn til Norðurlandsins.
Neðantil í Norðurárdal er allmikið láglendi og er mik-
ill hluti þess þakinn hrauni, Grábrókarhrauni, en víða
standa upp úr því blágrýtishólar, skógivaxnir. Hraun þetta
hefir komið úr tveim gígum, Grábrók, er stendur fast við
þjóðveginn, og Grábrókarfelli, sem er örlítið vestar, og
hefir meginhluti hraunsins runnið þaðan. Kring um bæði
gígopin hefir hrúgazt mikið af gjalli og brunnu grjóti og
myndað allhá fell með djúpum skálum ofan í, þar sem
hraunið hefir fengið útrás. Hraunið hefir sennilega runn-
ið lítið eitt fyrir landnámstíð, en er nú víða mikið gróið,
bæði birki og grasi, einkum þó meðfram Norðurá, en hún
rennur með suðausturrönd hraunsins og hefir á nokkru
svæði brotizt gegnum það. Þegar hrauninu sleppir, taka
við víðáttumikil engjalönd, sem ná hlíða á milli í dalnum,
Norðurá og Bjarnadalsá liðast um þau í mörgum kvíslum og
skipta þeim niður í ýmsa hluta: Hrauney, Desey (Dysey)
og Hvassafellsengjar eru helztir. Framanvert við sléttlendi
þetta lokast dalurinn næstum því af allhárri hæð, er Arn-
arbæli nefnist. Þvínæst skiptast á grasigrónar eyrar og
sendnar, er ná allt að Sanddalsá. Þá tekur dalurinn mjög
að þrengjast og hækka, og er undirlendi sáralítið úr því.
Eftir Norðurárdal rennur Norðurá. Ilún á upptök
sín í Holtavörðuvatni, sem er lítið vatn upp af drögum
dalsins milli Holtavörðuheiðar og Snjófjalla. Norðurá er
í fyrstu mjög vatnslítil, en vex óðfluga eftir því sem neðar
dregur, enda kemur í hana fjöldinn allur af ám og lækj-
um. Víðast hvar er hún fremur lygn, liðast milli sandeyra
og vallgróinna bakka. Undantekning hér frá er þó svæðið
milli Fornahvamms og Króks, þar rennur hún eftir grunnu
gljúfri, um flúðir og klappir, og á einum stað myndast
þar lágur foss, er Króksfoss nefnist. Hæstur allra fossa í
Norðurá er Glanni. Hann er við suðaustur-rönd Grábrók-
arhrauns; nokkru neðar er Laxfoss, er samkvæmt hreppa-
mörkum telst til Stafholtstungna, en heyrir Norðurárdal
til landfræðilega. Báðir hinir síðastnefndu fossar eru