Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 13
11
kosnir með tilliti til þess“. — Varð þessi samþykkt
fyrsta sporið til þeirra skipulagsbreytinga, er síðar
voru gjörðar á sambandi U. M. F. í.
5. Samþykkt var tillaga frá Andrési Eyjólfssyni þess
efnis, að félögin skiptust á heimsóknum sín á milli,
til að auka fjör og fjölbreytni á fundum félaganna.
Var þetta og nokkuð starfrækt innan félaganna á
næstu árum.
6. Þá var rætt um íþróttakennslu og nauðsyn þess, að
henni yrði komið á. Var stjórninni falið að athuga
málið og vinna að því eftir mætti, og leiddi þetta til
þess, að síðar var glímunámskeið haldið, menn send-
ir til Reykjavíkur til náms, og menn látnir fara um
á milli félaganna, og halda hjá þeim námskeið.
7. Loks var rætt um tóbaksbindindi, fjárhagsáætlun, er
var samþykkt með kr. 39,00 tekjum og kr. 15,00 út-
gjöldum, — tölur, sem ekki þykja háar nú, — og
svo var kosin stjórn. — Páll Zóphóníasson sagðist
verðafjarverandi sumarlangt, og var því ekki kosinn.
— Jón Hannesson var kosinn formaður. Andrés Eyj-
ólfsson og Bjarni Ásgeirsson meðstjórnendur.
Fyrsta íþróttamótið 10. ágúst 1913.
Fyrsta íþróttamót sambandsins var haldið að Hvítár-
bakka 10. ágúst sumarið eftir. Mótinu stjórnaði formað-
ur íþróttanefndar, Bjarni Ásgeirsson. Þá fór fram flokka-
keppni í sundi og glímu samkvæmt reglum sambandsins,
og mun það vera í fyrsta sinni hér á landi, er sú tilhögun,
er viðhöfð í íþróttasamkeppni. Ungmennafélag Reykdæla
sigraði í báðum þessum íþróttum og fékk verðlaunaskildi,
sinn fyrir hvora íþrótt. Skyldu þeir verða eign þess félags,
er ynni þá þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. En bezti
íþróttamaður mótsins í báðum þessum greinum var Sig-
.urður Gíslason úr U. M. F. Islendingi, síðar bóndi að
Hamraendum, og fékk hann tvo verðlaunapeninga. I fimm
hundruð metra hlaupi sigraði Karl Guðmundsson úr Is-
lendingi og í hundrað metra hlaupi sigraði Bjarni Hall-