Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 10
8
Vigfús Guðmundsson, Hvanneyri, og Ingimar Jóhannes-
son, Hvanneyri.
Frá U. M. F. Hvöt: Sigurður Sigurðsson, Lambhaga, og
Árni Böðvarsson, Vogatungu.
Frá U. M. F. Björn Hítdælakappi: Magnús Sigurðsson á
Kálfalæk.
Frá U. M. F. Egill Skallagrímsson: Guðmundur Þor-
valdsson, Litlu-Brekku, og Oddur Jónsson, Álftanesi.
Frá U. M. F. Baulu: Sverrir Gíslason, Stafholti.
Á þessum fundi leggja þeir Páll Zóphóníasson og Jón
Hannesson fram uppkast að lögum fyrir væntanlegt hér-
aðssamband. Málið er rætt allmikið, en sú skoðun varð
ofan á á fundinum, að fulltrúar þeir, sem þar voru mætt-
ir, hefðu ekki fullkomið umboð frá félögum sínum til þess
að binda þau við lög og samþykktir, er þarna væru
gjörðar, án þess að bera undir þau. Var því ákveðið að
samþykkja lög og kjósa stjórn fyrir væntanlegt héraðs-
samband, — hvorttveggja til bráðabirgða. — Lögin yrðu
síðan borin upp heima í félögunum, en stjóm þeirra til-
kynnti síðan sambandsstjórn jafnóðum og lögin yrðu sam-
þykkt í félögunum, og teldust þau úr því í sambandinu.
Páll Zóphóníasson var kosinn formaður, og Jón Hannes-
son og Andrés Eyjólfsson meðstjórnendur.
Hvað fyrir stofnendum hefir vakað, sést bezt með því
að birta hér orðrétt 2. gr. bráðabirgðalaganna: „Tilgang-
ur sambandsins er að sameina krafta hinna einstöku ung-
mennafélaga á sambandssvæðinu, til þess að ná sem bezt
stefnu eða takmarki ungmennafélaga. Tilgangi sínum
hugsar sambandið sér að ná með því að: 1. Halda íþrótta-
mót að sumrinu, þar sem félagsmönnum gefist kostur á
að taka þátt í íþróttum og keppa til verðlauna, er nán-
ar skulu ákveðin á aðalfundi ár hvert. 2. Halda umræðu-
fundi. Einn þeirra sé jafnframt aðalfundur, og sé hann
haldinn að vetrinum. 3. Hlutast til um að íþróttakennslu
sé komið á í ungmennafélögunum".
Um vorið og sumarið eftir tilkynna svo öll þau félög, er