Svanir - 01.05.1939, Blaðsíða 5
Formáli.
Rit það, er hér kemur fyrir almenningssjónir og gefiö
er út af Ungmennasambandi BorgarfjarÖar, er ekki það
mikiö aö vöxtunum, aÖ útkoma þess geti talizt verulegur
bókmenntaviðburöur. Samt sem áöur verÖur aö gera
nokkra grein fyrir tildrögum og tilgangi þessarrar útgáfu.
Á héraðsþingi U. M. S. B. í apríl 1938 voru uppi raddir
um það, aÖ æskilegt væri, að sambandiö gæfi út rit eöa
blaö, þar sem m. a. væri skráö saga þess og svo eitt og
annaö varöandi ungmennafélögin í Borgarf jaröarhéraöi
og viöfangsefni þeirra. Var stjórninni falin athugun á
þessu máli og framkvæmd þess, ef hún áliti hana færa.
Á síðastliðnu hausti tólc svo sambandsstjórnin þetta
fyrst til athugunar. Var hún einhuga um, aö æskilegt væri
aö geta hrundiö þessu í framkvæmd á þessu ári. Hóf hún
von bráöar undirbúning eftir aö hafa skapaÖ sér grund-
völl, sem ritið skuli byggjast á í framtíöinni. En í stuttu
máli er ætlunin meö ritinu þessi:
Ritið á að koma út einu sinni á ári. Því er einkum ætl-
aö ræða áhugamál sambandsf'élaga U. M. S. B. og önn-
ur héraðsmál, er það telur sig skipta. Það birtir ágrip af
sögu sambandsins og fregnir af starfi kinna einstöku fé-
lagsdeilda. Myndir og æfiágnp ýmissa forvígismanna
héraösins er því ætlaÖ að flytja, en þó fyrst og fremst
þeirra, sem meira eöa minna koma viö sögu U. M. S. B.
Þá er ætlunin, að ritið birti árlega landfræðilega og
sögulega lýsingu af einni eöa tveimur sveitum í Mýra- og
Borgarfjaröarsýslu og komi þannig smám saman all-
greinileg lýsing á öllu héraöinu. Ef vel tekst meö slíkar
lýsingar, geta þær síöar meir orðið ágætar heimildir um
hagi fólksins í þessu héraöi og um þróun byggöanna á
þessarri öld.