Ný saga - 01.01.1998, Page 89

Ný saga - 01.01.1998, Page 89
Islensk sauðnautasaga konungur gerði för sína til Grænlands vorið 1921, og danska innanríkisráðuneytið gaf út formlega yfirlýsingu um að stjórn Dana á Grænlandi næði til alls landsins. Fáeinum dögum síðar var gefin út tilkynning til sjó- farenda um að allar hafnir Grænlands væru lokaðar fyrir unrferð, nema að fengnu leyfi danskra yfirvalda, og í sörnu tilskipun var því slegið föstu að einkaleyfi verslunarinnar næði til alls landsins, einnig Austur-Grænlands.6 Það fyrrnefnda var í raun engin nýjung, því leyfi hafði þurft til að sigla á grænlenskar liafnir allt frá því að Grænlandsverslunin, Den Kongelige Grpnlandske Handel, fékk einkaleyfi til verslunar í landinu árið 1776.7 Þótt Danir teldu norsk stjórnvöld hafa við- urkennt óvefengjanlegt danskt fullveldi á öllu Grænlandi með yfirlýsingu Ihlens var því ekki að heilsa í Noregi þar sem öflugir þrýstihópar héldu fram rétti Norðmanna til Grænlands, einkum til veiða á austurströnd landsins. Kröfur Norðmanna leiddu til þess að árið 1924 var í ntálamiðlunarskyni gerður milli Dana og Norðmanna svokallaður Austur- Grænlandssamningur, sem heimilaði Norð- mönnum að stunda veiðar á Norðaustur- Grænlandi og hafa þar aðrar takmarkaðar landnytjar. I honum voru meðal annars ákvæði um að fyllstu hófsemi skyldi gætt við sauðnautaveiðar og ekki felld fleiri dýr en nauðsynlegt væri.8 Skömmu áður höfðu verið settar reglur sem veittu sambandsþjóðunum, Dönum og Islendingum, þessi sömu réttindi, og þar voru einnig samskonar ákvæði unt dýraveiðar.9 Þótt Austur-Grænlandssamningurinn væri samþykktur af ríkisstjórnum Danmerkur og Noregs batt hann ekki endi á deilu landanna um Grænland. Norsk þjóðernisstefna naul vaxandi fylgis á þriðja áratugnum og fylgis- menn hennar létu sér annt um að minna á það í ræðu og riti, að Grænland væri að réttu lagi fylgiland Noregs frá fornu fari, en hefði verið svikið undan við friðarsamningana í Kiel árið 1814. Krafa Norðnranna um yfirráð á Grænlandi átti sér fyrst og fremst sögulegar og þjóðern- islegar forsendur því efnahagsleg þýðing Grænlands fyrir norskl atvinnuh'f var fremur lítil, og einkum bundin fiskveiðunr við vestur- strönd landsins, en ekki dýraveiðunr á Norð- austur-Grænlandi,10 senr þó urðu helsta bit- beinið, enda var þar um að tefla einu raun- verulegu ítök Norðmanna í nýtingu græn- lenskra náttúruauðlinda. Vorið 1931 hljóp deila norrænu grannríkj- anna um Grænland í harðan hnút. Helstu ásteytingsefnin voru ágreiningur unr fullveld- isréttinn, sem birtist í deilu unr það livor þjóð- in skyldi fara nreð lögregluvald yfir norskunr veiðinrönnunr á Grænlandi - og lrinar umdeildu sauðnautaveiðar. Hópur norskra veiðimanna undir forystu heimskautafarans Haralds Devolds, senr staddur var á Norðaustur-Græn- landi, tók sig þá til og lýsti yfir því í nafni Há- konar konungs, að hluti Norðaustur-Græn- lands væri norskt land og nefndi svæðið Land Eiríks rauða. Næsta ár lýstu svo veiðinrenn annað svæði, sunnar á strönd Austur-Græn- lands, norskt yfirráðasvæði. Þótt norsku ríkis- Mynd 4. Vélskipið Gotta var búið út í leiðangur til Grænlands i þeim tilgangi að ná lifandi sauðnautum og flytja þau hingað til lands. Á mynd- inni, sem tekin var í Reykjavikurhöfn, er verið að skipa út heyi sem ætlað var sauðnautunum á heimsiglingunni. 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.