Morgunblaðið - 04.06.2011, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 2011
Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
Hagsmunasamtök heimilanna hafa
skorað á Alþingi að nema lög nr.
151/2010 um breytingar á lögum um
vexti og verðtryggingu tafarlaust úr
gildi og taka þau jafnframt til
endurskoðunar fyrir áætluð þinglok,
9. júní 2011. Samtökin telja að alvar-
legir meinbugir séu á lögunum sem
hafi þær afleiðingar í för með sér að
innheimta banka og sparisjóða á
endurútreiknuðum lánum brjóti í
bága við meginreglur kröfuréttar,
neytendaverndar og jafnvel
stjórnarskrár.
Þá segja samtökin að fullkomin
óvissa ríki um réttmæti laganna
samkvæmt reglum Evrópska efna-
hagssvæðisins og þeim Evróputil-
skipunum sem innleiddar hafa verið
í íslensk lög.
„Ekkert í farvatninu“
Andrea J. Ólafsdóttir, formaður
Hagsmunasamtaka heimilanna, seg-
ir að áskorunin sé hugsuð sem eins
konar „neyðarráðstöfun“ fyrir hönd
neytenda.
„Það virðist sem þingmenn Al-
þingis séu á leið í sumarfrí og það er
ekkert í farvatninu sem bendir til
þess að taka eigi þessi lög og endur-
skoða þau þrátt fyrir margar ábend-
ingar þess efnis, meðal annars frá
talsmanni neytenda og umboðs-
manni skuldara og kvörtun okkar til
Eftirlitsstofnunar EFTA virðist
ekki heldur hafa náð eyrum þing-
manna,“ segir Andrea.
Samtökin segja í áskorun sinni til
Alþingis að óviðunandi sé að fjár-
málafyrirtækjum hafi verið gert
kleift á grundvelli laganna að út-
færa, hvert fyrir sig, endurútreikn-
inga sína á lánum.
Þau benda jafnframt á að sú stað-
reynd að hvorki Lagastofnun Há-
skóla Íslands né lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík hafi séð sér fært að
veita álit um rétta túlkun laganna sé
til vitnis um markleysu þeirra.
„Gallarnir á þessum lögum eru
augljósir en það virðist vera svo að
ætlunin sé að leyfa fjármálafyrir-
tækjum að hámarka gróða sinn. Í
stað þess að þau séu dregin til
ábyrgðar er þeim rétt hjálparhönd
við að fá sem bestar endurheimtur á
lánunum. Okkur finnst varhugavert
að gengið sé svona hart gegn neyt-
endum og við myndum vilja sjá
kjörna fulltrúa gera eitthvað í mál-
inu. Það er mjög brýnt að endur-
skoða þessi lög,“ segir Andrea.
Gamlar kröfur, þegar greiddar
Hagsmunasamtök heimilanna
telja að með lögunum sé brotið gegn
meginreglu kröfuréttar um að lán-
veitanda sé óheimilt að beita aftur-
virkum aðgerðum á kostnað lántaka.
„Það er verið að endurvekja
gamlar kröfur sem þegar eru
greiddar. Þetta gengur gegn Evr-
óputilskipunum og neytendur eiga
ekki að þurfa að þola slíka aftur-
virkni og eiga rétt á betri eða jafn-
góðum samningi og þeir höfðu í upp-
hafi,“ segir Andrea.
Breytingarlögunum
verði breytt hið fyrsta
Hús Hagsmunasamtök heimilanna telja hart gengið fram gegn neytendum.
Hagsmunasamtök
vilja endurskoðun á
lögum um vexti
Áskorun
» Hagsmunasamtök heim-
ilanna hafa skorað á Alþingi að
fella úr gildi breytingu á lögum
um vexti og verðtryggingu.
» Samtökin telja að lögin
brjóti gegn meginreglum
kröfuréttar, neytendaverndar
og jafnvel stjórnarskrár.
Janus Arn Guðmundsson
janus@mbl.is
Nýtt félag að fyrirmynd Samtak-
anna ’78, hagsmuna- og baráttu-
samtaka hinsegin fólks á Íslandi,
var stofnað í Færeyjum sl. miðviku-
dag. Félagið, sem ber nafnið LGBT,
hélt stofnfund
sinn í Þórshöfn,
höfuðstað Fær-
eyja, en þar eru
íbúar um 20.000.
„Mætingin var
framar okkar
björtustu vonum,
en um 100 manns
mættu á fund-
inn,“ sagði Bjarni
Lisberg, nýkjör-
inn formaður
samtakanna LGBD í Færeyjum.
Að sögn Bjarna hafa viðtökurnar
verið góðar. „ Fordómar í Fær-
eyjum hafa farið minnkandi síðustu
ár, við erum að sjálfsögðu lítið sam-
félag en ætlum okkur að gera hvað
við getum til að opna fyrir umræðu
um hinsegin fólk,“ segir Bjarni.
Að sögn Bjarna var mikið áfall að
heyra yfirlýsingar Jenis av Rana,
formanns Miðjuflokksins í Fær-
eyjum og þingmanns á færeyska
lögþinginu, en hann neitaði að
snæða kvöldverð með Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra í
opinberri heimsókn hennar til Fær-
eyja. „Nú get ég ekki talað fyrir
hönd allra, en ég fann það að fólk í
Færeyjum var alls ekki ánægt með
yfirlýsingar þeirra stjórnmála-
manna sem létu þessi ummæli
falla,“ segir Bjarni.
Hann kveðst bjartsýnn á fram-
haldið. „Við höfum tvö meginmark-
mið; annars vegar ætlum við okkur
að breyta viðhorfi til ýmissa minni-
hlutahópa og hins vegar að berjast
fyrir að lögleiða hjónabönd og ætt-
leiðingar hinsegin fólks,“ segir
Bjarni og lýsir yfir samstarfsvilja
við Samtökin ’78.
„Samtökin ’78 fagna mjög þessari
þróun í Færeyjum, við munum að
sjálfsögðu gera allt sem í okkar
valdi stendur til að styðja við þetta
félag og leggja okkar af mörkum til
þess að styðja við bakið á frændum
okkar,“ segir Árni Grétar Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Samtak-
anna ’78. Hann segir það miður hve
staða hinsegin fólks í Færeyjum sé
bágborin.
Samtökin ’78 búi yfir gríðarlegri
þekkingu og mannauði sem hafi á
síðustu 30 árum komið Íslandi á
þann góða stað sem það er á í dag.
„Ef það getur orðið hinu nýstofnaða
færeyska félagi að liði þá er það
sjálfsagt mál að veita þeim stuðn-
ing,“ sagði Árni Grétar að lokum.
Samkynhneigðir í
Færeyjum fagna
Samtökin ’78 bjóða fram aðstoð sína
Fordómar í Færeyjum minnka
Stjórn Nýkjörin stjórn félagsins
LGBT í Færeyjum. Bjarni Lisberg
efst til vinstri.
Árni Grétar
Jóhannsson
Til hamingju
með daginn!
Íslenskur sjávarútvegur og framlag sjómanna skiptir
okkur öll máli. Við óskum sjómönnum og fjölskyldum
þeirra til hamingju með daginn.