Morgunblaðið - 08.07.2011, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2011
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Komnar aftur
Hvítar skyrtur
,
Smáralind, sími 554 3960 • Kringlunni, sími 533 4533
Tax-free-bomba
Fríhafnarverð
Verið velkomi
n
Fríhafnarverð á öllum vörum
í verslunum okkar þessa helgi
fimmtudag til sunnudags
Sjá
sýnisho
rn á
www.l
axdal.i
s
Laugavegi 63 • S: 551 4422
STÓRÚTSALA
30% - 50% AFSLÁTTUR
Morgunblaðið/Ómar
Kópur stillti sér upp fyrir gesti Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins og vakti mikla gleði áhorfenda, yngri jafnt
sem eldri. Hann hefur verið nafnlaus síðan í vor.
Selirnir vekja ávallt athygli og hrifningu gesta en þeir
eru villt dýr og ber að varast þá í umgengni, t.d. geta sel-
irnir bitið í litlar hendur sem reyna að koma við þá.
Stillir sér upp fyrir forvitna gesti
Aldrei hafa fleiri ferðamenn sótt Ís-
land heim en í liðnum júnímánuði.
Samkvæmt talningum Ferðamála-
stofu fóru 65.606 erlendir ferðamenn
frá landinu um Leifsstöð í síðasta
mánuði eða 11.215 fleiri en í sama
mánuði í fyrra. Aukningin nemur
20,6% milli ára.
Ef litið er til einstakra markaðs-
svæða má sjá 50,4% aukningu frá N-
Ameríku, 17% aukningu frá Norður-
löndum, 15,7% frá Mið- og Suður-
Evrópu, 7,6% frá Bretlandi og 12%
frá löndum innan og utan Evrópu
sem eru flokkuð saman undir ,,ann-
að“.
Af einstaka þjóðum voru flestir
ferðamenn í júní frá Bandaríkjunum
(17,7%) og Þýskalandi (14,6%) en
þar á eftir fylgdu ferðamenn frá
Noregi (8,1%), Danmörku (6,9%),
Bretlandi (6,6%), Svíþjóð (6,1%) og
Frakklandi (6,0%). Samanlagt voru
þessar sjö þjóðir tæplega tveir
þriðju ferðamanna í júní.
Aukning milli ára 20,8%
Alls hafa 206.886 erlendir ferða-
menn farið frá landinu það sem af er
ári eða 35.636 fleiri en á sama tíma-
bili í fyrra. Aukningin milli ára nem-
ur 20,8%.
Aldrei fleiri
ferðamenn
Lára Hilmarsdóttir
larah@mbl.is
„Við erum að horfa til þess að þessi
stökkbreyting sem kom á lánin verði
leiðrétt og að ábyrgðinni sé dreift á
lánveitendur, líka þannig að heimilin
beri aldrei meira en 4% verðbætur á
ári, að hámarki. Þar að auki viljum
við koma okkur út úr þessu verð-
tryggða lánakerfi, fara yfir í nýtt
lánakerfi þar sem væru óverð-
tryggðir vextir sem taka ekki verð-
bólguna inn í,“ segir Andrea J.
Ólafsdóttir, formaður Hagsmuna-
samtaka heimilanna.
Samtökin hófu í dag undir-
skriftasöfnun þar sem þau krefjast
„almennrar og réttlátrar leiðrétt-
ingar á stökkbreyttum lánum heim-
ilanna og afnáms veðtryggingar,“
eins og fram kemur í kröfugerð sam-
takanna. Þau telja að lántakendur
hafi orðið fyrir tjóni og forsendu-
bresti.
Hagsmunasamtök heimilanna
skora á stjórnvöld að stjórnar-
frumvarp, sem tekst á við ofan-
greindar kröfur, verði lagt fram eigi
síður en á næsta haustþingi, og það
verði samþykkt fyrir áramót. Verði
stjórnvöld ekki við þessari kröfu fyr-
ir 1. janúar 2012, munu samtökin
fara fram á þjóðaratkvæðagreiðslu
um kröfugerðina.
Óréttlát og ósanngjörn leið
„Sú leið sem valin var að fara, þessi
110%-leið, hún er svo ofboðslega
óréttlát og ósanngjörn,“ segir Andr-
ea. Sú lausn felur í sér að „heimilum,
þar sem áhvílandi veðskuldir eru
umfram 110% að verðmæti fast-
eignar, býðst að færa veðskuldir sín-
ar niður að 110% af verðmæti eigna,“
eins og fram kemur í samkomulagi
lánveitenda á íbúðalánamarkaði um
verklagsreglur í þágu yfirveðsettra
heimila. Andrea spyr svo: „Hverjir
eru það sem fá slíkar leiðréttingar?“
Jafnt gangi yfir alla
„Sá hópur sem eftir situr, sem er
þorri þjóðarinnar, er með ævisparn-
aðinn sinn í eignarhluta, í húsnæði
sínu og hann er að brenna núna í
verðbólgu með hækkandi lánum,“
bætir hún við. „Við viljum að þetta
óréttlæti sé ekki látið viðgangast,“
segir Andrea.
Krefjast almennra leiðréttinga
á stökkbreyttum lánum
„110%-leiðin ósanngjörn og óskilvirk“ Krefjast þjóð-
aratkvæðagreiðslu bregðist stjórnvöld ekki við fyrir 2012
Konan sem handtekin var vegna
rannsóknar á andláti barns við Hótel
Frón í Reykjavík hefur verið úrskurð-
uð í farbann til 4. ágúst, að kröfu lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Málið hefur verið í rannsókn frá því
það kom upp, en í tilkynningu frá lög-
reglu segir að miðað við það sem kom-
ið hafi fram þyki skilyrði fyrir gæslu-
varðhaldi yfir konunni ekki lengur
fyrir hendi.
Rannsókn lögreglu beinist nú að því
hvort konan kunni að hafa gerst brot-
leg við 212. grein almennra hegning-
arlaga, en greinin tekur til þess þegar
móðir deyðir barn sitt í fæðingu eða
undir eins eftir hana, „og ætla má, að
hún hafi gert það vegna neyðar, ótta
um hneisu eða sökum veiklaðs eða
ruglaðs hugarástands sem hún hefur
komist í við fæðinguna“. Brot á grein-
inni varðar allt að 6 ára fangelsisvist.
Bar ábyrgð á andláti barnsins
Allt þykir benda til þess, í ljósi
rannsóknar og bráðabirgðaniður-
stöðu krufningar, að barnið hafi fæðst
heilbrigt, en það hafi látist með vo-
veiflegum hætti. Lögregla telur jafn-
framt að ekki leiki vafi á því að konan
hafi fætt barnið og að hún beri ábyrgð
á andláti þess. Hún hafi sjálf komið
því fyrir í sorpgeymslunni, hvar það
fannst fyrir tæpri viku. Ennfremur
þykja gögn málsins benda til þess að
„allt þetta hafi gerst án þess að aðrir
hafi haft eða fengið um það vitn-
eskju,“ að því er segir í tilkynningu
lögreglu.
Gæti átt yfir höfði
sér 6 ára fangelsi
Útburðurinn án vitneskju annarra
Rannsókn
» Það sem rannsókn hefur
leitt í ljós þykir benda til þess
að konan hafi fætt heilbrigt
barn og komið því fyrir í sorp-
geymslu án vitneskju annarra.
» Hún gæti átt yfir höfði sér 6
ára fangelsisvist, verði hún
fundin sek.
Í frétt Morgunblaðsins í gær um
lækna um borð í þyrlum Land-
helgisgæslunnar voru þau mistök
gerð að Jón Magnús Kristjánson,
yfirlæknir neyðarþjónustu Land-
spítalans, var rangfeðraður. Til að
bæta gráu ofan á svart birtist
mynd af forvera Jóns í starfi, Jóni
Baldurssyni, með fréttinni. Beðist
er velvirðingar á þessum mistök-
um.
Borgin kærð
Ranglega var sagt í Morg-
unblaðinu í gær að innanríkisráðu-
neytið hefði verið kært vegna
sameiningar leikskóla í Reykjavík.
Það var borgin sem var kærð og
kæran lögð inn hjá ráðuneytinu,
sem fer með sveitarstjórnarmál.
Beðist er velvirðingar á þessu.
LEIÐRÉTTT
Rangt föðurnafn
- nýr auglýsingamiðill
569-1100