Morgunblaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Maður sem fyrr í vikunni var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald vegna
gruns um nauðgun á Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum var færður fyrir
dómara í gær þar sem farið var
fram á framlengingu gæslu-
varðhalds hans. Dómari við Hér-
aðsdóm Suðurlands tók sér frest
þangað til í dag til þess að ákveða
hvort fallist verði á kröfu lögreglu
um fjögurra vikna framlengingu.
Lögreglan á Selfossi fer með
rannsókn kynferðisbrotamálanna
sem upp komu á Þjóðhátíð, en hún
rökstuddi beiðni um framlengingu
með vísan til almannahagsmuna.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni hefur maðurinn áður
gerst sekur um kynferðisbrot, og
ástæða sé til þess að ætla að hann
brjóti af sér á ný. Því sé mikilvægt
að hafa hann í haldi á meðan ákæra
er útbúin. Lögreglan hefur fjögur
kynferðisbrotamál til rannsóknar
eftir hátíðina, en tvö þeirra hafa
þegar verið kærð. einarorn@mbl.is
Vilja framlengja
varðhald vegna al-
mannahagsmuna
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Áformaðar stórframkvæmdir í vega-
gerð á Suðvesturlandi, m.a. með
breikkun Suðurlands- og Vestur-
landsvegar, hafa nú í annað sinn á
tveimur árum verið slegnar út af
borðinu vegna andstöðu við veggjöld.
Starfshópur stjórnvalda og ASÍ og
Samtaka atvinnulífsins, sem skipaður
var í tengslum við gerð kjarasamn-
inga í byrjun maí, og finna átti út-
færslur á fjármögnun þessara fram-
kvæmda, hefur ekki leitað annarra
leiða til fjármögnunar. Hópurinn hef-
ur ekki komið saman frá því að tveir
fundir voru haldnir í byrjun sumars
eftir að ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu
sína.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra lýsti þá þegar andstöðu
sinni við hugmyndir um innheimtu
vegtolla og sagði í samtali í gær að
það hefði komið mjög skýrt fram að
almenningur væri andvígur því að
vegtollar yrðu teknir upp til að greiða
niður kostnað við þessar framkvæmd-
ir. Þetta væri því ekki lengur inni í
myndinni. Fulltrúar í starfshópnum
hefðu ekki komið með neinar nýjar
hugmyndir aðrar á fundunum og því
væri málið til lykta leitt á þeim vett-
vangi. Ögmundur bendir á að ríkið
verji mörgum milljörðum til annarra
verkefna í vegamálum og fráleitt sé
að halda því fram að um brigður á
samkomulagi stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðarins sé að ræða.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, segir að innanrík-
isráðherra hafi slegið þessar hug-
myndir af og ljóst sé orðið að
Ögmundur muni ekki taka þátt í að
vinna þær áfram. „Hann stöðvaði
þetta algjörlega,“ segir Vilhjálmur
„Við erum mjög ósáttir við þetta því
við töldum að það væri vilji ríkis-
stjórnarinnar að þetta næði fram að
ganga enda búið að tala um þetta mál
frá því sumarið 2009.“
Núna sé rétti tíminn til að ráðast í
þessar stórframkvæmdir þegar fjár-
festingar í landinu eru í lágmarki.
Funda um efndir stjórnvalda
Innan ASÍ líta menn svo á að þess-
ar framkvæmdir séu í lausu lofti, og
sama eigi við um fleiri stórfram-
kvæmdir, sem fyrirheit eru gefin um í
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Mikil
óánægja er innan launþegasamtak-
anna vegna þessa. „[Ögmundur] er á
móti allri fjármögnun nema þessari
hefðbundnu opinberu fjármögnun
sem er ekki til staðar,“ sagði viðmæl-
andi í ASÍ í gær. Forysta ASÍ fundar
væntanlega í næstu viku um efndir
stjórnvalda á loforðum sem gefin voru
við gerð kjarasamninganna.
Fyrirheitið var slegið af
Starfshópur sem átti að finna leiðir til að fjármagna stórframkvæmdir í vega-
gerð á suðvesturhorninu hefur lagt upp laupana Mikil óánægja innan ASÍ og SA
Starfshópurinn
» Við gerð stöðugleikasátt-
málans í júní 2009 var gefin út
yfirlýsing um breikkun stofn-
brautanna út frá höfuðborg-
inni. Starfshópur átti að skila
af sér þá um haustið. Engin
niðurstaða fékkst. Viðræður
um þátttöku lífeyrissjóða
runnu út í sandinn í fyrra.
» Starfshópur sem skipaður
var í vor heyrir sögunni til.
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
Krakkar úr skákakademíu Reykjavíkur munu tefla
skákmaraþon við gesti og gangandi til styrktar hjálp-
arstarfi Rauða krossins í Sómalíu um helgina. Í Sómal-
íu og nálægum löndum geisar nú hungursneyð og börn
deyja úr vannæringu á degi hverjum.
Donika Kolica fer fremst í flokki hinna ungu skák-
snillinga, fimmtán ára Reykjavíkurmær sem æft hefur
skák í þrjú ár og þykir afar efnileg. Hún hefur búið hér
á landi frá tíu ára aldri, en fluttist hingað frá Kosovo
árið 2007 ásamt foreldrum sínum. Hún talar því tungu-
mál sem fæstir jafnaldrar hennar hér á landi tala, en
fyrir utan íslensku, dönsku, ensku og spænsku sem
hún hefur lært í skólanum talar hún albönsku og serb-
nesku.
„Maður þarf að borga fyrir að fá að tefla. 1.500 kall
bjargar lífi eins barns, en maður má auðvitað borga
það sem maður vill. Það þarf ekki bara að vera 1.500
kall,“ segir hún. Á meðal þeirra sem ætla að mæta í
ráðhúsið og tefla við Doniku og félaga eru Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Jón Gnarr borg-
arstjóri, Bogi Ágústsson fréttamaður og útvarpsmað-
urinn bráðskemmtilegi Andri Freyr Viðarsson.
Donika vonast til þess að sem flestir láti sjá sig. „Ég
er búin að reyna að auglýsa þetta mjög mikið á Face-
book. Það sögðust margir ætla að koma og hjálpa. Ég
fæ allavega að tefla við Jón Gnarr, en ég veit ekkert
hvort ég vinn,“ segir hún.
Gegn svo sterkum andstæðingi er ekki nema eðlilegt
að borgarstjórinn fái dálitla vitneskju um herkænsku
hennar. Uppáhaldsopnun Doniku er e4, ef hún er hvít-
ur. „Bara af því að hún er eðlileg, venjuleg og gömul.
Ég kann hana bara best,“ segir hún. Hefji Jón leikinn
hins vegar á e4 mun hún svara með e5 og sækja svo
grimmt að honum.
Donika mætir á tvær stúlknaæfingar í viku hjá skák-
akademíunni í Tjarnargötu en þess utan mæta hún og
nokkrar vinkonur hennar í þrjá aukatíma í viku. Þá
getur hún mætt á strákaæfingar líka þegar hún vill.
En af hverju byrjaði Donika að æfa skák? „Ég hafði
bara ekkert að gera. Þá byrjaði ég í skák í skólanum.
Svo byrjaði ég að mæta á æfingar og mætti svo á skóla-
mót. Fyrsta mótið mitt var Reykjavíkurmót stúlkna.“
Hún segir að það hafi gengið mjög illa en nú sé hún bú-
in að æfa sig miklu meira og stefni á Norðurlandamót í
Noregi. „En fyrst og fremst er bara gaman að þessu,“
segir hún og reiknar með góðri mætingu í dag og á
morgun.
Vilja skáka matar-
skortinum í Sómalíu
Taflmaraþon fyrir Rauða krossinn í Ráðhúsinu í dag
Morgunblaðið/Ernir
Mát! Donika er fremst fyrir miðju ásamt vinum sínum úr skákakademíunni. Tafl við þau kostar 1.500 krónur.
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
16 ára
Verkfæralagerinn
Garðslanga 15 mtr
kr.1.970
Sláttuorf
frá kr.4.245
Reiðhjólafestingar á kúlu
F/2-hjól kr.4.785
Sláttuvél rafmagns
frá kr. 17.999
Framlengingarsnúra
20 mtr
kr.3.995
Lítilli einkaflugvél hlekktist á þegar
verið var að búa hana undir flugtak
frá Ísafjarðarflugvelli í gærkvöld.
Engin slys urðu á fólki, en vélin er
töluvert mikið skemmd. Tveir full-
orðnir og eitt barn voru um borð í
vélinni þegar henni hvolfdi á flug-
brautinni.
Talið er að kraftmikil vindhviða
hafi snúið vélinni þegar hún var að
taka á loft, en rannsókn á slysinu er á
byrjunarstigi. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar var sett í viðbragðsstöðu
vegna óhappsins, en þegar ljóst varð
að engin slys hefðu orðið á fólki var
tilkynningin afturkölluð. Flugvélin
lá á jaðri flugbrautarinnar þegar
ljósmyndara bar að garði skömmu
eftir óhappið.
Rannsóknarnefnd flugslysa og
lögreglan á Ísafirði munu rannsaka
tildrög óhappsins.
Lítilli flugvél
hvolfdi á Ísafirði
Engan sakaði Vélin mikið skemmd
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Á hvolfi Talið er að sterk vindhviða hafi hrifsað flugvélina með sér.