Morgunblaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Borgarstjóri
Reykjavíkur, Jón
Gnarr, ætlar að
mæta í Gleði-
göngu Hinsegin
daga í dag
íklæddur draggi
sem glæsileg
skvísa. Þemað er
Fröken Reykja-
vík og gæsirnar
við Tjörnina. Í
fyrra mætti hann
sem virðuleg
dama.
Þegar spurt er
nánar út í bún-
inga segir S.
Björn Blöndal, aðstoðarmaður borg-
arstjóra, að allt eins megi búast við
því að Jón Gnarr mæti í kjól frá
makedónska hönnuðinum Marjan
Pejoski. Sá hannaði hinn víðfræga
svanakjól Bjarkar Guðmundsdóttur
söngkonu.
Mæti og gangi á eftir bílnum
Borgarstjóri sendi út tölvupóst 3.
ágúst þar sem hann hvatti borg-
arfulltrúa og varaborgarfulltrúa til
að mæta með fjölskyldu og vini með
sér í gönguna og ganga á eftir bíln-
um sem hann verður í.
Björn segir hugmyndina um að
bjóða fólkinu með til göngunnar hafa
komið upp í fyrra en það hafi strax
þótt eðlilegt að bjóða öllum að vera
með, þó boðið færi ef til vill of seint
af stað til að allir gætu þegið það.
Nú segir hann boðið hins vegar
hafa verið sent til allra í tíma. „Til að
sýna samstöðu, því að því fleiri sem
eru þarna því betra,“ segir Björn.
Þegar spurt er út í gæsaþemað og
hvað það standi fyrir segir hann að
þemað sé einfaldlega sótt til gæs-
anna á tjörninni. Ekki sé hins vegar
ætlast til að fólk sé í búningum, hver
og einn ráði því.
Aðspurður segir Björn að undir-
tektir hafi verið dræmar, það komi
kannski ekki á óvart þar sem margir
séu í fríi.
Hvað fjármögnun varðar þá sjái
Jón Gnarr um hana sjálfur. Borgin
leggi hins vegar til bíl fyrir borg-
arstjórann.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins tekur um þrjá daga að
skreyta bílinn og sjá starfsmenn
borgarinnar um það.
sigrunrosa@mbl.is
Borgar-
stjóri Frk.
Reykjavík
Vill fá borgarfulltrúa
með í Gleðigönguna
Sami hönnuður
hannar kjól Jóns
Gnarrs og hannaði
svanakjól Bjarkar.
Íslandsmót á kænum hófst síðdegis í gær í
Skerjafirði en mótið er í umsjá Siglingafélagsins
Ýmis í Kópavogi.
Yfir fjörutíu keppendur eru skráðir til leiks en
síðari hluti keppninnar fer fram í dag og strax
að henni lokinni fer verðlaunaafhending fram í
félagsheimili Ýmis. Það getur því verið skemmti-
legt að fylgjast með kænunum í Skerjafirði í dag
og er áhugasömum bent á að útsýni yfir keppn-
issvæðið er frá Kársnesi og frá göngustígum
meðfram strönd Skerjafjarðar Reykjavík-
urmegin.
Morgunblaðið/Kristinn
Keppt á kænum í Skerjafirði
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Evran mun veita Íslandi óendanlega meiri stöð-
ugleika en krónan. Vandinn á evrusvæðinu er ekki
evrunni að kenna heldur þeirri ábyrgðarlausu
stefnu sem þar hefur verið fylgt.
Þetta var meðal þess sem kom fram í svari
Árna Páls Árnasonar efnahags- og viðskiptaráð-
herra í viðtali við Le Monde sem birtist hinn 4.
ágúst sl., um hvaða hagsmuni Ísland hafi af því að
ganga inn í Evrópusambandið.
Árni fellst ekki á að í þessari yfirlýsingu felist
mótsögn í ljósi í ljósi ástandsins nú í Suður-Evr-
ópulöndunum og Írlandi sem tóku öll upp evruna.
„Ég var að höfða til þess að
hugmyndin um evruna sem
stóra mynt er enn jafn gild og
hún hefur alltaf verið. Vandinn
við íslenska krónu fyrir al-
þjóðavætt hagkerfi er einnig
jafn mikill og hann hefur alltaf
verið,“ segir Árni Páll. Þótt
eftir sé að vinna úr evruvand-
anum þá breyti það ekki þeirri
staðreynd að Ísland þarf
áfram að vera hluti af stærri
viðskiptaheild og þarf því sterkari gjaldmiðil.
Árni tekur ekki undir að evran sé sett í sam-
hengi við ábyrgðarlausa stefnu ESB og segir
gagnrýni sína snúa að ábyrgðarlausri stefnu nokk-
urra ríkja sem hafi ekki gætt að því að fylgja þeim
leiðarljósum sem er búið að ítreka að við á Íslandi
verðum að fylgja. Það sé að safna ekki skuldum og
að velferðin byggi á raunverulegum tekjum. Þau
ríki innan ESB sem hafi gætt sín á þessu séu ekki í
vanda.
Árni segir nauðsynlegt að setja strangari ramma
um ríkisfjármál bæði hér heima og hjá ESB.
Lausnin felist í meiri aga og minna svigrúmi fyrir
óábyrg ríkisfjármál. Hvað tímasetningu í ljósi
evrumála varðar segir Árni aðspurður ljóst að við
förum inn í sameiginlegt myntkerfi þegar þessi mál
séu leyst en hann gangi út frá því að fundin verði á
þeim viðunandi lausn.
Evran er ekki vandamálið
heldur stefna ESB-landa
Árni Páll Árnason telur nauðsynlegt að setja strangari ramma um ríkisfjármál
Árni Páll
Árnason
Margrét Hannesdóttir
frá Núpsstað í Skafta-
fellssýslu er látin.
Margrét sem var fædd
1904 varð 107 ára hinn
15. júlí sl. og var næst-
elst Íslendinga.
Margrét var dóttir
Hannesar Jónssonar,
landpósts og bónda, og
Þórönnu Þórarins-
dóttur, húsfreyju.
Hannesi og Þórönnu
varð tíu barna auðið og
var Margrét elst þeirra. Þrjú þeirra
eru eftirlifandi:
Jón, f. 14. nóv. 1913, Jóna, f. 30.
mars 1923 og Ágústa, f. 4. ágúst
1930.
Eiginmaður Margrétar var Sam-
úel Kristjánsson, fæddur að Kumlá í
Grunnavík á Ströndum, sjómaður í
Reykjavík, og áttu þau fimm börn,
Hönnu Þórönnu, f. 22.3. 1932, d.
21.4. 2010, Jón Val, f. 21.8. 1933,
Elsu, f. 23.11. 1935, Auði Helgu,
f. 20.12. 1941, d. 15.1. 1993 og
Margréti, f. 11.3. 1944.
Afkomendur Mar-
grétar og Samúels eru
orðnir hátt í 70 talsins
en Margrét náði þeim
merka áfanga að verða
langalangalangamma.
Margrét hafði stál-
minni og gat sagt sögur
af atburðum sem fáir
muna eftir.
Hún lýsti til að
mynda Kötlugosinu
1918 í viðtali við Morg-
unblaðið fyrir fáum ár-
um og sagðist aldrei hafa heyrt ann-
an eins skruggugang. Lætin þá hafi
verið óskapleg en Margrét var 14
ára þegar gosið hófst.
Síðustu 35 árin bjó Margrét ein að
heimili sínu á Langholtsvegi í
Reykjavík en hún byggði húsið
ásamt manni sínum.
Hún var alla tíð við góða heilsu og
lagðist í fyrsta skipti inn á sjúkra-
stofnun þegar hún handleggsbrotn-
aði í febrúar nú í ár.
Margrét andaðist á hjúkrunar-
heimilinu Skógarbæ 3. ágúst sl.
Andlát
Margrét Hannesdóttir
„Mér brá þegar
ég fékk póstinn
og fékk hreinlega
fiðring í magann.
Þetta er mikill
heiður því að það
eru hundruð þús-
unda mynda sem
fara þarna inn,“
segir Finnur
Andrésson,
áhugaljósmynd-
ari á Akranesi. Mynd frá honum
var valin ein af fimm bestu ferða-
myndum síðustu fimm ára á vef
CNN, ireport.cnn.com en aðeins
eru um tveir mánuðir síðan Finnur
sendi myndina inn. Á síðuna getur
fólk hvaðanæva úr heiminum sent
bæði fréttir og myndir.
Finnur segir CNN hafa tekið vel
í beiðni hans um að senda þeim
myndir og síðar beðið leyfis um að
setja myndina í ferðamynd dagsins.
Finnur byrjaði fyrir aðeins um einu
og hálfu ári að stunda ljósmyndun.
Í rökstuðningi dómnefndar segir
að þrátt fyrir gríðarmikið framboð
mynda af sólarlagi og sólarupprás
veki slíkar myndir ætíð athygli.
Mynd Finns sé framúrskarandi,
þar sem skipið myndi skugga á
móti leiftrandi íslensku sólarlagi.
Myndir hans má sjá á Facebook -
photosoficeland og www.photosofi-
celand.com
sigrunrosa@mbl.is
Ein besta ferðamyndin
Ljósmynd/Finnur Andrésson
Sólarlag Samspil lita og skugga í mynd Finns heillaði dómnefnd CNN.
Mynd áhuga-
ljósmyndara valin af
vefritstjórn CNN
Finnur
Andrésson