Morgunblaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 34
Steindi jr. Hér er á ferð frábær grínplata sem er tilvalin í heimapartí.
Steinþór Hróar Steinþórssongaf út sína fyrstu plötu á dög-unum. Steinþór gengur und-ir nafninu Steindi jr. og hefur
verið með grínþætti á Stöð 2 síðan í
apríl 2010 sem nefnast Steindinn okk-
ar. Þátturinn einkennist af stuttum at-
riðum þar sem gert er grín að öllu
mögulegu og meðal annars hinum
ýmsu manngerðum sem mynda sam-
félagið okkar.
Steindi og Ágúst Bent, sem mynda
Steindann okkar, ákváðu að gefa plöt-
una út eftir miklar áskoranir. Platan
nefnist án djóks, samt djók og inni-
heldur 15 grínlög úr þáttunum. Það er
gaman að heyra hvernig óheflað grínið
fær mann til að skella hressilega upp
úr, án djóks, samt ekki. Á plötunni eru
teknar fyrir þessar ekta stereótýpur
sem njóta þess að upplýsa fésbók-
arvini sína um hversu mikil þyngd var
tekin í „bekk“ þennan daginn eða
hversu lengi þær héngu í ræktinni
hinn daginn.
Skemmtilegasta lagið finnst mér
vera „Heima“. Þar leikur Steindi og
syngur um gæja sem er þvílíkur spaði
í partíi með alls konar þotuliði og
plötusnúðurinn er enginn annar en
Helgi „fokking“ Björns, eins og segir í
laginu. Hann setur sig á háan hest í
laginu og gortar af því að þekkja frægt
fólk og spila með því golf. Þrátt fyrir
villt líferni vill hann ekkert annað en
að hanga heima, leysa krossgátu,
borga reikninga, fara í fótabað og raða
DVD-myndunum sínum. Í öðru lagi,
„Gull af mönnum“, tekur hann týpu
sem er alltaf í metingi og með allt á
hreinu sem lítur allsvakalega stórt á
sig. Lagið „Allar konur“ fannst mér
síst. Laglínan sjálf hitti ekki á rétta
taug og textinn fremur óviðeigandi að
mínu mati. Reyndar eru síðustu lögin
ekki eins vel unnin og hinar perlurnar.
Þrátt fyrir það er platan í raun
ómissandi í safnið og hvað þá þegar
kemur að skemmtilegum heimapartí-
um. Þá er tilvalið að henda plötunni í
tækið og byrja á því að spila „Djamm í
kvöld“.
Gerir grín að flestu
Steindinn okkar – án djóks, samt
djók
bbbmn
Sena 2011.
GUNNÞÓRUNN
JÓNSDÓTTIR
TÓNLIST
Ljósmynd/Spessi
List Snorri Ásmundsson, Páll Haukur Björnsson og Kolbeinn Hugi Höskuldsson munu sýna á Hlemmi í dag.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Urban Utd er hópur leikmanna sem
ætlar sér að lífga upp á Hlemm-
svæðið í sumar með tilraunainnsetn-
ingum og viðburðum sem eiga sér
stað í kringum þær undir yfirskrift-
inni Hittumst á Hlemmi. Þrír lista-
menn munu sýna við alla þrjá inn-
gangana á Hlemmi í dag. Það eru
listamennirnir Snorri Ásmundsson,
Páll Haukur Björnsson og Kolbeinn
Hugi Höskuldsson. Innsetningarnar
verða með ýmsum hætti, þannig mun
Páll Haukur vera með hljóðverk, Kol-
beinn og Snorri verða með innsetn-
ingu. Aðspurður hvernig innsetningu
Snorri ætli að vera með segir hann að
hann hafi búið til innsetningu sem
honum fannst hæfa rýminu. „Ég er
með gluggarými, sem er við gamla
innganginn á Hlemmi,“ segir Snorri.
„Þetta er orðið svona glerrými. Hug-
myndin mín er að fylla rýmið af fólki.
Ég mældi þetta og fann út að ég gæti
komið fimmtíu manns í þetta rými á
hverjum tíma. Svo myndi ég skipta út
fólki út á milli sýningardaga. Þetta
verður svolítið þröngt en fólki getur
liðið einsog í neðanjarðarlest. Í mín-
um huga er þetta óður til fólksins. Ég
hef alltaf verið í miklum samskiptum
við fólk í list minni.
Ég fór mjög víða um heim í sumar
og var heillaður af þessum sam-
félögum þarsem eru allar þessar
moskur, kirkjur, trúarbrögð og fólk
svo misjafnt. Þegar ég kom heim, þá
var ég ekki eins heillaður af sam-
félaginu okkar. Við erum of meðvirk
á Íslandi, við erum of upptekin af
náunganum og hvað hann heldur um
okkur. Það er helsjúk meðvirkni hjá
þjóðinni. Á Hlemmi er mannlífið
meira stórborgaralegt. Þar er minni
þörf til að brosa, það eru týpur þar
sem eru frjálsari. Þetta var hugljóm-
unin sem ég fékk þegar ég kom hing-
að aftur. Hvert sem þú ferð á Íslandi
þá er fólk alltaf að pósa. Ég rek það
til þess hvað við erum fámenn. En á
Hlemmi, þar er meiri stórborgarandi.
Þar sér maður allra þjóða kvikindi,
maður sér fólk sem er minnimáttar,
öryrkja og fólk sem þorir að vera
öðruvísi,“ segir Snorri.
Hlemmur er orkustöð
„Ég notaði strætó mjög mikið á
tímabili,“ segir Snorri. „Þar er mann-
lífið mjög fallegt. Íslendingar
skammast sín fyrir að nota strætó. Ef
maður notar strætó hér að þá heldur
fólk að maður hafi misst prófið eða
hafi ekki efni á bíl. Það er sorglegt
því í strætó á maður fallegar
stundir. Þar áttu „speis“
(rými), þú getur verið í þínum
hugsunum eða lesið bók. Þú
ert ekki í umferðarstressinu,
leggur traust þitt á bílstjór-
ann, þetta er svona
„free space“, það er
nokkurskonar hug-
leiðsla að vera í
strætó.
Hlemmur er
svo mikil orkustöð, þegar maður
kemur þangað inn þá fyllist maður
orku og hugmyndum. Ég á örugglega
eftir að gera nýtt verk fyrir hvern
laugardag, en ég verð í dag með inn-
setningu og næsta laugardag og þann
þarnæsta. En í dag byrjum við klukk-
an 13:00 með þessa sýningu og ég
hlakka til að troða Íslendingum inní
þetta rými, ég mun örugglega geta
troðið þarna inn slatta af fólki. Þessi
nálægð sem mun myndast við þetta
er skelfileg fyrir Íslendinga, en ég get
lofað því að það kemur heilara út, það
kemur breytt útúr þessu rými,“ segir
Snorri.
Snorri bendir líka á hvað staðurinn
eigi mikla sögu, því Jón Gnarr var
Hlemmari, pönkið varð til á Hlemmi.
„Þetta er sögulegur staður, Hlemm-
ur,“ segir Snorri sem leggur sitt af
mörkum til að gera söguna enn
merkilegri klukkan 13:00 í dag.
Gamla gas-
stöðin orðin
að orkustöð
Snorri Ásmunds, Páll Haukur og
Kolbeinn með sýningu á Hlemmi
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Futuregrapher eða Árni Grétar gaf í
vikunni út sveimverkið TomTom
Bike. Platan inniheldur fjögur lög og
er gefin út hjá breska útgáfufyrir-
tækinu TwistedTreeLine sem sér-
hæfir sig í útgáfu á sveimtónlist
(ambiant-verkum). Hann segir
breska fyrirtækið vera spennt fyrir
frekari samvinnu í framtíðinni.
„Þetta er svona lítið ambiant/
sveimtónlistarfyrirtæki og þeir
höfðu samband við mig og vildu gefa
út efni með mér,“ segir Árni Grétar.
„Tónlistin mín sem futuregraphers
er danstónlist en ég sem alveg líka
svona tónlist [nokkurs konar hug-
leiðslutónlist], en ég hef ekki mikið
verið að leyfa fólki að heyra það“.
Platan kemur út á tveimur þriggja
tommu diskum, sem eru mun minni
en venjulegir diskar, en hægt er að
spila þá í geislaspilurum. Árni segir
þetta hafa líklega verið gert til að
vera eitthvað aðeins öðruvísi og
skemmtilegra.
Biogen kom honum í bransann
Aðspurður hvenær hann byrjaði
að semja tónlist segist hann hafa
lengi verið að því, allt frá 14 ára
aldri. Nafnið Futuregrapher kom þó
ekki fyrr en um 2007 þegar hann
ákvað að semja einsamall. „Bjössi
Biogen hleypti mér aðeins nær öllu
sem ég er kominn í núna og leiddi
mig í gegnum þetta ferli,“ en Bjössi
Biogen eða Sigurbjörn Þorgrímsson
lést fyrir aldur fram snemma á
þessu ári.
Möller Records og breiðskífan
Árni Grétar ásamt félaga sínum
Jóhanni Ómarssyni, sem spilar und-
ir nafninu Skurken, reka saman fyr-
irtækið Möller Records. Fyrirtækið
hefur meðal annars verið að gefa út
tónlist með Steve Sampling, Prins
Valium og Tonik.
„Það eru núna væntanlegar frá
okkur báðum stórar breiðskífur,
sem eru í vinnslu,“ segir Árni Grét-
ar. Platan hans Árna kemur til með
að heita Hrafnagil en Jóhann vildi
ekki gefa upp nafnið á sinni plötu
enn sem komið er.
Sveimar í raftónlistinni
Futuregrapher gefur út öðruvísi tónlist Von er á breið-
skífu á næstunni Spilar í kvöld á Extreme Chill Festival
Danstónlist Futuregrapher spilar í kvöld á tónlistarhátíðinni Extreme
Chill Festival en hún fer fram á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls.
Snorri Ásmundsson er nýkomin úr
langri för um heiminn þarsem
hann sýndi verk sín í ýmsum lönd-
um en áhugaverðast var án vafa
þátttaka hans í sýningu í Bakú í
Azerbaijan. „Ég flaug frá London
og strax þar byrjaði ævintýrið.
Það var einhver kona þar í flug-
inu sem var svona VIP einsog ég.
Við fengum sér útgang útúr flug-
vélinni þegar við lentum og þar
biðu ljósmyndararnir í
röðum því þetta var
söngkonan sem sigr-
aði Eurovision keppn-
ina fyrir land sitt og hún er þjóð-
hetja landsins. Þeir kalla þetta
mestu landkynningu sem þau hafa
fengið. Azerbaijan er orðið forríkt
af olíu en Kaspíahafið sem landið
liggur að er allt löðrandi í olíu. Ég
ætlaði í sjósund þarna en mér var
ráðið frá því vegna olíumagns í
hafinu. Forseti landsins stýrði há-
tíðinni en hann er sonur fyrrver-
andi forseta og hafði einmitt haft
verk eftir dóttur sína á síðustu
sýningu. Þetta var allt mjög krútt-
legt, þetta litla einræðisríki,“ segir
Snorri.
List í einræðisríki
LISTAMAÐURINN
Snorri
Ásmundsson