Morgunblaðið - 06.08.2011, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Ég á iPhone og ákvað að fá
mér þannig síma því hann
bauð upp á meira en hinir
snjallsímarnir á mark-
aðinum. Ég nota símann
minn aðallega til þess að fara á
netið í honum, skoða Facebook
og tölvupóstinn minn og auð-
vitað hringja og senda skila-
boð. Annars er ég nær alveg
hættur að skoða tölvupóstinn í
tölvunni. Ég er með tölvu-
leikja-, ljósmynda- og IMdB-
„apps“ í símanum meðal
annars. Svo tek ég símann
með mér í fríið og upp í
sumarbústað en þá þarf
helst að vera gott netsam-
band til að hann nýtist.
Atli
Bjarnason
nemi
Ég ákvað að fá mér svona
síma aðallega út af því
að það er hægt að
skoða tölvupóstinn og
netið í símanum og ég
nota hann einmitt mest til
þess að hringja og skoða
tölvupóstinn. „Apps“ sem
ég nota mest eru þau þar
sem ég get skoðað veð-
urspána og upplýsingar
um flug. Helsti gallinn við
svona snjallsíma er sá að
ég er alltaf að nota hann,
hvort sem ég er á ferða-
lagi eða heima. Ég mæli
samt með að fólk fái sér
snjallsíma, þeir eru svo
hentugir.
Atle
Bjerkli
verkefnastjóri
Texti: Lára Hilmarsdóttir
Ljósmyndir: Sigurgeir Sigurðsson
Fólk á förnum vegi
Getur síminn þinn vísað þér veginn
og bundið fyrir þig bindishnút?
Víðast hvar erlendis sést fólk strjúka fingrum þvers og kruss eftir snertiskjám snjallsíma sinna, fletta upp kortum af næsta
áfangastað, pikka inn skilaboð, drepa tímann í tölvuleikjum og fjöldamargt annað. Hérlendis virðist sem snjallsímar hafi ekki
enn orðið jafnvinsælir og erlendis en þó sjást æ fleiri slíkir símar í höndum yngri kynslóðanna. Blaðamaður brá sér í bæinn og
spurði fólk á förnum vegi hvers vegna það hefði ákveðið að fá sér snjallsíma og hvort og hvernig hann nýttist.
Þetta er svo sniðugt
þegar maður fer til út-
landa, þá er hægt að
leita að upplýsingum og
slíkt á fríu þráðlausu neti á
hótelinu í staðinn fyrir að
þurfa að fara á netkaffi. Ég
nota eiginlega ekkert svona
„apps“ í símanum mínum
en ég sótti mér ýmislegt
skemmtilegt, leiki og fleira
eins og „sound-hound“ sem
er mjög sniðugt. Með því
getur maður leitað að lög-
um. Svo nota ég líka minn-
ismiða í símanum mikið.
Símareikningurinn hefur
ekki hækkað neitt síðan ég
fékk mér snjallsíma.
Dögg
Guðmundsdóttir
afgreiðsludama
Ég nota símann minn mest
til þess að hringja og senda
skilaboð, sem sagt ekkert
frekar en gamla símann
minn. „Apps“ sem ég er
með og nota eru tölvu-
póstur, Facebook og „run-
keeper“ sem er forrit fyrir
hlaupara. Ég held að snjall-
símar séu frekar slæmir en
góðir því það er ekkert endi-
lega gott að vera sífellt
tengdur við netið. Ég myndi
samt fá mér aftur snjall-
síma næst því ég er orðin
háð því að vera með snjall-
síma. Þeir eru líka mjög
hentugir á ferðalögum er-
lendis.
Sigurbjörg
Birgisdóttir
framkvæmdastjóri
Ég nota snjallsímann minn,
iPhone, mest til þess að fara
á netið, skoða tölvupóstinn
minn og Facebook. Ég er með
u.þ.b. sex síður af „apps“ en
þær sem ég nota mest eru
Facebook og ýmislegt annað
eins og „app“ sem leiðbeinir
manni við að binda bindis-
hnút. Þegar maður er erlend-
is er svo hægt að athuga hvar
merkilegir staðir og góð veit-
ingahús eru. Ég gæti lifað án
snjallsíma en það væri ekki
eins skemmtilegt líf. Það er
svo langt síðan ég var án
snjallsíma að ég man varla
hvernig það var í gamla daga.
Jakob Einar
Jakobsson
rekstrarstjóri
Ég á svartan LG-snjallsíma,
sem mér finnst mjög flottur,
en ég fékk hann í gjöf frá
mömmu og pabba. Ég nota
símann mest til þess að
hringja, senda skilaboð og
taka myndir, en stundum
fer ég á netið til að skoða
Facebook. Ég er ekki ennþá
búin að setja nein „apps“
inn á símann minn en það
er samt hægt. Það eru
rosalega margir í skólanum
með svona snjallsíma og við
erum oft að skiptast á tón-
list í gegnum símana okkar í
skólanum en það er bannað
að vera með þá uppi í tím-
um.
Sara Bryndís
Þórsdóttir
nemi
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Stjórnarþingmenn vinna hörðum
höndum að því að reyna að ná sam-
komulagi um fjárlagaramma næsta
árs. Stefnt er að því að niðurstaða
geti legið fyrir snemma í næstu
viku. Gert er ráð fyrir að fjárlaga-
hópur, sem myndaður er af þremur
þingmönnum úr hvorum flokki,
fundi allan mánudaginn. Á mánu-
dagskvöldið verður svo haldinn
sameiginlegur vinnufundur þing-
flokka ríkisstjórnarinnar, þar sem
reynt verður að leiða þessa vinnu
við fjárlagafrumvarp næsta árs til
lykta.
Ekki gert ráð fyrir skatta-
hækkunum á almenning
Í framhaldi af því hefst fjárlaga-
nefnd handa við útfærslu og skipt-
ingu einstakra útgjaldaliða en tím-
inn er naumur því fjárlaga-
frumvarpið þarf að liggja fyrir til-
búið til prentunar 22. ágúst.
„Við erum að reyna að setja sam-
an meginlínur og stefnu sem við get-
um öll sætt okkur við. Við stefnum
að því að ljúka því á mánudag eða
þriðjudag í næstu viku,“ segir
Oddný G. Harðardóttir, formaður
fjárlaganefndar. Hún segir að menn
haldi sig við langtímaáætlun ríkis-
stjórnarinnar sem sett var 2009 og
gerir ráð fyrir jöfnuði árið 2013.
Menn muni hvika eins lítið frá henni
og hægt er.
Þuríður Backman, þingflokksfor-
maður Vg sem sæti á í fjárlaga-
nefnd, segir greinilegt að áætlunin
hafi riðlast. Þuríður segir að
ákveðnar staðreyndir liggi fyrir
m.a. um óvænt útgjöld á þessu ári,
sem geri fjárlagavinnuna fyrir
næsta ár erfiðari.
Stærstu útgjaldaliðirnir sem setja
strik í reikninginn að sögn Þuríðar
eru aukin útgjöld vegna kjarasamn-
inga, aukin fjárframlög vegna fjár-
þarfar Íbúðalánasjóðs og kostnaður
vegna yfirtökunnar á Sparisjóði
Keflavíkur. Nýlega kom fram í
Morgunblaðinu að eigið fé SpKef
væri metið neikvætt um nálægt 30
milljarða og gæti þurft 38 milljarða
framlag frá ríkinu til að fullnægja
kröfum FME um eiginfjárhlutfall.
Þá eru ótalin líkleg áhrif af verð-
hruni undanfarinna daga í kauphöll-
um um allan heim á fjárlagagerðina,
sem getur átt eftir að leiða til stór-
aukinna vaxtagjalda ríkissjóðs.
Fram hefur komið að átök hafa
verið um hvort ganga eigi lengra í
hækkun skatta eða krefjast meiri
niðurskurðar. ,,Það er ekkert hægt
að komast hjá því að það verði ein-
hver blanda af þessu en það er ekki
gert ráð fyrir skattahækkun á al-
menning. Við höfum gert kjara-
samninga þar sem gefin eru fyrir-
heit um að það verði ekki gert,“
segir Oddný. Hún kannast ekki við
að ágreiningur sé á milli stjórnar-
flokkanna um leiðir en skoðanir
þingmanna séu skiptar þvert á
flokka.
Þetta er augljóslega snúið, því
sérhver þingmaður hefur neitunar-
vald þar sem ríkisstjórnin er aðeins
með eins þingmanns meirihluta.
Blönduð leið skatta og niðurskurðar
Fjárþörf Íbúðalánasjóðs, kostnaður vegna SpKef og aukin launaútgjöld setja
strik í reikninginn við fjárlagagerðina Enn gert ráð fyrir jöfnuði árið 2013
Morgunblaðið/Golli
Lokasprettur Fjárlagafrumvarpið
á að vera tilbúið í prentun 22. ágúst.
Við fjárlaga-
vinnuna er
leitað leiða
til að afla
aukinna
tekna og er
stefnt að
átaki gegn
svartri at-
vinnu-
starfsemi og
skattundanskotum til að auka
skatttekjur ríkissjóðs. Þuríður
Backman segir að ef rétt reyn-
ist að svarti markaðurinn
blómstri þá sé möguleiki á að
ná meiri árangri við innheimtu
álagðra skatta með hertu eft-
irliti í stað þess að hækka
skatta.
Átak gegn
skattsvikum
AUKA SKATTTEKJURNAR
Þuríður Backman
Kosið verður á milli sr. Sigrúnar
Óskarsdóttur og sr. Kristjáns Vals
Ingólfssonar í síðari umferð í vígslu-
biskupskjöri í Skálholti. Kosningu til
embættisins lauk fimmtudaginn 28.
júlí síðastliðinn og atkvæði voru talin
í gær. Mjög mjótt var á munum og
þurfti að beita hlutkesti til að skera
úr um hverjir kæmust í aðra umferð.
Á kjörskrá eru 149 og greidd voru
146 atkvæði. Kjörsókn var því 98
prósent. Alls voru fjórir í kjöri. Sr.
Sigrún Óskarsdóttir hlaut flest at-
kvæði í kosningunni, eða 39 talsins.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson hlaut
37 atkvæði, sr. Agnes M. Sigurð-
ardóttir einnig 37 og sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson rak lestina með 33 at-
kvæði.
Úrslit fyrir ágústlok
Reglur kveða á um að kosið sé á
ný á milli þeirra tveggja er flest at-
kvæði hlutu í kosningu. Þar sem
Agnes M. Sigurðardóttir og Kristján
Valur Ingólfsson hlutu jafnmörg at-
kvæði þurfti að varpa hlutkesti til
þess að skera úr um hvort þeirra
færi áfram í aðra umferð. Niður-
staða þess varð sú að Kristján Valur
Ingólfsson tekur þátt í seinni umferð
kosningarinnar ásamt Sigrúnu Ósk-
arsdóttur.
Önnur umferð kosningarinnar fer
fram strax að afloknum kærufresti,
sem er 12. ágúst næstkomandi.
Skilafrestur atkvæða rennur út 26.
ágúst. Gert er ráð fyrir að talning at-
kvæða úr annarri umferð fari fram
laugardaginn 3. september 2011.
Vígslubiskupskosning fór raunar
fram fyrr á árinu, en var í kjölfarið
ógilt þar sem atkvæði sem bárust
eftir skilafrest höfðu verið talin með.
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar sagði af
sér vegna málsins og ákveðið var að
kosið yrði á ný. einarorn@mbl.is
Sigrún
Óskarsdóttir
Kristján Valur
Ingólfsson
Komst
áfram á
hlutkesti
Sigrún eða Kristján
næsti vígslubiskup