Morgunblaðið - 06.08.2011, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Það vakti nokkra athygli að þegarhlutabréfamarkaður heimsins
tók að hristast óþyrmilega og skekj-
ast þá komu fréttir um að leiðtogar
Evrópu hefðu marg-
ir hverjir skotist í
bæinn úr sumarleyfi
sínu.
Þótti það til marks
um hvað vandinn
væri risavaxinn.
ForsætisráðherraSpánar hefur
tvisvar komið í bæ
úr fríi.
Fréttaskýrendumhugkvæmdist
fæstum að velta fyr-
ir sér hversvegna enginn leiðtog-
anna hafði fyrirfram áttað sig á
hvað kynni að vera í vændum.
Leiðtogarnir virtust sannfærðirum að síðasti fundur þeirra
hefði kippt öllu í liðinn með einni
loðinni ályktun.
Í þessum löndum er þó vitað hvarráðamenn halda sig. Það er ekki
á Íslandi.
Þar hefur ekki verið gefið upphvar forsætisráðherrann hefur
dvalist síðustu vikurnar.
Orðrómur er uppi um að Jóhannasé á leynilegum fundi með for-
sætisráðherra Kína.
Spunameistarar segja það tilmarks um leyndina að Jóhanna
sjálf viti ekki hvar fundurinn sé
haldinn, en hún telji að Dýrafjörður
sé ekki verri ágiskun en hver önnur:
Þar hvað vera fallegt,“ bættu þeirvið til áréttingar.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Af Sumarleifi
heppna
STAKSTEINAR
Zapatero
Veður víða um heim 5.8., kl. 18.00
Reykjavík 17 rigning
Bolungarvík 10 alskýjað
Akureyri 15 rigning
Kirkjubæjarkl. 11 rigning
Vestmannaeyjar 10 súld
Nuuk 10 skúrir
Þórshöfn 11 skúrir
Ósló 16 skúrir
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 23 heiðskírt
Helsinki 22 skýjað
Lúxemborg 22 skýjað
Brussel 21 skýjað
Dublin 16 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 23 heiðskírt
París 22 léttskýjað
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 22 léttskýjað
Berlín 22 léttskýjað
Vín 26 skýjað
Moskva 22 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 33 léttskýjað
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 heiðskírt
Róm 30 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 23 léttskýjað
Montreal 25 léttskýjað
New York 27 heiðskírt
Chicago 27 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:51 22:18
ÍSAFJÖRÐUR 4:37 22:41
SIGLUFJÖRÐUR 4:19 22:25
DJÚPIVOGUR 4:15 21:52
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Við erum miklu meira en slegin,
við erum nánast skelfingu lostin yf-
ir þessu. Samfélagið sem slíkt tekur
þetta mjög nærri sér. Þetta eru
gestir okkar sem verða fyrir árás-
um,“ segir Elliði Vignisson, bæj-
arstjóri í Vestmannaeyjum, vegna
kynferðisbrota sem framin voru á
Þjóðhátíð í Eyjum um síðustu helgi.
Elliði segir að eðlilega hafi skap-
ast mikil umræða um málið í bæn-
um undanfarna daga. Þessir at-
burðir hafi óhjákvæmilega varpað
skugga á hátíðarhöldin sem að öðru
leyti hafi farið vel fram. „Við viljum
auðvitað fyrir alla muni tryggja ör-
yggi gesta okkar og höfum verið að
taka á þessum málum mjög alvar-
lega hingað til og leita allra leiða til
þess að draga sem mest úr líkunum
á að svona nokkuð geti átt sér
stað,“ segir Elliði. Hann nefnir að
meðal annars hafi öll öryggisgæsla
og sálgæsla á hátíðinni verið efld og
raflýsing aukin á svæðum sem talið
hefur verið að mest hætta stafaði
frá. Þá hafi verið brýnt fyrir fólki
að fylgjast vel hvað með öðru. En
hann segir að það þurfi greinilega
meira til.
Farið náið yfir málin
„Við höfum nú þegar rætt saman,
Vestmannaeyjabær og þjóðhátíðar-
nefnd, gerðum það strax á mánu-
daginn, og ég hef átt fund um málið
með yfirlögregluþjóninum hér í
Eyjum. Við höfum ennfremur boð-
að til fundar þar sem farið verður
yfir það hvar þessir atburðir hafa
átt sér stað, hver aldur fórnarlamb-
anna er og svo framvegis og út frá
því reyna að finna enn fleiri leiðir
til þess að stemma stigu við þessu
því það er einfaldlega ekki boðlegt
fyrir íslenskt samfélag að svona
gerist,“ segir Elliði.
„Ég held að það sé mikilvægt
fyrir okkur bara sem samfélag í
víðasta skilningi þess orðs að við
förum yfir það hvað það er sem
kallar fram þessa viðbjóðslegu
glæpi. Því þetta eru þeir glæpir
sem komast næst mannsmorði,“
segir Elliði og bætir við að hann
þekki vel til slíkra mála sjálfur sem
lærður sálfræðingur sem tekið hafi
á móti fórnarlömbum kynferðisof-
beldis. „Við þurfum að horfa til
þess hvað býr til gerandann og
hvernig við getum stýrt aðstæðum
til þess að fækka tækifærunum sem
þessir ofbeldismenn hafa.“
Varpar skugga á hátíðina
Eyjamenn eru nær skelfingu lostnir vegna kynferðisbrota sem framin voru á
Þjóðhátíð um liðna helgi „Þurfum greinilega að gera betur,“ segir bæjarstjórinn
Hátíð Flugeldasýning á Þjóðhátíð í
Eyjum um síðustu helgi.
Höfum í einkasölu jörðina Eyri, Fáskrúðsfirði sem er falleg jörð með glæsilegu bæjarstæði,
myndarlegu íbúðarhúsi á þremur hæðum, skemmu sem nýtt er sem bílgeymsla, hænsnahús
og vinnuaðstaða, fjárhúsi, hlöðu og æðavarpi. Fallegir lækir/ár, gil, djúpur og breiður dalur
(Eyrardalur) er innan landamerkjanna.
Sjón er sögu ríkari. Tilboð óskast. Nánari upplýsingar í síma 580 7905.
JÖRÐ - EYRI FÁSKRÚÐSFIRÐI
InnI
Sími: 580 7905 Fax: 5807901
Kaupvangi 2, 700 Egilsstöðum
www.inni.is Breytingar verða á akstri Strætó í
dag vegna gleðigöngu Hinsegin
daga og hátíðahalda í miðborginni.
Gleðigangan hefst við Vatnsmýr-
arveg og gengið verður norður Sól-
eyjargötu, eftir Fríkirkjuvegi og
Lækjargötu og framhjá Arnarhóli
þar sem útitónleikar verða að lok-
inni göngu. Breyta þarf níu leiðum
og loka nokkrum stoppistöðvum á
meðan. Leiðir 1, 3, 6, 11, 12 og 13
aka frá Hlemmi, norður Snorra-
braut – Sæbraut – Geirsgötu – Mýr-
argötu – Ánanaust – Hringbraut og
inn á sínar leiðir og sömu leið til
baka. Leið 14 ekur frá Hlemmi í átt
að Granda suður Snorrabraut –
Hringbraut – Ánanaust að Granda
og sömu leið til baka. Leiðir 15 og
19 aka um nýju Hringbraut í báðar
áttir eftir klukkan 12:00. Gert er
ráð fyrir að opnun gatna verði í
fyrsta lagi klukkan 20:00. Upplýs-
ingar um breytingar á akstri
Strætó má finna á www.strætó.is.
Akstri Strætó breytt
út af gleðigöngu