Morgunblaðið - 06.08.2011, Qupperneq 10
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Safnið hefur fengið ljómandigóðar viðtökur. Fólk eragndofa af undrun oghrifningu. Það á ekki von á
svona miklu magni því það veit að
það var einn maður sem safnaði
þessu. Það heldur kannski að þetta
sé bara eitt stórt herbergi en svo
eru þetta tveir salir og tvö her-
bergi, full af dóti,“ segir Guðrún
Steingrímsdóttir, safnvörður Smá-
munasafnsins. Enginn þarf að vera
sérfræðingur til að skemmta sér og
fræðast á Smámunasafninu að sögn
Guðrúnar. „Safnið er fyrir alla og
allan aldur. Börn hafa mjög gaman
af því að skoða það.“
Á safninu má sjá alls konar
hversdagslega muni sem Sverrir
Hermannsson, húsasmíðameistari á
Smámunasafn
kúnstugs safnara
Eitt óvenjulegasta og skemmtilegasta safn landsins er til húsa í Sólgarði í Eyja-
fjarðarsveit. Smámunasafn Sverris Hermannssonar húsasmíðameistara var opn-
að 2003 og hefur aðsóknin aukist jafnt og þétt síðan. Á Smámunasafninu er ótal-
margt að sjá, allt frá hundruðum blýantsstubba, nagla og lykla til búsáhalda,
verkfæra og hurðarhúna. Allt mögulegt sem Sverrir sankaði að sér um ævina.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Safnstjórinn Guðrún Steingrímsdóttir hefur verið safnstjóri frá upphafi og finnst gaman í vinnunni.
Akureyri, safnaði að sér yfir ævina.
„Sverrir fæddist 1928 og hann
var haldinn söfnunaráráttu frá því
að hann man eftir sér. Þegar hann
er búinn að læra húsasmíðar um
1950 eru menn að kasta frá sér
heimasmíðuðum verkfærum eins og
heflum og þvingum. Sverrir sér
þetta og hugsar með sér að nú ætli
hann að gerast safnari og fer að
safna verkfærum. Svo eykst þetta
um allan helming og hans söfnunar-
árátta víkkar mikið þegar hann fer
að vinna í gömlum húsum. En hann
helgar sig því að gera upp gömul
friðuð hús. Þá fer hann á stúfana
þar sem hann veit að á að rífa hús
til grunna og hirðir úr þeim til að
eiga varahluti í önnur hús sem átti
að gera upp. Þá fær hann mikið
magn af eins og hurðarhúnum,
gluggajárnum, timbri og gleri. Í
svona yfirgefnum húsum er oft skil-
ið eftir eitthvað sem fólk telur sig
ekki hafa þörf fyrir, uppi á háalofti,
niðri í kjallara og jafnvel milli þils
og veggjar. Þetta hirti hann allt
saman. Svo fréttir fólk af þessari
söfnun hjá honum og fer að fara
með dót til hans í staðinn fyrir að
fara með það á haugana. Þannig
vex safnið hans stig af stigi,“ segir
Guðrún.
Tók tíu ár í að flokka safnið
Sverrir hugsaði vel um safnið
sitt og hélt hlutunum til haga. „Um
leið og hann kom heim úr vinnunni
eða fékk hluti merkti hann þá strax
og það hefur bjargað þessu algjör-
lega. Því ef hann hefði ekki merkt
hlutina strax hefði þetta smám sam-
an runnið út í sandinn. Þegar hann
hætti að vinna sem húsasmiður tók
hann þrjá tíma á dag, sex daga vik-
urnar í tíu ár í að flokka þetta og
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Vefsíðunni Dosfamily.com er haldið
úti af ljósmyndaranum Jenny Brandt
og hönnuðinum Isabelle Halling
McAllister. Þær eru vinkonur og búa
báðar í Svíþjóð, Isabelle í Stokkhólmi
og Jenny í Ystad. Isabelle skrifar um
hönnun og fjölskylduna. Hún virðist
hafa mjög gaman af því að fara á
flóamarkaði og að gera upp gamla
hluti. Henni tekst líka vel til með það
af færslunum á síðunni að dæma. Sú
nýjasta fjallar um flotta kommóðu
sem hún gerði upp.
Jenny sér um innlitin, hún fer inn á
heimili með myndavélina sína og birt-
ir svo fullt af myndum á síðunni frá
hverju heimili. Hún heimsækir áhuga-
verð, oftast litaglöð, og falleg heimili.
Það getur veitt innblástur að skoða
færslurnar hennar, sérstaklega fyrir
þá sem langar til að breyta til heima
hjá sér. Þetta er líflegt og áhugavert
blogg hjá þessum sænsku stöllum.
Vefsíðan www.dosfamily.com
Ljósmynd/Jenny Brandt
Innlit Jenny hefur upp á líflegum heimilum í Svíþjóð.
Blogg um heimili og hönnun
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Ég ætla að njóta þess að vera á bæj-arhátíðinni Sumar á Selfossi í dag.Dagurinn verður ekki tekinn neitt
mjög snemma en þegar ég vakna verður
minn heittelskaði örugglega búinn að kaupa
eitthvað gott handa mér í morgunmat,“ seg-
ir Selfyssingurinn Sesselja Sumarrós Sigurð-
ardóttir spurð hvað hún ætli að gera í dag.
„Eftir það verður lögð lokahönd á skreyt-
ingarnar utanhúss en við erum í gula hverf-
inu. Klukkan tvö hefst dagskráin í bæj-
argarðinum og ég ætla þangað með manni
og börnum tveim til að hlusta á Karítas
Hörpu vinkonu mína syngja. Svo verður fullt
af öðrum skemmtiatriðum,“ segir Sesselja.
Hún reynir alltaf að vera heima þegar Sum-
ar á Selfossi á sér stað en annars eyðir hún
sumarhelgunum oftast í útilegu. „Þetta er
fyrsta helgin sem við erum heima síðan í
júní, við höfum verið í útilegum allar hinar
helgarnar. Ég vil bara vera í útilegu á sumr-
in þótt það sé alltaf gott að koma heim líka.“
Þegar líður á daginn í dag stefnir hún á
að fara í bíltúr um Selfoss og skoða skreyt-
ingarnar í hinum hverfunum. „Um kvöldið
verður eitthvað gómsætt sett á grillið í til-
efni dagsins. Þá verður farið á sléttusöng í
bæjargarðinum sem Ingó Veðurguð stjórn-
ar. Hann nær alltaf að rífa upp þvílíka
stemningu. Kvöldið endar á flugeldasýningu
sem ég býst við að verði mjög flott. Svo
verður rölt heim og pústað yfir sjónvarp-
inu.“
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Verður heima
um helgina
Fjölskyldan Sesselja ásamt
Davíð manni sínum og börn-
um, Alexander og Erlu.
Handverkshátíðin fer nú fram í
nítjánda sinn við Hrafnagilsskóla í
Eyjafjarðarsveit. Hátíðin hófst í gær
og stendur fram á mánudag. Opið er
frá klukkan 12 til 19 alla dagana.
Um hundrað sýnendur taka þátt í
ár. Innandyra er fatnaður, fylgihlutir,
keramik, list, snyrtivörur, textílvörur,
skart o.fl. úr íslenskum hráefnum svo
sem hrauni, ull, roði, lambskinni,
hreindýraskinni og klóþangi. Á úti-
svæðinu verða tískusýningar alla
dagana, Norðurhundar verða með
kynningu á hundategundum og Félag
ungra bænda á Norðurlandi verður
með uppákomur.
www.handverkshatid.is
Endilega …
… lítið inn
á Hand-
verkshátíð
Fatamarkaður fer
fram á Óðinstorgi í
dag frá kl. 11 til 16.
Þetta er í þriðja sinn
sem efnt er til
markaðar á Óð-
instorgi, sem er í
miðbæ Reykjavíkur,
og hefur þátttakan
verið góð og mynd-
ast skemmtileg
stemning.
Í dag verða ekki
einungis föt á boð-
stólum heldur einn-
ig bækur, geisla-
diskar, hönnunarvörur, lifandi tónlist og margt
fleira.
Frá klukkan 12.30 lesa ungskáld úr verkum
sínum, meðal annars Ásgeir H. Ingólfsson,
Kristín Svava Tómasdóttir og Jón Örn Loð-
mfjörð.
Markaður Frá Óðinstorgi.
Fatamarkaður
á Óðinstorgi
Markaður