Morgunblaðið - 06.08.2011, Síða 11
Áhugavert Sagir má sjá í tugatali, naglbíta og skrúfjárn.
Blýantsstubbar Snyrtilega upp raðað eru þeir eins og listaverk.
Fjölbreytt Sverrir safnaði líka allskonar búsáhöldum, hrærivélum og dollum og er gaman að skoða það.
Naglar Mikið er af allskonar nöglum og sumir eiga sér sögu.
www.smamunasafnid.is
Í upphafi Sverrir byrjaði að safna smíðaverkfærum og timburfjölum.
smíða utan um,“ segir Guðrún. Út
af þessu skipulagi Sverris var lítið
mál að flytja safnið í Sólgarð.
„Sverrir gefur Eyjafjarðarsveit
safnið sitt og sveitin átti hérna
gamalt félagsheimili sem virtist
smellpassa utan um það. Smámuna-
safnið var opnað 2003 en Sverrir
var búinn að vera að sýna þetta að-
eins heima hjá sér áður. Hann var
búinn að leggja grunninn að safninu
með því að sortera hlutina og smíða
undir þá skúffur og kassa. Tveir
hönnuðir, Þórarinn Blöndal og
Finnur Arnar Arnarsson, höfðu svo
veg og vanda af uppsetningu safns-
ins í Sólgarði. Það var samt reynt
að halda þessu eins og Sverrir var
búinn að stilla því upp í kringum sig
til að missa ekki hans karakter úr
safninu.“
Kúnstugur safnari
Sverrir lést árið 2008 og náði
því að sjá safnið sitt blómstra.
„Hann var búinn að einsetja sér að
þetta yrði orðið opinbert safn áður
en hann félli frá. Hann var svo
hræddur um að safninu yrði bara
hent þegar hann félli frá ef hann
skildi það eftir í húsinu sínu,“ segir
Guðrún.
Beðin um að lýsa því sem sjá
má í safninu andvarpar hún. „Það
er erfitt að segja það í fáum orðum,
kannski fljótlegra að telja upp hvað
er ekki hér. Uppistaðan eru smíða-
verkfæri og allt sem tengist smíð-
um en síðan er heilmikið af bús-
áhöldum og skrifstofudóti. Hér úir
og grúir af alls konar hlutum. Það
sem gerir þetta sérstakt er magnið
sem er hér af öllu, tveir blýants-
stubbar eru bara drasl sem þvælist
fyrir en þegar hundrað blýants-
stubbar eru samankomnir og
snyrtilega raðað upp er það nánast
orðið listaverk. Þetta er skemmti-
legt og óvenjulegt safn,“ segir Guð-
rún. Blaðamaður getur tekið undir
það, heimsókn hans á safnið síðasta
sumar er mjög eftirminnileg.
Spurð hvort Sverrir hafi aldrei
verið álitinn ruglaður, að safna öllu
þessu dóti, hlær Guðrún og jánkar
því. „Eins og Sverrir sagði sjálfur:
„Það halda eflaust allir þegar þeir
sjá þetta dót að ég hljóti að vera
bilaður.“ Hann fékk mikla gagnrýni
á sig þegar hann var að þessu en
hann var kúnstugur eins og hann
sagði sjálfur og lét það ekki trufla
sig.“
Vinsælt hjá Íslendingum
Smámunasafnið er opið fjóra
mánuði á ári, yfir sumarið. Einnig
er opið yfir páskana og fyrir hópa
sem panta allan ársins hring. „Við
fengum um þrjú þúsund gesti
fyrstu tvö árin en síðan hefur þetta
mjakast upp á við og í fyrra heim-
sóttu okkur rúmlega fimm þúsund
manns. Þetta eru mest Íslendingar
sem koma,“ segir Guðrún. Hún hef-
ur verið safnstjóri frá upphafi og
leiðist ekki í starfi sínu. „Það er
ekki erfitt að vera í vinnunni þegar
allir eru svona ánægðir og þykir
gaman að koma.“
VITA er lífið
Alicante
VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is
Kynntu þér ferðamöguleikana og
skráðu þig í netklúbbinn á VITA.is
Flugsæti, 10. ágúst
Verð frá 29.900 kr.
Innifalið: Flug til Alicante og flugvallarskattar.
Vikulegt flug út október 2011.
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
VI
T
55
86
3
08
/1
1
Í bréfi sem Sverrir sendi
sveitarstjórn Eyjafjarð-
arsveitar á haustmánuðum
2002 lýsir hann fjölbreytileika
safnsins svo:
„Ég undirritaður hef alla
mína starfsævi unnið við
smíðar og ekki síst endurgerð
gamalla húsa og bygginga. Í
starfi mínu hef ég haldið til
haga ýmsum hlutum og minj-
um, sem með ýmsum hætti
tengjast þessu ævistarfi
mínu. Þannig hafa mér safn-
ast verðmæti sem m.a. sýna
þróun byggingarsögunnar allt
frá nítjándu öldinni og fram á
þennan dag. Safnið er mikið
að vöxtum og fjölbreytt þar
sem finna má smíðaverkfæri
og áhöld frá fyrrnefndu tíma-
bili, heimilistæki ýmiss konar,
hluti sem tengjast rafiðnaði
og raflögnum í hús, vatns-
lögnum og ótalmörgu fleiru. Í
raun má segja að í safninu
finnist flest það sem tengist
byggingu húsa allt frá
minnsta nagla til skrautleg-
ustu gluggalista og hurð-
ahúna.“
Safnið er
mikið
að vöxtum
og fjölbreytt
ORÐ SVERRIS
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Meira um safnið
má sjá á Mbl.is.
Skannaðu kóðann
til að sjá innslagið.