Morgunblaðið - 06.08.2011, Page 24
24 UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Þann 19. ágúst kemur út
glæsilegt sérblað um skóla
og námskeið sem mun
fylgja Morgunblaðinu
þann dag
MEÐAL EFNIS:
Endurmenntun.
Símenntun.
Iðnnám.
Tómstundarnámskeið.
Tölvunám.
Háskólanám.
Framhaldsskólanám.
Tónlistarnám.
Skólavörur.
Skólatölvur.
Ásamt full af spennandi efni.
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 15. ágúst
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu
flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á
frekara nám í haust.
Skólar & námskeið
SÉRBLAÐ
Skólar & námske
ið
Á árunum fyrir hrun
má segja að ekki hafi
verið gætt hófs við gerð
fjárlaga og fjárhagsáætl-
ana. 2005-2008 jukust út-
gjöld ríkisins um 85%,
sem gerði það að verk-
um að verðbólga og þar
með stýrivextir hækk-
uðu upp úr öllu valdi.
Það má svo sem velta
sér upp úr því hvað
mætti hafa farið betur
fyrir hrun, en einnig er mikilvægt að
taka á þeim málum sem þjóðin er nú
að kljást við. Árlega er íslenska ríkið
að greiða rúma 70 milljarða í vexti til
erlenda kröfuhafa, milljarða sem
vissulega væri betur varið í aðra út-
gjaldaliði, skattalækkanir eða helst
það að minnka fjárlagahallann.
Sérstaklega er mikilvægt að horfa á
þessa tölu í samhengi við þá staðreynd
að íslenska hagkerfinu er að blæða út.
Ríkisstjórnin hefur reynt að sannfæra
íbúa þessa lands um að aðstæður séu
að batna vegna þess að bæði þjónustu-
og vöruskiptajöfnuður Íslands séu já-
kvæðir. Ekki ætlar undirritaður að
halda því fram að stjórnvöld séu að
fara með lygar, en vissulega er um að
ræða hálfsannindi. Greiðslujöfnuður
Íslands við útlönd stendur samkvæmt
seinustu tölum Seðlabanka Íslands í
-120 milljörðum króna, enda verður
einnig að taka þátttatekjur með í
reikninginn. Hagkerfið er því að
minnka.
Það er augljóst að vaxtagreiðslur ís-
lenska ríkisins og fyrirtækja í eigu
þess eru talsvert hlutfall þeirrar upp-
hæðar sem fer úr landi, einnig verður
að taka með í reikninginn skuldir
sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra. Það
er þess vegna áhættu-
samt fyrir stjórn-
málamenn landsins að
telja landsmönnum trú
um það að keynsískar
hugmyndir, um að fjár-
festingar ríkisins skapi
störf og leysi þar með
vandamál Íslendinga,
virki. Sífellt leggjast
þyngri byrðar á herðar
skattgreiðenda, bæði í
þeim tilgangi að
„skapa“ störf og að
borga vaxtakostnað rík-
isins af þeim lánum er notuð voru til
þess að „skapa“ störfin.
Það kemur að þeim degi er lánsfé
ríkisins og annarra opinberra aðila
verður á þrotum. Fyrst þá munu
stjórnmálamenn landsins þurfa að
taka ákvarðanir sem munu vera tals-
vert óvinsælli en þær sem nú eru
nauðsynlegar til þess að losa þjóðina
undan erlendum skuldum.
Kaupmáttur rýrnar enn
Nettó útsreymi fjármagns úr landi
gerir það að verkum að hagkerfið
verður sífellt minna. Það er einfald-
lega eekki innistæða í hagkerfinu fyrir
áætlaðar launahækkanir nýgerðra
kjarasamninga. Samningarnir munu
þess vegna einungis skila verðbólgu,
nema það verði komið á nettó inn-
streymi fjármagns.
Innstreymi fjármagns er háð því að
ekki sé verið að senda úr landi gríð-
arlegar upphæðir árlega til erlendra
kröfuhafa, ásamt því að útflutningur
færist í aukana. Sagt með einföldum
hætti þá er nauðsynlegt að skapa frek-
ari verðmæti og losa landið undan
skuldum.
Reynsla
Þá ber að minna á að þetta er ekki í
fyrsta skipti sem þjóðin hefur verið í
slíkum vanda og hefur hann verið
leystur áður, og er vafalaust hægt að
nota reynslu fyrri kynslóða til þess að
finna þær leiðir er þykja færar.
Stefnuskrá Íhaldsflokksins frá 1924 er
hugsanlega besta fyrirmynd þess efn-
is, en í henni segir: „Fyrsta verkefni
flokksins látum vér vera það að beitast
fyrir viðreisn á fjárhag landsjóðs. Vér
viljum að því leyti sem frekast er unnt
ná þessu takmarki með því að fella
burtu þau útgjöld landsjóðs, sem vér
teljum ónauðsynleg, og með nið-
urlagningu eða samfærslu þeirra
landsstofnana og fyrirtækja, sem vér
teljum, að þjóðin geti án verið eða
minnkað við sig henni að skað-
lausu. … Að sjálfsögðu vill flokkurinn
nú þegar veita atvinnuvegunum þann
stuðning með löggjöfinni, sem unnt er
án hnekkis fyrir fjárhag landsjóðs.“
Ekki hefur heyrst mikið frá stjórn-
málamönnum sem vilja greiða úr þess-
ari grafalvarlegu stöðu sem upp hefur
komið. Hinsvegar hefur verið áber-
andi hversu dyggir menn eru til þess
að halda þeirri hefð að yfirbjóða and-
stæðinga sína í útgjöldum til „góðra“
mála. Framtíð þessa lands byggist á
því hvort finna megi nægilegan kjark í
fari stjórnmálamanna til þess að taka
óvinsælar ákvarðanir í þeim tilgangi
að losa þjóðina undan skuldum. Þjóð
getur aðeins talist frjáls ef hún er ekki
háð miskunn kröfuhafa sinna.
Þjóð er ekki frjáls ef hún er
háð miskunn kröfuhafa sinna
Eftir Gunnlaug Snæ
Ólafsson
Gunnlaugur Snær
Ólafsson
»Það kemur að þeim
degi er lánsfé ríkisins
og annarra opinberra að-
ila verður á þrotum.
Höfundur er formaður
Félags íhaldsmanna.
Fréttir um að öku-
menn telji öruggara að
keyra um gamla veg-
inn yfir Oddskarðið
vegna grjóthruns sem
hefur aukist í ein-
breiðu veggöngunum
milli Eskifjarðar og
Neskaupsstaðar vekja
spurningar um hvort
óhjákvæmilegt sé að
fresta tímabundið
jarðgangagerð undir
Vaðlaheiði og flýta þess í stað fram-
kvæmdum við tvíbreið Norðfjarð-
argöng til að íbúar Fjarðabyggðar
losni endanlega við einbreiðu slysa-
gildruna í 620 m hæð. Síðastliðin ár
hafa um 25% af gjaldeyristekjum
þjóðarinnar orðið til í Fjarðabyggð
vegna útflutnings á áli frá Alcoa-
Fjarðaáli og ekki síður frá þeim
sterku sjávarútflutningsfyrir-
tækjum sem eru á Mið-Austurlandi.
Sameiningin sem íbúar Reyð-
arfjarðar, Eskifjarðar og Norð-
fjarðar samþykktu er ein forsendan
fyrir nýjum Norðfjarðargöngum.
Fjarðabyggð og allt Austurland sem
fá minna til baka í opinberri þjón-
ustu hafa að jafnaði lagt enn meira
til samneyslunnar.
Of mikil umferð sem gamli veg-
urinn milli Eskifjarðar og Norð-
fjarðar þolir ekki vekur líka spurn-
ingar um hvort Vegagerðin geti
haldið Oddskarðinu opnu alla vetr-
armánuðina ef íbúar Fjarðabyggðar
treysta ekki veðurspánum vegna ill-
viðris og snjóþyngsla á báðum veg-
unum upp að einbreiðu slysagildr-
unni.
Allir þingmenn Norðaustur-
jördæmis skulu svara því hvort óhjá-
kvæmilegt sé að bregðast strax við
þessu hættuástandi í Oddskarðs-
göngunum sem getur einangrað
Norðfjörð frá Fjarðabyggð alla vetr-
armánuðina ef fulltrúar fjárveit-
ingavaldsins setja hnefann í borðið
með þeim skilaboðum að íslenska
ríkið geti ekki endalaust fleygt tug-
um milljóna króna í snjómokstra til
að halda Oddskarðinu opnu en það
er síður en svo auðvelt. Þetta grjót-
hrun í Oddskarðsgöngunum gerir
staðsetningu Fjórðungssjúkrahúss-
ins í Neskaupsstað ótrúverðuga þeg-
ar bílstjórar sem keyra daglega milli
Eskifjarðar og Norðfjarðar komast
ekki óhappalaust í gegnum þessa
slysagildru án þess að stórir steinar
valdi stórtjóni á bifreiðum þeirra.
Spurningar vakna um hvort þeir
sem fullyrða að 6 km löng og tvíbreið
Norðfjarðargöng verði dýrari en
Héðinsfjarðargöng þurfi að taka af-
leiðingunum ef stórt grjót losnar úr
berginu og veldur dauðaslysum inni
í Oddskarðsgöngunum sem standast
aldrei hertar öryggiskröfur ESB.
Best væri ef kallaðir yrðu til sér-
fræðingar sem geta lagt
mat á öryggismál Odd-
skarðsganganna og
svarað því strax hvort
besti kosturinn sé að
loka göngunum fyrir
fullt og allt til að koma í
veg fyrir að þetta grjót-
hrun kosti fleiri manns-
líf ef þessi dauðagildra
fellur saman einn góðan
veðurdag. Eðlilegt er að
áhyggjufullir heima-
menn spyrji þingmenn
Norðausturkjördæmis
hvort þessir mannskaðar verði skrif-
aðir á reikning skattgreiðendanna í
Fjarðabyggð.
Þetta vekur spurningar um hvort
nú verði óhjákvæmilegt að ráðast í
miklar lagfæringar á gamla veginum
í Oddskarði til þess að þeir starfs-
menn hjá Alcoa sem eru með sitt lög-
heimili í Neskaupsstað geti á hverj-
um degi sótt sína vinnu til
Reyðarfjarðar. Annars komast allir
Norðfirðingar sem starfa í álverinu
ekki til vinnu nema þeir flytji lög-
heimilið sitt þangað eða til Eski-
fjarðar ef Vegagerðinni tekst ekki
vegna snjóþyngsla og illviðris að
halda Oddskarðinu opnu alla vetr-
armánuðina. Áður hafa stjórnendur
Alcoa ítrekað að vilji þeirra standi til
þess að þeir komi ásamt íslenska rík-
inu að fjármögnun jarðganganna
sem styrkja alla uppbyggingu at-
vinnuveganna í Fjarðabyggð.
Ekki er útilokað að grjóthrunið í
Oddskarðsgöngunum verði nógu
mikið til þess að allt vegasambandið
milli Norðfjarðar og Eskifjarðar
eyðileggist endanlega ef allar til-
raunir til að afstýra því að göngin
falli saman mistakast. Þá stórskað-
ast Síldarvinnslan ef þessi slysa-
hætta stöðvar alla fiskflutningana
frá Neskaupsstað næstu tíu árin.
Útilokað er að gamli vegurinn í Odd-
skarðinu þoli þessa þungaflutninga.
Baráttan gegn þessu grjóthruni
kostar meira en ný tvíbreið Norð-
fjarðargöng. Tryggvi Þór Herberts-
son skal flytja á Alþingi tillögu um að
koma Norðfjarðarflugvelli í nothæft
ástand ef Vegagerðin getur ekki
stöðvað einangrun Neskaupsstaðar
frá Eskifirði alla vetrarmánuðina
vegna snjóþyngsla og illviðris í stað
þess að skipta sér af samgöngu-
málum Skagafjarðar og Húnaþings.
Ákveðum framkvæmdir við ný Norð-
fjarðargöng á undan Vaðlaheið-
argöngum.
Grjóthrun í Odd-
skarðsgöngunum
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
» Best væri ef kallaðir
yrðu til sérfræð-
ingar sem geta lagt mat
á öryggismál Odd-
skarðsganganna...
Höfundur er farandverkamaður.
Nú um helgina skora íslensk
skákbörn þjóðina á hólm í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Þetta er engin venju-
leg skák: Börnin okkar í skák-
hreyfingunni eru að safna fyrir
Rauða krossinn, sem freistar þess
að bjarga þúsundum barna frá
hungurdauða í Sómalíu. Kjörorð
skákhreyfingarinnar er: Við erum
ein fjölskylda, og það er í þeim
anda, sem skákbörnin okkar skora
á þig, lesandi góður, að mæta í
Ráðhúsið og tefla eina skák. Fyrir
hana geturðu borgað upphæð að
eigin vali, og hver einasta króna
rennur beint í söfnun Rauða
krossins. Peningarnir verða not-
aðir til að kaupa vítamínbætt
hnetusmjör, til að hjúkra dauð-
veikum og vannærðum börnum til
heilsu.
Íslendingar gætu gert kjörorð
skákhreyfingarinnar að sínum: Við
erum ein fjölskylda. Þegar mikið
liggur við á Ísland eina sál. Mesta
hneyksli 21. aldar, kallar franski
utanríkisráðherrann hungursneyð-
ina í Austur-Afríku. Leggjum okk-
ar eigin áhyggjuefni til hliðar í
smástund, hugum að okkar
smæstu bræðrum og systrum; áð-
ur en það er orðið of seint. Mæt-
um í Ráðhúsið um helgina, tökum
áskorun krakkanna okkar, mætum
í skákveisluna í Ráðhúsinu og tök-
um þátt í að bjarga mannslífum.
HRAFN JÖKULSSON.
Við erum ein fjölskylda
Frá Hrafni Jökulssyni