Morgunblaðið - 06.08.2011, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
✝ Íris Sigurbjörgfæddist á Burst-
afelli í Vest-
mannaeyjum 25.
september 1933.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Vestmannaeyja
26. júlí 2011. For-
eldrar hennar voru
Aðalheiður Árna-
dóttir frá Burstafelli
í Vestmannaeyjum,
f. 7.1. 1913, d. 20.10.
1987, og Sigurður Sigurjónsson
frá Vopnafirði, f. 20.4. 1908, d.
16.7. 1979. Þau áttu saman þrjú
börn, Árna, f. 1930, d. 1938, Kára
Birgi, f. 1931, og Írisi. Þau slitu
samvistir. Hálfsystkini Írisar,
samfeðra, eru Jón Rúnar, f. 1941,
d. 1998, Sigrún Birgitta, f. 1946,
Eðvald, f. 1951, Vignir, f. 1954, og
Díana, f. 1956. Síðar giftist Að-
alheiður Ágústi Bjarnasyni frá
Svalbarða í Vestmannaeyjum, f.
18.8. 1910, d. 3.1. 1983. Fyrir átti
Ágúst Hörð, f. 1932, d. 2008.
Hinn 16.5. 1959 giftist Íris Haf-
seini Ágústssyni frá Varmahlíð í
Vestmannaeyjum, f. 1.11. 1929.
Foreldrar Hafsteins voru Ágúst
Jónsson frá Varmahlíð, f. 5.8.
1891, d. 1.12. 1969, og Pálína Ei-
ríksdóttir frá Kraga í Oddahverfi
á Rangárvöllum, f. 10.4. 1895, d.
13.1. 1983. Börn Írisar og Haf-
steins eru: 1) Aðalheiður, f. 15.1.
1959, gift Sigurði Inga Ólafssyni,
nýju, f. 16.11. 1990. 6) Árni, f. 5.5.
1973. Fyrir átti Hafsteinn: 1)
Söru, f. 4.6. 1952, gift Þórólfi
Guðnasyni. f. 28.10. 1953. Börn
þeirra: a. Hafsteinn, f. 19.5. 1977,
í sambúð með Marteini Arnari Ol-
sen Heimissyni, f. 27.7. 1982, b.
Svavar, f. 5.6. 1986, í sambúð með
Tinnu Sverrisdóttur, f. 8.3. 1988.
2) Svövu, f. 26.8. 1953, gift Ólafi
H. Sigurjónssyni, f. 30.5. 1950.
Börn þeirra: a. Anna, f. 28.10.
1971, gift Haraldi Hannessyni, f.
2.10. 1968, og eiga þau Baldur, f.
14.6. 1997, Hannes, f. 3.2. 2003,
og Ólaf Má, f. 8.6. 2007. b. Andri,
f. 18.12. 1982, í sambúð með
Charlottu Sigrid á Kosini, f. 13.7.
1986, og eiga þau Sigurstein, f.
30.4. 2006.
Íris fæddist á Burstafelli í
Vestmannaeyjum og ólst þar upp
og gekk þar í skóla. Vann á sín-
um yngri árum við ýmis versl-
unar- og þjónustustörf í Eyjum
og í Reykjavík. Íris vann mestan
sinn starfsaldur, eða um 30 ár,
hjá Ísfélagi Vestmannaeyja og
gegndi þar ýmsum trún-
aðarstöfum, m.a. sem trún-
aðarmaður starfsfólks. Íris og
Hafsteinn héldu sitt heimili í
Vestmannaeyjum alla tíð að
undanskildu rúmlega einu ári
þegar þau bjuggu í Reykjavík
vegna eldgossins á Heimaey
1973. Íris var mjög félagslynd og
lét mikið að sér kveða á því sviði.
Hún söng í mörg ár með Samkór
Vestmannaeyja og var virkur fé-
lagi í Oddfellowstúkunni Vil-
borgu.
Útför Írisar fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum í
dag, 6. ágúst 2011, kl. 14.
f. 23.2. 1956. Börn
þeirra: a. Íris, f.
19.5. 1981, í sambúð
með Gunnari Þór
Guðbjörnssyni, f.
18.5. 1981, og eiga
þau Aðalheiði Krist-
ínu, f. 28.6. 2007, og
Guðbjörn Inga, f.
27.1. 2011. b. Sara, f.
4.11. 1988. c. Ólafur,
f. 9.2. 1992. 2)
Ágústa, f. 1.12. 1959,
gift Ástþóri Jónssyni, f. 26.8.
1957. Börn þeirra: a. Sigríður
Helga, f. 4.12. 1982, gift Hilmari
Jóni Stefánssyni, f. 17.12. 1981, og
eiga þau Ágúst Bjarna, f. 16.1.
2009. Fyrir átti Sigríður Helga
Ágústu Aris, f. 4.7. 2004. b. Haf-
dís, f. 14.7. 1986, í sambúð með
Jónasi Þóri Gunnarssyni, f. 12.8.
1983, og eiga þau Oddnýju Báru,
f. 18.1. 2011. Fyrir átti Hafdís Ást-
þór, f. 7.3. 2008. c. Arna Hlín, f.
24.12. 1993. Fyrir átti Ástþór
Ástu Steinunni, f. 21.12. 1976, í
sambúð með Guðjóni Jóhannesi
Kristjánssyni, f. 9.7. 1968. 3) Lára,
f. 8.3. 1961, gift Einari Birgissyni,
f. 9.8. 1957. Börn þeirra: a. Hlyn-
ur, f. 31.1. 1985. b. Herdís, f. 10.1.
1991. 4) Hafdís, f. 1.10. 1963, d.
10.10. 1963. 5) Örn, f. 2.4. 1965,
kvæntur Sólveigu Jónsdóttur, f.
19.9. 1964. Börn þeirra: a. Jóhann
Haukur, f. 12.4. 1998. b. Orri Már,
f. 18.7. 2000. Fyrir átti Örn Guð-
Þeir vita það sem til þekkja að
það er ekki sjálfgefið að börnum
lyndi við nýja maka foreldra sinna
eftir skilnað. Við systurnar kynnt-
umst Írisi fyrir rúmlega 50 árum
þegar hún giftist föður okkar.
Hún og pabbi eignuðust sex
börn, en við systur urðum strax
sjálfsagður hluti af lífi hennar.
Hið sama átti líka við um okkar
nánustu, eins og eftirfarandi frá-
sögn vitnar um. Við vorum sam-
ankomin í þjóðhátíðartjaldi pabba
og Írisar; börn þeirra, móðursyst-
ir okkar og bróðir okkar móður-
megin. Einhver sem var gestkom-
andi í tjaldinu vildi vita deili á
þessum barnaskara. Svar Írisar
var: „Ég á þau öll.“
Viðmót Írisar í okkar garð var
óbreytt þegar við vorum komin á
fullorðinsár. Hún var einstaklega
gestrisin, sem sást best eftir gosið
á Heimaey. Þau höfðu misst húsið
sitt og bjuggu í fimmtíu fermetra
bráðabirgðahúsnæði með fimm
börn en samt var alltaf pláss fyrir
okkur þegar við komum til Eyja.
Ef bregða á upp mynd af Írisi í
stuttu máli sjáum við fyrir okkur
konu sem var há, ljóshærð og
gædd mikilli reisn, enda var hún
mjög ákveðin og fylgin sér. Hún
var vel lesin, músíkölsk og vel að
sér um málefni líðandi stundar.
Þrátt fyrir langvarandi veikindi
geislaði ætíð af henni lífsgleðin og
áhugi á högum sinna nánustu.
Þegar erfiðara varð fyrir hana
að ferðast seinni árin varð það sið-
ur hjá okkur systkinunum að
mæta með tölvuna og fara í máli
og myndum yfir ferðirnar og naut
hún þess að ferðast í gegnum okk-
ur.
Sá andi sem við systur ólumst
upp við hjá móður okkar og móð-
urforeldrum og síðan viðhorf Ír-
isar til okkar er til eftirbreytni.
Margir sem slíta samvistir og eiga
börn gætu lært af því og allra er
gróðinn.
Við og fjölskyldur okkar minn-
umst hennar með söknuði og
miklu þakklæti.
Sara og Svava (Ögga).
Ég hitti stjúptengdamóður
mína, hana Írisi, fyrst sumarið
1970 í Ísfélaginu í Vestmannaeyj-
um. Ég var þá nýbyrjaður að slá
mér upp með núverandi eiginkonu
minni en Íris var þá gift eftirlif-
andi eiginmanni sínum og mínum
núverandi tengdaföður, Happa frá
Varmahlíð. Einn sumardag mætti
ljóshærð, hávaxin og tignarleg
kona á vinnusvæði mitt í Ísfélag-
inu ásamt tveimur öðrum konum.
Þær pískruðu saman, bentu á mig
og flissuðu eitthvað óskiljanlegt.
Ég, óharðnaður unglingurinn, fór
hins vegar hjá mér, varð óöruggur
og hélt jafnvel að ég væri með ein-
hvern útlitsgalla. Síðar komst ég
að því, að þetta var hún Íris að
berja mig, kærasta stjúpdóttur
sinnar, augum.
Allt frá þessum degi hef ég
dáðst að Írisi vegna eiginleika
hennar. Hún var mikil áhuga-
manneskja um tónlist, einkum
djass, og víðlesin í bókmenntum.
Hún var kærleiksrík og full af
réttlæti en var að sama skapi
ákveðin og stjórnsöm á köflum.
Besti vitnisburðurinn um mann-
kosti Írisar er þó hversu mikið
börn hennar og barnabörn sóttu til
hennar, hversu áhugasöm hún var
um daglegt líf allra sinna fjöl-
skyldumeðlima og hversu einlægt
hún leit á stjúpdætur sínar og
þeirra fjölskyldur sem hluta af
sinni fjölskyldu.
Erfiðri og langri sjúkdóms-
göngu Írisar er nú lokið og ég
minnist hennar með miklu þakk-
læti. Minningin um góða og heil-
steypta manneskju mun lifa um
ókomna framtíð.
Þórólfur Guðnason.
Mig langar til að skrifa örfá orð
til þess að minnast ömmu minnar.
Amma í Eyjum, eins og ég kallaði
hana, verður alltaf í miklu uppá-
haldi hjá mér, hvort sem var í lif-
anda lífi eða eins og nú er orðið, í
minningunni. Á stundum sem
þessari hrannast upp minningar
en erfitt reynist að koma þeim nið-
ur á blað. Að sofa inni á gólfi í
Hrauntúninu þar sem amma og afi
bjuggu var svo þægilegt þegar ég
fór þangað í heimsókn sem barn.
Að ganga með ömmu yfir hraunið
á leið í heimsókn til Öllu frænku.
Síðar að fara með henni að keyra
um eyjuna eftir að amma ákvað að
taka bílpróf, þá komin yfir sextugt.
Að sitja í Sólhlíðinni og spjalla um
allt milli himins og jarðar. Að
hringja í ömmu þegar ég var
staddur uppi í Leifsstöð á leið til
útlanda var venja, heyra svo aftur
í henni eftir að heim var komið og
segja ferðasöguna. Að vera með
ömmu á ættarmóti og syngja og
hjálpa henni að fylgjast með hvert
við værum komin í söngbókinni.
Standa úti í glugga heima í Hrafn-
hólum og hlaupa út á bílaplan þeg-
ar bíllinn renndi í hlað og hjálpa
ömmu að bera upp „bjútíboxið“.
Að sitja með ömmu í aftursætinu á
bílnum okkar í einu fríinu og læra
Eyjalögin. Allt eru þetta yndisleg-
ar minningar sem aldrei gleymast.
Elsku amma, takk fyrir allt, að
hafa átt ömmu eins og þig eru for-
réttindi.
Hlynur Einarsson.
Það er ótrúlega skrítið að setja
niður á blað minningar um þig
amma, þó að ég viti betur hefur
mér alltaf fundist þú eiga að fylgja
mér. Ég var fyrsta barnabarnið
þitt og alnafna, ég var ótrúlega
stolt af því enda ekki oft sem al-
nöfnur koma í beinan kvenlegg. Í
Hrauntúninu þar sem þið afi áttuð
heima þegar ég var lítil var oft
mikið fjör og skemmtilegast var að
fá að fara í bíltúr á hvítu Lödunni,
standa á milli sætanna og fá fugla-
fóður, en það var „nammi“ sem var
geymt í hanskahólfinu og allir
vissu af.
Svo þegar árin liðu varð sam-
band okkar eins og gott vinkon-
usamband. Ótrúlega fannst mér
gaman að hringja í þig eftir að ég
fluttist til Reykjavíkur og spjalla
um allt milli himins og jarðar og
þegar ég kom í heimsókn til Eyja
var förinni fyrst heitið í Sólhlíðina
þar sem beið heitt á könnunni og
kóngabrjóstsykur með. Þegar við
lögðum í ferðalagið upp á land aft-
ur var hefð fyrir því að hringja í þig
um leið og komið var í Þorlákshöfn
og svo aftur þegar við vorum kom-
in heim í íbúð, þú vildir alltaf vera
þess fullviss að við kæmumst heil á
leiðarenda.
Ég er svo glöð að Alla fékk að
kynnast þér og þú henni og einnig
að þú fékkst að sjá og halda á Guð-
birni Inga áður en þú kvaddir. Ég
mun alltaf sjá til þess að þau viti
hver amma í Sólhlíð var og segja
þeim ótal sögur um þig, enda af
nægu að taka. Ég er svo þakklát
fyrir að hafa verið mikið í Eyjum
þessa síðustu mánuði og getað
heimsótt þig.
Mig langar að enda þessa grein
á fallegum texta úr þjóðhátíðarlagi
sem ég veit að þú hélst mikið upp
á, sem er vel við hæfi því þú naust
þín hvergi betur en syngjandi í
góðra vina hópi.
Hvíl í friði elsku amma, ég mun
ávallt sakna þín svakalega mikið.
Það kvöldar við bergið og blær fer um
strönd.
það brimar í hjarta og hlý er mín hönd.
Hljóðlát fer nóttin um hlíðar og grund
og helgar okkar fund.
(Árni Johnsen)
Þín
Íris.
Hver ekur eins og ljón með aðra hönd
á stýri,
Bjössi á mjólkurbílnum,
Bjössi á mjólkurbílnum.
Hver stígur bensínið í botn í fyrsta gíri,
Bjössi á mjólkurbílnum,
hann Bjössi kvennagull
Bjössi á mjólkurbílnum ásamt
Barnabrag og fleiri slögurum er
aðeins brot af því sem þú kenndir
okkur frændsystkinunum. Þú sett-
ist niður með okkur þegar við vor-
um lítil og kenndir okkur þau frá
grunni. Þú varst alltaf til staðar
þegar við þurftum á þér að halda
og betur til. Minning þín mun lifa
sterk í hjörtum okkar það sem eft-
ir er.
Þú áttir stóran þátt í uppeldi
okkar allra og eins og sannri
ömmu sæmir giltu allt aðrar reglur
heima hjá þér en hjá mömmu og
pabba. Til dæmis mátti maður
vaka miklu lengur, maður fékk
alltaf að fara ofan í skúffu og fá sér
nammi og kex þó svo að það væri
ekki nammidagur og svo fékk mað-
ur kokteilsósu með fiskinum sem
fékk mann þá til að borða hann
með bestu lyst.
Þú fylgdist alltaf vel með öllu
sem við tókum okkur fyrir hendur
með miklum áhuga og það var allt-
af ótrúlega gaman að koma í heim-
sókn til þín, sitja inni í stofu og
ræða allt það sem okkur datt í hug.
Þú fylgdist einstaklega vel með
strákamálunum okkar og oftar en
ekki var það fyrsta spurningin sem
sumar okkar fengu, hvort við vær-
um nú ekki komnar með kærasta.
Þú varst mikil áhugamanneskja
um þjóðhátíð og eiginlega alla
skemmtun yfir höfuð. Þegar þú
varst hætt að koma sjálf inn í dal
Íris Sigurbjörg
Sigurðardóttir
HINSTA KVEÐJA
Hún amma Íris var ein-
stök kona, hennar verður
sárt saknað.
Við þökkum fyrir ástúð alla,
indæl minning lifir kær.
Nú mátt þú vina höfði halla,
við herrans brjóst er hvíldin vær.
Í sölum himins sólin skín
við sendum kveðju upp til þín.
(HJ)
Hvíldu í friði yndislega
amma Íris. Við elskum þig.
Hafdís og Arna Hlín
Ástþórsdætur.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
✝
Eiginmaður minn, faðir og fósturfaðir,
KRISTINN S. DANÍELSSON
vélvirki,
Klettagötu 2,
Hafnarfirði,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
miðvikudaginn 3. ágúst.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 12. ágúst
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja
minnast hans eru beðnir um að láta líknarfélög njóta þess.
Áslaug Hafsteinsdóttir,
Steingrímur Kristinsson,
Aðalsteinn Jörgensen.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
MARGRÉT HANNESDÓTTIR
frá Núpstað,
Langarholtsvegi 15,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
miðvikudaginn 3. ágúst. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
Jón Valur Samúelsson, Lovísa Gunnarsdóttir,
Elsa Samúelsdóttir,
Margrét Samúelsdóttir, Sveinn Sveinbjörnsson,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur okkar, bróðir og barnabarn,
TRYGGVI HEIÐAR HAUKSSON,
Vorsabæ 4,
Reykjavík,
lést föstudaginn 22. júlí síðastliðinn.
Útförin hefur þegar farið fram frá
Árbæjarkirkju.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á ADHD samtökin eða
Umhyggju, félag til styrktar langveikum börnum.
Hildur Sveinsdóttir, Haukur Eggertsson,
Steinunn Jóna Hauksdóttir,
Heiða Tryggvadóttir, Sigurjóna Jónsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HLÍF S. SIGURJÓNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 8. júlí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Einnig viljum við þakka öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall hennar.
Margrét I. Hafsteinsdóttir, Vilhelm Einarsson,
Sigurður K. Hafsteinsson,
Skúli Þór Hafsteinsson, Ana Jarilys Tejeda,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
HALLVEIG EINARSDÓTTIR,
sem lést laugardaginn 30. júlí,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.00.
Einar Örn Lárusson,
Lárus Guðberg Lárusson, Sigríður Þyri Friðgeirsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og
barnabarnabarnabörn.
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 8284 / 551 3485
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947