Morgunblaðið - 06.08.2011, Qupperneq 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Sudoku
Frumstig
9 1 4
6 5 3
6
4 5 1 2
2 3 8
8 5 1 9 3
8
2 1 9
9 1 4 6
4 6 1
4 2 7 9
6 1 9 8 2
4 3 8
7
6 9 1
9 1 3
7 8 3 9
1 7 4
7 4
3 8 1 7
1 4
4 2 6
9 2 5
2 1 3
8 5 6 2
6 7 1 2 8 5 4 3 9
2 9 8 7 3 4 5 1 6
3 4 5 9 1 6 2 7 8
9 1 3 4 5 7 8 6 2
8 5 6 3 2 9 7 4 1
4 2 7 8 6 1 3 9 5
1 8 4 5 9 3 6 2 7
7 6 2 1 4 8 9 5 3
5 3 9 6 7 2 1 8 4
4 6 9 1 7 5 2 8 3
1 3 7 2 9 8 5 6 4
5 2 8 6 4 3 9 7 1
8 7 6 5 3 4 1 9 2
2 5 4 9 8 1 6 3 7
9 1 3 7 2 6 8 4 5
7 8 1 4 6 2 3 5 9
3 9 5 8 1 7 4 2 6
6 4 2 3 5 9 7 1 8
6 8 7 3 1 5 9 4 2
3 5 2 9 6 4 8 7 1
4 1 9 7 2 8 3 6 5
9 3 1 8 5 6 7 2 4
8 4 6 1 7 2 5 3 9
7 2 5 4 3 9 1 8 6
2 7 8 5 4 1 6 9 3
5 9 4 6 8 3 2 1 7
1 6 3 2 9 7 4 5 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 6. ágúst, 218. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Lækna mig Drottinn, að
ég megi heill verða; hjálpa mér, svo að
mér verði hjálpað, því að þú ert minn
lofstír. (Jer. 17, 14.)
Víkverji dagsins átti leið um há-lendi Íslands í vikunni. Þar get-
ur að líta ýmis samgöngutæki sem
ferðaþjónar nota í atvinnuskyni. Vík-
verji veltir því fyrir sér hvort ekki sé
skotið dálítið yfir markið með sumum
tækjunum sem notuð eru, þá einna
helst af erlendum ferðaskrifstofum
sem skipuleggja ævintýraferðir til
eldfjallaeyjunnar. Útlendingarnir
eru mikið fyrir að nota risavaxna
hertrukka af einhverju tagi, í ætt við
þá sem eitt sinn báru vörumerkið
Unimog. Þeir eru svo málaðir í skær-
um safarílitum og allar græjur hafð-
ar utan á þeim svo þeir líti sem æv-
intýralegast út. Skóflur og tjakkar
hanga utan á þeim og varadekkin eru
ætíð höfð á áberandi stað. Víkverji er
ekki viss hvort það eru þrjú eða fjög-
ur þrep í stiganum sem liggur upp í
svona bíla.
x x x
Það gæti því virkað sem dálítiðspennufall að fara yfir þær ár
sem almennt er verið að fara yfir í
þessum hálendisferðum. Tiltölulega
saklaus vöð velflest, verða varla
nokkuð sem ferðamennirnir taka eft-
ir þegar þeir sitja í þriggja metra
hæð. Þar að auki líður þeim kannski
dálítið skringilega að vera komnir á
þessum ofurskrímslatrukkum langa
leið upp á fjöll, en þegar rennt er inn
á hlaðið í Landmannalaugum bíða
þar jepplingar og óbreyttir jeppar.
Víkverji veit a.m.k. ekki til þess að
ferðaþjónarnir séu að skrölta yfir
stærstu jökulár á þessum bílum. Ef-
laust eru þó einhverjir staðir þar sem
þeir koma sér vel, eins og ef mikið er
í Krossá og förinni er heitið í Húsa-
dal.
x x x
Áferð sinni um Fjallabak fyrirskemmstu tók Víkverji eftir því
hversu mikið er af Frökkum og Hol-
lendingum á hálendinu, en hvernig
minna heyrist af þýsku. Kannski er
þetta fyrst og fremst vegna fjölgunar
í fyrrnefndu hópunum en Víkverji
hefur skynjað þetta dálítið eins og
þýskir viðskiptavinir skipi ekki sama
burðarhlutverk í ferðaþjónustunni
og áður. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 æskilegur, 8
grasflöt, 9 angan, 10
greinir, 11 geil, 13 glaums,
15 fáni, 18 lítið, 21 rödd,
22 munnbita, 23 spilið, 24
heimska.
Lóðrétt | 2 fiskinn, 3 súr-
efnið, 4 í vafa, 5 mergð, 6
ótta, 7 hól, 12 álygar, 14
snák, 15 óðagoti, 16 áreiti,
17 sori, 18 jurtar, 19 kær-
leikurinn, 20 þyngdareining.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bukks, 4 bætir, 7 kækur, 8 ólund, 9 tár, 11 riða, 13
hali, 14 græða, 15 vala, 17 láns, 20 vin, 22 neyði, 23 ólíkt, 24
aftra, 25 tjara.
Lóðrétt: 1 búkur, 2 kákið, 3 sárt, 4 bjór, 5 tauta, 6 ruddi, 10
ámæli, 12 aga, 13 hal, 15 vansa, 16 leyst, 18 álíka, 19 setja, 20
vika, 21 nótt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Team Monaco. S-NS.
Norður
♠105
♥ÁG10764
♦6
♣10753
Vestur Austur
♠Á42 ♠DG983
♥D5 ♥–
♦Á9852 ♦KG1043
♣984 ♣KG6
Suður
♠K76
♥K9832
♦D7
♣ÁD2
Suður spilar 6♥ dobluð.
Norðmennirnir Helness/Helgemo,
Ítalirnir Fantoni/Nunes og Frakkarnir
Multon/Zimmermann hafa allir fengið
íbúð og lögheimili í Mónakó. Í boði
Zimmermanns, sem hefur auðgast vel
á fasteignaviðskiptum í Sviss. Mark-
mið Zimmermanns og félaga er að
spila á næsta Evrópumóti fyrir hönd
Mónakó og gera þannig smáríkið að
stórveldi í brids. „Team Monaco“ sigr-
aði Nickell-sveitina í úrslitaleik Spin-
gold (132-86). Fyrirliðarnir sátu í norð-
ur (Nickell) og austur (Zimmermann).
Suður (Katz) vakti á 1♥ og Nickell brá
sér í blekkingarleik með spaðasvari á
tíuna aðra! Zimmermann passaði, Katz
lyfti í 2♠ og Nickell stökk í 4♥ í von um
farsæl endalok. Nei. Katz tók sögnina
sem „splinter“ og breytti í 4♠. Nickell
sagði 5♥, sem Katz skildi sem eyðu og
reyndi við alslemmu með 6♣ …
6. ágúst 1907
Lárus Rist fimleikakennari
synti yfir Eyjafjarðarál, al-
klæddur og í sjóklæðum. Þótti
þetta frækilegt sundafrek.
6. ágúst 1933
Hakakrossfáni var skorinn
niður við hús þýska vararæð-
ismannsins á Siglufirði. Fimm
menn voru síðar dæmdir fyrir
verknaðinn, þeirra á meðal
Steinn Steinarr skáld.
6. ágúst 1951
Peter Scott fuglafræðingur
kom úr fyrsta leiðangri sínum
til að rannsaka heiðargæsir
við upptök Þjórsár. Scott er
talinn eiga mikinn þátt í því að
Þjórsárver voru friðuð, en þar
eru stærstu varpstöðvar
heiðagæsa í heimi.
6. ágúst 2000
Þorgeirskirkja við Ljósavatn í
Suður-Þingeyjarsýslu var
vígð. Á bökkum Skjálfanda-
fljóts var sýnt á táknrænan
hátt hvernig Þorgeir Ljós-
vetningagoði fleygði goðunum
í Goðafoss að lokinni kristni-
tökunni eitt þúsund árum áð-
ur.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
Kári Snær Valtingojer, rafvirki á Djúpavogi, er
þrítugur í dag. „Það á víst að taka mig í einhverja
óvissuferð. Það er konan mín sem ætlar að gera
það. Mér var bara sagt að lofa mér ekkert á af-
mælisdaginn,“ segir Kári Snær. Hann sé ekki mik-
ið afmælisbarn og hafi ekkert vitað hvað hann ætti
að gera á afmælinu svo hann hafi beðið konuna um
að sjá um þetta.
„Ég er yfirleitt voðalega lítið fyrir þessi afmæli.
Ég er svo ruglaður í dögunum að það þarf alltaf
einhver að minna mig á það. Það kemur alltaf
jafnmikið á óvart að afmælið sé einu sinni á ári!“
segir hann. Hann ætlar þó að skella sér í sumarbústað um næstu helgi
með félögum sínum og opna eins og einn bjór.
Kári Snær er framkvæmdastjóri rafverktakafyrirtækisins Raf-
stöðvar Djúpavogs ásamt félaga sínum. Þá er hann að afla sér meiri
þekkingar og reynslu með því að vera í fjarnámi í rafiðnfræði við Há-
skólann í Reykjavík.
Hann segir nóg að gera á Djúpavogi. „Hérna er allt við það sama og
á uppleið ef eitthvað er. Það er mikið af ungu fólki að koma heim og
félagslífið er gott. Það er nóg að gera fyrir alla.“ kjartan@mbl.is
Kári Snær Valtingojer er þrítugur í dag
Óvissuferð á afmælisdaginn
Nýirborgarar
Reykjavík Ísak Ernir
fæddist 20. janúar kl. 13.13.
Hann vó 3.970 g og var 51
sm langur. Foreldrar hans
eru Anna Marín Ernudóttir
og Bergþór Hermannsson.
Flóðogfjara
6. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 4.55 0,7 11.17 3,5 17.32 0,9 23.43 3,3 4.51 22.18
Ísafjörður 0.33 2,1 6.58 0,5 13.15 2,0 19.37 0,7 4.37 22.41
Siglufjörður 3.20 1,3 9.21 0,3 15.54 1,3 21.51 0,3 4.19 22.25
Djúpivogur 1.53 0,5 8.10 2,1 14.35 0,6 20.32 1,8 4.15 21.52
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Reyndu að ganga frá óleystum málum
sem varða yfirvöld og stórar stofnanir. Og þá
er nú mikið sagt, þegar merki viljastyrks og út-
halds er annars vegar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ágreiningur við náungann verður tilfinn-
ingaríkari en endranær í dag. Einhverra hluta
vegna eru aðrir einkar vinveittir þér í dag.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú finnur til hlýju og örlætis gagnvart
öllum sem verða á vegi þínum í dag, sér-
staklega systkinum þínum, ættingjum og ná-
grönnum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur þörf fyrir að taka því rólega,
lesa, horfa á sjónvarp og tala við vini þína. Ekki
taka neitt sem sagt er persónulega og hugs-
aðu áður en þú talar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú getur nýtt sannfæringarkraft þinn til
að bæta aðstæður þeirra sem minna mega
sín. Reyndu að skapa sjálfum þér olnbogarými.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Forvitni er til fyrirmyndar, þegar hún
rekur mann áfram í leit að staðreyndum um
menn og málefni. Reddingar geta dregið lang-
an hala á eftir sér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Spurðu sjálfan þig að því af hverju þú
þarft alltaf að vera að afreka eitthvað. Dragðu
þig í hlé ef það er eina lausnin til að bjarga
geðheilsunni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Stattu á rétti þínum þegar að
honum er sótt. Ef þú ert þreyttur skaltu hvíla
þig og koma sjálfum þér í betra jafnvægi.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Ef þú leitar svara við einhverju
ættirðu að reyna að fá einhvern til liðs við þig.
Góðar hugmyndir geta á sama hátt bætt
heilsu þína.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þetta gæti orðið skapandi dagur.
Heiðarleiki er jafnan sterkasta vopnið. Láttu
eftir ástvini þínum það sem hann biður um,
það er ekkert stórmál.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Gefðu þér tíma til að aðstoða vini
þína, sem hafa leitað hjálpar hjá þér. Reiði hef-
ur þó engan annan tilgang en gera alla leiða og
flækja málin enn frekar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Kannaðu verð og gæði áður en þú festir
kaup á nýjum hlut. Notaðu því tímann til að
kynnast landinu þínu.
Stjörnuspá
Arnbjörg Sús-
anna Sigurð-
ardóttir frá
Kálfalæk, nú til
heimilis í Löngu-
hlíð 3 í Reykja-
vík, verður níræð
hinn 8. ágúst nk.
Hún fagnar
þessu stórafmæli á morgun, sunnu-
daginn 7. ágúst, á milli kl. 14 og 17
á Hótel Örk í Hveragerði, og býður
alla vini og vandamenn velkomna.
90 ára
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. f3 Rc6 4. d5
Re5 5. e4 d6 6. Rc3 Bg7 7. f4 Red7
8. Rh3 0-0 9. Be2 Rc5 10. Rf2 He8
11. 0-0 e5 12. f5 gxf5 13. exf5 Bxf5
14. Rg4 Bxg4 15. Bxg4 Rxg4 16.
Dxg4 Dd7 17. Hf5 e4 18. Bh6 f6 19.
b4 Ra6 20. Bxg7 Dxg7 21. Df4 Rxb4
22. Rxe4 Kh8 23. Hf1 Rd3 24. Dh4
He5 25. H5f3 f5 26. Rf6 Rc5 27. Hh3
He7
Staðan kom upp í heimsmeist-
arakeppni landsliða sem lauk fyrir
skömmu í Ningbo í Kína. Kínverski
stórmeistarinn Diren Ling (2.654)
hafði hvítt gegn kollega sínum frá
Úkraínu Alexander Arekshenko
(2.682). 28. Rxh7! og svartur gafst
upp enda taflið tapað eftir t.d. 28. …
Dxh7 29. Df6+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik