Morgunblaðið - 06.08.2011, Síða 33
Menning Fyrirlesturinn fer fram í
Lista-og menningarmiðstöðið á
Stokkseyri.
Í tengslum við myndlistarsýn-
inguna Lýðveldið í fjörunni, sem
nú stendur yfir í Gimli á Stokks-
eyri, munu aðstandendur sýning-
arinnar halda fyrirlestur í dag,
laugardaginn 6. ágúst, kl. 14 í
Lista- og menningarverstöðinni á
Stokkseyri. Aðgangur er ókeypis.
Að fyrirlestri loknum verður
gengið með hópnum yfir í Gimli
þar sem boðið verður upp á lista-
mannaspjall um sýninguna.
Á fyrirlestrinum verður greint í
máli og myndum frá sýning-
arverkefni listamannanna sem
spannar nú sjö sýningar í sex
sveitarfélögum.
Megináherslur sýningarhópsins
felast í því að efna til marghátt-
aðrar samræðu við lýðveldið Ís-
land, öðrum þræði með hliðsjón af
sögu, menningu og náttúrulegu
umhverfi þess staðar sem myndar
umgjörð sýningarinnar hverju
sinni. Sýningarnar hafa verið sett-
ar upp í óhefðbundnu húsnæði
með það að markmiði að kanna þá
möguleika sem búa í gömlum
byggingum með nýju samhengi,
þar sem tvinnast saman saga gam-
alla atvinnuhátta, skapandi starf
og viðburðir í samtímanum.
Listamennirnir eru Anna Jóa,
Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg
Lind Jónsdóttir, Hildur Mar-
grétardóttir, Hlíf Ásgrímsdóttir,
Kristín Geirsdóttir, Kristín Jóns-
dóttir frá Munkaþverá og Ólöf
Oddgeirsdóttir.
Lýðveldið
í fjörunni
Fyrirlestur klukk-
an 14 í dag ítengslum
við sýninguna
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 2011
Út er komin bók-
in Sæborgin:
Stefnumót lík-
ama og tækni í
ævintýri og
veruleika.
Í henni fjallar
höfundurinn,
Úlfhildur Dags-
dóttir bók-
menntafræðingur, um sæborgir
(svo sem gervimenni, vélmenni,
klóna) í bókmenntum og myndmáli.
Jafnframt er gefið yfirlit yfir er-
lenda umræðu um líftækni og sæ-
borgir og sérstök áhersla lögð á
tengsl hennar við bókmenntir og
afþreyingarmenningu. Líftækni er
skoðuð í ljósi bókmennta og kann-
að hvernig orðræða skáldskapar
mótar hugmyndir okkar um líf-
tækni.
Sæborgin er aðgengilegt fræðirit
sem er meðal annars ætlað að
kynna erlenda umræðu um líftækni
fyrir íslenskum lesendum. Höfund-
urinn er bókmenntafræðingur og
sjálfstætt starfandi fræðimaður.
Sæborgin
Það verður fjölbreytt dagskrá
fyrir alla fjölskylduna í dag í
Skálholtskirkju. Klukkan 15:00
kemur Bachsveitin fram ásamt
einleikurunum Peter Spissky
og Elfu Rún Kristinsdóttur á
tónleikum þar sem spiluð verða
verk eftir Rebel, J.S. Bach og
Telemann. Klukkan 17:00 verða
tónleikar sem bera yfirskriftina
Ítalskt síðbarokk, en þetta er
endurflutningur á tónleikum
sem fram fóru síðastliðinn fimmtudag. Þessar
uppákomur eru liður í sumartónleikum Skálholts-
kirkju, sem hafa staðið fyrir tónlistarviðburðum í
fimm til sex vikur á hverju sumri frá árinu 1975.
Hátíðin í ár hófst 2. júlí en lýkur á morgun.
Tónleikar
Opinn dagur
í Skálholtskirkju
Skálholtskirkja
Menningarveisla Sólheima
heldur áfram, en tveir viðburðir
verða á dagskrá í dag. Klukkan
14:00 heldur Jón Þorsteinn
harmonikkuleikari tónleika í
Sólheimakirkju og klukkan
15:00 heldur Magnús Jóhannss-
son, fiskifræðingur hjá Veiði-
málastofnun, fyrirlestur undir
yfirskriftinni Fiskar og veiði á
Suðurlandi. Fyrirlesturinn
fjallar um fiska og veiði á vatna-
svæði Ölfusár og Hvítár. Aðgangur er ókeypis á
báða viðburðina. Menningarveisla Sólheima hófst
4. júní og stendur til 13. ágúst með tónleikum,
fræðslufundum og listsýningum. Nánari upplýs-
ingar er að finna á heimasíðunni solheimar.is.
Menning
Menningarveisla
Sólheima
Sólheimakirkja
The Horror Family opnar
sýningu í Hinu húsinu, Póst-
hússtræti 3-5, í dag klukkan
14. The Horror Family er
hópur samansettur af fjölhæf-
um listakonum sem deila
myndlistarstofu, þeim Birnu
Styff, Sigrúnu Ernu, Mörtu
Eiri og Sidonie Schmitt. Allar
stunda þær sína iðn af kappi
og vilja sýna hvað sumarið
hafði í för með sér fyrir þær.
Þær notast við fjölbreytilega miðla á sýning-
unni, allt frá teikningum og málverkum yfir í
ljósmyndir og vídeóverk. Sýningin er opin í dag
milli klukkan 14 og 17 og verður opin alla virka
daga frá 9-17.
Listir
Opnun í Gallerí
Tukt í dag
Hitt húsið
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Dagrún Ísabella Leifsdóttir, sópr-
ansöngkona, og Gisele Grima pían-
isti frá Möltu halda tónleikana Mu-
sic Women næstu tvo daga. Á
tónleiknunum vekja þær athygli á
tónlistarkonum sem hafa gleymst
eins og Clöru Schumann og Ninu
Grieg með tónlist en einnig með
fróðleik um líf og störf þeirra. Dag-
rún Ísabella er ung og efnileg söng-
kona, hún er nýlega flutt aftur til
landsins eftir að hafa numið og
starfað við söng erlendis í nokkur
ár. Þær hafa þegar haldið tónleika í
Miðgarði í Skagafirði sem haldnir
voru í gærkveldi en framundan eru
tónleikar á morgun á Gljúfrasteini í
Laxnesi klukkan 16:00 og í Stykk-
ishólmskirkju þann 8. ágúst klukkan
20:00.
Tónlistarkonurnar tvær sem Dag-
rún Ísabella og Gisele ætla að vekja
athygli á eru minna þekktar en eig-
inmenn þeirra; Robert Schumann
og Edvard Grieg.
Í samtali við Morgunblaðið vill
Dagrún Ísabella meina að eiginkon-
urnar hafi haft mikið að segja um
það hversu frægir eiginmenn þeirra
urðu. „Til dæmis var Clara Schu-
mann miklu frægari en hann á sín-
um tíma,“ segir Dagrún. „Hún var
ein af þekktustu píanóleikurum þess
tíma og spilaði Schumann hvar sem
hún kom því við og hann fékk kynn-
ingu sem hann átti annars ekki völ
á. En hún var líka tónskáld og við
munum spila lög eftir hana,“ segir
Dagrún.
Clara var ekki aðeins þekkt fyrir
að kynna Schumann, því hún átti
líka þátt í því að koma Johannes
Brahms á framfæri. Clara hitti Ro-
bert Schumann fyrst þegar hún var
9 ára gömul og hann 18 ára. Þau
dáðust að tónlistarhæfileikum hvors
annars og þegar Clara náði 17 ára
aldri þá bað hann föður hennar um
hönd hennar en var hafnað. Hann
margreyndi að biðja föður hennar
aftur en fékk alltaf höfnun og þurftu
elskendurnir á endanum að fara í
mál við hann. Vegna andlegrar van-
heilsu Roberts þurfti hún að annast
hann mikið á meðan þau voru hjón
og gat lítið sinnt sinni eigin sköpun.
En hún hélt þeim uppi með kons-
ertum. Eftir lát hans lagði hún alla
orkuna í að halda nafni hans á lofti
og kom tónlist hans að sem víðast.
Hún lagði minni áherslu á tónlistina
sem hún hafði skapað en seinni tíma
menn hafa haldið henni á lofti og
munu Dagrún Ísabella og Gisele
meðal annars spila verk eftir Schu-
mann hjónin, sem þau sömdu sam-
an.
Nina Grieg samdi ekki sjálf en
þótti afburða sópran söngkona og
vill Dagrún Ísabella meina að það
hafi hjálpað verkum Edvard Grieg
mikið hversu vel Nina hafi túlkað
þau í söng sínum. En aðspurð
hvernig það kom til að Dagrún og
Giselle fóru að spila saman segir
hún að þær hafi lært saman í Royal
Northern College of Music, í Man-
chester. „Núna erum við báðar út-
skrifaðar, hún flutti heim til Möltu
og ég heim til Íslands. En okkur
langaði til að gera eitthvað saman
þarsem við værum meðsama pró-
grammið hér og á Möltu.
Við ákváðum að setja saman
þematónleika. Okkur langar til að
segja svolítið frá tónlistarkonunum
sem hafa gleymst. Það hafa margar
tónlistarkonur komið á undan okkur
og gleymst. Það er mikilvægt fyrir
ungar konur einsog okkur að hafa
þessar fyrirmyndir. Þessvegna tök-
um við dæmi af Grieg og Schumann.
Svo ætlum við bara að spila og
syngja saman og hafa gaman. Þetta
verður ljóðaflokkur eftir Edward
Grieg, svo erum við með lög eftir
Schumann hjónin,“ segir Dagrún.
Konurnar sem gleymdust
Dagrún Ísabella og Grima halda tvo tónleika næstu daga Einblínt verður á
gleymdu konurnar Ninu Grieg og Clöru Schumann sem voru mjög frægar
Tvær konur Dagrún Ísabella Leifsdóttir og Gisele Grima lærðu saman í Englandi og halda nú tónleika saman hér.
Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju fer fram
um þessar mundir. Fernir tónleikar fara fram í
viku hverri og hefur hátíðin hlotið góðar viðtökur
og mikla aðsókn. Hádegistónleikar fara fram á
miðvikudögum, fimmtudögum og laugardögum,
en aðaltónleikar vikunnar fara fram klukkan 17 á
sunnudögum.
Hörður Áskelsson, organisti Hallgrímskirkju,
mun leika á tónleikum helgarinnar, í dag, laug-
ardaginn 6. ágúst og á morgun, sunnudaginn 7.
ágúst. Hörður hefur verið organisti og kantor
Hallgrímskirkju allt frá því hann lauk framhalds-
námi í Düsseldorf í Þýskalandi árið 1982. Hann
hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu listalífs
kirkjunnar og stóð meðal annars að stofnun List-
vinafélags Hallgrímskirkju, Kirkjulistahátíðar og
Alþjóðlega orgelsumarsins. Sem organisti hefur
Hörður haldið tónleika í mörgum stærstu kirkjum
Evrópu, m.a. í Köln, París, Brussel og Helsinki.
Á efnisskrá Harðar er íslensk orgeltónlist í for-
grunni með verkum eftir Jón Nordal og Pál Ísólfs-
son en auk þess fá verk eftir Kjell Mörk Karlsen
og meistara Bach að hljóma. Á sunnudagstónleik-
unum verður frumflutt verkið Klukkur eftir
Gunnar A. Kristinsson, en samning verksins hlaut
styrk frá Musica Nova.
Hörður mun leika sömu efnisskrá í Kölnardóm-
kirkju og St. Michaeliskirkjunni í Hamborg á
næstu vikum og er verkið „Klukkur“ byggt á
klukknastefjum þessara þýsku kirkna og Hall-
grímskirkju.
Tónleikar laugardagsins hefjast kl. 12 og miða-
verð er 1.500 kr. Tónleikar sunnudagsins hefjast
kl. 17 og miðaverð er 2.500 kr.
Orgelsumarið mikla
Morgunblaðið/Golli
Tónleikar Hörður Áskelsson (t.h.) verður með
tvenna tónleika í Hallgrímskirkju um helgina.
Tvennir tónleikar um helgina í Hallgrímskirkju
Hugmyndin er að
fylla rýmið af fólki.
Ég mældi þetta og fann út að
ég gæti komið fimmtíu
manns í þetta rými. 34
»