Morgunblaðið - 06.08.2011, Síða 40
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 218. DAGUR ÁRSINS 2011
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Fjórtán ára stúlka skilin eftir
2. Lést af slysförum
3. Sló jafnöldru sína með hamri
4. Asa starfsmanns um að kenna
Framleiðendur um 900 mynda hafa
sótt um að fá sýningu á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Reykjavík sem
verður haldin í lok september en að-
eins fáar þeirra munu komast að.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Metaðsókn á kvik-
myndahátíðina RIFF
Listamennirnir
Snorri Ásmunds-
son, Páll Haukur
Björnsson og Kol-
beinn Hugi Hösk-
uldsson verða
með hljóðverk og
innsetningar við
alla þrjá inngang-
ana á Hlemmi í
dag. „Á Hlemmi er mannlífið meira
stórborgarlegt. Þar er minni þörf til
að brosa, það eru týpur þar sem eru
frjálsari,“ segir Snorri. »34
Innsetningar á orku-
stöðinni Hlemmi
Benedikt Reynisson (Benson is
Fantastic) sem áður sá um út-
varpsþáttinn Karate
og hefur víða verið
plötusnúður mun
spila tónlist eftir
dj-dagskrá sinni á
Bakkusi í kvöld frá
klukkan 23:30.
Tónlistin verður allt
frá Whitney Houston
út í Slayers, Paul Sim-
on og Gus Gus. Benson
lýsir því sem „indy
diskó“.
Benson is Fantastic
á Bakkusi í kvöld
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 5-10 m/s og skýjað með köflum, en þurrt að kalla. Hiti
víða 12 til 20 stig, hlýjast V-lands, en mun svalara úti við N- og A-ströndina.
Á sunnudag og mánudag Norðan 8-10 m/s með A-ströndinni, en annars hægari norð-
læg eða breytileg átt. Skýjað N- og A-lands og þokuloft úti við sjóinn, en annars víða létt-
skýjað. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á SV-landi.
Á þriðjudag Hægviðri og víða léttskýjað, en sums staðar þokuloft úti við sjóinn.
Hlauparinn Kári Steinn Karlsson úr
Breiðabliki stendur nú á krossgötum
á sínum ferli. Hann er fluttur heim
eftir að hafa lokið námi í verkfræði í
hinum kunna Berkeley-háskóla í Kali-
forníu í Bandaríkjunum. Kári hefur
jafnframt tekið þá ákvörðun að segja
skilið við millivegalengdirnar og ætl-
ar að snúa sér að maraþonhlaupum
og stefnir á ÓL í London. »3
Hlaupandi verkfræð-
ingur á krossgötum
Bjarni Þór Viðarsson, sem
hefur gegnt fyrirliðastöð-
unni hjá íslenska U21 árs
landsliðinu í knattspyrnu
undanfarin ár og verið leik-
maður belgíska úrvalsdeild-
arliðsins Mechelen, fer und-
ir hnífinn á mánudaginn.
Ekki er allt með felldu í öðru
hné hans. Bjarni Þór segist
reikna með að verða frá
keppni í allt að hálft ár af
þessum sökum. »1
Bjarni Þór frá í
allt að hálft ár
„Það er ekki amalegt að vera orðinn
atvinnumaður á skíðum tæplega sex-
tán ára gamall,“ sagði Jakob Helgi
Bjarnason sem fékk á dögunum kær-
kominn stuðning til þess að leggja
alpagreinarnar fyrir sig af alvöru.
Jakob, sem er einungis á
sextánda ári, skrif-
aði á dögunum
undir atvinnu-
mannasamning
við Atomic. »4
Sextán ára atvinnumað-
ur á skíðum
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Þetta safn hefur verið að þróast á
undanförnum áratugum. Þetta eru
orðnir um tveir áratugir. Upphaf-
lega var fyrsti eigandinn að því Hálf-
dan Helgason og síðan núverandi
formaður Landssambands íslenzkra
frímerkjasafnara, Sigurður R. Pét-
ursson. Síðan hef ég núna átt þetta í
nokkur ár og við höfum allir bætt í
safnið,“ segir Sigtryggur R. Eyþórs-
son, frímerkjasafnari með meira.
Safn hans af íslenskum bréfspjöld-
um frá árunum 1879 til 1920 hlaut
gullverðlaun auk heiðursverðlauna á
Alþjóðlegu frímerkjasýningunni í
Japan sem fram fór um síðustu helgi.
Safnið hefur verið sýnt á fleiri sýn-
ingum á undanförnum árum, bæði
hér heima og víða erlendis, og ítrek-
að hlotið gullverðlaun fyrir, til að
mynda á Norrænu frímerkjasýning-
unni sem fram fór í Finnlandi í apríl
á þessu ári.
Póstkort þess tíma
Bréfspjöldin sem eru í safni Sig-
tryggs þjónuðu hliðstæðum tilgangi
og póstkort þjóna í dag. Þau voru
notuð við ýmis tækifæri til þess að
koma stuttum skilaboðum frá sér og
voru töluvert mikið notuð á sínum
tíma. Sem dæmi um fjölbreytta
notkun bréfspjaldanna nefnir Sig-
tryggur spjald sem er að finna í safn-
inu sem sent var frá Borðeyri við
Hrútafjörð á sínum tíma í þeim til-
gangi að minna skuldunaut á að
greiða skuld sína við þann sem sendi
spjaldið.
Alþjóðlega frímerkjasýningin er
árlegur viðburður og fór á síðasta ári
fram í London og þar á undan í Kína.
„Það er mikil barátta hjá þessum
stórþjóðum að fá að halda þessar
sýningar,“ segir Sigtryggur og bætir
við að til þess að fá aðgang að svona
sýningum þurfi söfn fyrst að hafa
verið sýnd í heimalöndum sínum og
hafa náð góðum árangri þar og í til-
felli norrænna safna á sýningum á
Norðurlöndunum.
Gull á alþjóðlegri sýningu
Safn íslenskra bréfspjalda frá árunum 1879 til 1920 í eigu Sigtryggs R. Eyþórs-
sonar fékk á dögunum gullverðlaun á Alþjóðlegu frímerkjasýningunni í Japan
Safnari Sigtryggur R. Eyþórsson,
eigandi bréfspjaldasafnsins.
„Ég vil hvetja fólk til að mæta í yf-
irhöfnum fyrir þriðja þáttinn, sem
er undir berum himni að kvöldi til,“
segir Jóhann Smári Sævarsson,
leikstjóri og einn aðalsöngvara í óp-
erunni Tosca, sem færð verður upp
í Keflavíkurkirkju 12. og 14. ágúst.
Unnið var að leikmyndinni utan
dyra í gærmorgun og er undirbún-
ingur kominn vel á veg, eins og sést
á ljósmyndum í Sunnudagsmogg-
anum í dag.
„Það passaði bara að setja upp
Toscu og það var tilvalið að setja
hana upp í kirkjunni í Keflavík, því
það er safnaðarheimili við hliðina á
henni og garður á milli. Fyrsti þátt-
ur óperunnar gerist í kirkju, annar
þáttur í íbúð lögreglustjórans, sem
við höfum í safnaðarheimilinu, og
þriðji þátturinn er aftaka undir
berum himni.“ Morgunblaðið/Kristinn
Í yfirhöfn-
unum á
óperuna
Óperan Tosca verður færð upp í Keflavíkurkirkju næstu helgi og þriðji þáttur undir berum himni