Morgunblaðið - 13.09.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Rannsóknarnefnd umferðaslysa telur að eft-
irliti á vegum með ástandi stórra ökutækja
sé ábótavant á Íslandi og nauðsynlegar vega-
bætur eins og breikkun vega hafi ekki fylgt
því að farmflutningar fluttust nær alfarið af
sjó yfir á vegakerfi landsins á stuttum tíma.
Kemur þetta fram í skýrslu rannsóknar-
nefndar umferðarslysa 2010. Þá segir að það
sé mjög mikilvægt að umferðareftirlit á þjóð-
vegum sé öflugt vegna öryggis vegfarenda
og mikilla farmflutninga.
Í úttekt á banaslysi sem varð í Langadal í
desember 2010 þar sem tengivagn vöruflutn-
ingabifreiðar lenti á vörubifreið sem kom á
móti svo ökumaður hennar lést er sérstak-
lega fjallað um breidd vega á Íslandi. Þar
sem slysið í Langadal átti sér stað er veg-
urinn 6 m breiður milli kantlína. Bifreið-
arnar í slysinu voru 2,5 og 2,6 m á breidd,
auk spegla. „Ef ökumenn svo stórra öku-
tækja halda sig innan akreina- og kantlína
hefur hvor ökumaður 40-50 cm rými eða 20-
25 cm á hvorri hlið. Ekki er óþekkt á Íslandi
að speglar stórra ökutækja rekist saman. Til
viðbótar hafa ökumenn vegaxlir en breidd
þeirra og ástand er mismunandi,“ segir í
skýrslunni. Tengivagninn í slysinu í Langa-
dal var ónothæfur til að flytja farminn sem á
honum var. Eru farmflytjendur sagðir þurfa
að gera sér grein fyrir ábyrgðinni.
Segir í skýrslunni að það sé hlutverk
stjórnvalda að tryggja að samgöngukerfið sé
öruggt og að umferðarmannvirki séu með
þeim hætti að þótt ökumenn geri mistök leiði
það ekki til alvarlegra umferðarslysa.
Margt í gangi til að draga úr slysum
„Við erum endalaust að betrumbæta vega-
kerfið og erum með sérstakt átak í að setja
fjármagn í lagfæringar á vegum, breikka þá,
laga hættulega staði og bæta merkingar. Það
er heilmikið í gangi til þess að bæta umferð-
aröryggi vegakerfisins og draga úr slysum,“
segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri
spurður út í gagnrýnina í skýrslunni. „Vega-
kerfið er ekki síst byggt fyrir atvinnulífið og
þar á meðal farmflutninga. Þeir verða að
miklu leyti áfram á vegakerfinu og svarið við
því er að bæta vegakerfið og gera það betur
í stakk búið fyrir þessa flutninga.“
Hreinn segir að gert sé átak í því að
breikka helstu flutningaleiðir. Ekki er búið
að breikka veginn þar sem slysið átti
sér stað í Langadal.
Eftirlit með hleðslu og
frágangi farms er í höndum
lögreglu og eftirlitsmanna
Vegagerðarinnar. „Það er
verið að reyna eins og hægt
er, miðað við mannskap og
fjármagn, að taka prufur.
Það er ekkert stórátak fram-
undan í því en hinsvegar er
verið að reyna að bæta að-
stöðu þeirra sem stunda þetta
eftirlit því það má ekki stoppa
þessa bíla hvar sem er,“ segir
Hreinn.
Lítið svigrúm til að bregðast við
Vegakerfið gagnrýnt í ársskýrslu rannsóknarnefndar umferðarslysa
Lítið eftirlit með farmflutningum og vegir of mjóir fyrir stóra bíla
Árið 2010 létust átta manns í sjö umferð-
arslysum á Íslandi. Það eru níu færri en fór-
ust í umferðarslysum árið 2009. Banaslys-
um í umferðinni hefur fækkað nokkuð
reglubundið frá árinu 2000 ef undan er
skilið árið 2006. Þetta kemur fram í árs-
skýrslu rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Tvö banaslys árið 2010 urðu vegna ölvunar-
aksturs og tvö slys þar sem ökumenn virtu
ekki biðskyldu. Þá telur nefndin að tveir
af þeim fimm sem fórust árið 2010
hefðu líklega lifað slysið af hefðu
þeir notað bílbelti.
Innlögnum slasaðra einstaklinga
vegna umferðarslysa á Landspítala
háskólasjúkrahús hefur fækkað um
helming á undanförnum ellefu árum.
Árið 2000 voru rúmlega tvö hundruð
manns lögð inn á sjúkrahús vegna
umferðarslysa en árið 2010 um hundr-
að. Þá er fylgni á milli þróunar innlagna
og þróunar í fjölda banaslysa. Hefur
hvoru tveggja fækkað verulega.
Banaslysum
fækkar nokkuð
UMFERÐARSLYS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, sagðist á Alþingi vera reiðubúinn til
að fara til Brussel og hitta „hina háu herra“ til
að komast að kröfum Evrópusambandsins
varðandi áætlanagerð Íslendinga um landbún-
aðarmál. Þetta sagði Jón í utandagskrár-
umræðum í gær um stöðuna í viðræðum við
ESB um landbúnaðar- og sjávarútvegsmál.
Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, hóf umræðuna. Hann sagði að í
skýrslu framkvæmdastjórnar ESB kæmi
skýrt fram að krafist væri nákvæmrar áætl-
unar um hvernig íslensk stjórnvöld hygðust
uppfylla kröfur ESB áður en viðræður hæf-
ust.
„Það er gengið út frá því sem vísu að ís-
lensk stjórnvöld ætli sér að taka upp löggjöf
Evrópusambandsins á Íslandi,“ sagði Bjarni.
Jón Bjarnason sagði að stærstu tíðindin í
rýniskýrslunni væru þau að Evrópusam-
bandið kysi að beita svonefndum opnunarskil-
málum til að samningaviðræður um landbúnað
og dreifbýlisþróun gætu hafist.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra
sagði að vissulega væru kröfur Evrópusam-
bandsins um áætlanagerð ekki sérlega skýrar,
en Íslendingum væri nánast í sjálfsvald sett,
með hvaða hætti þeir útfærðu áætlunina.
Blekkingarleikur
Bjarni Benediktsson kom þá aftur í ræðu-
stól og spurði hvort utanríkisráðherra væri að
reyna að blekkja sjálfan sig, eða þjóðina.
„Reyndar kemur á óvart að heyra landbún-
aðarráðherrann segja að það liggi ekki fyrir
til hvers er ætlast af okkur,“ sagði Bjarni.
„Við skulum hætta þessum blekkingarleik og
fara að takast á við þau atriði sem ESB krefst
af okkur að við tökum afstöðu til. Ræðum það,
hvort við séum tilbúin að gera allar þessar
viðamiklu breytingar.“
Vill hitta
háa herra
Jón
Bjarnason
Bjarni
Benediktsson
Össur
Skarphéðinsson
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Ég viðurkenni vel að ég sakna dreddanna en ég
myndi aldrei taka þetta til baka þar sem ég veit að
hjálparstarfið nýtur góðs af þessu,“ segir Aron
Bjarnason sem ákvað að láta dreddlokka sem hann
safnaði í sjö ár fjúka fyrir gott málefni. „Dreddarnir
látnir fjúka til góðs!“ var yfirskrift söfnunar sem
Aron setti af stað 4. september á Facebook og stóð
hún yfir í viku. Hann ákvað að klippa af sér dredd-
lokkana ef hann næði að safna hundrað þúsund
krónum sem myndu renna til Hjálparstarfs kirkj-
unnar til að sporna við hungursneyðinni í Austur-
Afríku.
Hársöfnun Arons fór langt fram úr væntingum
en hann safnaði í 313.300 kr. Svo það var ljóst að
hárið varð að fjúka. Aron mætti því á hárgreiðslu-
stofu í gær og lét klippa af sér lokkana. „Höfuðið á
mér er létt og skrítið og mér er miklu kaldara á því.
Svo bregður mér þegar ég sé sjálfan mig í spegli,“
segir Aron enn að venjast nýja útlitinu.
Einnig stóðu Aron og félagar hans í hljómsveit-
inni Tilviljun? fyrir styrktartónleikum í Fíladelfíu
síðasta sunnudag þar sem auk Tilviljunar? komu
fram Pétur Ben og Guðmundur Karl Brynjarsson.
Aðgangseyrir tónleikanna skilaði 289.181 krónu.
Samtals hefur því safnast 602.481 króna en mark-
miðið var að safna 500.000 kr. í heildina sem duga til
að gefa tvö þúsund manns korn til þriggja mánaða í
Austur-Afríku.
„Þetta fór fram úr væntingum. Tónleikarnir
gengu mjög vel og gott að geta látið Hjálparstarf
kirkjunnar fá þessa peninga. Það er mikil neyð í
Afríku og þeir sem vilja gefa til hjálparstarfsins
geta nálgast allar upplýsingar á help.is,“ segir Aron.
Morgunblaðið/Golli
Til góðs Aron með dreddlokkana sem voru klipptir af honum í gær. Þeir viktuðu af klipptir um 400 g.
Dreddar fuku til fjár
Klippti dreddlokka af fyrir gott málefni Safnaði
602.481 krónu til hjálparstarfs í Austur-Afríku
Aðstæður í Langadal
Breidd vegar og bíla þar sem slysið varð
6 M
7,5 M
2,6 M 2,5 M
3 M 3 M
Ferðalög starfsmanna utanríkis-
ráðuneytisins og embættismanna
undirstofnana kostuðu skattgreið-
endur 98 milljónir króna á síðasta
ári. Er það heldur hærri fjárhæð en
á árinu 2009 en svipuð að krónutölu
og 2007. Kostnaðurinn var mun
meiri hrunárið, 2008.
Starfsmenn utanríkisráðuneyt-
isins fóru fleiri ferðir til útlanda á
árinu 2010 en árinu á undan. Ferð-
um starfsmanna ráðuneytisins og
embættismanna undirstofnana hef-
ur fækkað mikið frá árunum 2007 og
2008. Kemur þetta fram í svari utan-
ríkisráðherra við fyrirspurn Vigdís-
ar Hauksdóttur þingmanns.
Starfsmenn ráðuneytisins og
embættismenn undirstofnana fóru
samtals í 537 ferðir á árinu 2007 og
505 ferðir 2008. Ferðunum fækkaði
verulega 2009 þegar farnar voru 296
ferðir en fjölgaði aftur 2010 þegar
starfsfólkið átti 336 sinnum erindi út
fyrir landsteinana.
Ferðakostnaðurinn, að dagpen-
ingum meðtöldum, var um 98 millj-
ónir í heild á síðasta ári, 6 milljónum
meiri en 2009. Ferðakostnaðurinn er
svipaður og 2007.
Tæpar 100
milljónir í
ferðir í fyrra
Bragi Halldórsson á góðu gengi að
fagna á Norðurlandamóti öldunga.
Hann gerði sér lítið fyrir og vann
fremur öruggan sigur á FIDE-
meistaranum Bent Sörensen í þriðju
umferð í gærkvöldi. Mennta-
skólakennarinn Bragi er nú einn
efstur með fullt hús.
Sigurður Eiríksson gerði jafntefli
við finnska stórmeistarann og þre-
faldan Norðurlandameistara öld-
unga, Heikki Westerinen. Sigurður
er meðal átta keppenda sem eru í
öðru sæti hálfum vinningi á eftir
Braga. Ólafur Kristjánsson, Jóhann
Örn Sigurjónsson og Friðrik Ólafs-
son eru einnig með 2½ vinning, en
Friðrik vann Halldór Garðarsson í
aðeins 12 leikjum í gær.
Fjórða umferð fer fram í dag.
Bragi efstur
öldunganna