Morgunblaðið - 13.09.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 13.09.2011, Síða 6
BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta kemur okkur í opna skjöldu og við erum öll slegin yfir þessum at- burðum. Maður fær sjokk þegar svona gerist,“ segir Ingvar Breið- fjörð, formaður trúnaðarmannaráðs Arion banka, við Morgunblaðið um uppsagnir á 57 starfsmönnum bank- ans sem tilkynntar voru til Vinnu- málstofnunar í gær sem hópupp- sögn. Ingvar segir trúnaðar- menn hafa fengið að vita af upp- sögnunum í gærmorgun og ekki hafi verið hægt að undirbúa sig fyrir þetta. Aðgerð sem þessi hafi eðlilega mest áhrif á þá sem sagt er upp en ekki síður hina sem eftir standa. „Það er alltaf slæmt að horfa á eftir góðum vinnu- félögum,“ segir Ingvar. Af þessum 57 starfsmönnum voru 38 í höfuðstöðvunum við Borgartún og 19 á öðrum starfsstöðvum, þar af 12 á landsbyggðinni. Meðalaldur þeirra sem sagt var upp er 47 ár og konur eru í um 79% tilvika, eða 45 talsins. Meðalstarfsaldur þessa hóps er ríflega 12 ár. Að meðtöldum þess- um uppsögnum, sem eru þær mestu frá stofnun bankans í október 2008, hefur starfsmönnum Arion banka fækkað um 90 undanfarið ár en um 30 þeirra hafa hætt störfum. Eftir uppsagnirnar eru starfsmenn bank- ans 890 talsins. Kynjahlutföllin eru um 70% konur og 30% karlar. Ná uppsagnirnar til allra starfssviða bankans og taka gildi frá og með næstu mánaðamótum. Í tilkynningu frá bankanum eru uppsagnirnar sagðar liður í hagræð- ingarferli sem staðið hafi yfir frá stofnun bankans. „Almennt má ljóst vera að rekstur íslenska fjármálakerfisins er of kostnaðarsamur. Fjöldi starfsfólks hjá fjármálafyrirtækjum hér á landi er of mikill miðað við umfang kerf- isins. Sú staðreynd á einnig við um Arion banka. Að auki eru ný verk- efni, s.s. eftirspurn eftir nýjum lán- um og fjárfestingar í lægð sem stendur. Þrátt fyrir að afkoma bank- ans hafi verið viðunandi síðastliðin „Sjokk þegar svona gerist“  Arion banki segir upp 57 starfsmönnum, þar af 45 konum  Slæmt að horfa á eftir góðum vinnu- félögum, segir formaður trúnaðarmannaráðs bankans  Of kostnaðarsamur rekstur, segir Arion banki Bankinn í tölum » Arion banki hagnaðist um 10,2 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins. Að mestu er það tilkomið vegna endurmats á lánasafni. » Sjóðsstreymi var á sama tíma neikvætt um 3,1 milljarð króna. » Starfsmenn Arion banka eru um 890 eftir uppsagnir á 57 starfsmönnum. » Til viðbótar hafa um 30 starfsmenn hætt störfum und- anfarið ár. » Útibú bankans eru núna 24 en þeim hefur fækkað um 15 á tveimur árum. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011 Höskuldur H. Ólafsson, banka- stjóri Arion banka, segir það hafa verið þung skref að taka að segja upp 57 starfs- mönnum en þetta hafi verið lokahnykkur á ferli sem hófst fyrir ári með það að markmiði að draga úr rekstrar- kostnaði. Frekari upp- sagnir séu ekki fyrirhugaðar. Höskuldur segir að nú hafi orðið kaflaskil í starfsemi bankans. Að mestu sé búið að vinna að úrlausn mála hjá um 1.000 fyrirtækjum og farið sé að sjá fyrir endann á mál- um einstaklinga. Einnig sé efna- hagsbatinn í þjóðfélaginu hægur, lítil eftirspurn eftir nýjum lánum og fjárfesting í lágmarki. Voru þung skref að taka HÖSKULDUR H. ÓLAFSSON, BANKASTJÓRI ARION BANKA Höskuldur H. Ólafsson Reiknaðu Komdu í Brimborg í dag Hugleiddu hvað rúmast í þínu lífi. Frelsi, fjölskylda, félagar, frítími, ferðalög, friður, þægindi, lúxus, traust, fjárhagslegt svigrúm. Öryggi! Veldu bíl sem er leiðandi í öryggi. Veldu bíl sem er hagkvæmur í heild sinni. Veldu sparnað. Reiknaðu dæmið.. Reiknaðu með Volvo í þínu lífi. Hafðu ráð á að lifa lífinu. Lifðu í öryggi. Veldu Volvo. Komdu í Brimborg. VOLVO S40 DÍSIL VOLVO V50 DÍSIL VOLVO S60 DÍSIL VOLVO V60 DÍSIL VOLVO S80 DÍSIL Notar aðeins 4,0 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Öryggi, munaður og þægindi ná nýjum hæðum í Volvo S80. Endurskil- greindu gæði í þínum huga með nýjum Volvo S80. Verð frá 5.990.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 4,1 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Volvo V60 stendur vörð um líf þitt. Mættu grunnþörfum fjölskyld- unnar með öryggi Volvo V60. Mættu ítrustu kröfum þínum um lúxus með hátækni og munaði. Verð frá 5.990.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,9 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Volvo S60 sannar vitsmunalega tilvist okkar. Volvo S60 er skilgreining okkar á heiminum eins og við þekkjum hann. Endurreiknaðu líf þitt. Verð frá 5.690.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Veldu Volvo V50 fyrir notagildið. Valið er auðveldara ef þú þarft að finna rétta jafnvægið milli hagkvæmni og áhugamála. Volvo V50 er notadrjúgur bíll, hentugur fyrir fjölskylduna. Náðu jafnvægi. Verð frá 4.690.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Hagkvæmur og glæsi- legur kostur þar sem öryggi, ending og lífsgildi nútímans liggja til grundvallar. Kjóstu hagkvæmni Volvo S40. Verð frá 4.490.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. Notar aðeins 3,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu. Eigðu sviðið með svölum Volvo C30. Veldu aðra leið en þá hefðbundnu. Fetaðu þína eigin leið með hinum sportlega Volvo C30. Verð frá 4.290.000 kr. Frítt í bílastæði í Reykjavík. VOLVO C30 DÍSIL milli kl. 9 og 17 Öryggi er lúxus. Lifðu í lúxus. Spyrðu um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar. Volvo S60 er sigurvegarinn í flokki stærri fólksbíla í vali á Bíl ársins 2012 Brimborg og Volvo áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður og gerð bílanna getur verið frábrugðin myndunum í auglýsingunni. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar Volvo á Íslandi. Volvo. Bara fyrir skynsamt fólk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.