Morgunblaðið - 13.09.2011, Page 22

Morgunblaðið - 13.09.2011, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 2011 ✝ Magnús Bald-vinsson fæddist á Signýjarstöðum í Hálsasveit í Borg- arfirði hinn 4. jan- úar 1913. Hann andaðist á Hjúkr- unarheimilinu Holtsbúð í Garða- bæ 4. september síðastliðinn. For- eldrar Magnúsar voru Baldvin Jóns- son frá Hurðabaki í Hvítársíðu, f. 21.9. 1874, d. 1.7. 1964, og Benónía Þiðriksdóttir frá Háa- felli í Hvítársíðu, f. 20.11. 1872, d. 8.2. 1969. Þau bjuggu lengst af á Grenjum í Mýrasýslu. Magnús var sjötti í röðinni af átta systkinum en hin voru Ei- ríkur, Helga, Guðjón, Þuríður, Þiðrik, Guðný og Ólöf Baldvins- börn. Guðný er ein eftirlifandi systkinanna og býr hún í Borg- arnesi. Eiginkona Magnúsar var Bjarney Jóna Finnbogadóttir frá Auðkúlu í Arnarfirði, f. 12.8. 1922, d. 26.1. 2004. Eign- uðust þau átta börn, sem eru: 1) Arndís, húsmóðir f. 28.4. 1943, gift Hafsteini Filippussyni hús- gaganasmið. Þau eiga fjögur börn og búa í Ástralíu. 2) Benja- mín Grendal arkitekt, f. 18.8. 1944, maki Guðbjörg Kristjáns- Bragadóttir matreiðslumaður. Þau eiga þrjú börn og búa í Kópavogi. Magnús ólst upp á Grenjum í Álftaneshreppi á Mýrum. Skóla- gangan var fyrst heimakennsla og síðar einn vetur í héraðsskól- anum í Reykholti. Seinna fór Magnús í Iðnskólann í Reykja- vík, útskrifaðist þaðan sem múrari og síðan múrarameist- ari. Magnús varð snemma af- kastamikill byggingameistari í Reykjavík og nágrenni og rak eigið fyrirtæki. Hann tók þátt í að byggja fjöldann allan af byggingum á seinni hluta síð- ustu aldar og má þar nefna Glæsibæ, Domus Medica, Lág- múla 5-9 (Glóbus o.fl.), Sunda- borg, ýmsar byggingar fyrir Landsbankann og Silla og Valda, Frímúrarahöllina, Mjólk- ursamsöluna, verslunar-, skrif- stofu- og íbúðabyggingar við Hamraborg í Kópavogi ásamt fjölda einbýlis- og fjölbýlishúsa. Magnús tileinkaði sér snemma nýja tækni í byggingum svo sem notkun múrdælu og skriðmóta t.d. við uppsteypu fjölbýlishúsa og við byggingu strompsins sem reistur var við Klöpp. Magnús tók þátt í stjórnmálum á yngri árum og var á meðal stofnenda Þjóðvarnarflokksins. Hann var meðlimur í Rótarýklúbbi Aust- urbæjar og virkur bridgespilari í Krummunum um árabil. Útför Magnúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 13. sept- ember 2011, og hefst athöfnin kl. 13. dóttir listfræð- ingur. Þau eiga tvo syni og búa í Kópa- vogi. 3) Sæunn Grendal hjúkr- unarfræðingur, f. 23.2. 1946, sam- býlismaður Grétar Sveinsson húsa- smíðameistari. Þau búa í Reykjavík. Sæunn eignaðist tvær dætur með fyrri maka en önnur þeirra er látin. 4) Guðný Grendal bóndi, f. 15.9. 1947, maki Jóhannes Magnús Þórðarson bóndi í Krossnesi á Mýrum. Eignuðust þau sex börn. Guðný lést 19.8. 2008. 5) Tvíburasystir Gunýjar, Sigrún Grendal, lést 24.4. 1948. 6) Baldvin Grendal skipamiðl- ari, f. 19.2. 1949, maki Að- alheiður Rósa Emilsdóttir, f. 25.3. 1942. Þau eignuðust tvö börn saman en Aðalheiður átti tvær dætur áður. Aðalheiður lést 1.6. 2008. Baldvin býr í Garðabæ. 7) Sigrún Grendal tal- meinafræðingur og afród- anskennari, f. 15.4. 1953, maki Guðmundur J. Guðlaugsson pípulagningameistari. Þau eiga þrjú börn og búa í Garðabæ. 8) Sigurður Grendal líffræðingur og viðskiptafræðingur, f. 25.6. 1959, maki Sigríður Björk Það var á föstudegi sem hann greip um vanga minn og strauk þumlinum um andlitið á mér eins og hann gerði svo oft í gamla daga. Ég varð allt í einu sex ára. Þetta var svo ótrúlega, ótrúlega gott. Hann var stóra ástin í lífi mínu og við vorum einlægir aðdáendur hvor annars. Svo sofnaði hann. Ég hélt í höndina á honum næstu tvo sólarhringa, strauk honum og kyssti hann eins og lífið lægi við. Lífið lá við. Hann kvaddi okkur á sunnu- dagskvöldi á friðsælan og und- urfallegan hátt. Við fjölskyldan vorum hjá honum og ég hélt enn í höndina á honum. Hetjan mín. Tilbúinn að fara en þó svo erfitt að sleppa. Ég átti hann pabba minn svo lengi og fyrir það er ég þakklát. Frá því að ég man eftir mér vor- um við pabbi í nánu sambandi. Ég var yngsta stelpan hans og hann dekraði við mig. Pabbi var svo glettinn og skemmtilegur að það var ekki hægt annað en að falla fyrir honum. Hann stóð heldur ekki í því veseni að vera að siða mann mikið til því hann lét mömmu alfarið um uppeldið á okkur systkinunum. Þegar ég var unglingur áttum við pabbi það til að skreppa upp í Bláfjöll snemma á sunnudagsmorgnum. Á meðan ég skíðaði pússaði pabbi kannski blett á bílnum sín- um ef hann fann einhvern og las Moggann. Svo mættum við sæl og glöð í sunnudagslærið hennar mömmu. Pabbi var ólatur að skutla mér í skólann. Einu sinni benti ég honum á að ég væri ein af fáum nemendum sem ekki ættu bíl. „Nú, ert þú sú eina sem hefur einkabílstjóra,“ svaraði hann jafnharðan. Það er mér líka eftirminnilegt þegar við Gummi maðurinn minn mættum til pabba eitt laugardagskvöld með rauðvínsflösku og súkkulaðirús- ínur. Við ætluðum að horfa á góða mynd saman. Þegar hann faðir minn sá að það lækkaði ískyggilega hratt í nammiskál- inni án þess að þeir karlarnir væru byrjaðir að smakka á góð- gætinu sagði hann; „Gummi, eig- um við ekki að skipta á milli okk- ar einni rúsínu áður en það verður of seint?“ Pabbi hafði lifað tímana tvenna og það var eins og að vera komin inn í sögubók þegar hann rifjaði upp gamla tíma. Ekki versnaði það þegar þau Guðný systir hans hittust og ræddu um sveitina. Þau voru bæði svo ótrúlega ern þrátt fyrir háan aldur. Ég spurði þau einu sinni hver áhrifamesta umbylt- ingin hefði verið í lífi þeirra og þau hugsuðu sig ekki um er þau bæði svöruðu „stígvélin“. Það var dýrmætt að fylgja pabba eft- ir inn í ellina. Hann var orðinn einn og samræður okkar breytt- ust þar sem mömmu naut ekki við lengur. Honum var umhugað um fjölskylduna og þegar krepp- an skall á spurði hann mikið um líðan barna sinna og afabarna. Nú voru mjúku málin orðin mik- ilvægari en allt annað. Hann var meira að segja farinn að spyrja mig um afródansinn minn og þóttist sjá mest eftir að hafa ekki komið á námskeið til mín. Taldi það of seint núna en danshæfi- leikana hafði ég a.m.k frá hon- um. Ég elskaði hann pabba minn skilyrðislaust. Ég kveð hann nú með auðmýkt og þakklæti í hjarta fyrir allt það sem hann var mér og fjölskyldu minni. Hetjan mín. Sigrún Grendal Magnúsdóttir. Afi minn, Magnús Baldvins- son, er nú dáinn. Það má segja að ég hafi verið sannkallaður afastrákur. Þegar við bjuggum á neðri hæðinni hjá ömmu og afa í Grænuhlíðinni var auðvelt um vik að kíkja í heimsókn. Um eins árs aldurinn kenndi afi mér að meta kaffi. Kaffið hjá afa var alltaf dísætt en sterkur grunur er um að oftar en ekki hafi eitthvað fleira verið sett út í. Hann lét mig sötra kaffið úr te- skeið svo það væri ekki of heitt fyrir mig, sagði hann. Þar sem ég komst að því seinna að afi drakk kaffið alltaf frekar kalt ályktaði ég að hann hefði sagt það til að ég fengi ekki of mikið af því „góða“. Óteljandi eru skiptin sem maður sem smápolli strauk að heiman í fússi og ætlaði aldrei að koma aftur. Það fór hins vegar alltaf á sama veg. Þegar af manni rann reiðin var nærtæk- ast að fara til ömmu og afa frek- ar en heim, svona til þess að halda andlitinu. Já, þær voru margar sam- verustundirnar með ömmu og afa í Grænuhlíðinni. Þegar ég hafði aldur til kenndi afi mér að spila og seinna meir að tefla. Þær eru líklega taldar í þúsund- um klukkustundirnar sem við eyddum saman við það. Afi var ótrúlega þolinmóður og passaði að maður næði fram hagstæðum úrslitum af og til, svo maður missti ekki áhugann. Amma stundaði sína handavinnu á með- an, hæstánægð með að fá frið til þess, svo bar hún í okkur bakk- elsi svo ég héldi lengur út. Því meðan ég var til staðar slapp hún við að spila við „karlinn“ eins og hún orðaði það. Sama fyrirkomulag var haft á þær ófáu helgar sem ég eyddi í sumarbú- staðnum með þeim. Á yngri árum áleit maður afa stóran karl, kannski ekki svo- kallaðan „útrásarvíking“ enda voru þeir ekki til á þeim tíma, heldur meira eins og „innan- landsvíking“. Hann var um tíma stórtækur byggingarverktaki og tók hann þátt í byggingu margra kennileita höfuðborgarsvæðisins svo sem Kassagerðarinnar, Do- mus Medica, Glæsibæjar og Austurvers að ógleymdri Hamraborginni í Kópavogi, en þar reisti hann „fallegri“ hlut- ann, eða það fannst mér að minnsta kosti. Maður fylltist miklu stolti að eiga svona afa og hvert tækifæri var notað til þess að koma því á framfæri. Minn- isstætt er þegar við Kristján frændi minn bjuggum í Hamra- borginni og vorum smáguttar að taka strætó heim frá Ísaksskóla þegar steypubíll fer fram úr vagninum. Þá var sagt hátt og snjallt: Sjáðu steypubílinn! Hann er örugglega að fara til afa! Eins og óhugsandi væri að nokkur annar væri að panta steypu. Við vorum miklir mátar. Frá unglingsárum mínum er mér minnisstæður tími þegar amma fór í ferðalag með Félagi eldri kvenskáta. Á meðan á því stæði skyldi ég flytja inn til þeirra og passa afa. Á fyrsta degi var farið út í Suðurver og ísskápurinn fylltur af ýmsu góðgæti eins og sviðasultu og súrum lundabögg- um en skömmu áður hafði einnig verið send fata frá Krossnesi með súrsuðum sviðalöppum. Heil vika fór í að horfa á hina ýmsu vestra og gæða sér á al- vöru mat eins og það var kallað. Það er margt sem stendur upp úr en umfram allt var hann góður afi. Blessuð sé minning hans. Magnús Baldvinsson. Elsku afi. Mig langar til að minnast þín með ljóðinu „Læk- urinn“ eftir Gísla Ólafsson frá Eiríksstöðum, sem hefur alltaf minnt mig á þig og bæinn Grenj- ar. Ég er að horfa hugfanginn í hlýjum sumarblænum yfir litla lækinn minn, sem líður framhjá bænum. Ó, hve marga æskustund áður hér ég dvaldi, saklaust barn með létta lund, og leggina mína taldi. Bæ ég lítinn byggði þar og blómum utan skreytti. Yfir tún og engjarnar oft ég læknum veitti. Nú er ekkert eins og fyr; á öllu sé ég muninn: löngu týndir leggirnir og litli bærinn hruninn. Æska hverfur. Yndi dvín. Allt er líkt og draumur. Áfram líður æfin mín eins og lækjarstraumur. Meðan æðum yljar blóð og andinn má sig hræra, skal ég syngja lítið ljóð læknum silfurtæra. Þegar ég er uppgefinn og eytt hef kröftum mínum, langar mig í síðasta sinn að sofna á bökkum þínum. Styrmir Guðmundsson. Elsku afi minn. Þú og móðir mín voru fallegustu feðgin sem ég hef séð. Samband ykkar var alveg einstakt og svo fallegt. Það sást langar leiðir glampinn í aug- um þínum þegar þú horfðir á hana og sá sami glampi mynd- aðist í hennar augum þegar hún horfði á þig. Eintóm ást, aðdáun, stolt og umhyggja. Þið gerðuð hvort annað svo hamingjusamt. Ég er svo ánægð að hafa feng- ið það tækifæri að sýna þér son minn og að þið hafið fengið að kynnast pínulítið. Ég er líka svo hamingjusöm með að eiginmaður minn hafi fengið að kynnast þér og hann hafi orðið vitni að því hversu einstakur maður þú varst. Persónuleikinn þinn var alveg einstakur. Svo skemmtilegur og hress. Aldrei var langt í grínið og hláturinn. Það var sama þótt þú værir orðinn 98 ára gamall karl, það var alltaf eins og þú værir unglingur. Það sem skipti þig mestu máli var fjölskyldan og þú varst svo stoltur af börn- um þínum. Það voru algjör forréttindi að fá að kveðja þig áður en þú fórst. Það var stund sem ég á aldrei eftir að gleyma og ein sú erf- iðasta sem ég hef upplifað. Ég er þakklát fyrir tímann sem við áttum saman. Mitt hjarta er fullt af fallegum minn- ingum sem ég mun geyma allt mitt líf og deila með börnum mínum. Nú eruð þið amma loksins saman aftur ásamt fleirum heitt- elskuðum. Það er hugsun sem maður getur hlýjað sér við. Takk fyrir yndislegt líf, elsku afi minn. Ég elska þig. Agnes Guðmundsdóttir. Magnús Baldvinsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, MARÍA GUNNARSDÓTTIR, Maja, sjúkraliði, Suðurgötu 2a, Vogum, sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 7. september, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju fimmtu- daginn 15. september kl. 15.00. Þórður Kristinn Guðmundsson, Ívar Örn Þórðarson, Sigríður Vigdís Þórðardóttir, Guðríður Kristín Þórðardóttir, Sölvi Hall, Halla Guðbjörg Þórðardóttir, Sigurjón Veigar Þórðarson og barnabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Vatni í Haukadal, fyrrv. hjúkrunarforstjóri FSN, Bakkabakka 4b, Neskaupstað, lést á heimili sínu þriðjudaginn 6. september. Útför hennar fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag, þriðjudaginn 13. september kl. 14.00. Halldór Þorsteinsson, Sveinbjörg Halldórsdóttir, Kári Þormar, Þórunn Björg Halldórsdóttir, Ragnar Eðvarðsson, Snorri Halldórsson, Sigrún Þorsteinsdóttir og barnabörn. ✝ Okkar ástkæra GUÐMUNDA ERLENDSDÓTTIR lést á deild B-6, Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 11. september. Jarðarför verður auglýst síðar. Gunnar Valur Þorgeirsson, Hrefna Gunnarsdóttir, Jónas Ástráðsson, Louisa Gunnarsdóttir, Birgir Þór Jónsson, Erna Gunnarsdóttir, Haukur Ólafsson, Auður Björk Gunnarsdóttir, Þórhallur K. Jónsson. ✝ Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Skálateigi 1, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 16. september kl. 13.30. Sigrún Hjaltadóttir, Sævar Sigmarsson, Jón Hjaltason, Lovísa Björk Kristjánsdóttir, Hrönn Hjaltadóttir, Þorsteinn Hjaltason, Hrafnhildur Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar og systir, GUÐBJÖRG EDMONDSON, Didda, lést í Grímsby sunnudaginn 11. september. Ralph og Maureen Edmondson, Cristopher og Carole Edmondson, Stella og N.Weir, Hreiðar Hólm og Sigríður Ólafsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓREY JÓNSDÓTTIR fótaaðgerðafræðingur frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal, lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn 10. september. Jarðsungið verður frá Akraneskirkju föstudaginn 16. september kl. 14.00. Jarðsett verður að Þorvaldsstöðum í Breiðdal mánudaginn 19. september kl. 11.00. Guðný Jóna Ólafsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Daðey Þóra Ólafsdóttir, Erla Ólafsdóttir, Fjölnir Þorsteinsson, Eygló Peta Gilbertsdóttir, Óskar Ingi Ágústsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.