Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  230. tölublað  99. árgangur  ÞYKIR VÆNT UM GÖMLU GÓÐU LÖGIN MUGISON FÆDDIST Í KA- RÓKÍ Í MALASÍU KRÖKKUM KENNT AÐ BÚA TIL STUTTMYND SUNNUDAGSMOGGINN AFRAKSTURINN Í BÍÓ PARADÍS 45PAUL YOUNG ER FJÖLHÆFUR 48 Morgunblaðið/Einar Falur Sjónmengun? Háspennumastur á Kili, sumum finnst þau fögur, öðrum ljót.  Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir að ef leggja ætti allar nýjar háspennulínur í jörð myndi það þýða 400-500 milljarða króna aukakostnað. Meirihlutinn í sveitarfélaginu Vogum á Vatns- leysuströnd er fallinn eftir að sam- þykkt var að heimila Landsneti að- eins lagningu jarðstrengja um land sveitarfélagsins. Verði þetta niðurstaðan mun ekki verða hægt að stækka Reykja- nesvirkjun og ekki hægt reka álver í Helguvík. Að sögn Landsnets yrði viðbótarkostnaður af lagningu jarðstrengs á landi Voga í stað loft- línu sex milljarðar króna. »25 Jarðstrengir um allt land gætu kostað 500 milljarða Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Rótgróin verktakafyrirtæki í bygg- ingariðnaði hafa að undanförnu neyðst til að segja upp þeim starfs- mönnum sem búa yfir mestu reynsl- unni og lengsta starfsaldrinum, lyk- ilstarfsmönnum, vegna skorts á verkefnum. Friðrik Á. Ólafsson hjá Samtökum iðnaðarins bendir á að ekkert fyr- irtæki geti starfað án lykilstarfs- manna. Fyrirtækin vilji ekki missa þá en uppsagnirnar séu varúðarráð- stöfun enda sjái þau fram á verk- efnaskort. Komi þær til fram- kvæmda sé lítið orðið eftir af viðkomandi fyrirtækjum enda geti þau vart starfað án sinna mikilvæg- ustu starfsmanna. Margir afar reynslumiklir menn hafi þegar misst vinnuna og margir þeirra hafi flutt til útlanda í kjölfarið. Þungt hljóð sé í byggingarverk- tökum. Nánast engin verkefni séu í vinnslu og ekkert í pípunum. Erfitt sé að spá fyrir um hvort uppsagnir halda áfram í haust og vetur. „Og það er líka spurning hvort það eru einhverjir eftir til að segja upp,“ segir Friðrik. Sigurður Bessason, formaður Efl- ingar, segir atvinnuleysið innan þeirra raða hafa heldur sigið niður. „En maður hefur þó á tilfinning- unni að það sé svikalogn,“segir hann. Sigurður segist jafnframt óttast að mikið verði skorið niður í fjárlaga- frumvarpinu. Lykilstarfsmenn á brott  Rótgróin verktakafyrirtæki neyðast til að segja upp reynslumestu starfsmönn- unum  Þungt hljóð í byggingarverktökum  Nánast engin verkefni í pípunum Staðan Fá verkefni í byggingaiðn- aði og lítið sem ekkert framundan. Morgunblaðið/RAX MDeyfðin svífur »4 Fjölmenni var á fundi lögreglumanna í Menntaskólanum við Hamrahlíð í gærkvöld og menn voru sammála um að fylkja sér á bak við sína menn í viðræðunum sem hafnar eru við fulltrúa ríkisstjórnarinnar um bætt kjör. Starfs- hópurinn sem stofnaður var á fimmtudag hefur þegar hist og mun halda annan fund á mánudag, að sögn Guð- mundar Fylkissonar, aðalvarðstjóra hjá Ríkislögreglu- stjóra, sem var fundarstjóri. „Ég er ekki bjartsýnn en heldur ekki svartsýnn, menn eru að tala saman, það er það sem þetta snýst um,“ sagði Guðmundur um viðræðurnar við ráðherra. Hann sagði að grunnkrafan væri að launakjörin yrðu bætt. Menn sem áður hefðu verið í óeirðasveitinni en sagt sig úr henni myndu mæta til vinnu í dag vegna þingsetningar og klæðast sínum hefðbundnu búningum. kjon@mbl.is „Menn eru að tala saman“  Lögreglumenn vilja styðja vel sína menn í viðræðunum Morgunblaðið/Golli Alvara Lögreglumenn á fundinum í MH í gærkvöldi. Laufblöðin þyrluðust hátt upp í loft, með smá- hjálp frá kröftugum haustvindinum, þegar þess- ar glaðlegu skólastúlkur brugðu á leik í gær. Ár- leg haustlægð hefur gert hressilega vart við sig undanfarna daga og virðist ekkert lát vera á, spáð er áframhaldandi rigningu og roki. Haustinu tekið fagnandi Morgunblaðið/RAX  „Ég held að strákar sjái einfald- lega ekki tilganginn í því að lesa bækur þegar þeir geta nálgast allar þessar upplýsingar á netinu og skólarnir eru enn í fyrirlestra- formi,“ segir Þorbjörg Helga Vig- fúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins og formaður starfshóps á vegum Reykjavíkurborgar um námsárangur drengja í skólum. Hún segir að sínu mati nauðsyn- legt fyrir kennara og skólastjórn- endur að nýta sér margmiðlunar- tækni eins og myndabandavefinn YouTube í náminu og höfða þannig betur til nemenda með því að færa námsefnið meira í slíka miðla sem þeir þekki og noti mikið. Til að mynda í formi fyrirlestra á netinu í stað þess að þeir fari fram í kennslustofunni. »12 Nýta þarf vinsæla margmiðlunartækni Ágúst Ingi Jónsson Kristján Jónsson Stóra kvótafrumvarpið var sam- þykkt af allri ríkisstjórninni, að sögn Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- ráðherra sem vísar því á bug að gall- ar séu á frumvarpinu. Hann er spurður um tilboð formanns og vara- formanns sjávarútvegsnefndar, Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur og Ólínu Þorvarðardóttur, um að semja nýtt frumvarp. „Það hefur verið í þeirra höndum hvernig málið var unnið og mér finnst sérkennilegt að fá álit frá einstökum nefndar- mönnum í lok meðferðar þing- nefndarinnar,“ svarar Jón. Samfylking- armaðurinn Ró- bert Marshall segir eðlilegt að Lilja Rafney og Ólína hafi unnið álitið sem sent var ráðherra, þær hafi haft mest tóm til að sinna málinu. „Þetta er ekki hefðbundið nefndarálit sem lagt er fram á milli umræðna,“ segir Ró- bert. »6 Allir ráðherrarnir sam- þykktu kvótafrumvarpið Jón Bjarnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.