Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 Prúðbúnir Nemendur á lokaári í Kvennaskólanum í Reykjavík héldu í gær árlegan peysufatadag. Sungið og dansað var fyrir starfsfólk skólans og aðra nemendur og einnig fyrir heimilisfólkið á Grund og Hrafnistu í Reykjavík. Um kvöldið var peysufötunum skipt út fyrir öllu nútímalegri klæðnað og Kvenskælingarnir hittust á Rúbín í Öskjuhlíð og snæddu saman kvöldverð. Eggert Lítil frétt á heima- síðu Atlantshafs- bandalagsins vakti at- hygli mína. Fréttin er tæplega tveggja vikna gömul, frá 21. sept- ember, og segir frá ákvörðun Norður- Atlantshafsráðsins um að framlengja hern- aðaraðgerðir Atlants- hafsbandalagsins í Líb- íu um 90 daga. Ákvarðanir ráðsins eru teknar ein- róma og hefur hvert aðildarríki neit- unarvald. Aðgerðir bandalagsins í Líbíu hóf- ust eins og kunnugt er í mars sl. og var ákvörðun um yfirtöku hernaðar- aðgerða á grundvelli ályktunar Ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna tek- in með samþykki allra aðildarríkja, þ.m.t. ríkisstjórnar Vinstri grænna á Íslandi. Steingrímur J. Sigfússon var reyndar ekki spurður álits, eins og fram kom í máli hans á Alþingi daginn eftir. En svo var tekin ákvörðun í júní um að framlengja hernaðaraðgerð- irnar um 90 daga. Þá mætti utanrík- isráðherra Íslands í utanríkis- málanefnd, ræddi málin og Vinstri grænir bókuðu mótmæli. En allt kom fyrir ekki, Vinstri grænir héldu áfram að styðja hernaðaraðgerðir Atlantshafsbandalagsins í Líbíu þegar fulltrúi Íslands greiddi framlenging- unni atkvæði sitt. Og nú er aftur búið að framlengja um 90 daga. Ég veit ekki til þess að utanrík- ismálanefnd hafi verið kölluð saman, og ég veit ekki hvort Stein- grímur Joð hefur verið spurður álits í þetta sinn. „Við erum stað- ráðin í að halda aðgerð- um áfram eins lengi og þörf er á,“ er haft eftir fram- kvæmdastjóra bandalagsins í frétt- inni. Kannski finnst honum líka að það þurfi ekkert að spyrja Steingrím. Eftir Ragnheiði Elínu Árnadóttur » Og nú er aftur búið að framlengja um 90 daga. Ég veit ekki til þess að utanríkismála- nefnd hafi verið kölluð saman, og ég veit ekki hvort Steingrímur Joð hefur verið spurður álits í þetta sinn. Ragnheiður Elín Árnadóttir Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Var Steingrímur spurður? Baldur Guðlaugsson lögfræðingur skrifaði grein í Morgunblaðið 7. sept. sl. vegna óska Kínverjans Huang Nubo um kaup á Grímsstöðum á Fjöll- um, sem mjög hefur verið um fjallað. Birtir hann þar málsgreinar úr lögum nr. 34/1991, um fjárfestingar er- lendra á Íslandi, og er að sjá, að í þeim fáu orðum séu gerð skil öllu sem hafi þótt þurfa við. Segir þar: „Fjárfestingar erlends ríkis, sveit- arfélags eða annars erlends stjórn- valds í atvinnurekstri hér á landi er óheimil nema með sérstöku leyfi efnahags- og viðskiptaráðherra.“ Í greinargerð með lögunum virð- ast einnig aðeins nefnd „erlend ríki eða fyrirtæki í eigu erlends ríkis.“ – Virðist Baldur telja að með þessari lagagrein hafi íslenzk yfirvöld í hendi sér hvort af slíkum kaupum megi verða, og sama hefur verið haft eftir forsætisráðherra í blöðum, að íslenzkt „lagaumhverfi“ (orðað svo) tryggi fullkomlega að engin óhöpp verði af landsölu af þessu tagi. Hér sýnist þó vera nokkur brota- löm, ef þetta lagaákvæði er tæm- andi. Ekki er nefnt að einstaklingur þurfi að fá slíkt leyfi. Aðeins er nefnt erlent ríki, sveitarfélag eða annað erlent stjórnvald. Varla hefur verið ætlun lagasmiða að undanskilja jarða- kaup einstaklinga, en hér virðist samt vera glufa í lögunum. Kannske hafa kínversk stjórnvöld komið auga á þessa glufu og því þótt vænlegt að láta einstakling leita hófa um landakaup, þar sem erfiðara væri fyrir er- lent ríkisvald að eign- ast landsvæði á Íslandi. Nefnt hefur verið að Kínverjar hafi keypt stór lönd í Afríku og víðar (til ferða- mennsku?) Íslendingar hafa fram að þessu lítt vitað um landakaup út- lendinga hérlendis. Að vísu hefur nokkrum sinnum heyrzt að Sviss- lendingur eigi dal einn austur í Mýr- dal; fyrst að hann ætti eina jörð, en nú dalinn allan, og loki hann dalinn af fyrir öðrum en sínu fólki. Nýlega kom hins vegar í fréttum, að 23 út- lendingar hefðu fengið leyfi til að kaupa land á Íslandi. Er hér komin af stað skriða? – Hve margar jarðir kunna útlendingar að eiga á Íslandi eftir 50 ár? Margir hugsa nú um stund- argróða. Margt virðist falt fyrir pen- inga, jafnvel þjóðarauðurinn. Fossar voru seldir útlendingum fyrr á tíð og jarðhitavinnsla nú nýlega. Þjóðerniskennd sýnist ekki vera ofarlega í huga margra nú um stundir. Jafnvel má ekki minnast á þjóðerniskennd án þess að mönnum sé núið um nasir ofstæki. Kínverjinn Huang Nubo fær gott orð þeirra sem hann hafa hitt eða kynnzt. En komist stórt landflæmi í kínverskar hendur er ekki afar lík- legt að það verði laust í hendi á ný? Ekki verður Huang Nubo eilífur frekar en við hin. Hverjir munu svo taka við þessu landi eftir hann? Ekki er víst að það verði skáld eða náttúruunnendur eða ferðafröm- uðir. Þá gæti einnig farið svo, að síð- ari eigendur kölluðu eftir vatnsrétt- indum, þótt Nubo kveðist vilja afsala sér þeim. Ekki má víst lengur láta hlunnindi frá jörðum, eins og fyrrum mun stundum hafa verið gert. Rennandi vatnið mun því fylgja jörðinni áfram þótt nýtingu þess verði slegið á frest. Margir þekkja orðatiltækið „að plata sveitamanninn“. Þá er ekki átt við sveitafólk í venjulegum skilningi, heldur einfeldninga yfirleitt. Mönnum þykir sumum, sem um þetta mál hafa fjallað, að Gríms- staðir séu með ólíklegri stöðum til afþreyingar ferðamanna. Stundum verður ekkert úr stórum áformum. En einhverjum gæti þótt ágætt að eiga stórt landsvæði á Íslandi, þótt það nýttist ekki alveg í bili. Eftir Þór Magnússon » Varla hefur verið ætlun lagasmiða að undanskilja jarðakaup einstaklinga, en hér virðist samt vera glufa í lögunum. Þór Magnússon Höfundur er fv. þjóðminjavörður. Um Grímsstaði Kæri Jón. Það voru heldur kaldar kveðjur sem Jó- hanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi þér í Kastljósi Rík- issjónvarpsins síðast- liðinn fimmtudag. „Þetta var gallað frumvarp að mörgu leyti,“ sagði Jóhanna um frumvarp þitt til breytinga á lögum um stjórn fisk- veiða. Ég efast um að nokkur forsætisráð- herra hafi fellt viðlíka dóm á opinberum vett- vangi yfir verkum ráð- herra í eigin rík- isstjórn. Þó var frumvarpið samþykkt í ríkisstjórn og því á ábyrgð Jóhönnu Sig- urðardóttur. Nú get ég tekið und- ir með Jóhönnu og raunar gott betur. Frumvarpið er ekki aðeins gallað heldur stórhættulegt fyrir íslenskt efnahagslíf. En um það verðum við seint sammála. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsætisráðherra og aðrir samfylk- ingar senda þér kaldar kveðjur. En þar sem ég veit að þú ert ekki geð- laus maður – ekki frekar en aðrir sem kynnst hafa ferskum vindum Skagafjarðar – vil ég spyrja þig tveggja spurninga: 1. Finnst þér gæta mikils dreng- skapar í þinn garð þegar forsætis- ráðherra fellir dóm af því tagi sem gert var í Kastljósi og reynir um leið að víkjast undan ábyrgðinni? Finnst þér drengskapur einkenna fram- göngu samstarfsráðherra þinna í öðrum málum, svo sem er varðar Evrópusambandið? 2. Ert þú sammála því að eftir allt sem á undan er gengið eigir þú að- eins tveggja kosta völ: Annaðhvort að sitja áfram í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og láta allt yfir þig ganga, eða að taka hatt þinn og staf og segja skilið við ríkisstjórn? Ég veit að þú munt svara þessu fljótt og vel, að ekki sé talað um skil- merkilega. Gamlir sveitungar okkar í Skagafirði munu lesa svör þín af at- hygli, líkt og margir fleiri lands- menn. Með kærri kveðju. Opið bréf til Jóns Bjarnasonar Eftir Óla Björn Kárason »Nú get ég tekið und- ir með Jóhönnu og raunar gott betur. Frumvarpið er ekki að- eins gallað heldur stór- hættulegt fyrir íslenskt efnahagslíf. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.