Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íslensk stjórn-völd hafa gertmálefni norð- urslóða að for- gangsverkefni ís- lenskrar utanríkisstefnu. Ís- inn á norðurskaut- inu er að bráðna og þynnast og við það opnast sigl- ingaleiðir og möguleikar á að komast að auðlindum á borð við olíu og gas. Fimm strandríki gera kröfur um landgrunnsréttindi í Norður- Íshafi. Ísland er ekki þeirra á meðal, en byggir tilkall sitt til að hafa sitt að segja á því að vera að hluta innan norðurskautssvæð- isins. Um tíma virtust ríkin fimm ein ætla að ráða ráðum sínum um norðurslóðir. Nú bendir allt til þess að Norðurskautsráðið verði vettvangur viðræðna um þær og þar eru Íslendingar innanborðs. Fyrir rúmri viku héldu Rússar ráðstefnu um málefni norð- urslóða í Arkangelsk. Þar var talað um að gæta þyrfti alls jafn- vægis í umgengni á norð- urslóðum, hvort sem um væri að ræða siglingar eða nýtingu auð- linda. Náttúra norðursins væri viðkvæm og sömuleiðis samfélög þeirra fjögurra milljóna manna, sem nyrst búa. Það er til marks um þá áherslu, sem Rússar leggja á norðurslóðamál, að Vladimír Pútín forsætisráðherra flutti ræðu á ráðstefnunni. Athygli vakti að hann sá ástæðu til að draga í efa að breyting- arnar á norð- urslóðum væru að einhverju leyti af mannavöldum. Vek- ur það spurningar um hvernig eigi að túlka orð hans um sjálfbærni ef hann telur einu gilda um áhrifin af athafnasemi mannsins á þess- um slóðum. Hér hafa heyrst raddir um að á Íslandi gæti orðið til risavaxin uppskipunarhöfn, sem yrði mið- stöð flutninga milli Asíu annars vegar og Evrópu og Bandaríkj- anna hins vegar. Í þessu kunna að felast möguleikar, en hafn- armannvirki með tilheyrandi innviðum kosta sitt og ljóst að fleiri munu vilja vera um hituna. Á ráðstefnunni kom fram að styrkja ætti innviði í Rússlandi til að geta tekið á móti auknum siglingum, auk þess sem Norð- menn vilja bita af kökunni. Hagsmunir Íslendinga liggja fyrst og fremst í því að á norð- urslóðum sé traust björgunar- og slysavarnakerfi og grannt eft- irlit með því að ýtrustu varkárni sé gætt við nýtingu auðlinda. Mengunarslys á norðurslóðum gætu haft hrikalegar afleiðingar fyrir íslenskan sjávarútveg og þar með íslenskt efnahagslíf. Það er ekki síst út af þeim hags- munum, sem Íslendingar gera tilkall til að taka þátt í að móta framtíð norðurslóða. Mengunarslys á norðurslóðum gætu haft hrikalegar af- leiðingar fyrir ís- lenskan sjávarútveg } Kapphlaupið um pólinn Eftir að hafatekið sjáv- arútvegsmálin út úr þeim sáttafar- vegi sem þau voru komin í og fært þau yfir í nefnd stjórnarflokkanna, þar sem hún átti sjálf sæti, segir Jóhanna Sig- urðardóttir, forsætisráðherra, nú að stóra kvótafrumvarpið hafi verið gallað þegar það var lagt fram. Stjórnarflokkarnir breyttu frumvarpinu til að þjóna eigin duttlungum og for- sætisráðherra lagði áherslu á að málið næði fram að ganga, en veikleikar í stjórnarmeirihlut- anum urðu að lokum til þess að málið kláraðist ekki. Út af fyrir sig er rétt hjá Jó- hönnu að frumvarpið var gallað eins og margítrekað var bent á án þess að hún gerði nokkuð til að laga gallana eða stöðva mál- ið. En það að hún hafi reynt að knýja málið í gegnum Alþingi þrátt fyrir galla þess sem hún nú viðurkennir sýnir ótrúlegt ábyrgðarleysi. Um er að ræða mikilvægasta undirstöðu- atvinnuveg þjóðarinnar og for- sætisráðherra landsins getur ekki leyft sér að leika sér að svo mikilvægum þjóðarhagsmunum. Nú er málið komið á byrj- unarreit. Ætli stjórnarmeirihlut- inn sér að halda því áfram þarf að semja nýtt frum- varp og leggja fyr- ir þingið með allri þeirri óvissu sem slíku fylgir fyrir sjávarútveginn, tengdar greinar og þar með þjóðina alla. Þetta er ótæk leið sem mundi ekkert gera annað en staðfesta illan hug ríkisstjórn- arinnar til sjávarútvegsins og framlengja þá erfiðu stöðu sem hann hefur verið settur í. Nú er mál að linni. Kominn er tími til að ríkisstjórnin veiti sjávarútveginum starfsfrið með því að hætta við þær breyt- ingar sem hún hefur áformað. Með því gæti ríkisstjórnin stuðlað að því að hleypa fjár- festingu í sjávarútveginum af stað aftur sem mundi á skömmum tíma skapa fjölda nýrra starfa. Séu yfirlýsingar Jóhönnu um að ríkisstjórnin leggi sig alla fram í atvinnu- málum eitthvað annað en orðin tóm er þetta augljós kostur. Miklu líklegra er þó að duttl- ungarnir fái áfram að ráða ferðinni. Ríkisstjórnin stend- ur frammi fyrir auðveldri leið til að skapa mikinn fjölda starfa} Barist fyrir gölluðu frumvarpi Í vikunni voru ræddar niðurstöður könn- unar starfshóps Menntaráðs Reykja- víkurborgar sem sýnir að nær einn af hverjum fjórum 15 ára drengjum í reykvískum grunnskólum getur ekki lesið sér til gagns. Mikill munur er á milli kynjanna þegar kemur að læsi og ánægju af lestri. Vissulega er vitað að munur er á milli kynjanna þegar kemur að námi en þessar nið- urstöður eru sláandi og ástæða til að taka þær alvarlega. Þar er ég ekki aðeins að tala um skólakerfið heldur einnig hlut okkar foreldra í námi barnanna. Ég sjálf er svo sem enginn aðdáandi heima- náms en lestur er samt nauðsynleg færni í nú- tímaþjóðfélagi. Og lestur er greinilega ekki sama og lestur. Það segir sig sjálft að allt bóknám er grund- vallað á því að lesskilningur sé fyrir hendi. Hvort sem um er að ræða orðadæmi í stærðfræði, túlkun á inntaki texta í bókmenntum eða fræðilestur. Við Íslendingar höfum í gegnum tíðina státað okkur af því að vera bókmenntaþjóð en síðustu árin hefur lestur ungmenna minnkað verulega. Ég vil segja skelfilega. Ég neita að trúa því að það sé vegna þess að ekki séu til bækur sem séu nógu áhugaverðar og skemmtilegar. Ég hef sjálf verið lestrarhestur frá því að ég lærði að lesa fimm ára gömul og var fljót að komast að því mér til mikillar ar- mæðu að þó að ég sé hraðlæs mun mér aldrei endast ævin til að lesa allar þær bækur sem mig langar til að lesa. Jafn- vel þó að ég geri ekkert annað. Sem móðir þriggja drengja, sá elsti er reynd- ar orðinn fullorðinn, hef ég sjálf reynt þá al- kunnu staðreynd að æfingin skapar meistarann og að það skiptir máli að lesa eitthvað sem börn- unum finnst áhugavert. Lesturinn er ekki bara á ábyrgð skólans heldur verð ég sjálf, sem ábyrgt foreldri, að taka ábyrgð á námi barna minna. Ég sá líka mun á lestrargetu og hraða strákanna sem var í réttu hlutfalli við þann tíma sem við foreldrarnir gáfum okkur í lesturinn með þeim. Ég verð að játa að ég var duglegri að sitja með yngsta stráknum mínum og hlusta á hann lesa en þeim í miðið enda sá ég fljótt mikl- ar framfarir hjá þeim stutta og meiri áhuga líka. Skemmtilegast er þó að lesa fyrir þá og með þeim, efni sem þeir hafa valið sjálfir af bókasafn- inu. Í bókavalinu endurspeglast áhugasvið þeirra og þar hef ég gengið í gegnum ákveðna endur- menntun. Uppruni og þróun mannsins og alls kyns dýrateg- unda, risaeðlur og blómatími þeirra krítartímabilið. Óravídd- ir alheimsins, röðun reikistjarna og stjörnuþokur eru málefni sem þeim eru hugleikin. Ég hef svo sem ekki enn lagt í að lesa Sögu tímans eftir Stephen Hawking með þeim, en þá bók ég las mér til furðu mikillar skemmtunar fyrir tveimur áratugum. Hins vegar stefnum við á að skoða saman Heimskringlu Snorra Sturlusonar, eftir að hafa heimsótt Snorrastofu í Borgarfirði og þeir lært þar að J.R.R. Tolkien leitaði í smiðju Snorra við skrif Hringadróttinssögu. sigrunrosa@mbl.is Sigrún Rósa Björnsdóttir Pistill Af lestri og skemmtilestri STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is J óhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra kom að gerð stjórnarfrumvarpsins um heildarlög um stjórn fisk- veiða. Auk hennar komu Jón Bjarnason, sjávarútvegs- ráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, og Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sem gegndi á sínum tíma formennsku í sáttanefndinni svokölluðu, að gerð frumvarpsins. Athygli vakti athygli í Kastljósi Sjónvarpsins í fyrrakvöld þegar forsætisráðherra sagði að frumvarpið hefði verið gallað að mörgu leyti. Þingmennirnir Ólína Þorvarðar- dóttir, Helgi Hjörvar og Róbert Marshall frá Samfylkingu og þau Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir frá VG komu einnig að vinnu við undirbúning frumvarpsins ásamt Atla Gíslasyni áður en hann sagði skilið við þingflokk VG. Margar athugasemdir hafa bor- ist meðal annars frá hagsmuna- samtökum, sveitarfélögum, verka- lýðsfélögum, fjármálastofnunum, Fiskistofu og fjárlagaskrifstofu fjár- málaráðuneytis. Þá kom hörð gagn- rýni á frumvarpið fram í skýrslu hag- fræðingahóps, sem ráðherra fékk til að meta hagræn áhrif frumvarpsins, m.a. um framsal og veðsetningu. Fölsk eignabóla Í bréfi til ráðherra svara Lilja Rafney Magnúsdóttir og Ólína Þor- varðardóttir, formaður og varafor- maður sjávarútvegsnefndar, ýmsum athugasemdum sem fram hafa komið um frumvarpið og segir m.a. um skýrslu sérfræðinganna: „Hér skal til þess litið að verðmyndun á aflaheim- ildum undanfarin ár hefur verið að byggjast upp á innbyrðis viðskiptum greinarinnar. Í þeim viðskiptum hef- ur verð skrúfast upp meira en raun- veruleg innistæða er fyrir. Þetta hef- ur leitt af sér óeðlilega hátt verðmæti aflaheimilda („froðu“) í efnahags- reikningum fyrirtækja sem sýnt hafa betri eignastöðu að nafninu til og leitt til yfirveðsetningar í greininni. Þar með hefur myndast fölsk eignabóla innan greinarinnar. Þennan raun- veruleika verða bankar sem aðrir að horfast í augu við og taka afleiðing- unum af honum.“ Þá leggja þær til að skilið verði milli veiða og vinnslu þannig að rekstrarumhverfi sjávarútvegsins verði gagnsærra en nú er. Hag- fræðistofnun HÍ skilaði sjávarútvegs- ráðherra skýrslu í vor um kosti þess og galla að aðskilja fjárhagslega fisk- veiðar og vinnslu sjávarútvegsfyr- irtækja. Þar segir m.a. í niðurstöðu- kafla: „Útgerðir sem ekki hafa örugga kaupendur að vöru sinni eru ólíklegri til að ráðast í miklar fjárfest- ingar. Slíkt hið sama gildir um fisk- vinnslur sem ekki hafa öruggan að- gang að hráefni. Samþætt fyrirtæki er því líklegra til að ráðast í nauðsyn- legar fjárfestingar.“ Pólitísk óvissa Ekki er ljóst hvað næst gerist í þessu stóra deilumáli og hæpið að út- spil síðustu daga leiði til lausna. Í ágripi af niðurstöðum sérfræðinga- skýrslunnar segir: „Að síðustu vill sérfræðihópurinn benda á þau nei- kvæðu áhrif sem ósætti og deilur um fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar hafa á rekstrarskilyrði útgerðar- innar, áhuga á fjárfestingum í grein- inni og nýliðun. Útgerð er áhættusöm atvinnugrein. Óvissa um þróun stofn- stærða, skilyrði til veiða og ástand á mörkuðum er mikil. Ofan á þessa óvissu bætist síðan pólitísk óvissa um framtíð fiskveiðistjórnunar. Mikilvægt er að þær breytingar sem nú standa fyrir dyrum séu vand- aðar í hvívetna svo tryggja megi sjáv- arútveginum stöðuga umgjörð sem er forsenda hagkvæmrar langtímanýt- ingar auðlinda sjávar.“ Morgunblaðið/Rax Deilur Umræðan um stjórnun fiskveiða hefur að nýju tekið flugið. Óvissa um „gallað“ stjórnarfrumvarp Gagnrýni » Alþýðusamband Íslands telur frumvarpið í núverandi mynd svo gallað að það leggst gegn samþykkt þess. » Samtök fiskvinnslustöðva, Samtök atvinnulífsins og Landssamband íslenskra út- vegsmanna lýsa sig í öllum at- riðum ósaamála efni frum- varpsins og leggja til að það nái ekki fram að ganga. » Er það mat Landsbankans að endurskoða þurfi frumvarpið frá grunni þar sem tillögur þess, ef samþykktar verða, muni fela í sér skerðingu á hag- kvæmni í sjávarútvegi og rýrari lífskjör í landinu. Jafnframt lýsir Landsbankinn yfir sérstökum áhyggjum af þeim áhrifum sem samþykki frumvarpsins hefði á fjárhafgsstöðu bankans og þar með á fjárhagslegar afleiðingar fyrir íslenska ríkið, stærsta hluthafa bankans. » Eins og að framan er rakið fær frumvarpið mjög neikvæða umsögn hjá Sjómannasam- bandi Íslands og er það ekki samið í sátt eða samráði við sambandið. Því er mælst til þess að frumvarpið verði ekki að lögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.