Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 21
Beint yfir? Oddur Guðmundsson, sem rekur ferðaþjónustuna í Bjarkalundi, hefur talað fyrir nýrri útfærslu á B-leiðinni sem hann kallar áætlun B á leið B. Hún hefur raunar komið til umræðu áður. Leiðin byggist á því að fara út með Þorskafirði að sunnanverðu og þvera fjörðinn utar en áformað hefur verið. Þá myndi vegurinn koma inn á áformaða leið B utan við Teigsskóg. Ekki hefur verið metið hversu dýr framkvæmd þetta yrði. Ljóst þykir að þverun svo utarlega yrði mun dýrari framkvæmd en þverun við Kinnarstaði. Mismunur á kostnaði yrði þá það verð sem samfélagið þarf að greiða fyrir verndun Teigsskógar. Þó telja sumir, ekki síst íbúar í Reykhólahreppi, skynsamlegra að stíga skrefið lengra og taka upp hug- myndir um þverun Þorskafjarðar frá Stað á Reykjanesi beint yfir að Skálanesi. Með því yrðu firðirnir þrír þveraðir í einu lagi. Þessi leið hefur verið í umræðunni í áratugi, kannski vegna þess að menn vita að fjörð- urinn rennur að mestu í tiltölulega þröngum ál, kannski um 300 metra breiðum, og steinar sjást standa upp úr á fjöru meginhluta leiðarinnar. Þessi leið er lengri en svokölluð B- leið en hefur í för með sér að Reyk- hólar kæmust í þjóðleið, ef farið yrði þeim megin Reykjaness. Það yrði ekki hægt nema með lagfæringum á veginum. Þess vegna getur allt eins komið til greina að fara með veginn um sunnanverðan Þorskafjörð og út að Árbæ. Þverunin kostar á annan tug milljarða og ýtti Vegagerðin þessari leið út af borðinu af þeim sökum. Umhverfisáhrif voru því ekki metin. Síðan hafa komið fram hug- myndir um að nýta mannvirkið fyrir sjávarfallavirkjun. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, oddviti Tálknafjarð- arhrepps, telur sjálfsagt að gera format á þessari leið, til að fá upp á borðið helstu upplýsingar. Vegagerðin lét gera umhverfismat fyrir svokallaða C-leið sem felur í sér þverun Gufufjarðar og veg inn með Djúpafirði að vestanverðu. Fram- kvæmdinni var hafnað við úrskurði stjórnvalda um umhverfismat vegna arnarhreiðurs sem er nálægt vænt- anlegu vegstæði. Sveitarfélögin hafa í umræðunni nú lagt til að þessi leið verði skoðuð á ný og þá í tengslum við göng undir Hjallaháls. Önnur út- færsla er að þvera báða firðina og fara inn með Djúpafirði að austan. Þrjú ár til stefnu Þótt innanríkisráðherra hafi ekki fallið frá því að sannfæra íbúana um ágæti þess að fara Hálsaleiðina hef- ur hann ekki útilokað aðrar leiðir. Hann verður þó að horfa til kostn- aðar enda lítið fé ætlað til nýfram- kvæmda. Sveitarstjórnirnar á svæðinu og áhugafólk eru þessa dagana að fara yfir kostina. Haft verður samband við Vegagerðina og ráðherrann. Ekki er ólíklegt að reynt verði að ná samkomulagi um tvær til þrjár útfærslur á leiðum og koma þeim í farveg. Stefnan þarf að vera klár inn- an þriggja ára þannig að hægt verði að halda áfram með Vestfjarðaveg nr. 60 þegar stórum áfanga í Múla- sveitinni verður náð. FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 Í annarri grein um samgöngumál á suðurhluta Vestfjarða er meðal annars rætt við íbúa í Gufudals- sveit og Reykhólasveit. Á mánudag Tóbaksvarnaþing Læknafélags Ís- lands lýsir yfir eindregnum stuðn- ingi við þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um tóbaksvarnir og fagnar framsýni þeirra þingmanna sem það mál flytja. Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi frá sér í gær. Þar segir jafnframt að þingið ítreki nauðsyn þess að tóbaksvarnir á Íslandi verði auknar verulega og hvetur til þess að aðferðir sem draga úr nýliðun tóbaksneytenda meðal barna og unglinga verði sett- ar í algeran forgang af stjórnvöld- um. Fagnar vinnu við stefnumótun í tóbaksvörnum Í annarri ályktun félagsins segir að það fagni vinnu við stefnumótun í tóbaksvörnum sem velferðarráð- herra hefur boðað og minnir á að- gerðaráætlun, sem Tóbaksvarnar- þing ársins 2009 samþykkti. Þar sé bent á hvaða stjórnvalds- aðgerðir eru nauðsynlegar til að draga úr tóbaksneyslu barna og unglinga á Íslandi og hindra að þau ánetjist tóbaki. Nauðsyn að auka tób- aksvarnir á landinu  Fækkun tóbaksneytenda forgangsmál Morgunblaðið/Golli Reykingar Tóbaksvarnaþing segir nauðsyn að tóbaksvarnir á Íslandi verði auknar verulega. Stjórn Kvenréttindafélags Íslands skorar á aðila vinnu- markaðarins að búa í haginn fyrir innleiðingu jafn- launastaðals hjá fyrirtækjum og stofnunum með mark- vissu fræðslu- og hvatningarátaki. Verið er að leggja lokahönd á staðalinn hjá Staðlaráði Íslands og gert er ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið jafnvel næsta vor. Mikilvægt sé að sá tími sem til stefnu er verði nýttur til kynningar á staðlinum. Vilja innleiða jafn- launastaðal hér á landi Í Boðaþingi 24 Kópavogi eru enn til leigu nokkrar glæsilegar þjónustu- og öryggisíbúðir í fimm hæða húsi með lyftu. Um er að ræða fyrri áfanga af tveimur, en alls verða íbúðirnar í húsinu 95. Úr íbúðunum er meðal annars stórkostlegt útsýni til Elliðavatns, Esjunnar og Hengilsins. Handan götunnar er hjúkrunarheimilið Hrafnista og þjónustumiðstöðin Boðinn, þar sem boðið er uppá fjölbreytta og vandaða þjónustu. Þangað er innangengt um upphitaðann tengigang. Glæsilegar þjónustu- og öryggisíbúðir í fallegu umhverfi Sýndar alla virka daga Lausar íbúðir eru sýndar áhugasömum alla virka daga. Hafið samband í síma 585 9301 og 585 9302 á skrif- stofutíma eða sendið tölvupóst til jona.karlsdottir@ hrafnista.is. Sjá nánar á heimasíðunni hrafnista.is. • Rúmgóðar, vandaðar og bjartar íbúðir • Stórar flísalagðar og yfirbyggðar svalir • Innangengt í þjónustumiðstöðina Boðann • Aðgangur að þjónustu hjúkrunarfræðinga • Öryggisvöktun allan sólarhringinn • Sjúkraþjálfun og tækjasalur • Matsalur Reynir Björnsson og Dóra Magnúsdóttir eru ánægð í Boðaþinginu. Góðir kostir Fyrir eldri borGara • Sundlaug og heitir pottar • Hárgreiðslustofa • Fótaaðgerðarstofa • Fjölbreytt félagslíf • Púttvöllur • Fjölbreyttar gönguleiðir • Góð bílastæði www.hrafnista.is Íbúðir með sjávarútsýni Eigum einnig glæsilegar þriggja herbergja íbúðir með miklu sjávarútsýni og yfirbyggðum svölum að Hraunvangi við Hrafnistu Hafnarfirði. Verið velkomin í opið hús í boðaþingi 24 Kópavogi laugardag 1. og sunnudag 2. október, milli kl. 14:00 og 17:00 opið húS lauGardaG oG SunnudaG Skósmiðir • skóaratal Undanfarin ár hefur verið unnið að gerð skóaratals á Íslandi frá upphafi. Litlar sem engar upplýsingar eru til og því allar ábendingar vel þegnar. Þeir sem þekkja til eða vita um einhvern úr þessari stétt vinsamlega hafið samband á netfang skoari@simnet.is Landssamband skósmiða Reyðarkvísl 1 110 Rvk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.