Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011
Þór Saari mun í
dag taka við
hlutverki for-
manns þinghóps
Hreyfingarinnar
af Margréti
Tryggvadóttur.
Margrét verður
varaformaður
þinghópsins og
Birgitta Jóns-
dóttir ritari hans.
Fram kemur í tilkynningu frá
Hreyfingunni að þingmenn Hreyf-
ingarinnar skiptist á að gegna þess-
um hlutverkum, eitt ár í senn, enda
sé fyrirkomulag valddreifingar
Hreyfingarinnar byggt á jafnræði.
Þá segir í tilkynningunni, að
einnig verði „formannsskipti“ í
Hreyfingunni sjálfri en þá muni
Birgitta taka við hlutverki for-
manns í stað Þórs. Birgitta muni,
líkt og fyrrverandi formenn Hreyf-
ingarinnar afþakka formannsálag
ofan á þingfararkaup sitt.
Þór Saari
formaður
þinghóps
Þór Saari
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mb.is
Öll kaup og leigu hjá ríkinu sem fara
yfir tiltekin útboðsmörk verður að
bjóða út, að sögn Guðmundar Hann-
essonar, forstöðumanns ráðgjafar-
sviðs hjá Ríkiskaupum. Kaup eða
leiga á þyrlu eru yfir efri mörkunum
og því þarf að bjóða út bæði fjár-
mögnun og kaup eða leigu innan
Evrópska efnahagssvæðisins.
Hugsanleg aðkoma lífeyrissjóð-
anna að fjármögnun þyrlukaupa fyr-
ir Landhelgisgæsluna hefur verið í
umræðunni að undanförnu. Fari
Landhelgisgæslan fyrir hönd ríkis-
ins út í að kaupa eða leigja þyrlu þarf
að fylgja ákveðnu regluverki.
Guðmundur segir að kosti tiltekin
vara, sem ríkið hyggst kaupa, meira
en 6,2 milljónir króna skuli bjóða
kaupin út innanlands og jafnframt
skal útboðið vera innan EES fari
verðið yfir 16,7 milljónir króna. Í
sambandi við leigu skal óskað eftir
tilboðum innanlands fari samnings-
upphæðin yfir 12,4 milljónir króna
og innan ESS, sé samningsfjárhæðin
meira en 16,7 milljónir króna.
Guðmundur bendir á að eitt sé að
kaupa eða leigja þyrlu og annað að
fjármagna kaupin. Fjármögnunin
falli undir kaup á þjónustu.
Í stuttu máli eru þyrlukaup og
fjármögnun þeirra útboðsskyld.
Reglur um útboðsskyldu
Morgunblaðið/Kristinn
Þyrla Fjármögnun og þyrlukaup eða -leiga eru útboðsskyld.
Ekki sjálfgefið að lífeyrissjóðirnir fjármagni þyrlukaup
Bjóða verður út fjármögnun og kaup eða leigu á þyrlu
Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili
árveknisverkefnis Krabbameinsfélagsins.
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með
bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl
næst flegar flú
pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Ökum
undir
bleikum
merkjum
enn á n‡
í október og
nóvember
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
Langur laugardagur
15% afsláttur
af öllum vörum
í dag
- nýr auglýsingamiðill
569-1100