Morgunblaðið - 01.10.2011, Side 29

Morgunblaðið - 01.10.2011, Side 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 www.gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Ódýr og góð gisting í hjarta Kaupmannahafnar Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.herjolfur.is Með Herjólfi í vetur milli lands og Eyja – fjórar ferðir alla daga Eftir 1. október verður eingöngu hægt að bóka í 2 ferðir milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fram í tímann á meðan vetraráætlun gildir. Um er að ræða fyrstu og þriðju ferð. Þær bókanir gilda síðan í Þorlákshöfn ef ekki er siglt í Landeyjahöfn. Í lok hverrar viku á föstudögum kl. 15:00 er opnað fyrir bókanir í aðrar ferðir vikunnar á eftir ef Landeyjahöfn er áfram opin. Hægt verður að bóka ferðir fram til 20. desember. Áætlun yfir jól og áramót verður kynnt fljótlega. Alla daga vikunnar: Frá Vestmannaeyjum 08:00 11:30 15:30 20:30 Frá Landeyjahöfn 10:00 13:00 19:00 21:30 Ef ekki er hægt að sigla um Landeyjahöfn verður fyrsta ferð þann dag ávallt um Þorlákshöfn og síðan tvær ferðir seinnipartinn um Landeyjahöfn ellegar ein ferð til Þorlákshafnar ef ófært er um Landeyjahöfn. Ákvörðun um hvort ferðir nr. 3 og 4 verði farnar í Landeyjahöfn eða ferð nr. 2 í Þorlákshöfn verða teknar fyrir kl. 11 á hverjum morgni. Farþegar sem eiga bókað verða látnir vita af öllum breytingum með SMS og tölvupósti. Upplýsingar um bókanir í ferðir Herjólfs fram í tímann og ferðir hans á stórhátíðum er að finna á heimasíðu skipsins: herjolfur.is Sölumenn falbjóða gullfíflakransa á útimarkaði í ind- versku borginni Kolkata sem hét áður Kalkútta. Slíkir kransar renna út eins og heitar lummur í borginni um þessar mundir því hindúar nota þá til að skreyta hof og heimili sín á Durga Puja, stærstu hátíð hindúa í Bengal. Hátíðin hefst á morgun og stendur í fimm daga. Reuters Hof og híbýli skreytt með krönsum Forseti Búrma tilkynnti í gær að stjórn landsins hefði ákveðið að fresta gerð umdeildrar stíflu sem ráðgert var að reisa í samstarfi við kínverskt stórfyrirtæki. Mikil andstaða hefur verið við Myitsone-stífluna í Irrawaddy-fljóti sem á að vera 152 metra há og ein hæsta stífla í heimi. Verði ráðist í framkvæmdirnar verður til 760 fer- kílómetra miðlunarlón, tugir þorpa hverfa undir vatn og flytja þarf minnst 10.000 íbúa þeirra af svæð- inu. Framkvæmdirnar myndu einnig valda óbætanlegu tjóni á svæði sem er þekkt fyrir óvenjumikinn líffræði- legan fjölbreytileika. Kveðst virða vilja þjóðarinnar Ljúka átti stíflunni árið 2019 til að reisa orkuver í samstarfi við stórt kínverskt orkufyrirtæki. Ráðgert var að mikill meirihluti orkunnar yrði fluttur út til Kína. Hershöfðingjar, sem hafa verið við völd í Búrma, mynduðu fyrr á árinu ríkisstjórn sem er borgaraleg að nafninu til, en er aðallega skipuð fyrrverandi herforingjum. Orku- málaráðherra stjórnarinnar sagði nýlega að hvergi yrði hvikað frá áformunum um virkjunina þrátt fyr- ir andstöðuna. Thein Sein, forseti Búrma, tilkynnti þó í gær að fram- kvæmdunum yrði frestað, að minnsta kosti til ársins 2015 þegar skipunartímabili stjórnarinnar lýk- ur. Hann sagði ástæðuna þá að stjórnin vildi „virða vilja þjóðarinn- ar“. Að sögn fréttaskýrenda er ákvörðunin til marks um að stjórnin vilji auka stuðning sinn meðal lands- manna með því að sýna að hún taki tillit til almenningsálitsins. Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, er á meðal þeirra sem hafa lagst gegn stíflunni. bogi@mbl.is Umdeildri risa- stíflu frestað  Fyrirhuguðu raforkuveri í Búrma í samstarfi við Kínverja skotið á frest

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.