Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vegna samdráttar í sölu kindakjöts í
sumar er það um sinn fallið niður
fyrir svínakjöt á innanlandsmarkaði
og er nú í þriðja sæti yfir vinsælustu
kjöttegundirnar. Það hefur ekki
gerst oft frá fyrstu áratugum Ís-
landsbyggðar að meira væri borðað
af svínakjöti en kindakjöti.
Alifuglakjöt hefur í allmörg ár
verið vinsælasta kjöttegundin og
velti þá kindakjötinu af stalli. Kinda-
kjötið sem lengi var uppistaðan í
kjötmeti Íslendinga hefur þó yfirleitt
verið annað söluhæsta kjötið á inn-
anlandsmarkaði.
Er þetta ólíkt neyslumynstri í
flestum nágrannalöndum þar sem
svínakjöt er gjarnan söluhæsta kjöt-
ið og kindakjöt ekki ofarlega á lista.
Sölutölur í ágúst sýna 15% sam-
drátt í sölu á kindakjöti síðustu mán-
uði og rúmlega 6% samdrátt síðustu
tólf mánuði, miðað við sama tímabil
þar á undan. Sala á svínakjöti hefur
einnig minnkað en þó minna. Það
leiddi til þess að svínakjöt var í öðru
sæti kjötlistans á tólf mánaða tíma-
bili. Samkvæmt upplýsingum
Bændasamtakanna er það sjaldgæft
en hefur þó gerst áður. Þannig var
sala á svínakjöti meiri en á kinda-
kjöti, á sama mælikvarða, í fimm
mánuði sumarið 2009.
Söguleg þróun
Hörður Harðarson, formaður
Svínaræktarfélags Íslands, bendir á
að þessi þróun geti talist söguleg.
„Lambakjötið hefur lengi verið
ríkjandi kjöttegund hér á landi og
því hefur gjarnan verið haldið á lofti
að hún hafi haldið lífi í þjóðinni um
aldir. Það má til sanns vegar færa.
Nú bregður svo við að vegna
breyttra aðstæðna og nýrra mögu-
leika fyrir lambakjötið á erlendum
mörkuðum, þá hefur lambakjötið
gefið eftir á innanlandsmarkaði,“
segir Hörður.
Svínin fjölguðu sér hraðar
Í sögu svínaræktar á Íslandi sem
Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðing-
ur tók saman eru leiddar líkur að því
að svínakjötið hafi verið helsta kjöt-
meti landsmanna fyrst eftir land-
nám. Hann færir meðal annars þau
rök fyrir niðurstöðu sinni að land-
námsmennirnir hafi ekki getað tekið
nema fá húsdýr með sér og svínin
verið fljótari að fjölga sér en féð.
Stórir flokkar villtra svína hafi geng-
ið um landið. Þá segir hann frá fjölda
örnefna sem tengist svínum til
marks um að þau hafi verið mikil-
vægari húsdýr en síðar varð.
Svínið vinsælla en lambið
Meira hefur selst af svínakjöti síðustu tólf mánuði en kindakjöti Það hefur
ekki oft gerst frá fyrstu áratugunum eftir landnám Lambakjötið flutt út
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Svín Svínaræktin hefur verið í vörn.
Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak
Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega í dag
en í gær afhenti verndari Krabbameinsfélagsins,
Vigdís Finnbogadóttir, sex hvunndagshetjum
fyrstu slaufurnar. Félagið hefur einsett sér að
selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október en í
ár var valin sú leið að fá „ömmur“ í Zúlúþorpum
Suður-Afríku til að perla bleikar slaufur fyrir
átakið en þær sjá einar fyrir fjölda barna.
Hvunndagshetjur fengu fyrstu bleiku slaufurnar
Morgunblaðið/Golli
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hlýtt var um land allt í nýliðnum september, samkvæmt
bráðabirgðatölum frá Trausta Jónssyni veðurfræðingi.
Meðalhiti í Reykjavík var 2 stigum fyrir ofan meðallag
áranna 1961 til 1990 en 1,4 stigum ofan þess á Akureyri.
Mánuðurinn kvaddi með miklum hlýindum því hitinn
komst hæst í 19,6 gráður á Skaftafelli í gær og 18,6 gráð-
ur í Öræfum. Þetta er trúlega met fyrir 30. september að
sögn Trausta. Hins vegar eiga bæði 29. september og 1.
október nokkru hærri gildi. Fyrri dagurinn á metið
22,3°C og 1. október 23,5°C.
Lengi vel var mjög þurrt á landinu vestanverðu í sept-
ember en mikil rigning síðustu dagana sá til þess að
heildarúrkoma mánaðarins var í ríflegu meðallagi. Norð-
anlands og austan var úrkoma yfirleitt yfir meðallagi,
langmest þó suðaustanlands. Í Reykjavík var úrkoman í
rúmu meðallagi, á Akureyri var hún hins vegar meira en
60% umfram meðallag. Mjög sólríkt var í Reykjavík og
ekki hafa mælst fleiri sólskinsstundir í Reykjavík í sept-
ember síðan 1994.
Hlýr september kvaddi
með miklum hlýindum
Með regnhlíf Votviðri hefur verið ríkjandi undanfarið.
Rigning var áberandi
síðustu daga mánaðarins
Mikið hvassviðri og úrkoma var
víðast hvar á landinu í gærkvöldi
og nótt. Meðalvindhraði mældist
mestur 24-25 metrar á sekúndu í
Kolgrafarfirði á norðaustanverðu
Snæfellsnesi, en vindhviður þar
fóru allt upp í 46 metra á sek-
úndu.
Kalla þurfti eftir aðstoð björg-
unarsveita á nokkrum stöðum. Í
Hnífsdal á Vestfjörðum fuku þak-
plötur af bílskúr. Björgunarsveitin
á Akureyri var kölluð út, en skút-
ur sem liggja við flotbryggjuna við
menningarhúsið Hof losnuðu og
skemmdu millibryggjur.
Mikil úrkoma fylgdi óveðrinu
sem gekk yfir landið í gær. Mest
var úrkoman á Snæfellsnesi. Í
Ólafsvík féll 77 millimetra úrkoma
og 55 mm á Grundarfirði. Í gær-
kvöldi var búist við stormi á norð-
vestanverðu landinu í nótt og fyrir
hádegi í dag.
robert@mbl.is
Vonsku-
veður
gekk yfir
landið
Vindhraði mestur á
vestanverðu landinu
Vindur Stórt grenitré féll í mikilli
vindhviðu í Hæðargarði í Reykjavík
síðdegis í gær.
Allar ferðir Baldurs milli lands og
Vestmannaeyja féllu niður í gær
vegna óveðurs.
Taka átti ákvörðun um það seint í
gærkvöldi hvort einnig þyrfti að
fella niður ferð Baldurs milli lands
og Eyja fyrir hádegi í dag en útlitið
var ekki gott vegna óhagstæðrar
ölduspár.
Allar ferðir
féllu niður
Frábært grill
fyrir íslenskar
aðstæður
Mjög vandað 3ja brennara
gasgrill á vandaðri viðargrind
Brennarar úr pottjárni
Grillgrindur úr postulíns
emaleruðu pottjárni
Milligrindur úr pottjárni
Lok og grill eru postulíns
emaleruð utan sem innan
Neistakveikja í öllum tökkum
Skúffa undir öllu grillinu sem
tekur fitu - Hitamælir
Orka: 13,2 kw/h = 45.000 BTU
Grillflötur: 64 x 48,5 cm
Stærð: 145 x 108 x 62 cm
13,2
kw/h
Hlíðasmára 13, Kóp - S. 554-0400
ÚTSALA
YFIR 30 GERÐIR GASGRILLA
Á ÚTSÖLUNNI
Opið lauga da og
sunnudag til kl. 16