Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 11
Þeir sem búa á Austurlandi og geta ekki skroppið til Reykjavíkur á hverj- um degi meðan á kvikmyndahátíð stendur ættu að fagna, því núna um helgina verður þar sérstök kvik- myndahelgi í samvinnu við RIFF. Fjórar myndir af alþjóðlegu kvik- myndahátíðinni RIFF verða sýndar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og í Skaftfelli á Seyðisfirði. Báða dagana, laugardag og sunnudag, verða sýn- ingar kl. 15 og 17 á báðum stöðum. Aðgangseyrir er 500 kr. en hægt að fara á allar myndirnar fyrir 1.500. Myndirnar sem sýndar verða eru eftirfarandi (nánar á riff.is):  Að búa til bók með Steidl (How To Make a Book With Steidl), þýsk heimildarmynd.  Flamenco: A Way of Life (Flam- engó: Leið gegnum lífið), spænsk heimildarmynd.  HISTORIAS que so existem quando lembradas (SÖGUR sem lifna í minni), brasilísk/argentínsk/frönsk mynd.  The Hunter (Veiðimaðurinn), rúss- nesk mynd. Kvikmyndahelgi framundan á Austurlandi Flamenco Stilla úr einni myndinni sem sýnd verður, Flamenco: A Way of Life. Sófabíó í Sláturhúsi Egilsstaða og Skaftfelli á Seyðisfirði Orka Annska Ólafsdóttir segir 5Rytma dansinn skemmtilega líkamsrækt og góða fyrir líkama og sál. því því þetta er alltaf nýtt og ferskt. Það eru engar fyrirfram ákveðnar hreyfingar nema þær sem eiga heima í hverjum rytma fyrir sig en fyrst og síðast er þetta dansinn minn þann daginn. Það eru engin spor, sem er það besta við þetta allt saman. Ég get ekki lært fleiri en tvö dansspor í röð og hefur aldrei hentað mér að vera í svona almennri danskennslu en þetta er alveg mitt. Í dansinum end- urheimtir fólk líka jafnvægi og finnur aftur tenginguna við kjarnann, sjálf- ið, sem hefur grafist undir gráum hversdagsleikanum,“ segir Annska. Heill heimur dans Í grunninn er dansinn sá hinn sami þótt einhverjar breytingar verði á honum frá ári til árs. Kallað er að dansa ölduna þegar þessir fimm rytmar koma saman og kemur hver og einn kennari með sitt innlegg og hefur þannig áhrif á dansinn. Því verða námskeiðin eins mismunandi og þau eru mörg. Grunnurinn er kenndur hér heima en fyrir utan það fylgir þessum dansi heill heimur heimspeki og fræða. Notuð er alls konar tónlist í 5Rytma dansi en Gabr- ielle Roth hefur líka gefið út sérstaka geisladiska með 5rytma tónlist. Ann- ars segir Annska í raun allt notað sem fái fólk til að hreyfa sig. „Þetta er virkilega skemmtileg líkamsrækt og virkar ekki bara á líkamann heldur tekur maður til í sér í leiðinni. Það gerist eiginlega bara sjálfkrafa og ég hvet fólk til þess að leyfa sér að prófa. Það er eins og við þurfum oft að gefa okkur einhverja heimild. Ég upplifi að fólk er stundum feimið því þetta er svo frjálst en þetta er bara yndislegt. Það geta í raun allir dansað 5Rytma dans en hver og einn fylgir sínum eig- in takmörkunum,“ segir Annska. Dansað um allt land Einn virtasti og vinsælasti 5Rytma danskennari heims, Alain Allard, hefur komið reglulega til Ís- lands síðastliðin ár til að kenna. Hann heldur nú um helgina námskeið sem kallast Maps to Ecstasy. Sigurborg heldur opna tíma einu sinni í viku og Annska fyrsta fimmtudag í mánuði. Þeir tímar fara fram á Dansverk- stæðinu á Skúlagötu. Þá kennir Annska fyrsta laugardag í mánuði á Akureyri og í bígerð er námskeið á Ísafirði. Annska mun einnig halda prufutíma á Dansverkstæðinu nú á mánudaginn klukkan 20. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.