Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 Kæri áskrifandi! Framan á Morgunblaðinu í dag er nýtt Moggaklúbbskort. Kortið er sent til allra áskrifenda Morgunblaðsins. Moggaklúbbsfélagar fá góð kjör á m.a. veitingahúsum, bíóhúsum, utanlandsferðum, listviðburðum, bókum auk fjölda annarra fríðinda. KORTIÐ GILDIR TIL 31.01.2 012 – MEIR A FYRI R ÁSKR IFEND UR MOGGA KLÚBB URINN Hafi kortið ekki borist þér hafðu þá samband við áskriftardeild eftir helgi í síma 569-1100 eða sendu okkur tölvupóst á moggaklubburinn@mbl.is 02 6 6 3 Yfir 7.000 miðar eru nú seldir á Töfraflautuna, hina vin- sælu óperu Wolfgangs Amadeus Mozarts, en frumsýn- ing verður 22. október í Eldborg í Hörpu. Fáar óperur hafa náð jafn miklum vinsældum gegnum tíðina og sum lögin er alþekkt í öðru samhengi. Nefna má að lagið við kvæðið Hann Tumi fer á fætur er úr óperunni, einnig lagið við sálminn Í dag er glatt í döprum hjörtum. Þegar ljósmyndara bar að garði var verið úða kjól Næturdrottningarinnar, sem sungin verður af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, Diddú. Þetta óvenjulega verkefni kallar á óvenjulegar aðstæður – en búningarnir eru úðaðir í herbergi inn af neðri bílakjallara Hörpu, K2, sem er þrjá metra undir sjávarmáli. Filippía Elísdóttir annast búningana en hún er einn dáðasti búningahöfundur landsins og hefur í fjórgang hlotið Grímuna fyrir búninga sína, nú síðast í vor fyrir Ofviðri Shakespeares í Borgarleikhúsinu. Filippía vinn- ur nú hörðum höndum að því að skapa ævintýralega um- gjörð utan um Töfraflautuna, fyrsta verkefni Íslensku óperunnar í Hörpu, með sérstökum búningum sínum. Fyrir utan að vera sérsaumaðir á hvern einasta þátttak- anda í sýningunni, hátt í 60 manns – þar fyrir utan með mörgum búningaskiptum fyrir sum hlutverkin – ætlar Filippía að auki að úða alla búningana sem eru vel yfir 100 talsins. Ýmsar furðuverur koma við sögu í Töfraflautu Moz- arts. Ein aðalpersónanna í verkinu er fuglafangarinn Papagenó sem Ágúst Ólafsson syngur í uppfærslu Ís- lensku óperunnar núna. Sér til fulltingis í sýningunni hefur Ágúst fuglabrúðu úr smiðju Bernds Ogrodnik sem Magnús Guðmundsson stjórnar. Bjarni Thor Kristinsson bregður sér í hlutverk hins dularfulla Sarastros á einni sýningu en það verður á aukasýningunni sunnudaginn 20. nóvember kl. 16. Á öll- um öðrum sýningum syngur hins vegar Jóhann Smári Sævarsson hlutverkið. Jóhann Smári sló síðast í gegn í uppfærslu Íslensku óperunnar á Rigoletto síðastliðið haust, í hlutverki morðingjans Sparafucile. Morgunblaðið/Eggert Næturdrottningin er kröfuhörð Lyfjaborg í Borgartúni var oftast með lægsta verðið þegar verðlags- eftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á lausasöluvörum sl. mánudag. Skoð- aðar voru vörur eins og smokkar, varasalvi og fæðubótarefni. Hæsta verðið var oftast hjá Lyfj- um og heilsu í Reykjanesbæ, í 11 til- vikum af 36, og Skipholts apótek var næstoftast með hæsta verðið eða í 7 tilvikum af 36. Verðmunur á þeim vörum sem skoðaðar voru var frá 11% upp í 220%, en í flestum tilvik- um var munurinn á hæsta og lægsta verði 25-50%. 220% munur á fæðubótarefni Mestur verðmunur í könnuninni var á fæðubótarefninu B6 frá Ein á dag, sem var dýrast á 1.483 krónur hjá Apótekaranum á Akranesi, Urðarapóteki, Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ og Skipholts apóteki en ódýrast á 463 krónur hjá Lyfja- veri við Suðurlandsbraut. Munurinn var 1.020 krónur eða 220%. Minnstur verðmunur í könnuninni var á tann- þræði, frá Oral-B-satin tape, sem var ódýrastur á 725 kr. hjá Lyfjavali í Álftamýri og dýrastur á 806 kr. hjá Lyfjum og heilsu í Reykjanesbæ. Verðmunurinn var 11% eða 81 kr. Af öðrum vörum í könnuninni má nefna að Elite smokkar frá Durex, 12 stk. í pakka, sem voru dýrastir á 2.030 kr. hjá Árbæjarapóteki voru ódýrastir á 1.090 kr. hjá Lyfjaborg. Verðmunurinn var 86%. Þungunar- próf frá „Yes or no“ var dýrast á 1.478 krónur hjá Reykjavíkurapó- teki á Seljavegi og ódýrast á 1310 krónur hjá Apóteki Garðabæjar, sem gerir 168 kr. verðmun eða 13%. Fæðubótarefnið Spirulina var dýrast á 5.080 krónur hjá Apóteki Hafnarfjarðar og ódýrast á 3.850 krónur hjá Austurbæjarapóteki í Ögurhvarfi sem er 32% verðmunur. Bossakremið frá Lansinoh var dýrast á 3.035 kr. hjá Garðsapóteki á Sogavegi og ódýrast á 2.117 kr. hjá Akureyrarapóteki sem er 43% verð- munur. Lyfjaborg með lægsta verð á lausasöluvörum Morgunblaðið/Sverrir Lausasöluvörur Ódýrar í Lyfjaborg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.