Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 43
DAGBÓK 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand AH, VORIÐ... ...ÉG ELSKA VO... ÉG ÞOLI EKKI VORIÐ NEI, ÞAÐ MÁ EKKI EN KASTI Í ANDSTÆÐ- INGINN? NEI, ÞAÐ MÁ ALLS EKKI GERA SVOLEIÐIS EN ÞETTA ERU BESTU KÖSTIN MÍN HÚN FÓR FRÁ MÉR FYRIR MICHAEL JACKSON EFTIRHERMU ÉG ÞARF AÐ FARA Í RÁNSLEIÐ- ANGUR... ...ER SKIPIÐ MITT TILBÚIÐ? ÉG HELD AÐ VIÐ ÞURFUM EINN EÐA TVO DAGA Í VIÐBÓT ÞAÐ ERU EINN EÐA TVEIR HLUTIR SEM ÉG ÞARF AÐ SKOÐA HEYRÐU... ÞÚ MÁTT EKKI VERA HÉRNA! ER ÞAÐ! ÆTLAR ÞÚ AÐ STOPPA MIG? NEI... HVAÐ ER Í GANGI ÞARNA NIÐRI? ÞETTA HLJÓMAR EKKI VEL VIÐ ERUM AÐ FYLGJAST MEÐ LIÐUNUM OKKAR TVEIMUR BYGGJA GO-KART BÍLA. VIÐ SKULUM SJÁ HVERNIG ÞEIM GENGUR... RÓBERTI OG BARNABÖRNUM HANS MIÐAR MJÖG VEL ÞAÐ ER VEL HERT! ER ÞETTA HJÓL FAST? EN MAGNÚSI OG BARNABÖRNUM HANS GENGUR EKKI ALVEG JAFN VEL... HVAR ER BÖLVUÐ SKRÚFAN?! ER AÐ KOMA MATUR?VAAAAA! VILTU AÐ ÉG KASTI HRÁKABOLTA? Inniskór fundust Í Lundarskóla á Ak- ureyri fundust mjög fínir og sérstakir inni- skór sem svo lengi hafði verið leitað að. Nú finnst hins vegar ekki símanúmer eig- andans. Skórnir eru nokkurskonar flóka- skór, gráir að lit með bleikum ullarkanti yf- ir ristina, aðeins munstraðir. Eigand- inn vinsamlegast hafi samband í s. 462-4888. POWERtalk, áður Málfreyjur Það er komið haust og skammdegið er á næstu grösum. En haustið býð- ur upp á mikla möguleika í fé- lagsstarfi og í því sambandi vil ég minna á að núna í september og byrjun október halda allar POWER- talk-deildir á Íslandi kynningar- fundi, þar sem fólk getur mætt og kynnt sér starfsemina án skuldbind- ingar eða kostnaðar. POWERtalk hét áður Málfreyjur og var stofnað árið 1975 og hefur starfað óslitið síðan. POWERtalk eru þjálf- unarsamtök sem efla sjálfstraust og byggj- ast á því að félagar setji sér markmið og nái þeim. Þjálfunin felst m.a. í að taka að sér verkefni í ræðu- formi og flytja fyrir aðra félaga. Það að þora að taka til máls eru mannréttindi sem margir eiga erfitt með að nýta sér vegna ein- hvers sem hamlar þeim. Í POWERtalk fer fram góð þjálfun sem nýtist alls staðar á lífsleiðinni, sérstaklega vegna þess að þar er þjálfunin samfelld. POWERtalk eru samtök sem rekin eru án ágóða og innheimta aðeins lágmarksgjald sem þarf til reksturs samtakanna. Guðrún Barbara Tryggvadóttir. Ást er… … að leyfa henni að velja fyrir þig. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Ég hitti karlinn á Laugaveginumfyrir utan Biskupsstofu. Hann veik talinu að Eyrbyggju, er sauða- maður sá að Helgafell „laukst upp norðan; hann sá inn í fjallið elda stóra og heyrði þangað mikinn glaum og hornaskvöl (hornaskvald- ur); og er hann hlýddi, ef hann næmi nokkur orðaskil, heyrði hann, að þar var heilsað Þorsteini þorska- bít og förunautum hans.“ „Já,“ sagði hann. „Þorsteinn þorskabítur dó inn í fjallið.“ Síðan leit hann í kringum sig: „Hér á móti okkur var Ostakjallarinn og Kjötbúð Tóm- asar. Þar fengust Berlínarpylsur. Og hér fyrir ofan var Sokkabúðin, Iðunnarapótek og Sláturfélag Suð- urlands á horninu. Nú er þetta allt orðið að krám eða pöbbum“: Þó að gott mér þyki öl þá er drykkjuraus mér kvöl. Ég heyrði glaum og hornaskvöl og hafði á kránni stutta dvöl. „Þorskabítur var skáld fyrir vest- an haf. Fæddur í Kjósinni,“ sagði hann síðan. Þessi vísa varð fleyg: Kerling eitt sinn kát á rúmið sest, við karl sinn tér hún: Heyrðu, góði minn! Veistu hvaða mein mér þykir best að bíta? Það er hryggjarliðurinn. Ólafur Vigfússon hét gamall karl á Laugaveginum og bjó í kjall- aranum á númer 67, þegar ég var drengur. Hann kom stundum til föður míns og þeir ræddu skáld- skap og vísnagerð. Úr þeim sjóði eru þessar vísur Ólafs: Ýlfrar, vælir, veinar, veit þó síst hvað meinar andans afhöggs greinar illa klæða Steinar. Ýmsum hindrun utan töf auðnuleysið sendi lífið þótt sé lukkugjöf lausnarans frá hendi. Ef ég pretti iðka þétt óðs í grettum línum finn settan blakkan blett barns á rétti mínum. Falls er von að fornu tré fáir við það leggja rækt að því streymir egg og spé öllu skrauti frá er bægt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Heyrði glaum og hornaskvöl Jón Óskar rifjaði upp í einni minn-ingabók sinni, Gangstéttum í rigningu, þegar hann sat á kaffi- húsum með öðrum róttækum æsku- mönnum um miðja tuttugustu öld: „Ég uppgötvaði það smám saman, að til var á Íslandi ein merkileg grýla, sem var ýmist fáránlega heimsk eða slóttug og illvíg: Hún hét Morgunblaðið.“ Þessum kaffi- húsaspekingum var tamt orðið „Morgunblaðslygin“. Sú lygi var í fæstum orðum, að alræði væri í Ráð- stjórnarríkjunum, eymd og kúgun, en valdhafar þess árásargjarnir. Fyrsta dæmið, sem ég finn um notkun orðsins „Morgunblaðslygi“ í þessari merkingu, var í málgagni Kommúnistaflokks Íslands, Verk- lýðsblaðinu, 4. mars 1935. Þar var andmælt þeirri frétt, sem Morg- unblaðið hafði birt eftir skeytum frá Kaupmannahöfn, að einn forystu- maður Ráðstjórnarríkjanna, Andrej Andrejev, yrði brátt leiddur fyrir rétt. Raunar var sú frétt sennilega ekki á rökum reist. Andrejev lifði af hreinsanir Stalíns, enda dyggur stal- ínisti. En margar og raunar flestar aðrar fréttir Morgunblaðsins af ógn- arstjórn Stalíns reyndust réttar. Styttingin „Moggalygi“ er yngri. Jóhannes úr Kötlum notaði hana til dæmis, þegar hann rifjaði í Þjóðvilj- anum 7. mars 1963 upp hina frægu ræðu Khrústsjovs um Stalín: „Eg held maður muni þá tíð þegar félagi Nikíta gerði stalínpersónuna miklu að einni allsherjar sorptunnu og fjörtíu ára moggalygi var þar með orðin pravda.“ (Pravda merkir sann- leikur á rússnesku.) Lokaorðin um Morgunblaðslygina átti síðan Össur Skarphéðinsson, þá ritstjóri og síðar ráðherra. Eins og ég rek í bók um íslensku kommúnistahreyfinguna beitti Öss- ur sér fyrir því á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins í annarri viku febrúar 1990, að Alþýðubandalagið harmaði opinberlega fyrri samskipti sín og forvera sinna (komm- únistaflokks Íslands og Sósíal- istaflokksins) við kommúnistaríkin. Hvatti hann til uppgjörs við fortíðina og sagði: „Hin beiska staðreynd er sú, að Morgunblaðið hafði rétt fyrir sér varðandi Austur-Evrópu.“ Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Morgunblaðslygin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.