Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 10

Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 10
Samskiptavefurinn Facebook er nokkuð margslungið fyrirbæri og hef- ur breytt nokkuð samskiptum okkar mannanna. Nú á þriðjudaginn mun Daniel Miller, prófessor í mannfræði við University College í London, flytja fyrirlestur í Háskóla Íslands á vegum Mannfræðifélags Íslands í samstarfi við félags- og mannvísindadeild. Í fyrirlestrinum sem nefnist Face- book and Digital Anthropology mun Miller fjalla um rannsóknir sínar á Facebook og leggja til nýtt rannsókn- arsvið innan mannfræðinnar, svokall- aða stafræna mannfræði sem snýr að nýjum miðlum og netinu, en Miller er þekktur fyrir rannsóknir sínar á efn- ismenningu og neyslu og hefur gefið út fjölda bóka um það efni. Hann hef- ur stundað rannsóknir í Vestur- Indíum, Indlandi og London og m.a. rannsakað áhrif netsins á Trínidad. Einnig hefur hann nýlega skoðað hvernig Facebook hefur breytt fé- lagslegum samskiptum. Fyrirlest- urinn verður fluttur á ensku og hefst klukkan 15 í stofu 104 á Háskólatorgi. Endilega … kynnið ykkur mannfræðilegar rannsóknir á Facebook Morgunblaðið/Ernir Netið Samskiptavefurinn Facebook hefur haft ýmsar breytingar í för með sér. Vefsíðan Nordic Feed er ný af nál- inni og er hugsuð bæði sem mat- aruppskrifta-blogg og samskiptanet matgæðinga. Síðunni er ætlað að efla þekkingu á nýrri norrænni matargerð og vera upplýsingasíða fyrir alla sem skrifa um mat, hvar sem er í heiminum, um nýja nor- ræna matargerð. Nordic Feed-samtökin sérhæfa sig einnig í viðburðum og á vefsíð- unni má finna ýmsar niðurstöður og fréttir sem komu fram á ráðstefnu matarblaðamanna í Kaupmannahöfn nú í sumar. Samtökin voru stofnuð í janúar 2011 af litlum hópi reyndra matgæðinga sem höfðu velt fyrir sér hvers vegna ný norræn mat- argerð væri að mestu óþekkt utan Norðurlanda. Síðan þá hefur hug- myndin undið upp á sig og ýmsir viðburðir verið settir saman eins og sá í Kaupmannahöfn í sumar. Mikill áhugi hefur verið á þessu norræna samstarfi og stuðningur við það. Ráðstefnur hafa verið vel sóttar og nú eru einnig haldin sér- stök námskeið fyrir matarbloggara og blaðamenn á vegum samtak- anna. Á vefsíðunni má nálgast allar helstu upplýsingar um Nordic Feed og forvitnast um það sem er að gerast í norræna matarheiminum. Kjörinn vettvangur fyrir Norð- urlandabúa og annað áhugafólk um norræna matargerð til að fræðast og ná saman. Vefsíðan www.nordicfeed.com Girnilegt Ekki er hægt að kvarta mikið yfir nýnorrænni matargerð sem þessari. Samskiptanet matgæðinga Morgunblaðið/Ómar 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Fimm rytmar; flæði, stak-kató, kaos, lýrík og kyrrð,koma saman í svokölluðum5Rytmadansi. Um er að ræða frjálsan dans þar sem engin spor eru að þvælast fyrir fólki. Rytmarnir eru andleg leið í gegnum hreyfingu og fyrir marga leiðin að hinum innsta kjarna. Dans- inn er þróaður af Bandaríkjakonunni Gabrielle Roth og hefur notið vaxandi vinsælda hér á landi síðastliðin ár. Tveir kennarar hérlendis hafa öðlast kennsluréttindi í 5Rytmadansi, þær Sigurborg Hannesdóttir og Annska Ólafsdóttir. Dansinn þinn þann daginn Rytmarnir fimm eru grunnur dansins og þegar þeim er miðlað af þjálfuðum og reyndum kennurum gefa þeir styrka leiðsögn í því að hjálpa fólki að finna sig án tillits til aldurs og reynslu. Muna að við erum næmar manneskjur í fallegum, kraft- miklum og heillandi heimi og upp- götva að bæði í töfrastundum lífsins og í hversdagsleikanum er iðandi lífs- kraftur. „Ég hef sótt í þetta aftur og aft- ur og fæ einhvern veginn ekki leið á Iðandi lífskraftur endurvakinn Í 5Rytmadansi er það kallað að dansa ölduna þegar fimm ólíkir rytmar koma saman. Dansinn miðar að auknu flæði í líkamanum og skapar hver sinn dans innan ákveðins form en ákveðin spor skipta í raun ekki máli. Flæði Hver og einn skapar sinn dans á dansgólfinu eftir ákveðnu formi. Vinsæll 5Rytma danskennarinn, Alain Allard, kemur reglulega til Íslands. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Umhverfisþing 2011 14. október á Hótel Selfossi Á þinginu verður fjallað um náttúruverndarmál, þar á meðal nýútkomna hvítbók um endur- skoðun náttúruverndarlaga, friðlýsingar, ferðaþjónustu, útivist, náttúruvísindi og viðmið fyrir náttúruvernd. Heiðursgestur er Ella Maria Bisschop-Larsen, formaður Dönsku náttúruverndarsamtakanna sem fagna 100 ára afmæli í ár. Dagskrá þingsins og nánari upplýsingar er að finna á vef umhverfisráðuneytisins. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku í þinginu. Skráning fer fram á www.umhverfisraduneyti.is eða í síma 545 8600. Skráningu lýkur 5. október. Mikið úrval af fallegum sængurfatnaði Skólavörðustíg 21a, 101 Rvk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.