Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011
✝ Sigurbjörg Sig-urjónsdóttir
fæddist á Skorra-
stað í Norðfjarð-
arhreppi hinn 29.
ágúst 1919. Hún
lést á sjúkrahúsinu
í Neskaupstað 20.
september 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Sigurjón
Magnússon, f. 8.
nóvember 1889, d.
28. apríl 1944, og Magnea Ingi-
björg Guðmundsdóttir, f. 18.
apríl 1900, d. 9. janúar 1988.
Fósturforeldrar hennar frá níu
ára aldri voru Ármann Magn-
ússon og Hallbera Hallsdóttir.
Systkini Sigurbjargar eru: Hall-
dóra Sigurjónsdóttir, f. 19. októ-
ber 1922, Herdís Sigurjóns-
dóttir, f. 6. mars 1925, Anna
Guðlaug Sigurjónsdóttir, f. 25.
febrúar 1927, Ari Magnús Sig-
urjónsson, f. 2. maí 1929, og
Laufey Sigurjónsdóttir, f. 31.
desember 1931.
Hinn 27. september 1941 gift-
ist Sigurbjörg Þorfinni Friðriki
Ísakssyni, f. 11. ágúst 1916, d.
22. nóvember 1983. Foreldrar
hans voru Ísak Friðriksson, f.
25. apríl 1876, d. 3. mars 1937,
og Rannveig Dýrleif Stef-
ánsdóttir, f. 18. júlí 1884, d. 16.
ágúst 1963. Börn Sigurbjargar
og Þorfinns eru: 1) Magnea Þor-
finnsdóttir, f. 10. apríl 1942, en
tvíburabróðir hennar lést nokk-
Sigurðsson, f. 22. apríl 1950 og
eiga þau þrjár dætur, Júlíu Sig-
rúnu, Heiðlóu og Eyrúnu Huld.
Barnabörnin eru níu. 6) Soffía
Þorfinnsdóttir, f. 2. júní 1952.
Maki Einar Gíslason, f. 13. des-
ember 1952 og eiga þau fjögur
börn, Erlu, Indriða Þór, Ísak
Sigurjón og Rannveigu. Barna-
börnin eru sex. 7) Stefnir Þor-
finnsson, f. 31. ágúst 1953. Maki
Wanna Butsuwan, f. 24. janúar
1980, sonur þeirra er Andrew.
8) Huldís Þorfinnsdóttir, f. 10.
febrúar 1955. Maki Þórður Ás-
mundsson, f. 31. mars 1942.
Huldís á þrjú börn, Vífil Þór,
Bryndísi og Gísla og fimm
barnabörn. 9) Þorbjörg Þor-
finnsdóttir, f. 28. júlí 1957. Maki
Jónas Sigurður Jóhannsson, f. 6.
nóvember 1956 og eiga þau þrjú
börn, Guðlaugu Rannveigu, Jó-
hann Hafberg og Eygló. Sig-
urbjörg og Þorfinnur eignuðust
einn dreng sem fæddist and-
vana.
Sissa ólst upp hjá foreldrum
sínum á Norðfirði til níu ára ald-
urs en þá flutti hún til fósturfor-
eldra sinna, Ármanns og Höllu.
Börn þeirra og fóstursystkin
Sissu eru Agnar (látinn), Erla,
Hrönn (látin), Kolbrún, Ægir
(látinn) og Randver. Sissa og
Þorfinnur bjuggu á Norðfirði til
1965. Þá fluttu þau til Þórs-
hafnar. Sissa flutti aftur til
Norðfjarðar árið 1997 og bjó í
Breiðabliki síðustu árin. Sissa
vann margvísleg störf gegnum
árin auk þess að vera móðir og
húsmóðir á stóru heimili.
Útför Sigurbjargar fer fram
frá Norðfjarðarkirkju í dag
laugardaginn 1. október 2011
og hefst athöfnin kl. 14.
urra daga gamall.
Maki var Anton
Sigfússon, f. 23.
maí 1945, d. 17.
desember 2007, en
þau skildu. Þau
eiga þrjár dætur,
Sigurbjörgu Ósk,
Hörpu og Olgu
Friðriku og fimm
barnabörn. Sam-
býlismaður Magneu
er Jóhann Luthers-
son, f. 9. janúar 1934. 2) Vífill
Þorfinnsson, f. 29. september
1944. Maki Hrefna Mar-
inósdóttir, f. 31. mars 1950. Þau
eiga tvö börn saman, Sóleyju og
Vikar Má en fyrir átti Hrefna
soninn Marinó. Barnabörnin eru
fimm. 3) Rannveig Þorfinns-
dóttir, f. 21. desember 1945.
Maki Jósep Leósson, f. 24. mars
1944. Þau eiga einn son, Leó
Stein. Fyrir átti Rannveig son-
inn Þorfinn Gísla sem lést tæp-
lega 2 ára gamall, og Þorfinn
Gísla og Dröfn. Barnabörnin eru
fjögur og barnabarnabörnin
tvö. 4) Ísak Sigurjón Þorfinns-
son, f. 28. september 1947, d. 17.
apríl 1978. Maki Heiðbjört
Kristmundsdóttir, f. 19. ágúst
1949 og eiga þau eina dóttur,
Hlíf og tvö barnabörn. Núver-
andi maki Heiðbjartar er Bragi
Hrólfsson og eiga þau tvö börn,
Sigurbjörgu og Ísak Sigurjón. 5)
Halla Kolfinna Þorfinnsdóttir, f.
25. febrúar 1949. Maki Ásvaldur
Orðið kjarnakona er fyrsta
orðið sem okkur dettur í hug
þegar við minnumst Sissu
ömmu. Hún var sterkasta kona
sem við höfum kynnst en um leið
svo ljúf og góð. Hún var líka eilíf
að því er við héldum þegar við
vorum börn (og reyndar langt
fram á fullorðinsaldur). Hún
blótaði til þess að leggja áherslu
á orð sín og hikaði ekki við að
segja sína skoðun á mönnum og
málefnum og lagði okkur lífs-
reglurnar hvenær sem hún gat.
Þétt faðmlagið tók á móti manni
í hverri heimsókn og ef kalt var
úti tók hún hendur okkar í sínar
til þess að koma í þær smáyl.
Það er óhætt að segja að hún
hafi átt þátt í að gera okkur að
þeim manneskjum sem við erum
í dag. Við nutum þeirra forrétt-
inda að fá að alast upp með
ömmu í svo til næsta húsi og var
hún alltaf til staðar þegar við
þurftum á að halda. Það eru því
ófáar minningarnar sem við
þökkum fyrir að eiga. Við minn-
umst ömmu að hlúa að afa með
ástúð eftir að hann var kominn í
hjólastól, ömmu í „kleinusloppn-
um“ og með rúllur í hárinu að
steikja kleinur, ömmu að taka
slátur, ömmu að búa til fiskiboll-
ur, ömmu að syngja með mess-
unni í útvarpinu á sunnudögum
og ömmu að kenna okkur að
prjóna og hekla. Amma átti líka
stóran þátt í jólaundirbúningn-
um heima en þar spilaði laufa-
brauðsgerðin stórt hlutverk.
Jóladagsboðin á Langanesvegin-
um með stórfjölskyldunni gleym-
ast seint og var amma þar í ess-
inu sínu, bauð upp á þúsund
sortir og stóð eins og herforingi
við súkkulaðipottinn á meðan
spjallað var og spilað.
Amma Sissa var ótrúlega stolt
af stóra afkomendahópnum sín-
um og var dugleg að sinna sín-
um, hvort sem það var með sím-
tali eða með því að senda gjöf í
tilefni afmælis eða jóla og hafði
hún oftar en ekki gert þær sjálf.
Við eigum því mikið af fallegum
sokkum, vettlingum, styttum og
dúkum sem farið verður með
eins og sannan fjársjóð. Við syst-
ur fengum tvímælalaust áhuga
okkar á glimmeri og skarti frá
Sissu ömmu sem var alltaf svo
fín og lét varla sjá sig á almanna-
færi nema með hringa, nælur og
perlufestina góðu.
Þegar amma flutti í Neskaup-
stað fækkaði samverustundum
okkar en þær voru alltaf góðar
og alltaf beið okkar hlaðborð
með þúsund sortum þegar við
kíktum í heimsókn og fannst
ömmu ómögulegt annað en að
við prófuðum þær allar. Svo var
spjallað fram eftir öllu. Síðustu
heimsóknir okkar voru í sumar
og þá var aðeins farið að draga
af ömmu en kollurinn var í lagi
og vildi hún vita allt um það sem
við höfðum verið að gera eins og
alltaf. Nú hefur hún haldið á
fund afa en við vitum að hún
mun alltaf fylgjast með okkur.
Elsku besta amma okkar, nú
ertu komin til afa sem hefur ef-
laust tekið fagnandi á móti þér.
Við þökkum þér fyrir að vera
alltaf til staðar fyrir okkur og
fyrir að vera okkur fyrirmynd í
lífinu. Við komum til með að
sakna þín um ókomna tíð.
Guðlaug (Gulla),
Jóhann og Eygló.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan
hjartasláttinn rósin mín.
Er kristallstærir daggardropar
drúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður kyssa blómið
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Takk fyrir allt og allt elsku
Sissa amma.
Sóley, Hrefna Maren
og Sigurjón Vikar.
Það er stórt tómarúm í hjört-
um okkar, elsku Sissa amma er
ekki lengur á þessari jörð. Þegar
talað er á myndlíkingamáli um
að einhver sé „með stórt hjarta“
vitum við nákvæmlega hvað átt
er við. Þá er verið að tala um
manneskju eins og hana ömmu
okkar. Afkomendur hennar eru á
sjöunda tug og hver einasti átti
sinn hlýja stað í hennar hjarta
auk allra ættingjanna og vinanna
sem hún var líka rík af.
Þegar Sissa amma kom í
heimsókn á Krókinn, sem hún
var dugleg við á meðan líkamleg
heilsa leyfði, var ávallt gleði og
gaman og beðið eftir komu henn-
ar með eftirvæntingu í marga
daga. Þegar svo kom að heimför
og leiðir voru að skiljast felldi
amma oftar en ekki tár þegar
hún var að kveðja. Þetta þótti
okkur fallegt og vorum aldrei í
vafa um hversu vænt henni þótti
um okkur öll. Sú tilfinning var
líka gagnkvæm og tárin núna
eru tár sorgar og saknaðar en
líka elsku og gleði yfir að hafa
orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að
eiga þessa stórkostlegu konu að
ömmu.
Hún Sissa amma var ekki
þekkt fyrir að liggja á skoðunum
sínum. Ef það var eitthvað sem
henni mislíkaði sagði hún það
einfaldlega hreint út á góðri,
kjarnyrtri íslensku og ef það var
eitthvað sem henni líkaði hikaði
hún heldur ekki við að láta mann
vita af því. Það var helst að hún
þegði yfir eigin skakkaföllum og
þá eingöngu vegna þess að hún
vildi ekki að við hefðum áhyggj-
ur af henni.
Amma hafði upplifað flesta þá
erfiðleika og missi sem hægt er
að leggja á eina mannveru en
hún stóð það af sér með reisn og
glataði aldrei sínum yndislega
húmor eða sterkum persónuleik-
anum og mjúku hjartanu. Við
búum að því alla ævi og tökum
það með okkur inn í framtíðina
að segja okkar skoðanir hátt og
snjallt og vera ekkert að fela til-
finningar okkar, hvað sem á
bjátar. Að hennar fordæmi mun-
um við leitast við að fylla tóma-
rúmið í hjartanu með ást og um-
hyggju fyrir fjölskyldunni og
samferðafólki.
Elsku Sissa amma, takk fyrir
alla gleðina og góðu minningarn-
ar sem við geymum með okkur á
meðan við lifum.
Erla, Indriði, Ísak og
Rannveig Einarsbörn og
fjölskyldur.
Sigurbjörg
Sigurjónsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG SNÆBJÖRNSDÓTTIR,
Bólstaðarhlíð 45,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, laugardaginn
24. september.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 3. október
kl. 13.00.
Elín Birna Hjörleifsdóttir,
Jón Hjörleifsson,
Sigríður Hjördís Hjörleifsdóttir
og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
LÁRUS FELIXSON,
Suðurgötu 15,
Keflavík,
er látinn.
Útför hans hefur þegar farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu.
Högni Felixson, Þyrí Björgvinsdóttir,
Eðvarð Felixson, Guðrún Gústafsdóttir,
Fríða Felixdóttir, Rúnar Lúðvíksson,
Gylfi Felixson.
✝
Elsku litli sonur okkar, bróðir, frændi og
barnabarn,
GUNNAR BERG AÐALSTEINSSON,
Fossheiði 32,
Selfossi,
lést á vökudeild Barnaspítala Hringsins
þriðjudaginn 27. september.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 8. október
kl. 11.00.
Þeim sem viljast minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins
eða Styrktarsjóð krabbameinssjúkra barna.
Ásta Sigríður Birkisdóttir, Aðalsteinn Már Júlíusson,
Birkir Pálsson,
Ásta Kristín Aðalsteinsdóttir,
Daði Hrannar Aðalsteinsson, Inga Brynja Magnúsdóttir,
Halldór Ingi Daðason,
Þórða Berg Óskarsdóttir, Birkir Baldursson,
Kristín Ástríður Pálsdóttir, Friðleifur Stefánsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
KRISTJÁN ÍSAKS VALDIMARSSON,
Víðilundi 20,
Akureyri,
lést á Landspítalanum í Fossvogi mánu-
daginn 26. september.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 6. október
kl. 13.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Dvalarheimilið Hlíð.
Gréta Halldórs,
Helga Sigríður Kristjánsdóttir, Jón Þór Guðjónsson,
Árni V. Kristjánsson, Ragnheiður Skúladóttir,
Sverrir Þór Kristjánsson, Guðrún Hörn Stefánsdóttir,
Margrét Jónína Kristjánsdóttir, Páll Pálsson,
Kristján Ísak Kristjánsson, Sigríður G. Pálmadóttir,
Gunnar Freyr Kristjánsson, Margrét Dögg Bjarnadóttir,
Elín Íslaug Kristjánsdóttir, Kristinn Ágúst Ingólfsson,
afa- og langafabörn.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur
og afi,
SIGURÐUR ÁSGEIRSSON
húsasmíðameistari,
Dalhúsum 91,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 29. september.
Guðrún Björt Zophaníasdóttir,
Heiða Lind Sigurðardóttir, Bjarni Ágúst Sigurðsson,
Hildur Eva Sigurðardóttir, Ásgeir Jóhann Ásgeirsson,
Aldís Sigríður Sigurðardóttir, Ólafur Steingrímsson,
Ásta Fanney Sigurðardóttir,
Ívar Zophanías Sigurðsson,
Ásta Sigurðardóttir
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
AÐALHEIÐUR MARGRÉT
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Holtsgata 21,
Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítala Landakoti
laugardaginn 24. september, verður jarðsungin frá Neskirkju
mánudaginn 3. október kl. 13.00.
Jón Helgason,
Guðmundur Jónsson,
Kristín Jónsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson,
Ægir Thorberg Jónsson
og barnabörn.
✝
Ástkær dóttir, fósturdóttir, systir og mágkona,
BJARNEY ERLA SIGURÐARDÓTTIR,
Baddý,
sem lést föstudaginn 23. september, verður
jarðsungin frá Árbæjarkirkju, Reykjavík,
þriðjudaginn 4. október. Athöfnin hefst
klukkan 15.00.
Guðrún Jensdóttir, Halldór Steingrímsson,
Sigurður P. Sigurjónsson, Alda Viggósdóttir,
Brynjar Á. Sigurðsson, Vilma K. Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær faðir okkar,
BENT JÓNSSON,
Dalbraut 25,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti
mánudaginn 26. september.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 5. október kl. 14.00.
Gyða Bentsdóttir,
Guðrún Bentsdóttir,
Jón Bjarki Bentsson.