Morgunblaðið - 01.10.2011, Blaðsíða 42
42 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
8 1
9 5 7 8
3 9 1
1 6 7
6 3
4
1 3 6
7 4 5 9
7
3 4 8 1 6
1 7 4
3 2 8 1
7 8
1 7
5
8 2 6 3
6 7 5
3 5
2
8
5 3 6 8
1 4
1 7 5 9 2
6 3
2 8 9
4 3
4 7 3
7 3 2 8 1 4 9 5 6
9 5 4 2 3 6 1 7 8
1 6 8 9 5 7 4 2 3
2 9 6 5 7 8 3 1 4
3 8 7 4 2 1 6 9 5
4 1 5 3 6 9 2 8 7
5 7 9 1 4 3 8 6 2
6 4 1 7 8 2 5 3 9
8 2 3 6 9 5 7 4 1
6 5 8 3 4 7 2 9 1
9 1 3 8 6 2 7 4 5
2 7 4 9 5 1 3 6 8
8 9 5 4 2 3 6 1 7
7 4 2 6 1 9 5 8 3
3 6 1 7 8 5 4 2 9
4 3 7 2 9 8 1 5 6
1 8 6 5 7 4 9 3 2
5 2 9 1 3 6 8 7 4
7 6 4 9 1 5 3 2 8
1 3 5 2 8 4 6 9 7
9 8 2 3 7 6 5 4 1
2 5 3 8 4 7 9 1 6
4 1 6 5 9 3 7 8 2
8 7 9 1 6 2 4 3 5
3 9 1 6 5 8 2 7 4
6 4 8 7 2 9 1 5 3
5 2 7 4 3 1 8 6 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 1. október,
274. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja
mér alla ævidaga mína, og í húsi
Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.)
Á fimmtudaginn var Víkverjaboðið á frumsýningu á tveimur
íslenskum bíómyndum og frumsýn-
ingu á nýju verki í Þjóðleikhúsinu.
Víkverji hristi hausinn yfir framboð-
inu. Það er með ólíkindum hvað
menningarlífið er blómlegt á Íslandi.
x x x
Einu sinni var það stórhátíð ef ís-lensk bíómynd var frumsýnd,
núna eru tvær frumsýndar sama
kvöldið. Útlit er fyrir að það verði ný
íslensk bíómynd frumsýnd í hverri
viku fram í nóvember. Þar af verða
aftur tvær frumsýningar sama dag-
inn um miðjan október þegar mynd-
irnar Hetjur Valhalla: Þór og Borg-
ríki verða frumsýndar.
x x x
Magn er ekki ávísun á gæði. Entilfellið er samt það að gæði ís-
lenskra bíómynda hafa aukist. Önn-
ur bíómyndanna sem frumsýndar
voru á fimmtudaginn, Eldfjallið,
hafði þegar farið víða um heim og
hlotið lof allra helstu kvikmynda-
gagnrýnenda stóru blaðanna. Vík-
verja finnst það gaman. Hans litla ís-
lenska hjarta slær aðeins hraðar ef
útlendingar lofa og prísa einhvern
íslenskan listamann.
x x x
Litla Ísland hefur ekki efni á þvíað gera bíómyndir sem eru
dýrar. En íslenskir kvikmyndagerð-
armenn láta þá bara útlendinga
borga bíómyndirnar. Eldfjallið sem
er rammíslensk mynd var að megn-
inu til framleidd fyrir danskan pen-
ing. Hetjur Valhalla: Þór sem er
dýrasta bíómynd Íslandssögunnar,
en hún kostaði 1,4 milljarða króna,
var líka að megninu til framleidd
fyrir pening frá útlandinu.
x x x
Víkverji vill fá að kynnast þessumútlendingum sem eru alltaf að
borga fyrir þessar fínu íslensku bíó-
myndir. Það væri athugandi hvort
þeir nenntu ekki að borga rithöfund-
unum okkar og leikhúsfólkinu líka
launin þannig að við þyrftum ekki að
borga neitt af þessu sjálf.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sóps, 4 lipur, 7
bogin, 8 krók, 9 skyggni, 11
dugleg, 13 forboð, 14 held-
ur, 15 fíkniefni, 17 yfirhöfn,
20 liðamót, 22 talar, 23 hald-
ast, 24 kvenfuglinn, 25 blóm-
ið.
Lóðrétt | 1 dinguls, 2 náði í,
3 mjó gata, 4 gleðskapur, 5
snjókoma, 6 leiktækið, 10
skorturinn, 12 sundfugl, 13
stjórnpallur, 15 skán, 16
gutls, 18 skeiðtölts, 19 skyld-
mennið, 20 fall, 21 borðar.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 undanhald, 8 getið, 9 örgum, 10 nýr, 11 senna, 13 tær-
ir, 15 leggs, 18 strók, 21 vik, 22 byssa, 23 akkur, 24 knattleik.
Lóðrétt 2 nýtin, 3 auðna, 4 hjört, 5 lýgur, 6 uggs, 7 smár, 12
nag, 14 ætt, 15 labb, 16 gisin, 17 svart, 18 skafl, 19 rakti, 20
kurl.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sjaldgæfar ofurhendur. S-Allir.
Norður
♠63
♥74
♦KG742
♣10862
Vestur Austur
♠KG4 ♠D852
♥1098 ♥G6532
♦D1098 ♦5
♣G73 ♣954
Suður
♠Á1097
♥ÁKD
♦Á63
♣ÁKD
Suður spilar 6G.
Rétt rúmlega einu sinni í tíu þús-
und gjöfum geta menn vænst þess að
taka upp 26 punkta ofurhönd. Þörfin
fyrir kerfisbundna lýsingu er því ekki
mikil, en þó er gert ráð fyrir 26-27
punkta flötum höndum í Standard-
kerfinu. Þá er opnað á 2♣ (alkröfu)
og síðan stokkið í 4G við 2♦ biðsögn
svarhandar. Þannig gætu sagnir
þróast í spilinu að ofan. Norður
myndi svo segja 5G við 4G í leit að
láglitasamlegu, en þegar hún finnst
ekki enda sagnir í grandslemmu. Út-
spil: ♥10.
Fyrst þarf að kanna hvort ♣G
komi í þrjá efstu. Ef ekki, þarf tígull-
inn að gefa fimm slagi. En hér fríast
♣10 og þar með er nóg að fá fjóra
slagi á tígul. Þá er ráðið gegn fjór-
litnum í vestur að taka á ♦Á og
dúkka næsta tígul.
1. október 1846
Hús Hins lærða skóla í Reykja-
vík (nú Menntaskólans) var
vígt, en skólinn hafði áður ver-
ið á Bessastöðum. Þetta var
lengi stærsta hús bæjarins.
1. október 1880
Möðruvallaskóli í Hörgárdal,
fyrsti gagnfræðaskóli á Ís-
landi, tók til starfa við hátíð-
lega athöfn þar sem fagnað
var endurreisn skóla á Norð-
urlandi. Fyrsta veturinn voru
36 „lærisveinar“. Skólinn var
fluttur til Akureyrar eftir
aldamótin.
1. október 1919
Bókin Íslensk ástaljóð kom á
markað, en Árni Pálsson hafði
valið ljóðin. Þar birtist ljóðið
Ást eftir Sigurð Nordal. Það
var „nýtt og hvergi prentað
fyrr,“ eins og sagði í Morg-
unblaðinu. Ljóðið varð vinsælt
við lag Magnúsar Þórs Sig-
mundssonar árið 2005.
1. október 1952
Hljóðritun á ræðum alþing-
ismanna hófst, en áður höfðu
þingskrifarar séð um að skrá
ræðurnar jafnóðum og þær
voru fluttar.
1. október 2010
Á þriðja þúsund manns mót-
mæltu á Austurvelli við setn-
ingu Alþingis. Eggjum, ávöxt-
um, mjólkurvörum og lyklum
var kastað í þingmenn á leið til
og frá kirkju en um eitt hundr-
að lögreglumenn héldu mót-
mælendum í skefjum.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég ætla svo sem ekki að gera neitt annað en að
vera með fjölskyldu og vinum því að fjölskylda
mín ætlar að halda upp á daginn,“ svarar Sigríður
Helgadóttir þegar hún er spurð hvernig hún
hyggst fagna níutíu ára afmæli sínu í dag.
Sigríður segir að það verði kaffi og opið hús í fé-
lagsheimili Tannlæknafélagsins klukkan fjögur í
dag en hún á von á því að margir líti við. „Ég á
býsna marga vini. Hvað heldurðu eftir öll þessi
þessi ár,“ segir hún hlær.
Sigríður sem er eldhress leikur m.a. ömmuna í
ruggustólnum í Thule auglýsingunni en það er
langt í frá fyrsta hlutverkið hennar.
„Ég hef leikið í hinu og þessu. Í fyrsta lagi var ég ein af stofnendum
Hugleiks og lék með þeim lengi, segir Sigríður en Hugleikur er leik-
félag áhugafólks um leiklist og var stofnað árið 1984.
Sigríður kveðst einnig hafa leikið lengi með eldri borgurum en
fólkið sé skemmtilegt og gaman að vera með því. Enda sé hún þakklát
fyrir að hafa góða heilsu. „Komin á þennan aldur og það að geta líka
verið með og verið með yngra fólki.“
sigrunrosa@mbl.is
Sigríður Helgadóttir á afmæli í dag
Fagnar níutíu árum í dag
Nýirborgarar
Reykjavík Stef-
án Daði fæddist
23. apríl kl.
11.45. Hann vó
3.560 g og var
51 cm langur.
Foreldrar hans
eru Ólöf Birna
Margrétardótt-
ir og Sigurður
James Þorleifs-
son.
Flóðogfjara
1. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 2.26 0,2 8.42 4,2 14.59 0,3 21.06 3,9 7.37 18.59
Ísafjörður 4.34 0,1 10.40 2,3 17.09 0,2 23.01 2,1 7.43 19.03
Siglufjörður 0.54 1,4 6.50 0,1 13.11 1,4 19.16 0,1 7.26 18.45
Djúpivogur 5.46 2,4 12.10 0,3 18.05 2,1 7.06 18.29
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú tekur stórt skref fram á við í verk-
efni sem hefur of lengi legið í láginni. Sinntu
viðskiptum og uppgangurinn verður eins og
hjá þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú býrð yfir miklum innri styrk sem
nærir þig á erfiðum stundum. Hugmyndir
þínar í dag eru grundvöllur þess sem gerist á
morgun.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert staðráðinn í því að fá vilja
þínum framgengt í vinnunni í dag. Reyndu að
fara bil beggja þótt erfitt sé.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Vinaleg samkeppni og samræður
eiga það til að verða að ástríðufullum rifr-
ildum. Hikaðu ekki við að setja sjálfan þig í
fyrsta sæti í dag.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þetta er góður dagur fyrir stutt ferða-
lag, eigir þú tök á því að bregða þér frá. Nýjar
upplýsingar leiða til þess að þú átt erfitt með
að taka ákvörðun.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Láttu ekki liðna tíð standa í vegi fyrir
framtíð þinni. Taktu þér tíma í að koma röð
og reglu á hlutina heima fyrir.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Eitthvað kann að koma upp á sem setur
alla þína dagskrá úr skorðum. Reyndu um-
fram allt að leysa það á mýkri nótunum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Skjót viðbrögð hafa komið þér í
góðar aðstæður. Leyfðu þeim að njóta sín og
láttu feimnina lönd og leið. Vinir toga í þig úr
mörgum áttum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nýir möguleikar opnast og þú ert
vel í stakk búinn til að greina á milli og velja
þá leið sem farsælust er.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú munt leysa gátu sem þú hefur
glímt við vikum saman. Skuld sem þú taldir
þig eiga vangoldna er nú að fullu greidd.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Einmitt þegar allt er að ganga
upp, finnurðu hindrun á veginum. Haltu þér í
formi með því að vanda mataræðið og hreyfa
þig sem allra mest.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert ekki mikið fyrir einveru í dag og
vilt alls ekki missa sambandið við aðra. Taktu
þér tíma til að sinna heilsurækt og íhugun.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. h3 Rc6 7. g4 e6 8.
Bg2 Dc7 9. f4 Rd7 10. Be3 Ra5 11.
O-O Be7 12. Kh1 O-O 13. f5 Re5 14.
g5 He8 15. f6 Bf8 16. fxg7 Bxg7 17.
Rce2 Rac4 18. Bc1 Rg6 19. Rg3 Dc5
20. c3 Rh4 21. Dh5 Rg6 22. De2 Rh4
23. Rh5 Rxg2 24. Dxg2 Hf8 25. Dg3
b5 26. Dh4 Kh8
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Los Angeles
í Bandaríkjunum. Sigurvegari móts-
ins, enski stórmeistarinn Michael
Adams (2733), hafði hvítt gegn al-
þjóðlega meistaranum Mas Hafizul-
helmi (2413) frá Malasíu. 27. Rxg7
Kxg7 28. g6! og svartur gafst upp
enda taflið gjörtapað eftir 28… hxg6
29. Bh6+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum
á barn@mbl.is