Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 52

Morgunblaðið - 01.10.2011, Síða 52
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 274. DAGUR ÁRSINS 2011 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 649 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Vildi ráða kunningja sína 2. Nektarmyndir af Scarlett … 3. Rándýr skilnaður í sjónmáli 4. Óheiðarlegur og ósanngjarn …  Hljómsveitin Greifarnir fagnar 25 ára starfsafmæli sínu með tónleikum í Austurbæ 6. október nk. og í Hofi 8. október. Verður um leið fagnað þriggja diska útgáfu Greifanna sem hefur að geyma 40 bestu lög hljóm- sveitarinnar og tónlistarmyndbönd. Greifarnir fagna afmæli og útgáfu  Kvikmyndin Sumarlandið, í leikstjórn Gríms Hákonarsonar, hlaut verðlaun fyrir besta hand- rit í flokknum Fan- tastic Features á kvikmyndahátíð- inni Fantastic Fest í Texas í Bandaríkjunum sem lauk í fyrradag. Handritshöfundar eru Grímur Hákonarson og Ólafur Eg- ilsson. Sumarlandið er fyrsta kvik- mynd Gríms í fullri lengd. Sumarlandið hlaut handritsverðlaun  Söngkonan Leoncie hefur sent frá sér nýjan geisladisk, Dansaðu við Leoncie, og hefur hann að geyma þekktustu lög hennar. Má þar nefna hina kunnu smelli „Enginn þríkantur hér“ og „Ást á pöbbnum“. Dansaðu við Leoncie hefur að geyma tólf lög. Söngkonan tileinkar aðdáendum sínum þessa nýútkomnu plötu. Leoncie sendir frá sér Dansaðu við Leoncie FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Allhvöss suðvestanátt en stormur norðvestanlands. Víða skúrir, þó síst austanlands. Lægir síðan smám saman, suðvestan 8-13 síðdegis. Hiti 5 til 13 stig, hlýjast austast. Á sunnudag Sunnanátt, víða 8-13 m/s og rigning, einkum S-til. V-lægari og skúrir síð- degis. Hiti 7 til 13 stig. Á mánudag NA og N 8-13 m/s og rigning á Vestfjörðum. Hiti 3 til 12 stig. Grindavík, Þór, Keflavík og Fram berjast fyrir lífi sínu í lokaumferð Pepsi- deildarinnar í fótbolta í dag. Grindvík- ingar standa verst að vígi en Orri Freyr Hjaltalín, leikmaður þeirra, segir að þeir séu alltaf bestir þegar allir hafi af- skrifað þá. Grindvíkingar leika við ÍBV í Vestmannaeyjum og Keflavík tekur á móti Þór í miklum fallslag. Framarar eiga í höggi við Víking. »3 Erum bestir þegar allir hafa afskrifað okkur Skagamaðurinn Birgir Leif- ur Hafþórsson mun að öll- um líkindum róa á ný mið í lok mánaðarins og taka þátt í 1. stigi úrtökumótanna fyr- ir bandarísku PGA- mótaröðina í golfi. Verður þetta frumraun Birgis á þeim vettvangi en hann hef- ur hingað til haldið sig í Evr- ópu og hefur leikið á móti þeim bestu á Evrópumóta- röðinni. »1 Birgir reynir sig í Bandaríkjunum Ekki er víst að keppni í NBA-deildinni í körfubolta hefjist á réttum tíma, og svo gæti farið að ekkert yrði spilað í henni á komandi vetri. Eigendur lið- anna vilja að leikmennirnir taki á sig stórfellda launalækkun vegna mikils tapreksturs en þeir eru tregir í taumi. Gunnar Val- geirsson, NBA- sérfræðingur Morg- unblaðsins, fer yfir stöð- una. »4 Verður ekkert keppt í NBA-deildinni í vetur? Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Við finnum fyrir þakklæti við- skiptavina á hverjum degi og hingað kemur sama fólkið aftur og aftur,“ segir Haukur Ingason, apótekari í Garðs Apóteki við Sogaveg. Í nið- urstöðum verðkönnunar Alþýðu- sambands Íslands á lausasölulyfjum, sem greint var frá í vikunni, var Garðs Apótek oftast með lægsta verðið og á undanförnum árum hef- ur apótekið iðulega verið í fremstu röð að því er lágu vöruverði við- kemur. En hver er galdurinn? „Það er ekki flókið,“ segir Hauk- ur. „Við náum að halda verðinu lágu með minni álagningu og hagkvæmni í rekstri. Við höldum ágætu lífi og sjáum ekki ástæðu til að kvarta.“ Spurður hvort lyfjakeðjur ættu ekki að geta boðið lægra vöruverð í ljósi hagræðis og samlegðaráhrifa, svarar Haukur því til að því sé hald- ið fram í fræðunum, en keðjurnar verði að svara fyrir það. „Stað- reyndin er hins vegar sú að minni apótekin hafa staðið sig vel og það eru enn nokkrir geirfuglar eins og við eftir í þessu.“ Í leiðinni fyrir marga, en aðrir taka strætó Á horninu á Sogavegi og Réttar- holtsvegi voru í eina tíð nokkrar verslanir og síðan var útibú Íslands- banka þarna. Af verslunum eru nú aðeins apótekið og söluturninn Kúl- an eftir á horninu. Staðurinn er því ekki beinlínis verslunarmiðstöð, en Haukur segir fólk ekki setja það fyr- ir sig þó það þurfi að leggja á sig smávegis ferðalag til að komast í apótekið. „Þessi staður er samt í leiðinni fyrir mjög marga, örstutt frá Miklu- brautinni, og fólk kemur hingað alls staðar að af höfuðborgarsvæðinu,“ segir Haukur. „Flestir koma akandi, en það er líka eitthvað um að fólk komi hingað í strætó gagngert til að sækja lyfin sín og leið 17 stoppar hérna beint fyrir utan. Þetta á sérstaklega við um eldra fólkið, sem horfir í eyrinn og hefur rúman tíma til að taka strætó. Hérna getur fólk sest niður og fengið sér kaffibolla í rólegheit- um, lesið tímarit, beðið eftir strætó eða lyfjum eftir atvikum, en við reynum þó að hafa biðtímann eftir lyfjum sem stystan,“ segir Haukur. Fastheldið á lyfjaverslanir Hann segir að öll apótekin kaupi vörur að mestu af sömu birgjunum og þegar hann er beðinn að lýsa þessum markaði segir hann: „Mér finnst ótrúlegt að fólk skuli ekki velta verðinu meira fyrir sér heldur en raun ber vitni og það virðist fast- heldið á að versla við lyfjakeðjur, þó að þar sé alls ekki að finna lægsta verðið.“ Sama fólkið kemur aftur og aftur  Minni álagning og hagkvæmni er lykill- inn að lágu lyfjaverði í Garðs Apóteki Morgunblaðið/Sigurgeir S. Lágt lyfjaverð Haukur Ingason apótekari ásamt glaðlegu starfsfólki í Garðs Apóteki. Hann segist finna fyrir þakklæti viðskiptavina á hverjum degi. Í nýjustu lyfjaverðskönnun ASÍ var Garðs Apótek við Sogaveg oftast með lægsta verðið á lausasölulyfjum eða í 20 til- vikum af 36. Verðmunur á lausasölulyfjum var frá 23% upp í 93%, en í flestum tilvikum var munur á hæsta og lægsta verði 30-60%. Í mars í vetur var Garðs Apó- tek einnig oftast með lægsta verðið á algengum lausa- sölulyfjum, sem eru seld án lyf- seðils, eða í 16 tilvikum af 34. Þá var verðmunur á milli ein- stakra lyfja allt að 85% en í 23 tilvikum af 34 sem skoðuð voru í könnuninni var 33-50% munur á hæsta og lægsta verði. Lægstir í tvígang MIKILL VERÐMUNUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.