Morgunblaðið - 18.10.2011, Side 1

Morgunblaðið - 18.10.2011, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 8. O K T Ó B E R 2 0 1 1  Stofnað 1913  244. tölublað  99. árgangur  HÁTÍÐIN KVÖDD AF KRAFTI UMFJÖLLUNIN GRÍÐARLEG FÓRU TUGI ÁRA AFTUR Í TÍMANN MIKIL AÐSÓKN AÐ BÓKASTEFNUNNI 28 Á HÆSTA TIND N-AFRÍKU 10AF AIRWAVES 30 Morgunblaðið/Árni Sæberg  Haraldur Johannessen ríkislög- reglustjóri hefur sent innanrík- isráðherra, Ögmundi Jónassyni, greinargerð vegna innkaupa embættisins, sem ríkisendurskoð- andi, Sveinn Arason, hafði gert athugasemdir við og talið lög- brot. Haraldur segir í svari við fyr- irspurn Morgunblaðsins að í greinargerðinni sé sýnt fram á að embættið hafi farið að lögum við innkaupin. Sú reglugerð sem rík- isendurskoðandi hafi miðað við hafi ekki tekið gildi fyrr en ári eftir innkaupin. Haraldur segist í greinargerð- inni vekja athygli ráðherra á þeirri spurningu hvort ríkisend- urskoðandi, Sveinn Arason, hafi gengið of langt í fjölmiðlum með yfirlýsingum um lögbrot embætt- is ríkislögreglustjóra. Það sé dómstóla en ekki rík- isendurskoðanda að kveða upp dóm um hvort farið hafi verið að lögum. »4 Dómstóla en ekki ríkisendurskoðanda að kveða upp dóm Sex ára undirbúningur » Undirbúningur fyrir álver á Bakka hófst í júní 2005 » Alcoa hefur lagt á annan milljarð króna í verkefnið » Stóð til boða um helmingur þeirrar orku sem þurfti » Breytt orkunýtingarstefna hafði áhrif á niðurstöðuna Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Síðdegis í gær var kynnt á Húsavík sú ákvörðun Alcoa að hætta við áform fyrirtækisins um að reisa ál- ver á Bakka, sem hefði 250 þúsund tonna framleiðslugetu á ári. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa á Ís- landi, segir þetta mikil vonbrigði, en þessi ákvörðun hafi verið óhjá- kvæmileg í ljósi þess að útséð hafi verið um að tækist að útvega nýju ál- veri Alcoa næga raforku. „Það hefur verið gerð viljayfirlýs- ing af hálfu Landsvirkjunar um að selja orkuna fyrir norðan til annarra verkefna og þar fyrir utan hefur ekki um nokkra hríð verið fyrir hendi viljayfirlýsing um orkusölu til okkar, hvorki af hálfu ríkisstjórnarinnar né Landsvirkjunar. Það liggur því fyrir að þær forsendur sem við lögðum af stað með í upphafi eru brostnar og því er ekki um neinn annan kost að ræða hjá okkur en draga okkur með formlegum hætti út úr þessu verk- efni,“ segir Tómas. Bergur Elías Ágústsson, bæjar- stjóri Norðurþings, tekur í sama streng og segir niðurstöðuna vera mikil vonbrigði. Hann sagði að verk- efni Alcoa á Bakka hefði notið stuðn- ings stórs hluta íbúa í Norðurþingi og menn hefðu í lengstu lög viljað trúa því að íbúum Norðurþings og nágrannasveitarfélaga tækist að snúa vörn í sókn. Áfram verði barist fyrir að orkan verði nýtt á svæðinu. Óhjákvæmileg ákvörðun  Alcoa hefur lagt á annan milljarð króna í verkefnið, en útséð var um að tækist að útvega næga orku  Mikil vonbrigði segja Alcoa og heimamenn í Norðurþingi MAlcoa hættir við »14-15 Morgunblaðið/Júlíus Alþingi Upplýst var í gær um afslátt bankanna við uppgjör þeirra eldri. Bankarnir allir telja sig vera búna að nýta það svigrúm sem þeir höfðu til afskrifta vegna þess afsláttar sem þeir fengu í uppgjöri gömlu og nýju bankanna á íbúðalánasöfnum þeirra, og gott betur en það. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, að upplýst hafi verið um á fundi í efnahags- og við- skiptanefnd Alþingis í gærmorgun. Fram kom á fundinum að Lands- bankinn fékk íbúðalánasafn sitt með 34 prósenta afslætti, Arion með 23,5 prósenta og Íslandsbanki með 30 prósenta afslætti. Guðlaugur Þór segir að ítrekað hafi verið leitað eftir umræddum upplýsingum frá ríkisstjórninni en án árangurs. Ríkisstjórnin hafi haft vitneskju um tölurnar en setið á þeim. „Það var ríkið sem gekk frá uppgjöri þessara banka og vissi um þetta,“ segir Guðlaugur sem lagði fram fyrirspurn á Alþingi um málið en fékk ófullnægjandi svör. Þá spyr Guðlaugur einnig hvers vegna ríkisendurskoðun hafi ekki fyrir löngu verið fengin til að meta yfirfærslu lána milli gömlu og nýju bankanna. »16 Loksins upplýst um afslátt  Bankarnir fengu allt að 34% afslátt af íbúðalánasöfnum Á meðan kaldir vindar hafa enn ólokið við að afklæða tré höfuðborgarinnar haustskrúða sín- um hefur vetur konungur breitt hvítan möttul sinn yfir íbúa Ísafjarðarbæjar. Þar var sannar- lega kuldalegt um að litast í gær en sé rýnt í veð- urkortin má ætla að landsmenn verði lítt varir árstíðaskiptanna á næstunni. Á hádegi í dag er að vísu spáð þriggja stiga frosti á Akureyri og verður allra kaldast á Sandbúðum þar sem spáð er 11 stiga frosti en í höfuðborginni er gert ráð fyrir tveggja stiga hita og virðast hitatölurnar víðast hvar verða fyrir ofan frostmark út vikuna. Árstíðirnar bítast um landið Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnss Vetrarveður á Ísafirði  Talsmenn starfandi gagnavera, og þeirra sem hafa verið í und- irbúningi hér á landi, fagna því að gagnaver Verne Global sé loksins að komast af stað á gamla varn- arsvæðinu við Keflavíkurflugvöll en uppsetning gámaeininga hefst á Ásbrú í dag. Þeir gagnrýna hins vegar stjórnvöld fyrir tregðu gagn- vart erlendum fjárfestum og að of hátt gjald fyrir gagnaflutninga um sæstrengi Farice hafi hamlað upp- byggingu gagnavera. „Farice hefur verðlagt Ísland út úr samkeppninni og svo er það hvernig stjórnvöld hafa hagað sér,“ segir talsmaður Thor Data Center. »7 Farice verðlagði Ísland út úr samkeppni Framburður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fyrir dómi í gær um tiltekna greiðslu stangaðist á við það sem hann sagði við yfirheyrslur. Um er að ræða fimm milljóna króna bónusgreiðslu sem var innt af hendi 31. mars 2000, skv. ákæru. Fyrir dómi í gær sagði Jón Ásgeir að þetta hefði verið bókað sem lán í bók- um Baugs, Baugur hefði skuldað honum 27 milljónir í upphafi árs og hefði með þessu greitt inn á lánið. Saksóknari benti á að hjá skattrannsóknarstjóra hefði hann sagt að um bónusgreiðslu skv. starfs- samningi hefði verið að ræða. Jón Ásgeir sagði þá að þegar menn væru boðaðir í skýrslutöku kæmu þeir kaldir að borðinu og vissu ekki út í hvað þeir yrðu spurðir. Eftir að málið hefði verið skoðað betur þá hefði komið í ljós að svona lægi í því. »12 Gaf önnur svör Jón Ásgeir kom með Bónuspoka.  Kynnti sér málið betur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.