Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Morgunblaðið/Eggert Landsbankinn Hluti skila- og slita- stjórnar gamla Landsbankans. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Ólíklegt þykir að skilanefndir Landsbanka Íslands og Glitnis fái meira en einn milljarð punda fyrir hlut sinn í bresku verslunarkeðjunni Iceland eða ríflega 182 milljarða króna. Þetta hefur tímaritið Inter- national Supermarket News eftir sérfræðingum í frétt á vefsvæði sínu. Verðið á hlut skilanefndanna, sem er 77%, hefur til þessa verið metið á um 1,5 milljarða punda. Skilanefnd Landsbankans á 67% hlut í félaginu en skilanefnd Glitnis 10%. Interna- tional Supermarket News segir að þeir sérfræðingar sem miðillinn hef- ur leitað til séu sammála um að ólík- legt sé að væntanlegir kaupendur muni greiða meira en milljarð punda fyrir hlutinn. Ástæðan fyrir því sé versnandi efnahagshorfur á Bret- landi en að undanförnu hafa ýmisleg teikn komið fram sem benda til þess að verulega hafi dregið úr vexti hag- kerfisins. Áhugi á hluta Iceland Salan á hlut skilanefndanna í Ice- land er hafin og hafa áhugasamir fjárfestar frest til morguns að leggja inn tilboð í fyrstu umferð. Inter- national Supermarket News segir að um tuttugu fjárfestar hafi sýnt kaup- unum áhuga og fengið aðgang að upplýsingum um verslunarkeðjuna. Meðal þeirra eru verslunarkeðjurn- ar Asda og Morrisons en hermt er að þær hafi aðeins áhuga á hluta Ice- land. Fram kemur í frétt Inter- national Supermarket News að ef annaðhvort Asda eða Morrisons myndu kaupa Iceland þá þyrftu þær að selja frá sér um 20% af verslunun- um vegna ákvæða í breskum sam- keppnisreglum. Ennfremur er fullyrt að fjárfest- ingarsjóðirnir Cinven, BC Partners og Blackstone séu meðal áhuga- samra kaupenda að Iceland. Ekki ljóst hvað Walker gerir Ekki er ljóst hvort Malcolm Wal- ker, stofnandi Iceland Foods, sem á 23% hlut í fyrirtækinu, verður með í fyrstu umferð tilboða. Hann hefur forkaupsrétt sem þýðir að hann get- ur jafnað hæsta boð til að eignast hlutinn sem er til sölu. Einn milljarður sterlingspunda fyrir Iceland  Sérfræðingar segja að ólíklegt sé að meira en milljarður fáist fyrir hlut skilanefnda Landsbankans og Glitnis í Iceland  Tuttugu fjárfestar sagðir hafa áhuga á keðjunni Stuttar fréttir ... ● Álframleiðsla í heiminum hefur aukist um liðlega 6% fyrstu átta mánuði þessa árs, samanborið við sama tímabil í fyrra. Samkvæmt spá samtaka evr- ópskra álframleið- enda, EAA, stefnir framleiðsla og sala áls í um 45 millj- ónir tonna á þessu ári og hefur aldrei verið meiri. Vöxtur hefur verið á öllum helstu markaðssvæðum en mestur í Kína. Í fréttatilkynningu frá Sam- tökum álframleiðenda hér á landi segir að aukin eftirspurn í bílaiðnaði og flugvélaframleiðslu skýri einna helst þessa aukningu á milli ára en samhliða hækkandi orkuverði leita framleiðendur nú leiða til að létta bif- reiðar og flugvélar til að draga úr eldsneytisnotkun þeirra. Spár aðild- arfyrirtækja gera ráð fyrir frekari aukningu á næsta ári og muni heild- arframleiðsla nema rétt tæpum 49 milljónum tonna eða sem svarar nærri 9% aukningu frá áætluðu fram- leiðslumagni þessa árs. Álframleiðslan í heiminum vex um 6% Álframleiðsla ● Sigurjón Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Arion. Sigurjón tekur við starfi fram- kvæmdastjóra rekstrarsviðs af Helga Bjarnasyni sem færir sig um set og tek- ur nú við starfi framkvæmdastjóra við- skiptabankasviðs. Helgi tekur við þeirri stöðu af Hermanni Björnssyni, sem ný- verið var ráðinn forstjóri Sjóvár. Sig- urjón er verkfræðingur að mennt með meistaraprófsgráður frá KTH- háskólanum í Stokkhólmi og MIT í Massachusetts. Helgi er stærðfræð- ingur að mennt og með cand. act.- gráðu í tryggingastærðfræði frá Kaup- mannahafnarháskóla. Breytingar í fram- kvæmdastjórn Arion óverðtryggðum vöxtum til jafn langs tíma og fastvaxtatímabilið á útlánunum,“ segir Kristján og bætir því við að verðtryggðu lánin verði fjár- mögnuð m.a. með verðtryggðum innlánum eins og hafi lengi tíðkast. Ólíkt viðskiptabönkunum getur Íbúðalánasjóð- ur ekki fjármagnað sig með innlánum. „Við þurf- um alfarið að fjármagna okkur í gegnum útgáfu skuldabréfa á skuldabréfamarkaði og þurfum alltaf að fara þá leið áður en við getum lánað út,“ segir Sigurður og bætir því við að Íbúðalánasjóð- ur reyni að takmarka áhættu síma með því að fjármagna sig jafn lengi og lánað er út. „Bank- arnir fjármagna sig stutt með innlánum og ég veit ekki til þess að þeir hafi farið í skuldabréfa- útgáfu á markaði til að endurspegla venjulegan lánstíma húsnæðislána.“ Íbúðalánasjóður mun væntanlega svara útspili Landsbankans og bjóða upp á óverðtyggð lán en Sigurður segir það vera til skoðunar. Óttast ekki afturhvarf til 2004  Landsbankinn undirbýður verðtryggð lán Íbúðalánasjóðs  Framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs segist ekki óttast endurtekningu á ástandinu sem skapaðist 2004 Framkvæmdastjórinn Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Uppgreiðsluáhættan er alltaf til staðar en við erum líklega ekki að fara að sjá endurtekningu á ástandinu sem skapaðist 2004 þegar viðskipta- bankarnir fóru að undirbjóða Íbúðalánasjóð. Núna erum við á allt öðrum stað í hagsveiflunni,“ segir Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs. Landsbankinn hóf nýlega að bjóða upp á 3,9 prósenta vexti á verðtryggðum lánum með 70 prósenta veðsetningarhlutfalli og óverðtryggð lán m.a. á föstum vöxtum. Að sögn Kristjáns Kristjánssonar, upplýsingafulltrúa Landsbankans, mun sterk fjárhagsstaða bankans fyrst um sinn gefa honum svigrúm hvað fjár- mögnun óverðtryggðu lánanna varðar. „For- senda þess að slík útlán verði til lengdar í boði á ásættanlegum kjörum og í umtalsverðu magni er sú að bankinn geti fjármagnað sig á föstum Morgunblaðið/Ernir                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-./ +/+-0 ++1 .+-23. .4-,3/ +3-255 +./-,3 +-15+1 +/+-,1 +,5-+2 ++,-,0 +/.-41 ++1-22 .+-12, .4-025 +3-1, +./-52 +-15,/ +/.-4/ +,5-,/ .+1-2,+, ++,-/1 +/.-1/ ++1-00 .+-15/ .4-3 +3-,4+ +.5-.5 +-,44. +/.-0. +04-42 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalm@mbl.is „Uppgjör á milli gömlu og nýju bank- anna vegna íbúðalánasafna þeirra liggur núna loksins fyrir en við feng- um upplýsingar um afsláttinn á lána- söfnum bankanna á fundi efnahags- og viðskiptanefndar,“ segir Guðlaug- ur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins. Að sögn Guðlaugs fékk Lands- bankinn íbúðalánasafn sitt með 34% afslætti, Arion banki á 23,5% og Ís- landsbanki á 30% afslætti. Þrátt fyrir töluverðan afslátt telja viðskipta- bankarnir sig nú þegar búna að nýta allt það svigrúm sem þeim gafst með afslættinum og í raun hafi þeir gengið lengra í afskriftum en sem nam af- slættinum að sögn Guðlaugs. „Lands- bankinn segist vera búinn að gjald- færa 61 milljarð í afskriftir af 46 sem bankinn telur sig hafa haft svigrúm til. Íslandsbanki segist ekki vera bú- inn að klára sitt svigrúm og Arion banki segist vera kominn tvo millj- arða umfram það svigrúm sem bank- inn telur sig hafa.“ Ennfremur telur Guðlaugur það áhugavert hversu mikill munur er á afslætti milli bankanna. Ríkisstjórnin sat á upplýsingum „Ríkisstjórnin er búin að hafa þessar upplýsingar frá upphafi. Það var ríkið sem gekk frá uppgjöri þess- ara banka og vissi um þetta. Við höf- um ítrekað kallað eftir þessum upp- lýsingum og spurt ríkisstjórnina en aldrei fengið fullnægjandi svör,“ seg- ir Guðlaugur og bætir því við að sjálf- ur hafi hann lagt fram fyrirspurn á Alþingi um hver efnahagsreikningur Arion banka, Íslandsbanka og NBI (Landsbankans) hafi verið við stofnun hvers og eins þeirra haustið 2009 og óskað svara um bókfært virði eigna og skulda hvers og eins banka en aldrei fengið fullnægjandi svör um af- slátt bankanna á íbúðalánasöfnum sínum. Fyrirspurn Guðlaugs er að finna í þingskjali 1901. „Ætla mætti að mun auðveldara væri að ræða málin út frá staðreynd- um en getgátum og núna er loksins hægt að fara að tala um staðreyndir í þessu máli.“ Þá spyr Guðlaugur af hverju óháður aðili eins og Ríkisend- urskoðun hafi ekki fyrir löngu verið fenginn til að meta yfirfærslu lána á milli gömlu og nýju bankanna. „Þrátt fyrir að við höfum fengið þessar upp- lýsingar tel ég enn nauðsynlegt að óháður aðili fari yfir þær upplýsingar sem liggja hjá ríkisstjórninni um leið- réttingar milli gömlu og nýju bank- anna. Þetta er á ábyrgð ríkisstjórn- arninnar, ekki bankanna, og því eðlilegt að beina fyrirspurnum til hennar,“ segir Guðlaugur. Afsláttur lánasafna bank- anna liggur loksins fyrir  Þingmaður segir það liggja fyrir að ríkisstjórnin hafi setið á upplýsingunum Morgunblaðið/Eggert Lán Stóru bankarnir telja svigrúm til afskrifta vegna afsláttar vera búið. Afslátturinn » Töluverður munur er á þeim afslætti sem bankarnir fengu á íbúðalánasöfnum sínum. » Svigrúm bankanna vegna afsláttarins fullnýtt hjá bæði Arion banka og Landsbank- anum. » Guðlaugur Þór segir ríkis- stjórnina hafa setið á upp- lýsngum um afslætti bank- anna á íbúðalánasöfnum sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.