Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Hætt er við því að þeir semlesa bók JóhannsHaukssonar í þeim til-gangi að lesa um ný
spillingarmál í íslensku samfélagi
verði fyrir vonbrigðum. Bókin af-
hjúpar ekki neinn nýjan sannleik, en
þar er fjallað um nokkur mál sem
hafa á síðustu árum verið mikið til
umfjöllunar í fjölmiðlum.
Jóhann hefur í mörg ár starfað
sem blaðamaður, en hann er einnig
menntaður í félagsfræði og í bókinni
fá kenningar í félagsvísindum mikið
rúm. Jóhann fléttar síðan ýmis um-
deild mál á innlendum vettvangi
saman við gamlar og nýjar kenn-
ingar í félagsvísindum. Hann fer vítt
og breitt í umfjöllun sinni og vitnar í
fjölbreyttar heimildar, allt frá Háva-
málum til kenninga Svans Kristjáns-
sonar og eru þá ótaldir margir er-
lendir fræðimenn.
Oft saknar maður þess að Jóhann
fari ekki dýpra í einstök mál og
stundum verður tilhneiging hans til
að vísa fram og aftur í tímann til
þess að bókin verður nokkuð sund-
urlaus. Þegar líður á bókina minnir
hún talsvert á greinasafn enda fer
hann þar að lýsa skoðunum sínum á
ýmsum málum, sjávarútvegsmálum,
einkavæðingu, fjárfestingum Orku-
veitunnar og fleiri málum.
Athyglisverðasti kafli bókarinnar
er um tilraunir kaupahéðna til að
komast yfir orkufyrirtækin, en það
mál sýnir vel í hvaða ógöngur stjórn-
málamenn geta ratað þegar þeir
fara að véla um mál við fjár-
glæframenn á leynifundum án þess
að þeir hafi hugsað út í að þeir gætu
verið komnir inn á grátt svæði. Tæp-
lega þarf neinn að velkjast í vafa um
að tengsl eru milli þessa máls og
hárra fjárframlaga til kosningabar-
áttu stjórnmálaflokka og einstakra
stjórnmálamanna. Jóhann gerir hins
vegar enga tilraun til að kafa dýpra
ofan í þetta mál en hægt er að gera
með því að lesa opinberar skýrslur
frá rannsóknarnefnd Alþingis,
Reykjavíkurborg og Ríkisendur-
skoðun, en samantektin er ágæt.
Kaflinn um pólitískar ráðningar
ber keim af því að Jóhann telur að
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur séu fyrst og fremst þeir
flokkar sem stundi pólitískar ráðn-
ingar. Ekki er t.d. minnst einu orði á
að hálfur þingflokkur Alþýðuflokks-
ins, sem kosinn var á þing 1991, var
síðar ráðinn í sendiherrastöður og
forstjórastöður hjá ríkinu. Jóhann
ver drjúgu plássi í bókinni í að rifja
upp ýmis umdeild mál sem tengjast
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki,
en um núverandi stjórnarflokka seg-
ir hann að þeir „virðast sjá sig til-
neydda til þess að beita aðferðum
pólitískra andstæðinga við fram-
gang stefnumála sinna“. Sem sagt,
stjórnarflokkarnir eru að reyna að
koma góðum málum í höfn og „neyð-
ast“ því til að beita til þess sömu
brögðum og hinir. Þetta er dálítið
barnaleg framsetning.
Það er án efa rétt hjá Jóhanni að
þjóðin lokaði augum fyrir spilling-
unni fyrir hrun og að stjórn-
málamenn lögðu ekki neina sérstaka
áherslu á að setja reglur sem fallnar
væru til að draga úr hættu á spill-
ingu. Þjóðin vildi trúa því að hér
væri allt gott og allt gengi vel. Hrun-
ið hefur neytt þjóðina til að horfast í
augu við að hér fór margt úrskeiðis
og stjórnmál og viðskipti voru farin
að vefjast saman með óeðlilegum
hætti. Það er jákvætt að menn eins
og Jóhann reyni að varpa ljósi á
þessi mál, en hætt er við margir les-
endur hefðu viljað sjá aðeins meira
kjöt á beinunum og minna af fé-
lagsfræði.
Nokkrar kenningar
um spillingu
Þræðir valdsins
bbnnn
eftir Jóhann Hauksson.
Veröld. Reykjavík, 2011. 180 bls.
EGILL ÓLAFSSON
BÆKUR
Félagsfræði Í bók Jóhanns Haukssonar, Þræðir valdsins, fjallar Jóhann um
nokkur mál sem hafa á síðustu árum verið mikið til umfjöllunar í fjöl-
miðlum, en afhjúpar ekki neinn nýjan sannleik.
Í gær var opnuð í Bergen í Noregi
sýning á ljósmyndum Ragnars Ax-
elssonar, RAX, ljósmyndara á
Morgunblaðinu. Sýningin er í sýn-
ingarrými er kallast Chagall og
sýnir Ragnar þar 53 ljósmyndir frá
Grænlandi og Kanada, allt verk
sem voru á sýningunni Veiðimenn
norðursins í Gerðarsafni í vetur
sem leið og eru í samnefndri bók
með verkum hans sem gefin var út í
Englandi og í Þýskalandi og er
væntanleg í fleiri löndum.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í
Bergen, BIFF, hefst á morgun og
verða sýndar um 170 kvikmyndir,
og þar á meðal 90 mínútna löng
heimildarkvikmynd Saga-film, Last
Days of the Arctic, sem fjallar um
Ragnar og heimildaskráningu hans
á norðurslóð. Eftir sýninguna mun
Ragnar sitja fyrir svörum. Í tengls-
um við sýningu kvikmyndarinnar
og sýningarinnar á ljósmyndum
Ragnars verður einnig efnt til
„masterclass“ með honum í Bergen,
með stuðningi Leica-myndavéla-
framleiðandans, þar sem Ragnar
fjallar um myndheiminn og feril
sinn.
Verk Ragnars í Bergen
Morgunblaðið/Kristinn
Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson
við eitt verka sinna.
Menningarhúsið Berg á Dalvík mun
bjóða upp á metnaðarfulla tónleika-
röð í vetur undir heitinu Klassík í
Bergi 2011-2012. Fyrirhugað er að
slík tónleikaröð verði framvegis fast-
ur liður í starfsemi Bergs.
Í vetur verða þrennir tónleikar í
tónleikaröðinni og koma fram á þeim
nokkrir kunnustu tónlistarmenn
þjóðarinnar. Fyrstur í röðinni er
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleik-
ari sem heldur einleikstónleika 5.
nóvember næstkomandi. Hinn 21.
janúar halda Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir tónleika og 17. mars
mæta til leiks þeir Kristinn Sig-
mundsson bassa-baritónn og Jónas
Ingimundarson píanóleikari. Tón-
leikarnir verða allir á laugardögum
og hefjast klukkan 16.
Með tónleikaröðinni vilja stjórn-
endur Menningarhússins Bergs
veita fólki tækifæri til að njóta sums
af því besta sem íslenskt tónlistarlíf
hefur að bjóða, við þær kjör-
aðstæður sem hafa skapast með til-
komu salarins í Bergi.
Metnaðarfull tónleikaröð í
Bergi á Dalvík í vetur
Morgunblaðið/Ernir
Einn flytjenda Víkingur Heiðar
Ólafsson kemur fram 5. nóvember.
Fólkið i kjallaranum – lokasýning fimmtudagskvöld
Miðasala sími: 571 5900
ALVÖRUMENN
“Hér er valinn maður í hverju rúmi...
Leikurinn er upp á fimm stjörnur.”
-Elísabet Brekkan, Fréttablaðið.
- harpa alþýðunnar
L AU 22 /10
FÖS 28/10
L AU 29/10
FÖS 04/1 1
L AU 05/1 1
FÖS 1 1 / 1 1
L AU 1 2 /1 1
FÖS 18/1 1
FIM 24/1 1
FÖS 25/1 1
L AU 26/1 1
FÖS 02 /1 2
FÖS 09/1 2
L AU 10/1 2
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
KL . 20:00
Ö
Ö
Ö
U
Ö
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING
NÝ SÝNING