Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 SVIÐSLJÓS Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Ákæran í skattahluta Baugsmálsins er 14 blaðsíður sem skipt er í sex kafla og enn fleiri undirkafla. Málskjölin þurfa nokkrar þykkar skjalamöppur. Það er því ekki að undra að í þing- haldinu í gær rugluðust málflytjend- ur nokkrum sinnum á köflum í ákær- unni og tilvísunum í málskjöl. Málið er með öðrum orðum nokkuð flókið en hér verður staldrað við nokkur atriði sem standa upp úr eftir fyrsta dag aðalmeðferðinnar. Skattahluti Baugsmálsins snýst um meint skattsvik á árunum 1998- 2002. Meint brot Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar og Tryggva Jónssonar lúta ýmist að þeirra eigin, persónu- legu skattskilum eða brotum sem framin voru í rekstri Baugs í tilviki Tryggva og Baugs og Gaums í tilviki Jóns Ásgeirs. Meint brot Kristínar Jóhannesdóttur varða rekstur Fjárfestingarfélagsins Gaums. Þegar Jón Ásgeir, Tryggvi og Kristín voru yfirheyrð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun neituðu þau alfarið sök í málinu. Jón Ásgeir er m.a. sakaður um að hafa komið sér undan að greiða tekju- skatt, útsvar, sérstakan tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt á árunum 1998- 2002. Hann hafi m.a. ekki talið fram bifreiðahlunnindi, fjármagnstekjur vegna sölu á hlutabréfum og tekjur af hlutabréfaeign. Jón Ásgeir, Tryggvi og Kristín eru einnig m.a. ákærð fyrir að skila inn röngum upplýsingum um staðgreiðslu opinberra gjalda, ýmist í rekstri Gaums, fjárfestingarfélags Bónus-fjölskyldunnar, eða Baugs. Vissi ekki af 10 milljónum Helgi Magnús Gunnarsson, vara- ríkissaksóknari, hóf sóknina með því að spyrja Jón Ásgeir út í greiðslur upp á samtals 11,8 milljónir króna sem Jón Ásgeir fékk greiddar inn á bankareikning sinn frá Bónusi sf. árið 1998 en ekki hefði verið greiddur fjár- magnstekjuskattur af upphæðinni. Jón Ásgeir svaraði því að þessi greiðsla hefði borist inn á reikning hans án hans vitundar. Fjármála- stjóri Bónuss hefði um langt skeið séð um þennan bankareikning og greitt út af honum vegna ýmissa útgjalda. Hann hefði ekki orðið var greiðsluna, jafnvel þótt reikningurinn hefði þegar fyrstu 10 milljónirnar komu inn á hann, verið yfirdreginn um 56.000 krónur. Jón Ásgeir sagði að í þessu tilfelli hefði Bónus verið að greiða Baugi arð en Gaumur átti þá um fjórðung í Baugi. Vegna mistaka hefði fjárhæðin farið á hans eigin persónu- lega reikning. Hann hefði síðar hlutast til um að þetta yrði leiðrétt. Ein hæsta fjárhæðin sem lýtur að persónulegum skattskilum Jóns Ás- geirs er tilkomin vegna nýtingar á kauprétti í Baugi hf., upp á 18,8 millj- ónir árið 1999 sem ekki voru gefnar upp til skatts, skv. ákæru. Fyrir dómi í gær gaf Jón Ásgeir m.a. þá skýringu að í tengslum við starfslok Óskars Magnússonar, sem þá var starfandi stjórnarformaður Baugs, hefði verið ákveðið að kaup- réttur Jóns Ásgeirs gengi yfir til Ósk- ars en þetta hefði verið hluti af stærra samkomulagi. Hann hefði því milli- fært þessa upphæð yfir á reikning Óskars og Óskar hefði síðan greitt skatta af þessum kauprétti. Jón Ás- geir sagði að hann hefði verið látinn borga skatta af þessum kauprétti og því hefðu þeir í raun báðir greitt skatta af þessari greiðslu. Langt um liðið Hæsta einstaka fjárhæðin í ákær- unni er vegna meintra brota við sam- einingu þeirra fyrirtækja sem runnu inn í Baug. Í þeim lið ákærunnar eru Jón Ásgeir og Kristín Jóhannesdóttir ákærð fyrir að hafa komið Gaumi undan því að greiða um 200 milljónir í tekjuskatt. Þessu höfnuðu þau alfarið og Jón Ásgeir benti á að „engar smákanónur“ hefðu verið fengnar til að veita ráðgjöf um hvernig ætti að fara með skattgreiðslur vegna sam- einingarinnar, þ.e. þeir Baldur Guð- laugsson og Helgi V. Jónsson. Talið hefði verið fram skv. þeirra ráðlegg- ingum. Um þetta báru Kristín og Tryggvi á sama veg. Í nokkrum tilvikum vísaði Jón Ás- geir til þess að hann hefði ekki ákveð- ið hvernig tekjur yrðu taldar fram en benti m.a. á endurskoðanda sinn og Baugs, Stefán Hilmarsson, en hann er meðal þeirra sem bera vitni í mál- inu í dag. Það fór ekki á milli mála að Jóni Ás- geiri var skapraun að ýmsum spurn- ingum Helga Magnúsar og hann minnti oftar en einu sinni á að langt væri um liðið frá því þessir atburðir áttu sér stað. Áður en hann var ákærður hefði það síðasta sem hann hefði frétt af þessu máli verið þegar fékk 42 milljónir endurgreiddar vegna ákvörðunar yfirskattanefndar. „Við erum búin að bíða ansi lengi,“ sagði Jón Ásgeir. „En þið hafið nú ekki setið aðgerðalaus á meðan,“ svaraði saksóknari. Átti að fá 5 millj. eftir skatta Tryggvi Jónsson, fyrrum forstjóri Baugs, er m.a. ákærður fyrir að hafa komið sér undan því að greiða 13,3 milljónir í skatt. Í skjali sem fannst við húsleit hjá Baugi árið 2002 kom fram að Tryggvi ætti að fá fimm milljónir þannig að ekki kæmi til skatts. Tryggvi sagði að þarna væri verið að vísa til þess að hann ætti að fá fimm milljónir þegar skattar hefðu verið dregnir frá. End- urskoðandi Baugs hefði ekki gengið frá skattgreiðslunni með réttum hætti og Tryggvi hefði sjálfur hlutast til um að það yrði gert. Að lokum hefði hann borgað skatt af þessari fjárhæð og því gæti verið um tvískatt- lagninu að ræða. Hann hefði aldrei vísvitandi talið rangt fram til skatts. Aðalmeðferðin heldur áfram í dag. „Erum búin að bíða ansi lengi“  Sakborningar í skattahluta Baugsmálsins neita allir sök  Greiðslur komu inn á reikning fyrir mistök  Fengu ráðleggingar frá færustu sérfræðingum um skattskil  Dýrir en lítið notaðir bílar í eigu Gaums Vörnin Jón Ásgeir Jóhannesson býr sig undir upphaf aðalmeðferðar. Við hlið hans er verjandi hans, Gestur Jónsson, og samstarfsmaður hans, Almar Möll- er, að gera slíkt hið sama. Tryggvi Jónsson gengur til sætis í salnum en verjandi hans, Jakob R. Möller, tekur sér sæti við borðið. Morgunblaðið/Kristinn Meðal þess sem Jón Ásgeir Jó- hannesson er ákærður fyrir er að hafa ekki talið fram bifreiðahlunn- indi vegna þriggja bifreiða í eigu Gaums, fjárfestingarfélags Bón- uss-fjölskyldunnar, sem hann er í ákæru sagður hafa haft afnot af á árunum 2000 og 2001. Um var að ræða Porsche 911-bifreið sem áð- ur var í eigu Jóns Ásgeirs en var seldur inn í Gaum, Hummer-jeppa og Cherokee-jeppa. Í ákæru kemur fram að samtals nemi vantaldar tekjur, að mati rík- isskattsstjóra, tæplega níu millj- ónum króna. Jón Ásgeir sagði að hann hefði í sjálfu sér getað fengið þessa bíla að láni og það gæti vel verið að hann hefði keyrt þá einhverja kíló- metra en það væri út í hött að láta hann gjalda fyrir með því að greiða heilsárshlunnindi fyrir þá. „Það er nú ekki hægt að ákæra menn þó þeir hafi lykil að bíl,“ sagði hann. Jón Ásgeir sagði að það væri ótrúlegt hvernig þetta sakarefni væri sett fram; að hann hefði ekið um á þessum þremur bílum, átt sjálfur fjóra bíla og mótorhjól og líka verið í fullu starfi sem for- stjóri Baugs. Helgi Magnús Gunn- arsson, saksóknari, skaut því þá inn að það væri næsta víst að maður í hans stöðu gæti ekki ver- ið úti að aka. „Nei, það er einhver annar hérna inni sem er úti að aka,“ svaraði Jón Ásgeir. „Það er nú ekki tilfinning sækjanda,“ var andsvar Helga Magnúsar. Jón Ásgeir sagði aðspurður að Porsche-bílnum hefði hann ekið einhverja tugi kílómetra. Humm- erinn hefði hann ekkert keyrt enda hefði hann sífellt verið að bila, líklega verið ekið 50 kíló- metra en dreginn 500 kílómetra. Cherokee-jeppann hefði fyrrver- andi eiginkona hans haft til af- nota. Aðspurður hver hefði ákveð- ið að fyrrverandi eiginkona hans fengi jeppann sagði Jón Ásgeir að það hefði verið ákveðið á sínum tíma. Hún hefði átt eitthvað í Gaumi á sínum tíma. Framkvæmdastjóri Gaums var Kristín Jóhannesdóttir og fyrir dómi sagði hún, aðspurð, að hún hefði ekki haft yfirsýn yfir notkun á bílunum og að Jón Ásgeir hefði haft milligöngu um að fyrrverandi eiginkona hans hafði Cherokee- jeppann til afnota. Lítið notaður Porsche, bilaður Hummer og Cherokee í láni ÁKÆRT FYRIR AÐ TELJA EKKI FRAM BIFREIÐAHLUNNINDI Á líftækni- og lífefnasviði Matís er verið að rannsaka lífvirk efni úr þangi og þörungum sem hafa jákvæða virkni í mannslíkamanum. Þau hafa verið notuð t.d. í heilsuvörur til að fyrirbyggja ýmsa kvilla og sjúkdóma en Matís er að skoða notkun lífvirku efnanna til íblöndunar í matvæli og snyrtivörur. Þau gætu reynst þjóð- inni milljarða virði á næstu árum. Frá þessu verður nánar sagt í fyr- irlestri Rósu Jónsdóttur, matvæla- fræðings og fagstjóra líftækni- og líf- efnasviðsins, á matvæladegi MNÍ (Matvæla- og næringarfræðafélag Ís- lands) sem haldinn er í dag á Hilton Nordica hóteli. Lífvirku efnin eru m.a. andox- unarefni og draga þannig úr oxun í matvælum og auka með því geymsluþol og stöðugleika þeirra. Þá stuðla þau að betri geymslu á snyrti- vörum en eru ekki síður góð fyrir viðhald og viðgang húðfrumna, auk þess að hafa jákvæð heilsufarsleg áhrif í líkamanum. „Húðfrumur verða fyrir árás frjálsra hvarfeinda (e. free radicals), t.d. frá sólargeislum, umhverfismengun og reyk. Andoxunarefni bindast við svona hvarfeindir og draga úr hætt- unni á hrörnun af völdum þeirra,“ segir Rósa. Bóluþang með mikla lífvirkni Byrjað var að rannsaka íslenska þörunga og skima fyrir andoxunar- virkni í þeim fyrir nokkrum árum. „Við sáum að bóluþang hefur mjög mikið af fjölfenólum (e. polyphenols) sem hafa mikla lífvirkni, þar á meðal andoxunarvirkni. Við fórum að prófa íblöndun í matvæli en ákveðin fenól í bóluþanginu eru með mikla andox- unarvirkni í þeim. Þetta hefur leitt okkur áfram, við sjáum nýjar og nýj- ar vísbendingar sem sýna frábæra eiginleika fjölfenóla í þanginu,“ segir Rósa. Matís hafi farið að þróa betur aðferðir til að einangra þessi efni og skoða í hvað fleira væri hægt að nýta þau, eins og t.d. snyrtivörur og fæðu- bótarefni. Stefnt sé að því að koma fjölfenólunum í snyrtivörur strax á næsta ári og vonast er til að það muni reynast Íslendingum milljarða virði næstu árin. „Það má segja að það sé framtíðarsýnin, að við getum skapað mikil verðmæti úr þangi og þör- ungum, á ýmsan hátt. Með því að vinna svona, að einangra efni sem hafa mikla og jákvæða virkni, ertu farinn að auka verðmæti.“ ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Dýrmætur Lífvirk efni í þara auka m.a. geymsluþol matvæla. Þörungar gætu reynst þjóðinni milljarða virði Rósa Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.