Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Jón Ásgeir kom með Bónuspoka 2. Kappakstursmaður lét lífið 3. Eldur logar í fjölbýlishúsi 4. „Þeir voru eldsnöggir að þessu“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sænska kvikmyndin Svinalängorna eftir Pernillu August hlaut Kvik- myndaverðlaun Norðurlandaráðs í ár. Heiðursformaður dómnefndar, breska leikkonan Helen Mirren, til- kynnti það í gær í Kaupmannahöfn. Morgunblaðið/Eggert Svinalängorna hreppti hnossið  Fyrsta íslenska teiknimyndin í fullri lengd, Hetjur Valhallar – Þór, var frumsýnd í 24 bíósölum á 11 stöðum um landið 14. október sl. og seldust um átta þúsund miðar á hana yfir helgina. Mun það vera fimmta besta aðsókn að teiknimynd hér á landi frá upphafi mælinga, skv. til- kynningu frá fyr- irtækinu Senu. 8.000 miðar seldir á teiknimynd um Þór  Tónlist- armað- urinn Páll Óskar Hjálmtýs- son mun halda mán- aðarlegar kvikmyndauppákomur í Bíó Paradís í vetur og á þeirri fyrstu, 23. október nk., mun hann sýna úrval teikni- mynda með Tomma og Jenna úr safni sínu, kl. 14 og 20. Teiknimyndirnar eru 12 talsins og allar gerðar af Hanna og Barbera. Palli og Tommi og Jenni í Bíó Paradís Á miðvikudag Suðvestlæg átt, 3-10 m/s og bjart veður, en þykkn- ar upp vestanlands. Hiti 1-6 stig sunnan- og vestantil, en víða frost annars staðar. Á fimmtudag Suðlæg átt og rigning eða slydda með köflum, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti yfirleitt 1-7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðanátt, lægir talsvert og léttir til, einkum síðdegis, en él norðaustan- og austanlands. Kólnandi veður. VEÐUR Bjarki Már Elísson, horna- maður úr HK, er marka- hæsti leikmaðurinn í úrvals- deild karla í handbolta eftir fjórar umferðir, og hann er útnefndur leikmaður 4. um- ferðar af Morgunblaðinu. „Framtíðardraumurinn er að komast í atvinnu- mennsku. Áður en að því kemur nær maður vonandi að vinna einn titil með HK,“ segir Bjarki Már. »2 Titill og síðan atvinnumennska Gunnar Guðmundsson, þjálfari U17 ára lands- liðsins, hefur stýrt því til sigurs í undanriðli EM tvö ár í röð. „Þetta er ein- staklega sterk liðsheild sem við erum með, breiður hópur af góðum strákum með rétt hugarfar og metnað,“ segir Gunnar um strákana. »3 Þetta eru strákar með rétt hugarfar og metnað Ólafur Jóhannesson, fráfarandi landsliðsþjálfari, kveðst vera ánægð- ur með að vera kominn aftur þangað sem hann byrjaði ferilinn í fótbolt- anum. Hann samdi í gær við Hauka til þriggja ára og fær reynsluboltann Sigurbjörn Hreiðarsson með sér sem aðstoð- arþjálfara og leikmann. „Ég sakna þess að vera með leik- mönnum daglega í þessu basli og ég er mjög spenntur að byrja,“ segir Ólaf- ur. »1 Ólafur ánægður á fornum slóðum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Ylfa Kristín K. Árnadóttir ylfa@mbl.is Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir unga foreldra, þau Oddnýju Lísu Ottósdóttur og Hauk Þór Smárason, en tæplega sjö vikna gam- all sonur þeirra, Hrafn Þór, veiktist alvarlega fyrir um tíu dögum. Þau eru búsett á Akureyri en hafa þurft að dvelja í Reykjavík undanfarna viku og er ekki vitað hvenær litli drengurinn verður nógu hress til að þau geti snúið aftur heim. „Hann var búinn að vera hraustur og hafði dafnað vel en þarsíðasta laugardag, um nóttina, fer hann í öndunarstopp og pabbi hans verður vitni að því,“ segir Oddný. Hrafn Þór var fluttur í snatri á Sjúkrahúsið á Akureyri þar sem hann gekkst undir ýmsar rannsóknir og voru mænu- vökvasýni og blóðprufur tekin auk röntgenmynda af lungunum. „Lækn- arnir töldu líklegt að honum hefði svelgst á mjólk og misst þannig and- ann en þegar líður á daginn byrjar hann að fá flogaköst.“ Fleiri blóð- prufur voru teknar og Hrafn Þór settur í segulómun. Illa gekk að halda krömpunum niðri og því var ákveðið að senda hann suður á Barnaspítala Hringsins á mánudagsmorgninum. Greindur með veirusýkingu Á barnaspítalanum gekkst Hrafn Þór undir enn fleiri rannsóknir til að reyna að ákvarða orsök krampanna og hvort öndunarstoppið hefði orsak- að þá eða einfaldlega verið afleiðing þeirra. Ástand hans varð stöðugt og var hann þá látinn liggja á barna- deildinni en þegar kramparnir byrj- uðu aftur var hann fluttur á vöku- deildina. Læknar hafa greint Hrafn Þór með veirusýkingu sem myndar bólg- ur við heila og bregst hann vel við meðferð. „Fyrstu fimm dagarnir voru krítískir. Hann vaknaði ekki, drakk ekki heldur var í krömpum. Á sunnu- daginn fannst hins vegar virkilega mikill munur á honum og þetta fór allt að líta betur út,“ segir Oddný og bætir við að lyfjameðferð sé það skammt á veg komin að ekki sé farið að ræða um hvenær hægt verði að út- skrifa drenginn. Reyna að finna bestu fjárhagslegu lausnina Oddný er í fæðingarorlofi en mað- ur hennar Haukur hóf aftur störf 1. október. Hún viðurkennir að það sé dálítið basl að ákveða næstu skref, það sé dýrt að vera frá vinnu og því séu þau að reyna að finna bestu fjár- hagslegu lausnina. „Við erum að skoða möguleikana sem eru í boði,“ segir Oddný að lokum. Orðlaus yfir stuðningi víða að  Fimm vikna í öndunarstopp vegna veiru- sýkingar Morgunblaðið/Ómar Á spítalanum Hrafn Þór Hauksson með foreldrum sínum, Oddnýju Lísu Ottósdóttur og Hauki Þór Smárasyni. Um 250 verðandi og núverandi mæður á Akureyri eru meðlimir í Facebook-hópnum „Múttur á Ak- ureyri“. Stofnandi hópsins, Signa Hrönn Stefánsdóttir, opn- aði styrktarreikning fyrir Hrafn Þór í því skyni að sýna samhug kvennanna í hópnum í verki. Aðspurð segir Oddný að fjöl- skyldan hafi fundið fyrir gríðar- miklum stuðningi frá vinum og ættingjum á Akureyri, auk fjölda annarra. „Maður á eiginlega ekki til orð. Við finnum fyrir miklum samhug og stuðningi frá fólki sem við þekkjum ekki einu sinni. Þessi reikningur var stofnaður og á einum sólarhring voru fréttir af honum komnar um allt netið.“ Þeir sem vilja styrkja ungu fjölskylduna geta lagt peninga inn á reikning 1145-05-200643, kennitala 040987-4289. Studd af vinum og vandalausum MÚTTUR Á AKUREYRI SÝNA SAMHUG Í VERKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.