Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 10
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Hjónin Elísabet Bjarnadótt-ir og Benedikt Vilhjálms-son fóru í ævintýralegagönguferð nú í sept-
ember og klifu Toubkal, hæsta tind
Norður-Afríku. Ferðin var farin á
vegum Íslenskra fjallaleiðsögumanna
og voru 14 Íslendingar í hópnum.
Þrír ættliðir á hnjúknum
„Minn gönguáhugi nær nokkuð
langt aftur en það var þó ekki fyrr en
í kringum fertugt sem við hjónin fór-
um að fara í lengri ferðir. Fyrir þrem-
ur árum sáum við síðan auglýsta ferð
á Hvannadalshnjúk með Fjallaleið-
sögumönnum og 66° Norður. Þetta
var rétt í kringum sextugsafmælin
okkar, en við erum fædd hvort á sínu
árinu, og við ákváðum að láta á það
reyna hvert við kæmumst. Það var
skemmtilegt að í þeirri ferð voru
einnig með sonur okkar og barnabarn
svo það voru þrír ættliðir sem fóru
saman. Fyrir þessa ferð vorum við í
þjálfun frá áramótum og fram í maí
sem vakti enn meiri áhuga okkar og
hvatti okkur áfram. Eftir þetta höfum
við hjónin verið í gönguhópnum
Fjallafólk hjá Íslenskum fjallaleið-
sögumönnum og göngum allt árið. Yf-
ir veturinn förum við einu sinni í viku
í þrek og púl í Öskjuhlíðinni og göng-
um á fjall mánaðarlega en á sumrin
er klifið fjall á hverju þriðjudags-
kvöldi,“ segir Elísabet.
Erfið en skemmtileg upplifun
Í desember síðastliðnum kom til
tals í hópnum að það væri spennandi
að fara og ganga erlendis. Þá var
ákveðið að halda til Norður-Afríku,
nánar tiltekið í Atlasfjallgarðinn, og
ganga þar á tindinn Toubkal. Þau El-
ísabet og Benedikt ákváðu að skella
sér með og segir Elísabet ferðina
hafa verið mikla upplifun en gangan
hafi verið sú erfiðasta sem þau hafi
farið.
„Þetta var þrælerfitt og þar
hafði hækkunin sitt að segja. Leið-
sögumaðurinn okkar, Jón Gauti Jóns-
son, reiknaði út að við hefðum sam-
tals gengið 93 kílómetra og að
hækkunin hefði verið samtals 7255
metrar. Við gengum þó talsvert upp
og niður og yfir fjallaskörð í gegnum
fjallaþorp. Þessi aðlögun gerði það að
verkum að við fundum aðeins lítillega
fyrir fjallaveiki en hitinn var líka oft
mikill. Við vorum alltaf farin af stað
fyrir klukkan átta og tekið var hlé yf-
ir heitasta tímann í hádeginu. Leiðin
sem við gengum er hringur sem end-
ar síðan á Toubkal-tindinum sem er
4200 metrar á hæð. Þetta var ein-
staklega skemmtileg ferð og maður
fór þarna marga tugi ára aftur í tím-
ann því þarna er engin tækni notuð
og víða ekki hægt að komast að fjalla-
þorpunum á bílum. Þetta var að vissu
leyti lúxusferð því við vorum með sjö
Á hæsta tind
Atlasfjallgarðsins
Hópur íslenskra göngugarpa gekk í september á Toubkal, hæsta tind Norður-
Afríku í Atlasfjallgarðinum. Alls gekk hópurinn 93 kílómetra í ferðinni en tind-
urinn sjálfur er um 4200 metrar og var hækkunin því töluverð. Að lokinni sex
daga göngu dvaldi hópurinn einn dag í borginni Marrakesh og naut þess meðal
annars að láta þreytuna líða úr sér í baðhúsi eða hamam.
Hádegismatur Yfir heitasta tíma dagsins var gert hlé á göngu og matast.
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Nú þegar vetur gengur í garð hlakka
margir til allra þeirra möguleika sem
felast í iðkun hvers konar sports yfir
vetrartímann. Sumir láta duga að fara
á skíði, aðrir vilja fara í eitthvað meira
krassandi eins og ísklifur, enn aðrir
vilja djöflast á jeppum upp um fjöll og
firnindi og svo mætti lengi telja. Fyrir
þá sem vilja fara út fyrir landsteinana
til að stunda hvers konar vetrarsport
er tilvalið að kíkja á síðuna frommers-
.com. Þar undir flipanum Trip ideas
(hugmyndir að ferðum) er sérstakur
flokkur sem heitir winter sport eða
vetraríþróttir. Þarna er heldur betur
hægt að vafra og skoða óteljandi
möguleika og hugmyndir að vetr-
arferðum sem og tilboð og fréttir úr
vetrarsportsheiminum. Til dæmis er
hægt að skoða hugmyndir að því hvað
hægt er að gera í hverjum mánuði fyrir
sig í Kanada, hin ýmsu skíðasvæði á
Ítalíu og lista yfir 18 toppsætin í adr-
enalínævintýraferðum, svo fátt eitt sé
nefnt.
Þarna getur fólk líka deilt myndum
úr ferðum og skoðað myndir annarra.
Vefsíðan www.frommers.com
Vetrarfjör Veturinn er frábær tími til að stunda allskonar skemmtilegt sport.
Hugmyndir að vetrarsporti
Veturinn er sannarlega tíminn til að
skella sér í jóga, en vissulega er allur
tími góður til þess að stunda jóga, af
því að það gerir fólki gott. Margir
hafa jóga sem lífsstíl og finnst það
ómissandi hlut af tilverunni, enda fer
hraði og streita nútímans ekki vel
með heilsu fólks og mikilvægt að
gefa sér tíma til að ekki aðeins
styrkja líkamann heldur líka slaka á,
en í jóga er mikil áhersla á slökun
hugar og líkama. Jógakennarinn,
hjúkrunarfræðingurinn og lýðheilsu-
fræðingurinn Kolbrún Þórðardóttir
ætlar næsta fimmtudag, 20. október,
að vera með jógakynningartíma í
Heilsumiðstöðinni Hlíðarsmára 2 í
Kópavogi klukkan 19:00.
Kolbrún mun þar kynna 6 vikna
jóganámskeið fyrir konur sem hún
kallar ,,Jóga fyrir heilsuna – lífsstíll
fyrir mig“, en það verður frá 3. nóv-
ember til 12. desember, á mánudög-
um og fimmtudögum kl. 19:00-
20:15.
Í tilkynningu frá Kolbrúnu segir að
hún ætli á námskeiðinu að vera með
mismunandi áherslur í tímunum.
Gerðar verði mildar, styrkjandi jóga-
æfingar með áherslu á öndun inn í
orkustöðvarnar og hugleiðslu.
Hver tími kemur svo til með að
enda á djúpri slökun. Orðrétt segir
Kolbrún: „Góð heilsa kemur ekki af
sjálfu sér, við veljum okkur lífsstíl.
Mikilvægt er að setja sér markmið
og taka frá tíma til að hlúa að heils-
unni og halda utan um sjálfan sig.
Jóga styrkir sál og liðkar stirðan lík-
ama. Jóga bætir líka svefninn svo
um munar, það sýnir nýleg rannsókn
mín í lýðheilsuvísindum við Háskóla
Íslands.
Eflum innri ró og frið sem hjálpar
okkur að takast á við verkefni lífsins.
Höldum inn í veturinn með jóga.“
Nánari upplýsingar og bókanir í
síma 861 6317 og á netfanginu:
kolbrunt@mmedia.is
www.yoga.bloggar.is.
Endilega …
… farið í kynningartíma í jóga
Liðleiki Jóga er hægt að stunda hvar sem er, bæði utan dyra og innan dyra, á
bryggjunni, uppi á fjalli, úti í skógi, heima í garðinum eða á líkamsræktarstöð.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
–– Meira fyrir lesendur
MEÐAL EFNIS:
Jólahlaðborð á
veitingahúsum.
Jólahlaðborð heima.
Girnilegar uppskriftir.
Fallega skreytt jólahlaðborð.
Tónleikar og
aðrar uppákomur.
Ásamt full af
spennandi efni.
Morgunblaðið gefur út glæsilegt
sérblað um jólahlaðborð,
tónleika og uppákomur
í nóvember og desember
föstudaginn 28. október 2011
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 24. október.
Jólahlaðborð
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
SÉRBLAÐ