Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 4
Að mínu mati gekk ríkisendurskoð- andi of langt í fjöl- miðlaviðtölum með fullyrðingum um lögbrot Haraldur Johannessen Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is „Í greinargerð embættis ríkislög- reglustjóra til Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra er sýnt fram á að innkaup ríkislögreglustjóra voru lög- um samkvæm og ábending Ríkis- endurskoðunar byggð á reglugerð sem öðlaðist ekki gildi fyrr en ári eftir innkaupin. Ýmsar aðrar rangfærslur Ríkisendurskoðunar eru reifaðar í greinargerð embættis ríkislögreglu- stjóra. Ég tel að greinargerðin sé áfellisdómur yfir vinnubrögðum Ríkisendurskoðunar,“ segir í svari Haraldar Johannessen ríkislögreglu- stjóra þegar leitað var eftir við- brögðum hans, en embættið hefur sent innanríkisráðherra, Ögmundi Jónassyni, greinargerð þar sem gerð er grein fyrir tilteknum innkaupum embættisins. Ríkisendurskoðun taldi embætti ríkislögreglustjóra hafa brotið lög um opinber innkaup við kaup á vörum af fjórum fyrirtækjum í eigu lögreglu- manna eða náinna venslamanna þeirra fyrir yfir 91 milljón króna á tímabilinu janúar 2008 til apríl 2011 og að frekar hefði átt að leita tilboða. Dómstóla að dæma Haraldur segist í greinargerðinni hafa vakið athygli á þeirri spurningu hvort ríkisendurskoðandi, Sveinn Arason, hafi farið út fyrir hlutverk sitt með yfirlýsingum í fjölmiðlum um lögbrot ríkislögreglustjóra. „Að mínu mati gekk ríkisendurskoðandi of langt í fjölmiðlaviðtölum með fullyrð- ingum um lögbrot og hafði engan fyrirvara þar á. Ég fæ ekki séð að slík framkoma eigi sér nokkurt fordæmi eða stoð í lögum um Ríkisendurskoð- un nr. 86/1997 þar sem skýrt er kveð- ið á um hlutverk Ríkisendurskoðun- ar,“ segir Haraldur. Þá segir hann það ekki á valdi ríkis- endurskoðanda að kveða upp dóm um það hvort ríkislögreglustjóri fór að þeim lögum sem ríkisendurskoðun byggi meginniðurstöðu sína á; lögum um opinber innkaup og regluverk Evrópusambandsins, heldur þar til bærra dómstóla. Ríkisendurskoðandi hafnaði mati lögreglu um það þjóðfélagsástand sem ríkti á haustmánuðum 2009 þeg- ar innkaupin áttu sér stað. „Ég leyfi mér að fullyrða að ekki þekkist hjá að- ildarríkjum Evrópusambandsins að sambærilegar stofnanir og Ríkisendur- skoðun endurmeti árum eftir atburði mat lögreglu á yfirvofandi neyðar- ástandi í ríkjunum enda ekki hlutverk Ríkisendurskoðunar og aðeins á færi lögreglu og dómstóla að meta slíkt.“ Ekki náðist í innanríkisráðherra, Ögmund Jónasson, en fundað var vegna málsins í ráðuneytinu í gær. Sökuð um rangfærslur  Ríkislögreglustjóri segir greinargerð sína áfellisdóm yfir vinnubrögðum Ríkis- endurskoðunar  Spyr hvort ríkiendurskoðandi hafi farið út fyrir hlutverk sitt 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Gleðin skein úr augum barnanna í Grunnskóla Barnaspítala Hringsins þegar sýningin „Ekki snerta jörðina!“ var opnuð þar í gær. Sýningin er afrakstur rannsóknar átta safna á leikjum barna haustið 2009 en starfsmenn þeirra heimsóttu 10 ára börn víðsvegar um landið. Á sýningunni gefst börnum, og fullorðnum, kostur á því að leika sér með vinsælustu leikföngin og skoða ljósmyndir og myndbönd af börnum að leik. Viltu koma að leika? Morgunblaðið/Golli Yfirlæknir öldrunarlækningadeildar Landspítala á Landa- koti nefndi þá hugmynd við framkvæmdastjórn spítalans á kynningarfundi hennar um niðurskurðaraðgerðir að kanna sem valkost hagkvæmni þess að flytja líknardeild- ina í Kópavogi á Landakot, en ekki öfugt eins og boðað var. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir þennan möguleika hafa verið kannaðan. Af mörgum ástæðum, og sumar þeirra eigi vonandi eftir að koma í ljós, henti þessi möguleiki hins vegar ekki. Björn nefnir einnig aðrar ástæður, eins og þá að aðstaðan á Landakoti sé töluvert verri en í Kópavogi. „Það er einnig búið að kanna þetta frá öðrum hliðum og eins og staðan er nú hentar það ekki. Allt er þó áfram í athugun,“ segir Björn. Að sögn Pálma Jónssonar yfirlæknis hefur verið bent á að ein deild á annarri hæð, neðan við líknardeildina á Landakoti, hafi verið lokuð síðastliðin þrjú ár og þar sé mögulegt að útbúa viðbótarrými fyrir líknardeildirnar. Þannig náist einnig samnýting með starfseminni á Landa- koti, þar sem heilmikil önnur starfsemi fer fram. Vel geti komið til álita að kanna hagkvæmi þessa. „Hins vegar átta ég mig vel á því að það myndi fylgja veruleg tilfinningaleg vanlíðan hjá starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi að fara þaðan, og sömuleiðis fyrir þá sem styrkt hafa deildina þar. Deildin í Kópavogi er ágæt, þó að hún sé einnig tals- vert einangruð. Besti kosturinn væri auðvitað að leyfa báð- um líknardeildunum að starfa áfram þar sem starfsemin er að hluta til með mismunandi áherslur tengdar aldri og það er þörf fyrir þjónustu beggja deilda,“ segir Pálmi, sem hef- ur áhyggjur af stöðu aldraðra sjúklinga og aðstandenda þeirra sem fylgir hugsanlegri upplausn líknardeildarinnar á Landakoti og flutningi á hluta starfseminnar í Kópavog. bjb@mbl.is Vilja kanna flutning líknardeildar á Landakot Morgunblaðið/Eggert Líknardeild Starfsmenn á Landakoti hafa sett fram þá hugmynd að líknardeildin í Kópavogi flytjist til þeirra.  Forstjóri Landspítala segir þann möguleika ekki henta Stíf fundahöld voru hjá Flugfreyju- félagi Íslands um helgina en flug- freyjur og flugþjónar felldu síðast- liðinn föstudag nýgerðan kjara- samning við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair. Í kjölfar þess að samningurinn var felldur var ákveðið að skipa nýja samninganefnd og er kominn vísir að henni að sögn Krístinar Bjarna- dóttur, varaformanns félagsins, en hún hefur ekki fengið formlegt um- boð. Hún segir beðið eftir því að rík- issáttasemjari boði til samninga- fundar en að óbreyttu hefst tveggja daga verkfall flugfreyja og flugþjóna næsta mánudag, 24. október, og alls- herjarverkfall hinn 7. nóvember. Um 60% þeirra 414 sem voru á kjörskrá tóku þátt í atkvæðagreiðsl- unni en aðeins átta atkvæðum mun- aði; 119 sögðu já við samningnum en 127 nei. Þetta var í annað sinn í þess- ari samningalotu sem flugfreyjur felldu kjarasamning en sá fyrri var felldur með 85% greiddra atkvæða í lok september. holmfridur@mbl.is Styttist í verkfall Morgunblaðið/Árni Sæberg  Ekki verið boðað til sáttafundar Tveir karlmenn voru á sunnudag úr- skurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna af Héraðsdómi Reykjavíkur en þeir eru grunaðir um að hafa nauðgað ungri konu snemma sunnudagsmorguns. Friðrik Smári Björgvinsson, yf- irmaður rannsóknardeildar lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að konan hafi ekki þekkt mennina en hún hafi fengið far með þeim úr mið- borginni snemma morguns. Mennirnir voru handteknir skömmu eftir að konan tilkynnti um kynferðisbrotið. Að öðru leyti vildi lögregla ekki tjá sig um málið. Veittu far og nauðguðu Íslendingar gerðu jafntefli við Ítali, 15-15, í sjöttu umferð heims- meistaramótsins í brids í Hollandi síðdegis í gær og eru nú í 14. sæti með 85 stig en Ítalir eru efstir með 126 stig. Spilaði íslenska liðið nánast villulaust og náði sér aftur á strik eftir slæmt tap gegn Gvadelúp, 8-22, í fimmtu umferð mótsins. Hófu daginn á tapi Íslendingarnir hófu daginn í gær með því að tapa naumlega fyrir A-sveit Bandaríkjanna, 14-16, í fjórðu umferð en Bandaríkja- menn eru núverandi handhafar Bermúdaskálarinnar. Í dag mætir íslenska liðið Kína, Síle og Japan en Kína er nú í 11. sæti, Japan í 15. sæti og Síle í síðasta sæti, númer 22. Undankeppninni lýkur á laugardag og þá verður ljóst hvort íslenska liðið heldur áfram í átta liða úrslit. Heimsmeistaramótið í Hollandi í ár er það fertugasta í röðinni en Bandaríkjamenn hafa oftast unnið Bermúdaskálina, eða 18 sinnum. Ítalir koma þar á eftir með fjórtán skipti, Frakkar tvisvar og Ísland, Bretland, Brasilía, Holland og Noregur hafa unnið til skálarinnar einu sinni hvert. Jafntefli við Ítali  Íslenska liðið í fjórtánda sæti á heimsmeistaramótinu í brids Morgunblaðið/Eggert Brids Landsliðið undirbjó sig af kappi fyrir heimsmeistaramótið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.