Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.10.2011, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is GE kæliskápar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Ræningjarnir þrír sem réðust inn í úraverslunina Michelsen við Lauga- veg og tæmdu skápa fulla af dýrum úrum ganga enn lausir. Er lögregla þess fullviss að fagmenn hafi verið á ferð. Er helst litið til þess að menn- irnir hafi verið austur-evrópskir, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Var landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli strax hert ef ske kynni að ræningjarnir reyndu að komast úr landi. Tveir starfsmenn auk eiganda voru í versluninni þegar ræningjarn- ir ruddust inn um klukkan korter yf- ir tíu í gærmorgun. Voru þeir vopn- aðir byssu, sem síðar reyndist eftirlíking, og ógnuðu eigandanum með henni. Þá voru þeir með verk- færi til að brjóta öryggisgler í sýn- ingarskápum. Ávörpuðu þeir starfs- fólkið á ensku með hreim að sögn Franks Michelsen, eiganda verslun- arinnar. Byssa fannst í flóttabílnum Þegar þeir höfðu hreinsað úr af Rolex-, Tudor- og Michelsen-gerð úr sýningarskápum forðuðu ræningj- arnir sér á blárri Audi-bifreið sem lagt hafði verið fyrir utan bókaversl- un Máls og menningar. Hafði bílnum verið stolið í Gnoðarvogi og er hann í eigu starfsmanns tæknideildar lög- reglunnar. Fannst bíllinn skömmu síðar á Smáragötu. Í aftursætinu fannst önnur byssueftirlíking. Grunur leikur á að önnur bifreið sem stóð í gangi við stöðumæli á Vegamótastíg, skammt frá verslun- inni, tengist ráninu. Samkvæmt heimildum blaðsins hafði henni einn- ig verið stolið. Engin ummerki fund- ust á eða í bílunum. Telur lögregla að ræningjarnir hafi verið í hlífðarföt- um sem þeir hafi fljótlega losað sig við og jafnvel brennt að verkinu loknu. Þýfið líklega sent úr landi Að sögn Sigurðar G. Steinþórs- sonar, gullsmiðs og eiganda Gulls og silfurs á Laugavegi, er enginn mark- aður fyrir þýfi af þessu tagi hér á landi. „Ef þetta eru þekkt merki koma þeir þessu hvergi í verð á Ís- landi. Þetta verður klárlega selt er- lendis,“ segir Sigurður sem sjálfur hefur orðið fyrir barðinu á þjófum. Líklegast verði úrin sett í geymslu um tíma en síðan send úr landi innan hálfs árs eða svo, þegar ránið verði gleymt.  Vopnaðir ræningjar létu greipar sópa um sýningarskápa úraverslunar Michelsens á Laugavegi  Stálu fjölda af dýrum úrum sem enginn markaður er fyrir á Íslandi  Þýfið líklega sent úr landi Ræningjanna er enn leitað Morgunblaðið/Júlíus Flóttabíll Lögreglan leitar ummerkja í Audi-bifreið sem fannst yfirgefin á Smáragötu. Hafði bílnum verið stolið og hann notaður sem flóttabifreið. Laugavegur Verslunin Önnur stolin bifreið sem talin er tengjast ráninu finnst Flóttabifreiðin finnst Smáragata Ránið á Laugavegi Skotvopn Eftirlíking af byssu fannst í flóttabílnum á Smáragötu. Sigmundur G. Sigurgeirsson Árborg Fullt var út úr dyrum á Hótel Örk í Hveragerði í gær- kvöldi þar sem fram fór íbúafundur á vegum Orku- veitu Reykjavíkur um skjálftavirkni við Húsmúla. Til- efni fundarins voru skjálftahrinur síðustu vikna sem raktar eru til niðurdælingar á jarðhitavökva frá Hellis- heiðarvirkjun. „Ég átti nú kannski ekki von á þessu þegar ég tók við starfi mínu,“ sagði Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, í upphafi fundar en ljóst var að margir Hvergerðingar voru mættir til að fá útskýr- ingar á því við hverju mætti búast í framhaldinu. Á fundinum kynntu fjórir fulltrúar Orkustofn- unar, OR og Veðurstofu Íslands samantekt sína um skjálftavirknina og fóru yfir í máli og myndum. „Við þurfum ekki langa fyrirlestra um orsakir og afleið- ingar jarðskjálfta,“ sagði Aldís Hafsteinsdóttir, bæj- arstjóri í Hveragerði, í upphafi máls síns að afloknum erindum vísindamannanna. „Við Hvergerðingar þekkj- um jarðskjálfta, stóra sem smáa,“ bætti hún við. Hún kallaði hinsvegar eftir svörum um það hver bæri ábyrgð á því að veitt hefðu verið framkvæmdaleyfi án rannsókna á afleiðingum framkvæmdanna við virkj- unina. Ekki hefði verið minnst á það í umhverfismati, en komið í ljós í máli þeirra sem höfðu talað fyrr um kvöldið að vitneskja var um afleiðingar slíkrar nið- urdælingar. „Fólk þarf ekki annað en að „gúgla“ um slíkt til að sjá að þessu hefðu menn átt að búast við,“ sagði Aldís. Fram komu í máli bæjarbúa á fundinum nokkrar áhyggjur af ástandinu, einkanlega ef framkvæmdum yrði haldið áfram af sama krafti, og á svæðum nær bænum. „Fólk á kannski bara að flytja norður og aust- ur,“ sagði kona á miðjum aldri stundarhátt yfir þá sem henni sátu næst. Aðrir sátu og skrifuðu hjá sér spurn- ingar sem þeir hugðust beina til Orkuveitunnar, sem hafði dreift blöðum þar með spurningum um hvað það væri helst sem ylli fólki mestum áhyggjum í tengslum við framkvæmdir í Húsmúla. »6 „Fólk á kannski bara að flytja norður og austur“  Fullt var út úr dyrum á íbúafundi um jarðskjálftavirkni Morgunblaðið / Sigmundur G Sigurgeirsson Áhyggjur Vel á þriðja hundrað manns létu ekki leiðinlegt veður stoppa sig og mættu á íbúafundinn á Hótel Örk. „Gullni hringurinn“, átta daga hestaferð Íshesta þar sem riðið er um uppsveitir Suðurlands, Gnúp- verjahrepp og Hrunamannahrepp, yfir í Tungurnar, um Brúarhlöð og að Gullfossi og Geysi, lenti á dög- unum í sæti númer fjögur á lista ferðavefjar CNN, CNN Go, yfir 15 bestu hestaferðir í heimi. Segir í umsögn um Gullna hring- inn, Golden Circle, að í ferðinni sé hægt að njóta hestamennskunnar á sama tíma og helstu ferðamanna- staðir landsins séu heimsóttir, auk þess sem kvöldunum sé eytt í heitum laugum undir stjörnubjörtum himni. „Ekki tala um hestana sem smá- hesta. Það væri menningarlegt klúð- ur. Íslenskir hestar eru litlir en þessir sterku víkinga-hestar eru sagðir af Íslendingum svo harðgerir að ómögulegt sé að tala um þá sem smáhesta,“ segir enn fremur í um- sögninni. Íshestar hafa boðið upp á ferðina frá upphafsárum fyrirtækisins, sem fagnar þrjátíu ára afmæli á næsta ári. Ofar henni á lista voru hesta- ferðir í Tyrklandi, á Írlandi og í Botswana. Íslensk hestaferð sú fjórða besta  Ekki kalla íslenska hestinn smáhest „Það kemur maður inn með skammbyssu og beinir henni beint í andlitið á mér og segir á ensku: Get down, get down (leggstu niður),“ segir Frank Úlfar Michelsen, úrsmíðameist- ari og eigandi verslunarinnar. Hann hafi haldið í fyrstu að um grín væri að ræða en þegar hann leit upp sá hann að mað- urinn var með andlitið hulið og sást bara í augun á honum. „Þá vissi ég að það var alvara á ferð- um því það kom annar á eftir honum. Ég leggst á gólfið og segi starfsfólki mínu að leggj- ast niður líka og gera allt sem þeir segja,“ segir Frank. Ræningjanum þótti Frank hins vegar ekki bregðast nógu fljótt við og öskraði aftur á hann að leggjast niður. Skömmu síðar hljóp af skot. „Þeir voru kunnugir. Þeir gengu beint að skápunum sem Rolex-úrin voru í,“ segir hann. Hleyptu af byssuskoti TÖLUÐU ENSKU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.