Morgunblaðið - 18.10.2011, Side 6

Morgunblaðið - 18.10.2011, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011 FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ekki hefur áður orðið vart við skjálftahrinur í líkingu við þá sem nú gengur yfir Hellisheiði vegna niður- dælingar á affallsvatni. Dælingin svarar til rösklega tíunda hluta af meðalrennsli Elliðaánna. Um 1.900 smáskjálftar hafa mælst. Það skilyrði er í virkjana- og starfsleyfi Orkuveitu Reykjavíkur fyrir Hellisheiðarvirkjun að affalls- vatni skuli dælt aftur niður í jarð- hitageyminn. Þetta hefur verið gert frá því Hellisheiðarvirkjun tók til starfa. Að öðrum kosti hefði mynd- ast lón við virkjunina. Þar til í haust var vatninu dælt niður í borholur við Gráuhnjúka. Í minnisblaði Orku- stofnunar kemur fram að hætt hafi verið að dæla þar vegna hás hita í holunum og í staðinn farið út á jaðar háhitasvæðisins, að Húsmúla, og þar hafin niðurdæling í byrjun septem- ber. Niðurdælingarsvæðið var að fullu tekið í notkun 23. september. Áhyggjur í Hveragerði Niðurdæling hefur aukist, í takt við stækkun virkjunarinnar. Nú er dælt niður 550 lítrum á sekúndu sem svavar til rösklega tíunda hluta af meðalrennsli Elliðaánna. Dælingin hefur komið fjölda jarð- skjálfta af stað. Frá 8. september hafa mælst um 1.900 smáskjálftar. Mælinetið er þéttriðið og nemur smæstu skjálfta. Um 80 skjálftar náðu 2 stigum og sjö voru á bilinu 3- 3,8 stig. Flestir þeirra nítján skjálfta sem voru yfir 2,5 stig fundust í Hveragerði og þeir stærstu fundust einnig á höfuðborgarsvæðinu. Bæjarstjórn og bæjarstjóri Hvera- gerðis hafa lýst miklum áhyggjum af þessum skjálftahrinum. Í minnisblaðinu kemur fram að allar líkur séu til þess að smám sam- an dragi úr skjálftavirkni á svæðinu, eftir því sem niðurdælingin stendur lengur. Þrýstingur hefur hækkað og mun ná jafnvægi með tímanum. Þó er tekið fram að spenna af völdum jarðskorpuhreyfinga muni halda áfram að byggjast upp og losna úr læðingi með jarðskjálftum af og til. Þeir skjálftar muni hugsanlega verða fleiri og minni en hefði orðið án niðurdælingar. Dregið hefur úr skjálftum allra síðustu daga. Vísindamenn á Veður- stofu og hjá Orkustofnun telja að það taki svæði daga eða vikur að jafna sig, þannig að skjálftarnir hætti. Steinunn Jakobsdóttir, verkefnis- stjóri jarðváreftirlits á Veðurstofu Íslands, segir að orðið hafi vart við einstaka jarðskjálfta við boranir á Nesjavöllum og niðurdælingu á Gráuhnjúkum en ekki hrinur eins og nú hafa gengið yfir Hellisheiði. Þá kannast hún ekki við að niðurdæling jarðhitavökva í Svartsengi við Grindavík hafi valdið jarðskjálftum. Tíunda hluta Elliðaánna dælt  Niðurdæling hefur valdið 1.900 smáskjálftum á Hellisheiði á fimm vikum  Vísindamenn telja að svæðið jafni sig og smám saman dragi úr virkninni Morgunblaðið/RAX Háhiti Heita vatninu er dælt aftur niður í jarðhitakerfið. Gráuhnúkar. Gamla niðurdælingarsvæðið Húsmúli. Nýja niðurdælingarsvæðið Þingvallavatn Hveragerði Hellisheiðarvirkjun Grunnkort: Landmælingar Íslands Vegagerðin er að útbúa til- lögur um næstu skref í undirbúningi framkvæmda á Vestfjarðavegi 60 um Gufu- dalssveit. Hreinn Har- aldsson vega- málastjóri reiknar með að kynna þær fyrir innanríkisráðuneytinu og Ögmundi Jónassyni innanríkis- ráðherra á næstunni. „Við erum að skoða alla kosti til að reyna að hreyfa við málinu,“ segir Hreinn. Bæjarstjóri Vesturbyggðar og oddvitar sveitarstjórna Tálkna- fjarðarhrepps og Reykhólahrepps fóru á fund innanríkisráðherra fyr- ir helgi til að óska eftir að vega- málin yrðu tekin aftur upp. Þeir ítrekuðu afstöðu sveitarfélaganna um að farin yrði láglendisleið og fram kom í frétt á mbl.is að þær teldu að fullur skilningur væri á því hjá ráðherra. Ögmundur hefur áður lagt til að nýr vegur verði lagður yfir Ódrjúgsháls og Hjallaháls en möguleikum á jarðgöngum undir Hjallaháls þó haldið opnum. Daginn eftir fundinn birtu sveitarfélögin áskorun til þing- manna þar sem óskað er eftir lág- lendisvegi strax. helgi@mbl.is Útbúa til- lögur um næstu skref  Heimamenn hamra á láglendisleið Hreinn Haraldsson ENGIR TVEIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.