Morgunblaðið - 18.10.2011, Qupperneq 8
Guðni Einarsson
Hólmfríður Gísladóttir
Kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins,
fyrir hönd Alcan á Íslandi, og starfsmanna í
verkalýðsfélögum sem vinna í álverinu hefur
verið samþykktur með 175 atkvæðum gegn 175.
Einn skilaði auðu. Alls voru 388 á kjörskrá en
351 greiddi atkvæði.
Meirihluta greiddra atkvæða hefði þurft til að
fella samninginn samkvæmt lögum um vinnu-
deilur og stéttarfélög, nr. 80/1939, segir Kol-
beinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélags-
ins Hlífar. „Þar er kveðið á um að samningur sé
felldur ef það eru fleiri mót-
atkvæði,“ segir Kolbeinn.
Sagðist hann ekki muna eft-
ir svona hnífjafnri niður-
stöðu í kosningu um kjara-
samning.
Verkalýðsfélögin sem eiga
aðild að samningnum eru
Hlíf, VM, Félag vélstjóra og
málmtæknimanna, Rafiðn-
aðarsamband Íslands vegna
Félags íslenskra rafvirkja
og Félags rafeindavirkja, FIT, Félag iðn- og
tæknigreina, VR og Matvís.
Samþykktur með jöfnum atkvæðum
Kolbeinn
Gunnarsson
Morgunblaðið/Ómar
Álver Atkvæði starfsmanna féllu hnífjafnt.
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Það er ekkert skrítið að Rík-isútvarpið hafi áhuga fyrir Páli
Magnússyni. Það er
eiginlega sjálfsagt.
En það þýðirekki að RÚV
eigi að hafa óstjórn-
legan áhuga fyrir
hvaða Páli Magn-
ússyni sem er.
Þess vegna kom áóvart að RÚV
flytti dramatíska
frétt um að Páll
Magnússon hefði
verið ráðinn til
starfa og nú væri
orðið ljóst að honum yrði sparkað
áður en hann hæfi störf.
Hann myndi þannig slá 12 tímamet Runólfs, umboðsmanns
Samfylkingarinnar, í starfi sem Um-
boðsmaður skuldara.
Staksteinum brá við því þeir vissuekki betur en að Páll Magn-
ússon hefði verið ráðinn eftir vand-
lega yfirlegu og Óðinn leyfði honum
enn að lesa þær fréttir sem hann
skrifaði.
En svo kom á daginn að þetta varallt annar Páll Magnússon, en
þó ekki fjær en svo, að pabbi hans
las fréttir ekki síður en Páll Magn-
ússon.
En RÚV segir að ágreiningur séum ráðningu Páls hins, því
Helgi Hjörvar sé á móti honum. Sá
herskari manna sem Hjörvar er á
móti getur því farið að fletta upp í
taxta atvinnuleysisbóta.
Er ekki rétt að menn fái saka-vottorð frá Hjörvari áður en
þeir sækja? Það gerði Hrannar.
Páll Magnússon
útvarpsstjóri
Bankasýslumaður
eða hinn?
STAKSTEINAR
Páll Magnússon
bankasýslumaður
Veður víða um heim 17.10., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 0 snjókoma
Akureyri 3 rigning
Kirkjubæjarkl. 6 skýjað
Vestmannaeyjar 5 skýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 10 heiðskírt
Stokkhólmur 6 alskýjað
Helsinki 10 léttskýjað
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 15 skýjað
Dublin 5 skúrir
Glasgow 5 skúrir
London 16 léttskýjað
París 16 heiðskírt
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 12 skýjað
Berlín 12 heiðskírt
Vín 10 heiðskírt
Moskva 6 skýjað
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 22 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg 6 skýjað
Montreal 11 skúrir
New York 16 heiðskírt
Chicago 11 léttskýjað
Orlando 27 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:27 18:00
ÍSAFJÖRÐUR 8:39 17:58
SIGLUFJÖRÐUR 8:22 17:40
DJÚPIVOGUR 7:58 17:28
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Mikilvægt er að drífa í endur-
skipulagningu skulda fyrirtækja og
heimila, afnema verðtryggingu hús-
næðislána, afnema gjaldeyrishöft
sem fyrst, endurskoða skatta-
umhverfið og leggja áherslu á fjölg-
un starfa til að efla hagvöxt og draga
úr atvinnuleysi.
Þingflokkur Framsóknar-
flokksins kynnti í gær heildar-
tillögur framsóknarmanna í efn-
hags-, atvinnu- og sjávarútvegs-
málum undir heitinu Plan B en þing-
flokkurinn hefur þegar lagt fram
tvær þingsályktunartillögur á þessu
þingi. Annars vegar um sókn í at-
vinnumálum og hins vegar um
stöðugleika í efnahagsmálum. Sam-
tímis var kynnt vefsíðan planb.is,
þar sem finna má tillögurnar.
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, sagði nafnið Plan B vísa
annars vegar til listabókstafs Fram-
sóknarflokksins en líka til orða for-
sætisráðherra og fjármálaráðherra
um að ekki væri til neitt plan b og
þess vegna þyrftum við að halda
okkur við plan a.
Óvissa tefji efnahagsbata
Í tillögunum segir að lögð sé
áhersla á aðgerðir í þágu bæði fyrir-
tækja og heimila sem hafi það að
markmiði að efla stöðugleika í efna-
hagsmálum og endurskipuleggja
skuldir heimila og fyrirtækja. Óvissa
þeirra um efnahagsstöðu sína dragi
bæði úr einkaneyslu og fjárfestingu
og tefji þannig fyrir efnahagsbata. Í
atvinnumálum sé lögð áhersla á að-
gerðir sem feli í sér fjölgun starfa,
hagvaxtaraukningu og aukna vel-
ferð. Eru lagðar til ýmsar aðgerðir
sem eiga að stuðla að bættu
rekstrarumhverfi fyrirtækja og
auknum hagvexti. Settar eru fram
tillögur um úrbætur á ýmsum svið-
um atvinnulífsins sem eiga að stuðla
að uppbyggingu atvinnulífs og geta
skapað nær 12.000 varanleg og tíma-
bundin störf á næstu árum.
Lagt er til að gerðar verði
breytingar á skattaumhverfinu sem
auðveldi fyrirtækjum að fjárfesta í
atvinnulífinu og koma af stað
mannaflsfrekum fjárfestingum.
Einnig að ríkið komi strax af stað
átaki í opinberum framkvæmdum og
greiði fyrir framkvæmdum sem
einkaaðilar framkvæma fyrir það.
Verðtryggingu af í þrepum
Lagt er til að nýtt verði það
svigrúm sem fjármálastofnanir hafa
til leiðréttingar á skuldum heimila
og að verðtrygging húsnæðislána
verði afnumin í þrepum. Einnig að
skattkerfið verði einfaldað þannig að
þrepaskiptur tekjuskattur verði af-
numinn og persónuafsláttur leið-
réttur þannig að hann nái aftur
raungildi sínu og dregið úr neikvæð-
um jaðaráhrifum í skattkerfinu.
Blönduð leið í fiskveiðum
Von er á þingsályktunartillögu
um framtíðarskipan fiskveiðistjórn-
unar síðar í vetur frá framsókn-
armönnum. Er þar lögð áhersla á að
eyða óvissu og skapa sjávarútveg-
inum stöðugleika. Mikilvægt sé að
sátt náist um sjávarútvegsmál. Sjáv-
arauðlindin skuli sameign þjóð-
arinnar og mikilvægt sé að lögfesta
þýðingu þess hugtaks. Stjórnvöld
fari með eignarréttinn og úthluti
nýtingarrétti til ákveðins tíma. Far-
in sé blönduð leið við stjórn fiskveiða
þannig að áfram verði byggt á afla-
hlutdeildarkerfi en einnig tekið upp
nýtt fyrirkomulag úthlutana með
byggðasjónarmið í huga.
Plan B Formaður Framsóknarflokksins sagði tillögur þingmannanna
sýna hverju flokkurinn vildi berjast fyrir. Þær settu aðra í þá stöðu að ann-
aðhvort fallast á að skoða þær eða koma fram með betri hugmyndir.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Plan B til
lausnar efna-
hagsvandanum
Þingmenn Framsóknar segja hægt
að skapa 12.000 störf á næstu árum