Morgunblaðið - 18.10.2011, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Þúsundir kvenna mótmæltu fyrir utan utanrík-
isráðuneytið í Sanaa, höfuðborg Jemens, í gær
þar sem mótmælendur voru skotnir til bana á
laugardag og kröfðust þess að forseti landsins,
Ali Abdullah Saleh, segði af sér. Átta manns lét-
ust í átökum í Jemen í fyrrinótt og 27 særðust, að
sögn fréttastofunnar AFP. Mörg þúsund konur
mótmæltu einnig í næststærstu borg landsins,
Taez, og fordæmdu morðið á Azizu Ghaleb á
sunnudag. Hún er fyrsta konan sem hefur látið
lífið í mótmælum í Jemen frá því þau hófust í jan-
úar.
Reuters
Mörg þúsund konur mótmæltu í Jemen
Reiði ríkir í Kína
út af myndum,
sem sýna hátt á
annan tug veg-
farenda ganga
án þess að hafast
að framhjá
tveggja ára
stúlku sem ligg-
ur stórslösuð á
götu í bænum
Foshan í Suður-
Kína. Stúlkunni, sem heitir Yue
Yue, er ekki hugað líf. Fyrst varð
hún fyrir sendibíl og svo vörubíl.
Að sögn fréttastofunnar Xinhua
kom sorphirðumaður stúlkunni
loks til aðstoðar. Hann kallaði á
hjálp án þess að nokkur virti hann
viðlits þar til móðir stúlkunnar kom
að. Var stúlkan þá flutt á sjúkra-
hús. Náðust myndir af atvikinu á
eftirlitsmyndavél. Kínverskir net-
miðlar loga út af málinu.
Vegfarendur gengu
framhjá stórslösuðu
barni á götu í Kína
Stórslösuð Yue
Yue á sjúkrahúsinu.
Suðurkóreski
stofnfrumu-
líffræðingurinn
Hwang Woo-Suk
sýndi í gær átta
ameríska sléttu-
úlfa, sem hann
hefur klónað
með stuðningi
héraðsyfirvalda í
Suður-Kóreu.
Hwang var í
miklum metum í Suður-Kóreu þar
til upp komst að hann hafði falsað
niðurstöður tilrauna til að búa til
mannastofnfrumur úr klónuðu
fóstri. Sérfræðingar hafa hins veg-
ar staðfest að allt hafi verið með
felldu þegar hann skapaði Snuppy,
fyrsta klónaða hund veraldar, árið
2005.
Klónaði sléttuúlfa
í Suður-Kóreu
Sköpun Einn klón-
uðu sléttuúlfanna.
Loftslagsbreyt-
ingar hafa áhrif
á stærð margra
dýra- og plöntu-
tegunda, sam-
kvæmt rannsókn,
sem birt var á
sunnudag. Þar á
meðal eru teg-
undir, sem rúm-
lega milljarður
manna við hung-
urmörk treystir á til næringar. Vís-
indamennirnir Jennifer Sheridan
og David Bickford við þjóðarhá-
skólann í Singapore sögðu að nærri
45% tegundanna, sem þau rannsök-
uðu, hefðu minnkað frá kynslóð til
kynslóðar vegna hækkandi hita-
stigs og breytinga á regnmynstri í
heiminum. Á óvart kom að plöntur
skyldu minnka við hlýnunina.
Smærri plöntur og
dýr vegna hlýnunar
Hlýnun Græneðlur
hafa minnkað.
Kosningar til stjórnlagaþings verða haldnar á
sunnudag í Túnis þar sem arabíska vorið hófst
í janúar þegar borgarar landsins steyptu
stjórn Zine el Abidine Ben Ali, sem hafði verið
við stjórnvölinn í 23 ár.
Kosningarnar verða flóknar. Kjósa á 217
fulltrúa á stjórnlagaþingið. Rúmlega 10 þús-
und manns eru í framboði á vegum rúmlega
100 flokka. Flestir hafa frambjóðendurnir uppi
svipuð kjörorð um frelsi, lýðræði og félagslegt
réttlæti. Helmingur frambjóðenda er konur.
Þinginu er ætlað að semja þriðju stjórn-
arskrá landsins. Hinar eru frá 1861 og 1959, en
Túnis hlaut sjálfstæði 1956. Það á einnig að
mynda þing og kjósa forseta.
Búist er við að flokkurinn Ennahda, eða
Endurreisnarflokkurinn, sem hallast að íslam-
istum, fái mest fylgi í kosningunum. Hins veg-
ar er um hlutfallskosningu að ræða og á það að
tryggja að sem víðtækust sjónarmið komist
að.
Hin veraldlegu öfl hafa engu að síður nokkr-
ar áhyggjur og hafa látið gera auglýsingar,
sem heita „Daginn eftir“. Í einni þeirra sést
kona, sem nú þarf að láta starf sitt eftir karl-
manni. Í þessum auglýsingum er reynt að
keyra á óttann við að nái íslamistar að móta
stjórnarskrána muni túnískt samfélag taka
grundvallarbreytingum.
Konur búa við meira frelsi í Túnis en konur í
flestum múslímaríkjum. Þar er einnig drukkið
vín.
Talsmenn Ennahda segja að flokkurinn ætli
hvorki að innleiða íslömsk sharia-lög né fjöl-
kvæni. Staða kvenna verði tryggð. Rachid
Ghannouchi, leiðtogi flokksins, sem sneri úr
útlegð til Túnis eftir að Ben Ali hrökklaðist frá
völdum, segist vera hófsamur og ber sig sam-
an við Recep Tayyip Erdogan, forsætisráð-
herra Tyrklands, og flokk hans.
Mikið er af óháðum frambjóðendum og hef-
ur fréttastofan AFP eftir sérfræðingum að
þeir telji það sýna tortryggni í garð stjórn-
málaflokka á borð við Ennahda, sem margir
líta á að ætli sér að njóta ávaxta byltingar, sem
þeir áttu engan þátt í.
Ahmed Nejib Chebbi, leiðtogi Framsækna
lýðræðisflokksins, var harður gagnrýnandi
Bens Alis. Hann hefur stillt sér upp sem helsta
keppinauti Ennahda og er flokkur hans næst-
stærstur samkvæmt könnunum. Rúmlega
helmingur kjósenda hefur ekki enn gert upp
hug sinn, ef marka má kannanir. kbl@mbl.is
Stjórnlagaþing kosið í Túnis
Rúmlega 10.000 frambjóðendur kljást um 217 sæti Helmingur frambjóðenda er konur Verald-
leg öfl takast á við íslömsk í landi frumkvöðla arabíska vorsins Íslamskur flokkur með mest fylgi
Sá sem sigrar mun hafa
framtíð Túnis um ókom-
in ár á valdi sínu.
Hamadi Redissi,
stjórnmálafræðingur
BAKSVIÐ
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Carl Bildt, utanríkisráðherra Sví-
þjóðar, hefur verið harðlega gagn-
rýndur fyrir að hafast ekki að í máli
tveggja sænskra blaðamanna sem
handteknir voru í Eþíópíu í sumar og
verða dregnir fyrir dóm í dag. Johan
Person ljósmyndari og Martin
Schibbye blaðamaður voru hand-
teknir í héraðinu Ogaden 1. júlí eftir
að þeir komu inn í landið frá Sómalíu
í fylgd með skæruliðum Þjóðfrelsis-
hreyfingar Ogaden. Þeim er gefið að
sök að hafa tekið þátt í hryðjuverka-
starfsemi, leggja hryðjuverkasam-
tökum lið og komið ólöglega inn í
landið. Person og Schibbye eiga yfir
höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi
verði þeir sekir fundnir.
Bildt var gagnrýndur strax eftir
handtökuna fyrir að krefjast þess
ekki tafarlaust að blaðamennirnir
yrðu þegar látnir lausir. Skömmu
síðar gaf Bildt til kynna að þeir gætu
sjálfum sér um kennt því að þeir
hefðu verið á ferð „á slóðum sem við
höfum gefið út um ferðaviðvörun“.
Bildt skoraði síðar á stjórnvöld í
Eþíópíu að sleppa mönnunum, en
honum var áfram legið á hálsi fyrir
að draga lappirnar í upphafi þegar
auðveldara hefði verið að knýja fram
lausn þeirra.
Gagnrýnin á Bildt magnaðist síð-
an þegar sænskir fjölmiðlar greindu
frá því í september að Person og
Schibbye hefðu verið í Ogaden, sem
er í suðausturhluta Eþíópíu, til að
rannsaka starfsemi félags sem teng-
ist sænska olíufélaginu Lundin Petr-
olium, þar sem Bildt sat í stjórn frá
árinu 2000 þar til hann varð utanrík-
isráðherra 2006. Samkvæmt
fréttum hugðust þeir fjalla
um mannréttindabrot,
sem Eþíópíuher hefði
framið í Ogaden til að
vernda erlendu olíufyrir-
tækin, þar á meðal Lundin,
í baráttunni við
skæruliðahreyf-
inguna. Hreyfingin
hefur undanfarin 15 ár barist við
stjórnarherinn fyrir auknu sjálf-
stæði Ogaden.
Þrýst hefur verið á Bildt að gera
grein fyrir störfum sínum fyrir
Lundin Petroleum. Á sunnudag
sagði hann við Svenska Dagbladet
að hann hefði verið farinn úr stjórn
Lundin þegar félagið fékk leyfi til
olíurannsókna í Eþíópíu. Áður hafði
hann fordæmt pólitíska herferð á
hendur sér og ítrekað sagt að
stjórnarseta sín í Lundin hefði eng-
in áhrif haft á viðbrögð vegna hand-
töku blaðamannanna.
Olíufélagið vill ekki svara spurn-
ingum um fyrri starfsemi þess í
Ogaden og vísar til þess að fyrirtæk-
ið Africa Oil Corporation hafi keypt
réttinn til að leita að olíu í Eþíópíu
2009. Kaupin voru hins vegar fjár-
mögnuð með láni frá Lundin til Af-
rica Oil og í apríl var láninu breytt í
hlutabréf í Africa Oil sem seld voru
á markaði. Lundin-fjölskyldan á
hlut í Africa Oil og kemur fram í
Svenska Dagbladet að hann sé rúm-
lega 10%.
Veist að Bildt út af blaða-
mönnum í haldi í Eþíópíu
Væna utanríkisráðherra Svíþjóðar um aðgerðaleysi út af stjórnarsetu í olíufélagi
Í Svenska Dagbladet segir að
Bildt hafi farið úr stjórn Lundin
Petroleum 18. október 2006. Í
nóvember keypti félagið réttinn
til að leita að olíu í vesturhluta
Ogaden af eþíópískum yfir-
völdum. Samkomulagið er nefnt
í ársfjórðungsskýrslu frá 15.
nóvember. 11 stjórnarfundir
voru haldnir í Lundin 2006 áður
en Bildt hætti í stjórninni. Hann
sat átta þeirra. Ekki er ljóst
hvort olíuleitarleyfið
var nefnt á þeim fund-
um. Fimm af sjö
stjórnarfélögum
Bildts sitja enn í
stjórninni.
Munaði að-
eins mánuði
STJÓRNARSETA BILDTS
Carl Bildt