Morgunblaðið - 18.10.2011, Page 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
✝ Anna Hlínfæddist í
Reykjavík 3. októ-
ber 1944. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 10.
október 2011.
Foreldrar henn-
ar voru Margrét S.
Kristjánsdóttir frá
Hnífsdal, f. 1916, d.
2004, og Guð-
mundur Sæmunds-
son frá Nikulásarhúsum í Fljóts-
hlíðarhr., Rang., f. 1891, d. 1966.
Alsystkini Önnu Hlínar eru Guð-
björg, f. 1942, Kristín, f. 1946,
og Olga, f. 1953. Hálfsystkini
samfeðra eru Sæmundur, f.
1914, d. 1985, Þóra, f. 1916, d.
1988, Trausti, f. 1919, d. 2002,
Fjóla, f. 1920, d. 2000, Víg-
lundur, f. 1922, d. 2010, Gunnar
Níels, f. 1924, d. 2010, Sólveig, f.
1927, d. 1974, Rakel, f. 1930,
Teitur, f. 1931, og Ásta, f. 1934.
Anna Hlín giftist eftirlifandi
eiginmanni sínum, Guðmundi
Hlíðar Björnssyni, f. 30.10. 1942,
hinn 29. september 1962, þau
eignuðust fjögur börn: 1) Krist-
björg, f. 2.2. 1963, í sambúð með
Árna Ingólfssyni, f. 9.7. 1948,
börn hans úr fyrri samböndum
eru: Kristín Álfheiður, f. 5.8.
1972, Freydís Helga, f. 17.5.
1978, Atli Steinn, f. 7.3. 1986, og
Helga, f. 18.5. 1988, saman eiga
þau tvo syni, Hörð Inga, f. 5.3.
1993, og Tryggva Þór, f. 30.8.
1996, fyrir á Kristbjörg Önnu
Hlín Brynjólfsdóttur, f. 1980,
sem á soninn Kristján Val, f.
2003. 2) Guðmundur, f. 7.8.
1965, í sambúð með Unnie Just-
inusen, f. 21.1. 1962, saman eiga
þau Markús, f. 21.7. 1996, og
Sjöfn, f. 21.1. 2000.
3) Dröfn Hlíðar, f.
18.12. 1969, í sam-
búð með Jóni Inga
Ingibergssyni, f.
26.12. 1969, sonur
hans úr fyrri sam-
búð er Ingiberg
Ólafur, f. 3.3. 1995,
saman eiga þau
Halldóru Sif, f.
2003, og Guðmund
Pál, f. 2005, fyrir á
Dröfn Elínu Önnu Guðmunds-
dóttur, f. 15.10. 1991. 4) Rann-
veig Hlíðar, f. 30.9. 1976, í sam-
búð með Kristjáni Jóhanni
Finnbjörnssyni, f. 1.4. 1972, son-
ur hans úr fyrri sambúð er Jök-
ull Þór, f. 15.12. 1996, saman
eiga þau eina dóttur, Oddnýju
Perlu, f. 12.9. 2004, fyrir á
Rannveig Einar Loga Guð-
mundsson, f. 2.12. 1997.
Anna Hlín og Guðmundur
trúlofuðu sig hinn 1. desember
1961 og giftu sig ári síðar, 29.
september 1962. Anna Hlín var
heimavinnandi húsmóðir til árs-
ins 1978 þegar hún byrjaði að
vinna á leikskólanum Fellaborg.
Þar kynntist hún samstarfs-
konum sínum, Sjöfn og Jónu.
Þær fylgdust svo allar að og
fluttu sig saman á leikskólann
Hraunborg, en lengst voru þær
saman á Barónsborg í Reykjavík
eða þar til Anna Hlín varð að
hætta vinnu sökum veikinda
2005. Fjölskyldan átti ætíð hug
hennar allan og naut hún sam-
vista við hana allt fram á síðustu
stundu.
Útför Önnu Hlínar fer fram
frá Keflavíkurkirkju í dag, 18.
október 2011, og hefst athöfnin
kl. 11.
Í dag kveðjum við ástkæra
mágkonu okkar sem hefur glímt
við illvígan sjúkdóm um langa
hríð. Anna Hlín kom inn í fjöl-
skyldu okkar aðeins 15 ára þegar
hún kynntist Mugg stóra bróður
okkar, stórglæsileg með sitt síða
fallega rauða hár. Anna Hlín var
mjög sterk, hlý og dugleg kona.
Hún reyndist okkur alla tíð mjög
vel og kenndi okkur margt á lífs-
leiðinni.
Anna Hlín var mjög listræn og
eftir hana liggja margir fallegir
munir.
Hún var mjög yfirveguð og
aldrei gátum við greint það að
hún væri eins veik og hún var í
raun, því hún var alltaf með hug-
ann við líðan annarra.
Mikill er missirinn hjá Mugg
bróður, börnum og fjölskyldum
þeirra. Við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð og biðjum góðan
Guð að styrkja ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Anna Hlín, hvíl í friði.
Þín minning mun ætíð lifa í hjört-
um okkar.
Birna, Stefanía og
fjölskyldur.
Nú er kvödd yndisleg kona,
Anna Hlín Guðmundsdóttir.
Anna Hlín var samstarfskona
okkar í leikskólanum Barónsborg
um árabil. Þar áður vann hún
með nokkrum okkar í leikskólan-
um Fellaborg og Leikskólanum
Hraunborg en hóf störf í Baróns-
borg árið 1986.
Anna Hlín var ákaflega sam-
viskusöm og góður starfsmaður.
Hún var stundvís með afbrigðum
og alltaf var hægt að treysta því
að hún mætti á réttum tíma í
vinnu. Í leikskólum er oft mikið
álag á starfsfólki og eins gott að
sofa ekki á verðinum þegar um
lítil börn er að ræða og nauðsyn-
legt að hafa þolinmæðina í lagi.
Af þolinmæði átti Anna Hlín nóg.
Hún sinnti börnunum með mikilli
hlýju og alúð og var hennar sárt
saknað, bæði af börnum og full-
orðnum þegar hún varð að hverfa
úr vinnu vegna erfiðra veikinda
fyrir nokkrum árum.
Í starfshópnum var hún ávallt
vel liðin. Hún var ætíð ljúf og
þægileg í samstarfi þannig að
aldrei bar skugga á. Það var
sama með hverjum Anna Hlín
vann á deild, alltaf var samstarfið
ljúft og andrúmsloftið þægilegt.
Framkoma hennar gagnvart for-
eldrum var ætíð til fyrirmyndar
og treystu þeir henni vel fyrir
litlu englunum sínum.
Það er sárt að þurfa að kveðja
Önnu Hlín svo langt um aldur
fram en jafnframt gott að vita að
nú er hún laus við allar þjáningar.
Guðmundi og börnum þeirra
Önnu Hlínar sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sjöfn Ólafsdóttir og
samstarfsfólk Önnu
Hlínar í Barónsborg.
Anna Hlín
Guðmundsdóttir
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HAUKUR SVAVAR ÁSTVALDSSON,
Skeiðarvogi 20,
síðast til heimilis á
hjúkrunarheimilinu Mörk,
lést miðvikudaginn 12. október.
Útförin mun fara fram frá Langholtskirkju fimmtudaginn
20. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarkort hjá hjúkrunarheimilinu
Mörk.
Hulda Guðmundsdóttir,
Guðrún Guðmunda Hauksdóttir, Albert Svanur Heimisson,
Hulda María Albertsdóttir,
Ingibjörg Helena Albertsdóttir,
Kristbjörg Sóley Hauksdóttir,
Sigurey Svava Sóleyjardóttir,
Alexandra Ósk Sóleyjardóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför móður
minnar, tengdamóður, stjúpmóður, ömmu og
langömmu,
GUÐNÝJAR ÁSTRÚNAR
VALDIMARSDÓTTUR
handavinnukennara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar fyrir hlýja og góða
umönnun.
Magnús Þór Aðalsteinsson, Steinunn Brynjarsdóttir,
Guðný Aðalsteinsdóttir,
Bryndís Björnsdóttir, Magni S. Sigmarsson,
Ásdís Björnsdóttir, Guðni Már Harðarson,
Brynjar Steinn Magnússon
og langömmubörn.
✝
Okkar ástkæri
BJÖRN BRYNJÓLFSSON
húsasmíðameistari,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 13. október.
Útför fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn
20. október kl. 13.30.
Sigríður Jónasdóttir og fjölskylda,
Guðrún Þóra Björnsdóttir, Ingibjörn Sigurbergsson,
Kristín Lilja Björnsdóttir, Kim Magnús Nielsen,
Kristin Hultgren, Lahib Mekrami,
Sveinbjörg Þóra Brynjólfsdóttir, Alfreð Guðmundsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSLAUG EYÞÓRSDÓTTIR,
Birkihvammi 4,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 12. október.
Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 19. október
kl. 13.00.
Eiríkur Ágústsson,
Sesselja Eiríksdóttir, Alfreð Dan Þórarinsson,
Hafsteinn Eiríksson,
Ágúst Þór Eiríksson, Guðbjörg Þórisdóttir,
Haraldur Ragnar Ólafsson, Hafdís Jensdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýju við andlát og útför
elskulegrar dóttur og fósturdóttur,
BJARNEYJAR ERLU SIGURÐARDÓTTUR,
Baddýjar.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
heimahlynningar Landspítalans fyrir einstakan
stuðning og hlýju.
Guðrún Jensdóttir, Halldór Steingrímsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir og amma,
ÞÓRA JÓNSDÓTTIR,
Reykjaheiðarvegi 10,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga föstu-
daginn 14. október.
Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 22. október kl. 14.00.
Ingólfur Árnason,
Helga Þráinsdóttir,
Þráinn Maríus Ingólfsson,
Þórólfur Jón Ingólfsson, Díana Jónsdóttir,
Berglind Ósk Ingólfsdóttir
og barnabörn.
✝
HERLUF CLAUSEN
fyrrverandi formaður
Vörubílstjórafélagsins Þróttar
og Landssambands vörubifreiðastjóra,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi
laugardaginn 8. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstu-
daginn 21. október kl. 15.00.
Aðstandendur.
✝
Útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR JAKOBSDÓTTUR LÍNDAL,
sem lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn
8. október, fer fram frá Áskirkju föstudaginn
21. október kl. 13.00.
Kristinn Gíslason,
Jakob Líndal Kristinsson, Kristín Gísladóttir,
Halldóra Kristinsdóttir, Þorkell Traustason,
Gísli Kristinsson, Bjarney Sigvaldadóttir,
Jónína Vala Kristinsdóttir, Gylfi Kristinsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KONRÁÐ RAGNARSSON
frá Hellissandi,
lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi sunnudaginn
16. október.
Útför hans fer fram frá Ólafsvíkurkirkju
föstudaginn 21. október kl. 14.00.
Þórný Axelsdóttir,
Ragnar Konráðsson, Aðalheiður Aðalsteinsdóttir,
Bylgja Konráðsdóttir, Jónas Kristófersson,
Gylfi Freyr Konráðsson, Rakel Sveinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir og afi,
PÁLL HERSTEINSSON
prófessor,
lést á Landspítala við Hringbraut fimmtu-
daginn 13. október.
Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 21. október kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er
bent á Hjartavernd.
Ástríður Pálsdóttir,
Hersteinn Pálsson, Elínborg Hákonardóttir,
Páll Ragnar Pálsson, Ragnhildur Kristjánsdóttir,
Margrét Ásgeirsdóttir,
Inga Hersteinsdóttir
og barnabarn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ANNÝ ÁSTRÁÐSDÓTTIR,
áður til heimilis að Bleikjukvísl 2,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn
14. október.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
20. október kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkinu á hjúkrunardeild
1B fyrir einstaka umhyggju, alúð og hlýju sem það sýndi henni
og okkur öllum.
Pálmi Friðriksson,
Erla Pálmadóttir, Sigurður S. Gunnarsson,
Pálmi Pálmason, Björg Jónsdóttir,
Greta Marín Pálmadóttir, Sigurður Sigurðsson,
Auður Pálmadóttir, Óskar M. Tómasson,
Ómar Þ. Pálmason, Hulda E. Björgvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.