Morgunblaðið - 18.10.2011, Side 26
26 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2011
Sudoku
Frumstig
1 8 3 6
2 4
3 4 9 5 8
9 5 6
3
9 1
6 5 1
8 2 4 5
9 4
7 4 6
6 8 1
1 7 4
4 7 3
2 4
2 3 8 6 7
8 1
2
2 6 5
9 7 4 5 6
8 9 4
6 4
8
2 1 8
6 5 1
3 4
1 7 5 2
3 5 1 4 8 6 2 7 9
6 7 8 1 9 2 3 4 5
9 2 4 5 7 3 1 6 8
1 6 5 2 3 8 7 9 4
4 8 3 7 1 9 5 2 6
7 9 2 6 5 4 8 3 1
2 4 7 8 6 5 9 1 3
5 1 9 3 4 7 6 8 2
8 3 6 9 2 1 4 5 7
7 6 1 2 3 5 8 9 4
8 9 5 7 6 4 3 2 1
4 2 3 9 1 8 6 5 7
5 8 4 3 7 6 9 1 2
1 3 2 5 4 9 7 6 8
9 7 6 1 8 2 4 3 5
3 4 9 8 5 1 2 7 6
6 5 7 4 2 3 1 8 9
2 1 8 6 9 7 5 4 3
4 5 1 7 6 9 3 2 8
9 6 7 3 8 2 5 1 4
3 2 8 4 1 5 6 7 9
8 4 6 9 3 1 7 5 2
2 9 3 6 5 7 8 4 1
7 1 5 2 4 8 9 6 3
1 3 9 5 2 6 4 8 7
6 8 4 1 7 3 2 9 5
5 7 2 8 9 4 1 3 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 18. október,
291. dagur ársins 2011
Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar
á hann, því að hann ber umhyggju fyr-
ir yður. (1Pt. 5, 7.)
Víkverji hefur verið vel meðvit-aður um þá staðreynd að í um-
ferðinni eru því miður ökumenn sem
hefðu betur aldrei fengið próf og eru
með öllu óhæfir og hættulegir um-
hverfi sínu, ekki endilega öku-
tæknilega séð heldur ekki hvað síst
siðferðilega. Þetta kom berlega í ljós
nýverið er Víkverji var með ungling-
inn á heimilinu í æfingaakstri á göt-
um borgarinnar. Þá var gylltri
glæsikerru, sem var að koma af bíla-
stæði, skyndilega ekið í veg fyrir bíl
Víkverja, sem var í fullum rétti.
Munaði engu að árekstur yrði.
Fyrstu viðbrögð Víkverja voru að
flauta og láta hinn brotlega öku-
mann gera sér betur grein fyrir at-
hæfinu. Um borð í glæsibílnum voru
tveir fullorðnir og jakkaklæddir
menn og það var ekkert með það að
bílstjórinn gaf Víkverja og syni hans
f-merkið með áberandi puttahreyf-
ingu og fyrirlitningarsvip. Síðan var
spænt af stað. Eftir sat Víkverji agn-
dofa í framsætinu og ekki var undr-
un hins unga ökumanns minni yfir
þessari uppákomu. Því miður var
númerið ekki tekið niður á gyllta
bílnum því réttast hefði verið að til-
kynna þetta aksturslag og hegðun til
lögreglunnar.
x x x
Það eru einmitt svona ökumennsem eru stórhættulegir um-
hverfi sínu og ætti að taka úr umferð
án tafar. Þetta eru heldur ekki fyrir-
myndirnar sem ökumenn í æf-
ingaakstri þurfa á að halda, en Vík-
verji reyndi að nota þetta atvik í
æfingakennslunni sem víti til varn-
aðar, nákvæmlega svona ætti ekki
að haga sér í umferðinni. Þessir
herramenn virtust allsgáðir en vera
kann að þeir hafi verið á einhverjum
örvandi efnum sem framkölluðu f-
merkið með jafn áberandi hætti.
Daglega berast af því fregnir að lög-
reglan stöðvi ökumenn, grunaða um
neyslu fíkniefna og annarra vímu-
efna, jafnvel foreldra sem eru á ferð-
inni með börn sín í aftursætinu. Þó
er Víkverji þess fullviss að í um-
ræddu atviki hafi einfaldlega alls-
gáðir asnar verið á ferðinni; ófor-
skammaðir og illa uppaldir.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 högni, 4 lítilfjör-
lega persónu, 7 kompa, 8
furða, 9 tvennd, 11 efn-
islítið, 13 orka, 14 játa, 15
listi, 17 dægur, 20 espa, 22
kipps, 23 þreytuna, 24 ok,
25 hindri.
Lóðrétt | 1 hestur, 2
ólyfjan, 3 lund, 4 durgur, 5
smákvikindi, 6 líkamshlut-
irnir, 10 útskagi, 12 greina
frá, 13 ambátt, 15 kalviður,
16 hirða um, 18 viljugt, 19
nes, 20 óska eftir, 21 bára.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt 1 fólskuleg, 8 leiti, 9 dugur, 10 pár, 11 suddi, 13 ann-
an, 15 holls, 18 hrúts, 21 ein, 22 lofti, 23 alveg, 24 dapurlegt.
Lóðrétt 2 ómild, 3 skipi, 4 undra, 5 engin, 6 glás, 7 hrín, 12
dul, 14 nár, 15 hali, 16 lyfta, 17 seigu, 18 hnall, 19 útveg, 20
segl.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Með stírur í augum.
Norður
♠KG983
♥K10
♦Á106
♣K75
Vestur Austur
♠-- ♠D62
♥ÁG92 ♥D8763
♦8754 ♦2
♣G10984 ♣Á632
Suður
♠Á10754
♥54
♦KDG93
♣D
Suður spilar 5♠.
Ísland mætti Svíþjóð í fyrstu umferð
HM, snemma á sunnudagsmorgun.
Leikurinn var sýndur beint á Bridge-
base.com og höfðu árrisulir áhuga-
menn vart hrært í fyrsta kaffibollanum
þegar verulega dró til tíðinda. Upp-
hafsspilið var reyndar rólegur bútur,
en síðan datt hver stórsveiflan af ann-
arri í íslenska dálkinn. Í spilinu að ofan
hættu Fallenius og Fredin sér upp á
fimmta þrepið í slemmuleit. Bjarni
Einarsson kom út með ♣G, Aðalsteinn
Jörgensen drap með ás og spilaði laufi
aftur til baka. Fallenius henti hjarta
heima, nokkuð feginn, spilaði svo spaða
úr blindum og lét kónginn. Óheppinn,
því líkur á öllum trompunum í austur
eru einungis 11%. Hinum megin stöns-
uðu Jón Baldursson og Þorlákur Jóns-
son í 4♠ og unnu fimm þegar Þorlákur
hitti í spaðann.
18. október 1906
Sjö hús brunnu á Akureyri og
um áttatíu manns misstu
heimili sín. „Mesti húsbruni á
Íslandi,“ sagði blaðið Norður-
land.
18. október 1954
Einar Jónsson myndhöggvari
lést, 80 ára. Hann var lengi við
nám og störf erlendis en flutt-
ist heim 1920. Einar gaf ís-
lensku þjóðinni verk sín og
eru þau varðveitt í safni hans.
18. október 2006
Heimilað var að hefja hval-
veiðar í atvinnuskyni, eftir
sautján ára hlé. Fyrsta árið
var leyft að veiða 9 langreyðar
og 30 hrefnur, til viðbótar við
39 hrefnur í vísindaskyni.
18. október 2008
Fjöldi fólks kom saman á
Austurvelli til að mótmæla
bankahruninu. Mótmæla-
fundir voru vikulega fram í
mars, með hléi um jólin.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist…
Víðir Tómasson er 65 ára gamall í dag en segist
ekki ætla að gera neitt í tilefni dagsins. „Ekki
nema bara með nánustu fjölskyldunni. Svo gerum
við eitthvað sniðugt á laugardaginn,“ segir Víðir
sem segir ekkert annað liggja fyrir þá en að bjóða
fjölskyldunni heim í afmæliskaffi.
Víðir er rafvirki hjá Isavia en hann sér um alla
brautarlýsingu á Keflavíkurflugvelli. Þegar hann
er ekki að vinna eru golfið og landnámshænurnar
helstu áhugamálin.
„Ég á sex hænur sem eru allar í garðinum hjá
mér,“ segir Víðir en hænurnar eru duglegar að verpa. Aðspurður
svarar hann því til að nágrannarnir séu síður en svo ósáttir við þessa
fiðruðu nágranna.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Víðir heldur hænur. „Ég er búinn að
vera með þessar síðan snemma í vor, þegar ég fór og náði í pínulitla
páskaunga sem gerðu agalega lukku hjá krökkunum.“
Víðir var upphaflega með 16 páskaunga en gaf tvo frá sér. „Þetta
er svona lítið hobbí og þær eru voðalega skemmtilegar. Það er eigin-
lega aðalskemmtunin þegar maður situr og horfir á þær,“ segir Víðir.
„Þær eru svo uppátækjasamar.“ sigrunrosa@mbl.is
Víðir Tómasson rafvirki 65 ára
Á uppátækjasamar hænur
Söfnun
Í maímánuði komu fimm
krakkar á Patreksfirði
með peninga, 3.000 kr.,
sem þau höfðu safnað á
tombólu og færðu RKÍ.
Þau heita: Arnheiður
Breiðfjörð Gísladóttir,
Ísak Ernir B. Davíðsson,
Jón Grétar Helgason,
Rakel Jóna B. Davíðs-
dóttir. Á myndina vantar
Victor Sörla Wegorek.
Flóðogfjara
18. október Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 3.24 1,1 9.41 3,4 16.02 1,3 22.08 3,0 8.27 18.00
Ísafjörður 5.31 0,6 11.41 1,9 18.15 0,7 8.39 17.58
Siglufjörður 2.08 1,1 7.49 0,5 14.04 1,2 20.30 0,4 8.22 17.40
Djúpivogur 0.33 0,6 6.49 1,8 13.13 0,7 18.58 1,6 7.58 17.28
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Gættu þess að gaumgæfa smáatriðin
ekki síður en þau stærri. Njóttu þess að hafa
haft betur í deilumáli. Gerðu þér dagamun
með þínum nánustu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ekki er víst að þú sért á réttum stað. Þú
gætir verið við það að umbylta lífi þínu, en
taktu þér góðan tíma í það.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú átt erfitt með að gera það upp
við þig hvort þú eigir að setja sjálfa/n þig eða
aðra í forgang. Reyndu að láta það ekki á þig
fá þó mikið sé að gera. Rólegri tíð er fram-
undan.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Einmitt þegar þér finnst þú hafa
reynt flest, gerist eitthvað ógurlega spenn-
andi. Láttu ekki gömul mistök angra þig.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Stundum eignast maður sérkennilega
bandamenn sem reynast manni eins og
bestu vinir. Stefnir þú í rétta átt eða hefur þú
sætt þig við stefnumótun einhvers annars?
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Hafðu samband við manneskju sem
þú hefur hugsað hlýlega til upp á síðkastið.
Hafðu ekki áhyggjur af öðrum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ringulreið í samskiptum þínum við ást-
vini þína í dag veldur þér áhyggjum. Eitthvað
óvænt og örvandi mun gera daginn ánægju-
legan.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þið þurfið ekki að láta eins og
engum líki við ykkur. Að gera eitthvað að óat-
huguðu máli er ávísun á vandræði.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er nauðsynlegt að þú getir
greint á milli staðreynda og staðleysu og sért
snögg/ur að því.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert staðráðin/n í að koma hlut-
unum í verk í dag. Tafir og misskilningur hafa
litað dagana en nú verður breyting á.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Taktu þér tíma til þess að skoða
málin vandlega áður en þú tekur ákvörðun.
Rífðu þig lausa/n og gerðu það sem þú þarft
til þess að svo geti orðið án þess þó að það
særi aðra.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Stutt ferðalag í dag mun bæði gleðja
þig og uppörva. Ef tækifæri til hvíldar gefst
skaltu stökkva á það.
Stjörnuspá
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Rc3 b5 6. Be3 Bb7 7. Bd3 Rf6 8. f3
Dc7 9. Rb3 Rc6 10. O-O Re5 11. De2
Rg6 12. Df2 h5 13. Bb6 Db8 14. Bc5
Rf4 15. Bxf8 Kxf8 16. Re2 Rxe2+ 17.
Bxe2 Ke7 18. a4 Hc8 19. c3 d5 20. e5
Dxe5 21. axb5 axb5 22. Bxb5 Dc7 23.
Rd4 Kf8 24. Bd3 e5 25. Rb5 De7 26.
Db6 Re8 27. Bc2 h4 28. De3 h3 29. g3
d4 30. Dd3 Dc5 31. b4 De7 32. Dh7 Dd7
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ro-
gaska Slatina í Slóveníu. Saimir Shab-
anaj (2120) frá Albaníu hafði hvítt
gegn stórmeistaranum Hannesi Hlíf-
ari Stefánssyni (2562). 33. Rxd4! Hxa1
svartur hefði einnig tapað eftir 33…
exd4 34. Hae1. 34. Hxa1 Hxc3 35.
Dh8+ Ke7 36. Rf5+ Ke6 37. Dxh3!
Dd2 38. Rxg7+ Ke7 39. Rf5+ Ke6 40.
Hd1 og svartur gafst upp enda yrði
hann mát eftir 40…Dxc2 41. Hd6#.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik
Þóra Sig-
urjónsdóttir,
Lækjarbakka,
Gaulverjabæj-
arhreppi, er 80
ára í dag, 18.
október. Í tilefni
af því tekur hún
á móti gestum á
heimili sínu laug-
ardaginn 22. október nk. frá kl. 15.
80 ára